Strandapósturinn - 01.10.2001, Side 127
Eins og svo oft vill verða hjá ungum mönnum, gleymast oft smá-
atriðin og í þessu tilfelli var smáatriðið „nesti“. Við höfðum
skóflur og vorum annars ágætlega gallaðir.
Þegar við komum norður að Brúará byrjuðu erfiðleikarnir.
Mikill snjór var og við festum bílana hvað eftir annað. Leiðinda
veður var á, kominn norðaustan garri og kalsa veður. Þarna vor-
um við að moka okkur áfram í marga klukkutíma og orðnir
gegnblautir og kaldir. Þegar við komumst norður fyrir Kolbeins-
víkurhraun gátum við einfaldlega ekki meira. Vorum við þá bún-
ir að vera u.þ.b. átta klst. frá því við fórum frá Hólmavík. Þar
sem við félagarnir sátum þarna í bílnum mínum, kallaði ég
gegnum talstöðina, sem var langbylgjustöð, á Finnbogastaði. Ég
lét vita gegnurn stöðina hvar við værum og að við ætluðum að
freista þess að komast fótgangandi til byggða.
Því næst yfirgáfum við bílana og gengum af stað út í nátt-
myrkrið, 6 vindstig og 5° frost. Þegar við komumst við illan leik
upp í miðjan Veiðileysuháls, um miðja nótt, gafst ég upp á göng-
unni og reiknaði með því að dagar mínir væru taldir. Við ákváð-
um að snúa við og reyna að komast í skjól. Neðarlega í Hálsin-
um var bíll sem Hjalti Guðmundsson bóndi í Bæ átti. Við kom-
um bílnum í gang og fengum í okkur langþráðan hita og gátum
hvílt okkur smávegis. Þess má geta að Hjalti hafði gleymt í bíln-
um nokkrum banönum sem við átum, en þeir voru beinfreðnir.
Ég hafði aldrei verið fyrir banana en þessa át ég og smökkuðust
þeir vel. Þökk sé Hjalta í Bæ.
I birtingu daginn eftir, gerðum við okkur grein fyrir því að við
höfðurn farið allt of hátt fyrir ofan veginn um nóttina, þannig að
ákvörðun okkar um nóttina að snúa við, var rétt.
Við lögðum aftur af stað fótgangandi og gátum við nú fylgt
veginum. Þegar við komum yfir í Kúvíkurdal, hittum við Kalla í
Djúpuvík, Karl Hallbertsson, sem hafði lagt af stað frá Djúpuvík
til móts við okkur með smáatriðið sem gleymdist, þegar við fór-
um frá Hólmavík deginum áður. Hann hafði sem sagt með sér
mikið og gott nesti og heitt kaffi sem við gerðurn góð skil. Kalli
kom sömuleiðis með þær fréttir að Lýður bróðir sinn frá Djúpu-
vík hefði farið á báti inn í Veiðilcysuíjörð að leita að okkur.
Við komumst til Djúpuvíkur og gisti ég hjá Elíasi Magnússyni
125