Morgunblaðið - 23.08.2021, Síða 10
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Skipulagðar bólusetningar barna, 12
ára og eldri, hefjast í dag í Laugar-
dalshöll og er búist við að ríflega tíu
þúsund börn geri sér ferð í Laugar-
dalinn í dag og á morgun. Telja marg-
ir þetta jákvætt
skref í faraldrin-
um þar sem börn
og unglingar fá
loksins vernd í
formi mótefna
gegn þeirri veiru
sem herjar nú á
samfélagið. Aðrir
eru þó tortryggnir
gagnvart þessari
ákvörðun og telja
sóttvarnaryfirvöld
fara heldur geyst í að bólusetja börn í
ljósi takmarkaðra rannsókna þess
efnis.
„Við leggjum til að farið sé varlega í
fulla bólusetningu hjá börnum. Það er
afar mikilvægt að foreldrar og ein-
staklingar gefi upplýst samþykki og
fái viðhlítandi upplýsingar varðandi
ávinning og hættu af bóluefnum,“
segir í aðsendri grein hjartalæknanna
Sigfúsar Örvars Gizurarsonar og
Kristjáns Guðmundssonar sem birtist
í Morgunblaðinu á laugardag.
Í greininni segja þeir ekki öruggt
að ávinningur af bólusetningunum
vegi þyngra en mögulegar aukaverk-
anir í ljósi þess að kórónuveirusýking
leggst að jafnaði ekki jafn þungt á
börn eins og fullorðna. Segir meðal
annars í greininni: „Það er mikil mildi
að kórónuveiran er mun vægari hjá
yngstu kynslóðunum og er um 1.000
faldur munur á líkum á alvarlegum
veikindum milli yngstu og elstu ald-
urshópa.“
Taka þeir þá einnig fram að heil-
brigð börn án alvarlegra, undirliggj-
andi sjúkdóma séu í afar lítilli hættu á
að veikjast alvarlega í kjölfar kórónu-
veirusýkingar. Hins vegar hafi ung-
menni á Íslandi greinst með hjarta-
vöðvabólgu og bólgu í gollurshúsi eftir
bólusetningar. Taka þeir fram að þó
einkenni og sjúkdómar geti virst væg-
ir þá geta slíkir sjúkdómar valdið var-
anlegum skaða á hjartavöðvanum.
Komi full áhrif oft ekki fram fyrr en
að mörgum árum liðnum.
Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir á
Barnaspítala Hringsins, segir gagn-
rýni Sigfúsar og Kristjáns í greininni
ekki nægilega vel rökstudda. Ásgeir
tekur fram að aukaverkanir á borð við
bólgu í hjartavöðva séu afar fátíðar og
tekur hann fram að aukaeinkenni kór-
ónuveirusýkingar meðal barna séu
mun þekktara fyrirbæri. Eru þau
jafnframt mun algengari og alvarlegri
heldur en aukaverkanir bólusetning-
ar.
Morgunblaðið falaðist eftir við-
brögðum sóttvarnalæknis og land-
læknis varðandi þessa umræðu en
engin svör fengust.
Læknar ekki einhuga
um bólusetningu barna
- Ásgeir segir gagnrýni hjartalækna skorta rökstuðning
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetningar Ásgeir segir aukaeinkenni kórónuveirusýkingar meðal
barna mun alvarlegri og algengari en aukaverkanir bólusetninga.
Ásgeir
Haraldsson
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021
Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin.
Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi.
Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi.
Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn.
FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI
HEYRNARÞJÓNUSTAHLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600
NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI
MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM
NÝ TÆKNI
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Í gær fór síðasta messa sumarsins
fram í gömlu Árbæjarkirkju. Í tilefni
hennar ræddi séra Kristinn Ágúst
Friðfinnsson við kirkjugesti um sjón
og trú og var meginkjarni málsins sá
að fólk sér það sem það trúir og
hugsi maður jákvætt skili það sér
oftast í jákvæðri sýn á lífið.
Með Kristni voru orgelleikarinn
Sigrún Steingrímsdóttir, sem
stjórnaði söngnum, og Bára Gríms-
dóttir tónskáld, sem tók lagið. Að
sögn Kristins var mætingin óvenju
góð og var næstum hvert einasta
sæti upptekið. „Ég hef það sem
reglu að ég er aldrei með skrifaða
ræðu í þessari kirkju, ég tala bara
persónulega og án blaða. Ég reyni
líka að hafa þetta stutt og einfalt.
Það á ekki að vera kvöð að koma í
messu, fólki á að finnast gaman.“
Kristinn segir kirkjuna og um-
hverfið á Árbæjarsafninu minna á
aðra veröld. Hefur hann messað í
kirkjunni í meira en þrjá áratugi og
segir hann ekkert jafnast á við þessa
einföldu og hógværu kirkju. „Hún er
svo lítil og látlaus, það skapast svo
mikil nálægð. Maður gengur inn í
gamlan tíma þegar maður kemur
inn. Ég myndi segja að þetta væri
bara eins og örlítið, vel varðveitt
leyndarmál, þeir sem hafa komist
upp á lag með að nýta þessa undra-
veröld eru bara heppnir.“
Ljósmynd/Kolbeinn Karl Kristinsson
Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson segir stærðina og einfaldleikann í gömlu
Árbæjarkirkjunni skapa persónulegt og náið andrúmsloft.
Engin kvöð að
koma í messu
- Síðasta messa sumarsins í gær