Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 12

Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 12
Óráðlegt að hækka stýrivexti nú viku stýrivexti til að spyrna gegn yfirstandandi verðbólguskoti. Verð- bólga tók að hækka um mitt síðasta ár og fór hæst í 4,6% í apríl á þessu ári en SI benda á að frá því í apríl hafi verðbólga farið lækkandi auk þess sem kannanir sýni að aðilar á markaði vænti þess að verðbólga haldi áfram að fikrast nær verð- bólgumarkmiðum á komandi árs- fjórðungum. Ingólfur Bender er aðalhagfræð- ingur SI og segir hann að þeir kraftar sem hafi ýtt verðbólgu upp að undanförnu séu að hluta utan við áhrifasvið Seðlabankans: „Heims- markaðsverð á ýmsum hrávörum hefur verið á uppleið og t.d. olía hækkað verulega. Bendir margt til að um tímabundin áhrif sé að ræða og hefur m.a. verðhækkun á timbri gengið til baka að miklu leyti. Áhrif gengislækkunar krónunnar í kór- ónuveirufaraldrinum eru líka enn að koma fram í verðlagi, og þá hafa launahækkanir á vinnumarkaði átt sinn þátt í verðbólguþróuninni. Loks hefur dregið úr hækkun hús- næðisverðs, m.a. vegna vaxtahækk- unar Seðlabankans í maí og breyt- inga á reglum um veðsetningarhlutfall fasteigna.“ Búum enn við töluverða óvissu Óttast Ingólfur að hækkun stýri- vaxta nú myndi hafa íþyngjandi áhrif á atvinnulífið á mjög við- kvæmum tímum. Í greiningu SI segir að hagvísar sýni að hagkerfið VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Samtök iðnaðarins birtu í morgun greiningu þar sem lagst er gegn því að Seðlabankinn hækki í þessari sé tekið að rétta úr kútnum eftir skakkaföll kórónuveirufaraldursins og dregið hafi úr atvinnuleysi. Efnahagsbatinn sé samt brothættur og staða margra fyrirtækja slæm eftir niðursveiflu undanfarinna missera. Eftirspurn hafi tekið við sér en sé ekki komin á sama stað og áður og skuldastaðan víða erfið. Þá hafi nýtt og bráðsmitandi afbrigði kórónuveirunnar aukið óvissu um efnahagsframvinduna. „Og sú staðreynd að lang- tímavæntingar markaðarins um verðbólguhorfur eru í takt við verð- bólgumarkmið Seðlabankans sýnir að peningastefnunefnd hefur svig- rúm til að taka meira tillit til þess að styðja við efnahagsbatann með því að bíða með frekari stýrivaxta- hækkun,“ segir Ingólfur en næsti vaxtaákvörðunardagur er á mið- vikudag, 25. ágúst. Á fundi nefnd- arinnar í maí var ákveðið að hækka stýrivexti úr 1% í 1,25% og má greina af fundargerð að meðlimir nefndarinnar vildu stíga varlega til jarðar. „Þurfum að vaxa upp úr lægðinni“ Aðspurður hvort ríki og sveitar- félög gætu notað sín tæki til að hjálpa Seðlabankanum að draga úr verðbólguþrýstingi segir Ingólfur að SI hafi lengi bent á þörfina á því að peningastjórnunin og opinber fjármál gangi í takt. Segir hann að SI hafi bent á fjölmargar aðgerðir í þessum málum. Eitt af því hafi ver- ið að laga þurfi framboðshlið fast- eignamarkaðarins og að sveitar- félögin dragi lappirnar þegar kemur að því að tryggja að framboð nýbygginga sé í samræmi við eftir- spurn, með tilheyrandi verðhækk- unaráhrifum. „Stjórnvöld þurfa að hafa það hugfast nú að við getum ekki skattlagt okkur upp úr þeim áföllum sem atvinnulífið varð fyrir í faraldrinum heldur þurfum við að vaxa upp úr lægðinni. Þar höfum við úrræði á sviði nýsköpunar, menntunar, innviða og fleiri þátta sem styrkja starfsumhverfi fyrir- tækja. Höfum við m.a. bent atriði á borð við að lækkun trygginga- gjaldsins sem myndi ýta undir at- vinnusköpun. Miklu skiptir að for- gangsröðunin sé rétt og áhersla lögð á þær aðgerðir sem líklegastar eru til að örva hagvöxt.“ Bati Ingólfur Bender segir verð- bólgu þegar á niðurleið. - SI segja efnahagsbatann að undanförnu vera brothættan og að hærri stýrivextir geti m.a. bitnað á fyrirtækjum sem glíma við erfiða skuldastöðu 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Stutt er síðan lífleg umræða spannst um vinnubrögð og rekstur samskipta- deildar Landspítalans. Var tilefnið óheppilega orðað bréf sem stjórnandi deildarinnar sendi stjórnendum spít- alans og baðst síðar afsökunar á. Ingvar Örn Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri almannatengslafyrir- tækisins Cohn & Wolfe á Íslandi, segir fleira athugavert við málið og að það veki upp spurningar hvort hið opinbera mætti ekki nýta sér þjón- ustu utanaðkomandi aðila frekar en að starfrækja stórar samskiptadeild- ir hjá hinum ýmsu stofnunum. Segir hann samskiptamál Landsbankans gott dæmi því miðað við þær tölur sem hafi komið fram í umræðunni er hæpið að stofnunin hafi mikinn ábata af núverandi fyrirkomulagi. „Í fréttum hefur verið nefnt að samskiptadeild Landspítalans velti um 100 milljónum króna á ári og er það í námunda við veltu sumra sjálf- stæðra almannatengslafyrirtækja sem eru þó með tugi viðskiptavina og samanlagt mun fleiri verkefni en samskiptadeild spítalans. Bara út frá þessum upphæðum ætti að vera ljóst að almannatengslafyrirtæki ættu að geta sinnt sömu vinnu með mun hag- kvæmari hætt,“ segir Ingvar. Spurður hvað gæti valdið þessum mikla mun í skilvirkni segir Ingvar að almannatengslastofur njóti iðu- lega góðs af stóru tengslaneti og eins því að ólíkir viðskiptavinir hafa hlið- stæð vandamál sem leysa má með svipuðum hætti. Þá hafi einkaaðilar sem ráðnir eru í verktöku mun sterkari hvata til að tryggja að verk- kaupi fái sem mest fyrir peninginn. Stefna sem veikir atvinnulífið Ingvar segir að sama lögmál eigi við um flesta þá þjónustu sem hægt er að fá aðkeypta frekar en að vinna innanhúss hvort heldur hjá fyrirtæki eða stofnun. „Það er eðlilegt að hafa áhyggjur af þeirri þróun sem virðist vera að eiga sér stað þar sem æ meira af alls kyns þjónustu og ráð- gjöf er tekið inn í rekstur stofnana frekar en að nýta krafta sjálfstæðra sérfræðinga á markaði. Getur þetta ekki aðeins þýtt minnkaða skilvirkni og þar með aukinn kostnað, heldur er með þessu verið að veikja atvinnu- lífið og draga úr þeirri samvirkni og uppsöfnun þekkingar sem á sér stað þegar einkafyrirtæki eiga þess kost að þjónusta fjölda stofnana og fyrir- tækja úr ólíkum áttum. Sú þekking og reynsla sem verður til hjá tiltek- inn deild stofnunar ratar sjaldan út fyrir veggi deildarinnar, ólíkt því sem gerist þegar þjónustan er keypt utan frá.“ Bendir Ingvar á að skynsamlegast geti verið að hafa einn starfsmann, eða lítinn hóp starfsmanna innan- búðar sem síðan styðjast við ráðgjöf utanaðkomandi aðila, og gildi þá einu hvort um er að ræða almannatengsl, hugbúnaðarmál, bókhaldsvinnu eða lögfræðistörf, svo nokkur dæmi séu nefnd: „Starfsmennirnir þekkja þá reksturinn í meiri smáatriðum en nýta utanaðkomandi þjónustu til að leysa afmörkuð verkefni eða til að veita nýja sýn á málin.“ Segir hann að verði að varast það alveg sérstaklega að heilu deildirnar verði til í kringum störf sem aug- ljóslega má útvista og má þar aftur vísa til reynslu Landspítalans: „Þeg- ar búið er að ráða fólk til starfa getur stundum komið upp sú staða að allt of margar hendur eru til að vinna þau verk sem vinnustaðurinn þarf sannarlega á að halda. Þá er hætt við að alls kyns gæluverkefni byrji að skjóta upp kollinum, þ.e.a.s. að starfsfólkið fari að búa til vinnu fyrir sjálft sig til að réttlæta eigið starf. Þannig hélt t.d. samskiptadeild Landspítalans úti hlaðvarpsþætti á sínum tíma sem deilt var um að þörf væri fyrir eða mikið gagn af,“ út- skýrir Ingvar og segir þetta lögmál eiga við um alla vinnustaði: „Þessi munur er alltaf fyrir hendi þegar við höfum möguleikann á aðkeyptri að- stoð annars vegar og fjölgun stöðu- gilda hins vegar.“ Þurfa allir að hafa grafískan hönnuð Að mati Ingvars gæti það verið gæfuspor ef væru hreinlega settar reglur sem knýja opinberar stofnan- ir til að kaupa faglega ráðgjöf og vinnu frá fyrirtækjum landsins frek- ar en að reka sínar eigin deildir í kringum alls kyns verk. Reglur um opinber innkaup ættu t.d. að taka til þess að verkefni á borð við þau sem eru á borði samskiptadeildar séu ein- faldlega boðin út, enda eru upphæð- irnar slíkar. Nefnir Ingvar sem aug- ljóst dæmi um að eitthvað sé bogið við núverandi fyrirkomulag að hjá velflestum ríkisstofnunum megi í dag finna grafískan hönnuð. Tiltekur hann annað nýlegt dæmi þar sem upp komst að frekar en að bjóða verkið út hyggist Reykjavíkurborg ráða til sín marga tugi forritara til að sinna „tímabundnu“ verkefni á sviði stafrænnar þróunar. „Að knýja á um útvistun myndi leiða til sparnaðar í rekstri hins opin- bera og setja þrýsting á stofnanir um að beita faglegri nálgun við að leysa hin ýmsu viðfangsefni auk þess sem það viðheldur þekkingarsköpun sem nýtist fleirum í samfélaginu en bara stofnunum. Eitthvað verður að gera í þessu, meðal heildarlaun hins opinbera eru 100 þúsund krónum hærri en hjá einkageiranum þar sem verðmætasköpunin fer fram.“ Innvistun verkefna áhyggjuefni Morgunblaðið/Árni Sæberg Afkastamunur „Í fréttum hefur verið nefnt að samskiptadeild Landspít- alans velti um 100 milljónum króna á ári og er það í námunda við veltu sumra sjálfstæðra almannatengslafyrirtækja sem eru þó með tugi við- skiptavina,“ segir Ingvar um nýlegt dæmi úr fréttum. - Stofnanir hins opinbera virðast gjarnar á að fjölga stöðugildum og jafnvel setja heilu deildirnar á laggirnar þegar skynsamlegra og hagkvæmara væri að kaupa þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga 23. ágúst 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.0 Sterlingspund 174.22 Kanadadalur 99.14 Dönsk króna 20.089 Norsk króna 14.094 Sænsk króna 14.467 Svissn. franki 139.46 Japanskt jen 1.1672 SDR 181.24 Evra 149.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.9866

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.