Morgunblaðið - 23.08.2021, Page 6

Morgunblaðið - 23.08.2021, Page 6
Margrét Þóra Þórsdóttir maggath61@simnet.is „Það er klárlega styrkur að þekkja stofnunina og hafa unnið sem framkvæmdastjóri undan- farin ár, en það er svo að hverri stöðu fylgja ný verkefni og ég lít á það sem jákvæða áskorun að tak- ast á við ný verkefni í kunnuglegu umhverfi,“ segir Hildigunnur Svavarsdóttir en hún var skipuð forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) á dögunum. Hún tekur til starfa 1. september næstkomandi. Hildigunnur kveðst hafa mik- inn áhuga og metnað til að láta gott af sér leiða og að vinna áfram með góðum hóp starfsmanna SAk. „Ég veit að þetta starf gerir mikl- ar kröfur en það er kappsmál hjá mér að hafa þarfir sjúklinga að leiðarljósi með því að bjóða upp á gæðaheilbrigðisþjónustu sem sinnt er af öflugum og ánægðum hópi starfsmanna,“ segir hún. Sjúkrahúsið á Akureyri gegn- ir lögum samkvæmt ákveðnu hlut- verki, eins og að vera kennslu- sjúkrahús og varasjúkrahús fyrir Landspítala. SAk er einnig mið- stöð sérhæfðrar heilbrigðisþjón- ustu á Norður- og Austurlandi. Heildarvelta sjúkrahússins er um 10 milljarðar króna á ári, 28 millj- ónir króna á dag að meðaltali. Undirbúa nýja legudeild Meðalfjöldi rúma á legu- deildum er rúmlega 100, en Hildi- gunnur segir að einnig fari mjög mikil starfsemi fram í gegnum dag- og göngudeildir. „Við erum með rúmlega 5.000 sjúklinga sem liggja inni á hverju ári og ríflega 10.000 manns fara í gegnum dag- og göngudeildir árlega. Þá hafa komur á bráðadeild verið um 15 þúsund talsins árlega auk fjölda rannsókna sem gerðar eru við stofnunina. Það gefur því auga- leið að starfsemin er yfirgrips- mikil og krefst fjölda sérhæfðs starfsfólks, en hjá SAk starfa að jafnaði um 700 manns,“ segir hún. Húsnæðismál sjúkrahússins eru almennt í ágætum farvegi, en fyrirhugað er að byggja við það nýja legudeild og segir Hildi- gunnur að ötullega sé unnið að undirbúningi í samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins og heilbrigðisráðuneytið. Heilbrigð- isráðherra hafi tryggt ákveðna fjármögnun verkefnisins í fjár- málaáætlun. Mikil samkeppni um starfsfólk „Við hjá SAk leggjum áherslu á aukið vægi göngu- deilda, dagþjónustu og kennslu samhliða þörfum fyrir nýjar legu- deildir í takt við þarfir sam- félagsins,“ segir Hildgunnur sem bætir við að upp og ofan gangi að fá fólk til starfa. „Við þurfum stanslaust að vera á tánum að fá inn sérhæft starfsfólk og megum ekki sofna á verðinum hvað það varðar. Við eigum í mikilli samkeppni við aðrar stofnanir um starfsfólk og þá sérstaklega Landspítala. Við þurfum því að leita leiða til að laða fólk til okkar og í þeim efn- um þurfum við að horfa til starfs- umhverfis og hvernig fólki líður á vinnustaðnum. Hildigunnur segir að fyrir hendi sé einnig metnaður til að vera háskólasjúkrahús og laða þannig vonandi að sérhæft starfs- fólk til stofnunarinnar. Faraldurinn setur mark sitt á starfsemina „Við viljum vera eftirsóknar- verður vinnustaður og það skiptir okkur máli að starfsumhverfi sé þannig að fólkinu líði sem best og sé ánægt í vinnunni. Þannig skilar það sér í góðri þjónustu við þá sem til okkar leita. Okkar markmið er að veita fjölskyldumiðaða gæða- þjónustu með sjúklinginn í for- grunni,“ segir forstjórinn væntan- legi. Kórónuveirufaraldurinn hef- ur sett sitt mark á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri líkt og aðrar heilbrigðisstofnanir en Hildigunnur segir að í heild hafi allt gengið vel með góðu og sam- stilltu átaki allra starfsmanna. „Við höfum þurft að aðlaga okkar starfsemi, draga úr henni, færa starfsfólk á milli eininga og ýmislegt fleira til að allt gangi upp. Við settum upp Covid- legudeild sem tók við smituðum einstaklingum og einnig Covid- göngudeild sem sinnti smituðum sem þurftu stuðningsmeðferð en ekki innlögn. Öll þessi viðbrögð eru til staðar enn í fjórðu bylgju faraldursins og við nýtum þann lærdóm sem dreginn hefur verið af hverjum tíma. Þessi faraldur hefur reynt á alla og alveg sér- staklega nú þegar sumarleyfistími stendur yfir og mannekla er ríkjandi,“ segir Hildigunnur. Hildigunnur Svavarsdóttir er nýr forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri Áskorun í kunnuglegu umhverfi 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra 595 1000 Tenerife ð ge tu rb re ys tá n f r ar a 1. september í 7 nætur Verð frá kr. 49.900 Verð frá kr. 61.300 - Hildigunnur Svavarsdóttir er Akureyringur, fædd árið 1967. Er með stúdentspróf frá MA og BSc-próf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1992. Lauk meistaranámi í heilbrigðisvísindum í Skotlandi árið 1997. Hún bjó um nokkurra ára skeið í Skotlandi. Hefur starfað við Sjúkrahúsið á Ak- ureyri eftir að hún flutti heim frá Skotlandi, bæði sem hjúkrunarfræð- ingur og stjórnandi. - Hildigunnur hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á sjúkrahúsinu nyrðra alls frá árinu 2012 ásamt því að vera klínískur framkvæmdastjóri á bráða- og þróunarsviði frá sama ári. Er gift Ögmundi Knútssyni fiski- stofustjóra. Þau eiga tvö börn og eitt barnabarn og annað væntanlegt í næstu viku. Hver er hún? Stjórnandi Hildigunnur Svavarsdóttir er nýr forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri og tekur við 1. september nk. Morgunblaðið/Margrét Þóra Tvær hundasýningar á vegum Hundaræktarfélags Íslands fóru fram nú um helgina, annars vegar sýningin „Reykjavík Winner“ og hins vegar hin svokallaða Norðurlanda- sýning. „Þetta eru langstærstu sýning- arnar til þessa en við höfum aldrei sýnt jafn margar tegundir áður,“ seg- ir Daníel Örn Hinriksson, formaður HRFÍ, í samtali við Morgunblaðið. Yfir 900 hundar af 100 mismunandi tegundum kepptu í sýningunum tveimur sem vegna fjöldatakmarkana voru haldnar á tveimur mismunandi stöðum, annars vegar á Víðistaðatúni í Hafnarfirði og hins vegar á túni Fáks í Víðidal. Þrátt fyrir metþátttöku og fjölda- takmarkanir gengu sýningarnar „glimrandi vel“ að sögn Daníels. Stjarna helgarinnar var afgan- hundur, Dali, en tegundin á rætur sínar að rekja til Afganistan. Af yfir 900 hundum vann Dali titilinn „best in show“ eða „bestur á sýningunni“ á þessum fyrstu tveimur sýningum HRFÍ á árinu. Berglind Gestsdóttir, eigandi Dali og Valshamarsræktunar, segir sigur helgarinnar gríðarlegan heiður fyrir sig sem ræktanda. „Þetta er staðfesting á því hvað Dali er stórkostlegur fulltrúi tegund- arinnar á Íslandi,“ segir hún. unnurfreyja@mbl.is Stærstu sýningarnar til þessa - Yfir 900 hundar kepptu í sýningum HRFÍ um helgina Ljósmynd/Ólöf Gyða Risten Afgan-hundurinn Agha Djari’s Typhoon/Dali var stjarna helgarinnar en af 900 hundum vann hann titilinn „best in show“ á báðum sýningunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.