Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.10.2001, Side 102

Strandapósturinn - 01.10.2001, Side 102
Kjartan Guðmundsson frá Naustvík tekur við Reykjarfirðinum er þau Sigríður og Pétur eru farin. Kjartan býr þar svo fram í mars 1954, en þá tekur Guðfinna Guðmundsdóttir úr Naustvík við jörðinni og er þar bóndi í 43 ár. Til bráðabirgða flytja þau að Finnbogastöðum til sonar síns Jóhannesar, er þá er orðinn þar skólastjóri við barnaskólann á Finnbogastöðum. Ekki munu þau hafa unað sér vel í athafna- leysi enda öllu öðru vön. Um haustið er svo ákveðið að þau flyti suður á Hellissand, en þá var ég orðinn þar kaupfélagsstjóri. A haustdögum er svo innbúinu pakkað saman á ný, borið um borð í trilluna á Finnbogastöðum og haldið til Norðurfjarðar þar sem Skjaldbreiðin liggur við festar. Farangri og trillunni kornið um borð. Akkerin eru dregin upp og stefnan tekin út Norðurfjörðinn, Reykjaneshyrnan á hægri hönd, Krossnesið á þá vinstri. Kiossnes, Fell og Munaðarnes koma í ljós og Ofeigs- fjarðarflóin opnast. Allt er þetta þeim gjörkunnugt. Ófeigsfjörð- urinn þar sem Pétur var húsmaður um tíma og átti 60 fjár á fóðr- um ungur og ókvæntur. Þar gekk hann um borð í hákarlaskipið Ófeig til að sækja björg í bú út á kaldann og úfinn Húnaflóann. Drangavíkin kemur í ljós þar sem hann er fæddur og er fluttur tveggja vetra móðurlaus að Dröngum. Drangaskörðin, þessi stór- brotna náttúrusmíð, blasa við á vinstri hönd. Þar átti Pétur ótal ferðir á öllum árstímum í blíðu og stríðu og svo blasa Drangar við þar sem Pétur átti sína æsku, alinn upp undir handaijaðri Guðmundar Péturssonar fóstra síns sem hann mat svo mikils og vitnaði svo oft í. Eyjar, víkur og vogar, hver staður með sínar minningar. Svo opnast Bjarnarfjörðurinn, þar tókst honum einn kaldan vetrardag að krafla sig til lands úr snjóflóði. Þúfurnar og Randafjallið og svo Skjaldabjarnarvíkin sem hann hafði einu sinni átt að hálfu og verið svo leiguliði í 13 erfið en reynslurík ár. Geirhólmsnúpurinn, þetta sérstaka og vinalega fjall, sem virð- ist standa þarna bara til að þóknast einhverjum. Þar barðist hann fýrir lífi sínu á smáskektu í ofsaveðri ásamt Bergi hinum trúa og trygga. Svo kemur Sigluvíkin í ljós og Reykjafjörður, þar bjuggu enn nágrannarnir sem reyndust svo vel, Þarlátursfjörður, Furufjörður, hversu oft var ekki þessi leið farin á árabátum og 100
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.