Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 Alþingismennirnir Óli Björn Kára- son og Helga Vala Helgadóttir voru gestir Andrésar Magnússonar í Dagmálum Morgunblaðsins í liðinni viku. Þar var rætt um heilbrigðismál, enda ljóst að þau verða fyrirferð- armikil í kosningabaráttunni. Óli Björn fór meðal ann- ars yfir fjárframlög til Landspítalans og benti á að þau hefðu verið 38 milljörðum króna hærri í fyrra en árið 2010. Hluti af því væri launa- og verðlagshækkanir, en 17 milljarðar skýrðust af öðru. - - - Og Óli Björn sagði að spyrja þyrfti í hvað þessir 17 millj- arðar hefðu farið, hvort þeir hefðu farið í að bæta þjónustu, svo sem stytta bið- lista, eða annað af því tagi. Svo bætti hann við að hann teldi vísbendingar um að í það minnsta hluta þessa fjár hefði ekki verið varið með mjög skyn- samlegum hætti. - - - Skrifstofa spítalans hefði á þessu tímabili blásið út og kostaði 4,3 milljarða á ári! - - - Sú gagnrýni sem fram hefur komið á heilbrigðiskerfið á að mörgu leyti rétt á sér. Framleiðni virðist þar of lítil, ekki síst á þjóðarsjúkrahúsinu. Sá vandi verður ekki leystur með auknum fjárframlögum, eins og fulltrúar vinstri flokkanna leggja jafnan áherslu á, heldur með því að fara betur með fé. - - - Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að þó að þjóðin sé ung þá er hún að eldast og með árunum verður enn meiri þörf á heilbrigðisþjónustu. Þá er nauðsynlegt að við höfum lært að nýta vel það fé sem í málaflokkinn fer. Óli Björn Kárason Verðum að nýta fjármunina betur STAKSTEINAR Helga Vala Helgadóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Elín Kona Eddudóttir hefur loksins fengið að taka upp millinafnið Kona eftir tveggja ára baráttu. Manna- nafnanefnd féllst á þetta eftir að um- boðsmaður Alþingis tók málið til um- fjöllunar. Komst umboðsmaður að þeirri niðurstöðu að úrskurður nefnd- arinnar hefði ekki verið samkvæmt lögum. „Þetta er bara lítill sigur, en mér finnst hann samt mikilvægur. Við veljum okkar eigin baráttu og ég ákvað að velja þessa,“ segir Elín en bætir við að Kristbjörg Kristjáns- dóttir hafi lent á sama vegg og hún, nokkrum árum áður. Mannanafnanefnd hafnaði umsókn Elínar um að taka upp millinafnið Kona í maí 2019, meðal annars með þeim rökum að nafnið bryti í bága við íslenskt mál- kerfi. Ári seinna komst umboðs- maður Alþingis að því að nefndin hefði ekki lagt fram viðhlítandi grundvöll að ákvörðun sinni í málinu. Var málið því endurupptekið og komst manna- nafnanefnd að þeirri niðurstöðu að El- ín skuli fá að bera nafnið. Einn skilaði sératkvæði í málinu og taldi eiginnafnið brjóta í bága við ís- lenskt málkerfi. Auk þess væri merk- ing nafnsins Kona „kvenmaður á ákveðnum aldri“ og gæti það orðið nafnbera til ama ef um væri að ræða barn sem fengi nafnið. Sama er þó uppi á teningnum hvað varðar eiginnafnið Karl – sé „karl“ flett upp í orðabók sést að merking þess er karlmaður, gamall maður, eig- inmaður eða almúgamaður. Kona fyrst til að heita Kona - Við veljum okkar eigin baráttu, seg- ir Kona sem lagði mannanafnanefnd Elín Kona Eddudóttir Flugsvið rannsóknarnefndar sam- gönguslysa (RNSA) hefur orðið vart við óvenjumörg flugslys og al- varleg flugatvik hjá atvinnuflug- mönnum í einkaflugi undanfarin ár. RNSA beinir nú þeim tilmæl- um til atvinnumanna í einkaflugi að þeir hugi að flugöryggi og hviki hvergi frá notkun á gátlistum, fylgi verkferlum og faglegum vinnu- brögðum. Þetta kom fram í skýrslu sem RNSA gaf nýverið út um flugslysið sem varð þann 27. júlí 2019 á flug- vellinum á Haukadalsmelum á Rangárvöllum. Brotlenti þar flug- vél, TF-CRZ, eftir flugtak með þeim afleiðingum að flugmaðurinn lést 64 ára að aldri vegna fjöl- áverka sem hann hlaut í slysinu. Segir í skýrslunni að flugmað- urinn hafi ekki framkvæmt full- nægjandi fyrirflugsskoðun á vél- inni samkvæmt gátlista og ekki hugað að því hvort stýripinni væri laus og réttur. Hafði flugmaðurinn nýlokið flugi í annarri flugvél og læsti ekki stýrum þegar hann gekk frá þeirri flugvél í ljósi þess að annar flugmaður átti að fljúga henni strax á eftir. RNSA kallar nú eftir að Sam- göngustofa gefi út leiðbeinandi efni um frágang og notkun stýrislæs- inga í loftförum sem notuð eru í al- mannaflugi. Beina þeir einnig þeim tilmælum til eigenda flugvéla sem notaðar eru í almannaflugi á Ís- landi að þeir yfirfari flugvélar sín- ar með tilliti til þess hvort að stýr- islæsing sé um borð í flugvélum þeirra og geri viðeigandi ráðstaf- anir ef sætisbelti eru notuð sem stýrislæsing. hmr@mbl.is Alvarleg flugatvik færst í aukana - RNSA kallar eftir því að hugað sé betur að flugöryggi Skýrsla RNSA hvetur til faglegra vinnubragða og flugöryggis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.