Morgunblaðið - 23.08.2021, Page 1
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Fulltrúar foreldra barna í Fossvogs-
skóla gagnrýna hvernig var staðið að
skoðanakönnun sem Reykjavíkur-
borg sendi á starfsfólk og foreldra
barna í skólanum þar sem þeir voru
beðnir að kjósa um tilhögun skóla-
halds 2.-4. bekkjar á næstu vikum en
mikil röskun hefur verið á skóla-
starfi vegna framkvæmda á húsnæði
skólans eftir að mygla fannst þar ár-
ið 2017.
Er vitað til þess að einstaklingar
sem hafa engin tengsl við Fossvogs-
skóla eða starfið sem þar fer fram
hafi tekið þátt í könnuninni og þar
með haft áhrif á niðurstöðu hennar
en blaðamaður sannreyndi það með
eigin þátttöku.
Efasemdir um lögmæti
Samkvæmt upplýsingum Karls
Óskars Þráinssonar, formanns for-
eldrafélags Fossvogsskóla, komu
fulltrúar skólaráðsins og foreldra-
félagsins efasemdum sínum um lög-
mæti könnunarinnar á framfæri við
bæði skólastjórnendur og Skúla
Helgason, aðalmann skóla- og frí-
stundaráðs Reykjavíkurborgar, en
ekki er vitað til þess að brugðist hafi
verið við þeim efasemdum.
Hvorki náðist í Skúla né Dag B.
Eggertsson borgarstjóra við gerð
fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. Eva Bergþóra Guðbergs-
dóttir, teymisstjóri samskiptateymis
Reykjavíkurborgar, bað um að fá
spurningar blaðamanns skriflega, en
fyrirspurn hafði ekki verið svarað er
Morgunblaðið fór í prentun í gær-
kvöldi.
Í könnuninni var starfsfólki og
foreldrum nemenda við skólann boð-
ið að velja á milli þriggja kosta um
staðsetningu kennslu. Höfðu þau að-
eins sólarhringsfrest til að svara.
Hver sem er gat kosið
um tilhögun skólahalds
- Engin svör hjá borginni um könnun um Fossvogsskóla
MDraga lögmæti ... » 2
M Á N U D A G U R 2 3. Á G Ú S T 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 196. tölublað . 109. árgangur .
KWAME QUEE
SKORAÐI FYRSTA
MARK LEIKSINS
TÍU SÉRVALD-
AR AF HLAÐ-
BORÐI RIFF
AFGANI VAR
STJARNA
HELGARINNAR
KVIKMYNDAHÁTÍÐ 29 HUNDASÝNING HRFÍ 6VÍKINGAR LÖGÐU VAL 26
Mikið blíðskaparveður hefur verið á norðurhluta landsins síð-
ustu daga enda veðrið ávallt gott á Akureyri að mati heima-
manna.
Áfram verður hlýtt í vikunni og gerir Veðurstofa Íslands ráð
fyrir að hitinn fari upp í 23 stig á miðvikudag, þá verður einnig
glampandi sól.
Aðra daga vikunnar kann þó að draga fyrir sólu, en ljóst er að
Norðlendingar geta ekki kvartað undan veðurfari sumarsins.
Enda hafa þeir sloppið við súldina á suðvesturhorninu.
Morgunblaðið/Þorgeir
Akureyringar nutu hitabylgjunnar um helgina
_ Flóttamanna-
nefnd mun að öll-
um líkindum
skila tillögum
sínum varðandi
móttöku flótta-
manna frá Afg-
anistan í dag til
félags- og barna-
málaráðherra.
Stefán Vagn
Stefánsson, for-
maður nefndarinnar, sagði fyrir
helgi að tillögunum yrði skilað fyrir
lok föstudags en að sögn Diljár Mist-
ar Einarsdóttur, sem á sæti í nefnd-
inni, dróst gerð minnisblaðsins á
langinn. Hún gerir þó ráð fyrir að
ráðherra muni leggja minnisblaðið
fyrir ríkisstjórnina á fundi á morg-
un. Í gær fékk íslensk fjölskylda
sæti í danskri flugvél sem flutti
embættismenn og 90 flóttamenn
frá Afganistan. Enn eru nokkrir Ís-
lendingar í Afganistan. »2 & 14
Flóttamannanefnd
seinkar tillögum
Diljá Mist
Einarsdóttir
_ Í nýrri grein-
ingu Samtaka
iðnaðarins er
bent á að sá efna-
hagsbati sem
hefur mátt
greina hér á
landi að undan-
förnu sé brot-
hættur og að það
geti valdið at-
vinnulífinu
skakkaföllum að hækka stýrivexti
við núverandi aðstæður.
Ingólfur Bender, aðalhagfræð-
ingur samtakanna, segir það draga
úr þörfinni á vaxtahækkun að verð-
bólga er þegar á niðurleið og að
kannanir sýni að aðilar á markaði
vænti þess að verðbólga haldi
áfram að lækka á komandi árs-
fjórðungum. Þetta veiti Seðlabank-
anum svigrúm til að styðja við efna-
hagsbatann með því að bíða með
frekari hækkun stýrivaxta. »12
Hækkun stýrivaxta
væri ekki ráðleg
Ingólfur
Bender