Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 19

Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 ✝ Gísli Reginn Pétursson fæddist í Reykjavík 27. júní 1995. Hann lést 7. ágúst 2021 á heimili sínu í Reykjavík. Foreldrar Gísla eru Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir myndlistarkona, f. 19. janúar 1974, og Pétur Sigurðsson verktaki, f. 30. október 1971. Systir Gísla er Matthildur námi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og Menntaskólanum við Hamrahlíð. Á sumrin vann hann ýmis skapandi störf, m.a við heimildamyndagerð, smíðar og listviðburði. Þá var hann eitt sumar í Götuleikhúsinu og ann- að sem sjálfboðaliði á vegum Al- þjóðlegra ungmennaskipta í Lettlandi. Gísli nam við Lunga- skólann á Seyðisfirði. Hann gerði alla tíð stuttmyndir og víd- eóverk og var vídeóverk eftir hann sýnt í Listasafni Reykjavík- ur 2015. Útför Gísla fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 23. ágúst 2021, klukkan 13. Streymi frá útför: https:// youtu.be/kQJoKXHnSM4 Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Edda Pétursdóttir, f. 6. nóvember 1997, dóttir Berglindar Elínar Davíðs- dóttur, f. 30. nóv- ember 1970, og Pét- urs Sigurðssonar. Gísli ólst upp hjá móður sinni í Reykjavík og eitt ár í Vínarborg. Á menntaskóla- árunum sótti hann námskeið í nútímadansi, leiklist og kvikmyndagerð samhliða Hvar urðu dagar Gísla veðrinu að bráð? Ljóðið Söknuður eftir Jóhann Jónsson kemur ósjálfrátt upp í hugann. Deyjandi skáldið fer yfir líf sitt með spurningunni: hvar? En hér verður farið yfir líf Gísla með: Hvað ef …? Hvað ef hann hefði? Ef við hefðum …? Það má endalaust brjóta heilann um hvernig líf hans hefði orðið ef … Hvað um ljóðin sem þutu um blóðið frá draumi til daums? Gísli hafði þrotlausa hæfileika. En hann fann þeim ekki farveg, í það minnsta ekki í alfaraleið. Þegar hann var fimm ára var hann ósigrandi í „Frúnni í Hamborg“ eftir að hafa fundið töfraorðin „vitaskuld“ og „óekkí“. Gagnað- ist það honum síðar á lífsleiðinni? Hvað ef það teldist álíka mik- ils virði að vera stærðfræðiséní eða heilaskurðlæknir og að geta talað jafn hratt aftur á bak sem áfram. Óllah ifa óllah amma, gin- revh ðifah ðiþ aðþ í gad? Hann var óvanalega næmur á fólk. Hann gat hermt eftir því svo nákvæmlega að hann varð að þeim einstaklingi sem hann tók fyrir, ekki bara að hann næði röddinni eða einhverjum áber- andi töktum, heldur persónu- leika hans og nærveru. Hann náði sálinni. Hvað ef hann hefði náð inn í Leiklistarskólann? Inntökupróf- ið fólst m.a. í því að fara með texta. Hann valdi eintal eftir El- ísabetu Jökulsdóttur. „Við bíðum, við höldum alltaf áfram að bíða. Það er það eina sem við hættum aldrei. Við verð- um að skjóta okkur til að hætta að bíða.“ Hann hefði orðið svo góður leikari eða kvikmyndagerðar- maður eða læknir, eða loftbelgs- smiður eða … En Gísli beið. Eftir hverju ertu að bíða ? spurði afi hans. – Ég er að bíða eftir því að lífið komi til mín, svaraði Gísli. – Lífið er að bíða eftir þér, sagði afinn. Hann lagði honum lífsreglurn- ar og gaf honum góð ráð. – Jú afi minn, þetta er hárrétt hjá þér. Ég mun taka það til greina. Takk fyrir að benda mér á það. Þar með var það útrætt mál. En það var aldrei útrætt mál þegar hann hélt því fram að efnin sem hann væri nýbúinn að upp- götva gerðu honum gott, að þau opnuðu fyrir honum nýjan heim þar sem vinirnir biðu hans í röð- um. Þegar hann kom og tilkynnti að hann ætlaði á Vog, að það væri staðurinn sem hefði beðið eftir honum, staðurinn þar sem hann fyndi sjálfan sig, og síðan miðla af reynslu sinni öðrum til góðs. Hann hlakkaði til að takast á við sjálfan sig, en það reyndi aldrei á það. Hann útskrifaði sig sama dag og hann kom. „Svo höldum vér leið vorri áfram, hver sína villigötu, hver í sínu eigin lífi vegvilltur, fram- andi maður.“ Daginn áður en hann dó talaði hann við afa sinn í síma og sagði honum að hann þyrfti ekki í með- ferð, hann gæti alveg hætt hjálp- arlaust, hann væri ekki kominn það djúpt, enda bara þrír mán- uðir frá því hann byrjaði fyrir al- vöru. Hann ætlaði að hætta fyrsta september, en fyrst vildi hann klára það sem hann ætti heima. Þennan sama dag sá amman hvar hann stikaði ákveðinn niður Laugaveginn, yfir á Lækjargöt- una og framhjá glugganum þar sem hún sat. Hann var í leður- jakkanum sem hún gaf honum nýlega. Glæsilegur ungur maður með allt lífið fram undan. Hann gekk svo nálægt glugganum að hún hefði getað snert hann ef rúðan hefði ekki verið á milli. Hann horfði einbeittur fram á veginn, vissi greinilega hvert hann var að fara, það var eft- irvænting í svip hans. Svo hvarf hann fyrir hornið. Ingibjörg Hjartardóttir, Ragnar Stefánsson. Elsku hjartans vinur. Svo skerandi sárt að kveðja þig svo ungan og fallegan. Þú sast á tröppunum á Skólavörðustígnum, hárið sítt og ljóst sem blakti fal- lega og brosið bæði feimið og blítt. Minnti mig á þegar ég hitti mömmu þína í tröppunum á Óð- insgötu árið 1979, hún með sama kúnstuga kímna en samt feimna bros. Þú heilsaðir okkur með virktum, fullorðinslegur og allt að því hátíðlegur, enda var veisla í vændum. Úlfur og Freyja heill- uðust strax af þessum veraldar- vana unga manni, sem sýndi þeim mikinn áhuga, lék og grúskaði með þeim báðum. Þarna upphófst ferðalag. Ferðalag æskuvin- kvenna og ykkar – okkar unga fólks. Þú varst uppspretta ævin- týra, alltaf hress og hugmynda- ríkur sagði Freyja. Hún leit svo upp til þín og dáði að enn á hún í fórum sínum bangsa sem hún skírði Gísla í höfuð á þér. Bjartur, fagur og fróðleiks- þyrstur, það varst þú. Og þú varst örlátur að deila þeirri fróðleiks- fýsn eða kannski var hún líka smitandi. Þú varst umhyggjusam- ur og kærleiksríkur við þessi ungu systkin sem þarna komu eiginlega óforvarendis inn í líf þitt. En þú varst fljótur að átta þig á djúpri vináttu tveggja mæðra enda hafa þeirra leiðir ekki slitnað síðan okkar kynni þarna á tröppunum á Skólavörðu- stígnum hófust. Þarna upphófst nefnilega ferðalag okkar allra. Leiðir liggja saman, fara stundum hvor í sína áttina en leita alltaf uppi meðvitað eða ómeðvitað leiðina sem við eigum að fara saman. Við áttum að verða samferða um stund. Sú stund var yndisleg. Þegar þú samkjaftaðir ekki í nýársboði uppáklæddur með fínan hatt, spenntur fyrir nýju ári og spur- ull. Svo áhugasamur um fólkið í kringum þig og svo fallega um- lykjandi. Þegar þú komst glað- hlakkalegur til að passa krakk- ana, borða pítsu og horfa með þeim á mynd. Þegar þú komst með okkur í Flatey með það hlut- verk að passa, leika og gefa að borða. Fórst með Úlfi í ævintýra- ferðir að stríða kríum og vaða út í sjó, labba með Freyju út á brennu, hirða spýtur og negla. Þau voru dugleg að kýta og þrátta, þín þolinmæði var enda- laus. Ég var alltaf dolfallin yfir þessum eiginleika. Mér þótti vænt um að þú leit- aðir til mín þegar þú sjálfur varst á krossgötum. Okkar síðasta símtal snemmsumars snerist um framtíðardrauma. Fara í nám. Hvernig því yrði nú best háttað, hvað væri best að gera og hvern- ig væri nú best að snúa sér í þessu öllu. Og þín síðustu skila- boð sýndu svo vel þína væntum- þykju fyrir okkur öllum. Því mið- ur hafðirðu ekki tök á að koma í stúdentsveislu Freyju en skila- boðin voru skýr: „Til hamingju með Freyju! Þú mátt skila kveðju frá mér til hennar.“ Þegar maður ferðast um lífið þá skiptir það máli hvern maður leiðir og hver leiðir mann. Ég vona að mín hönd hafi skipt þig máli því að þín skipti okkur svo sannarlega máli. Elsku hjartans Gísli. Við erum svo full af þakklæti fyrir að hafa valið þessa sömu leið og þú og fengið að verða þér samferða um stund. Nú tekur við annað æv- intýr í sumarlandinu, einhvers staðar sunnan yfir sæinn breiða. Sjáumst þar. Þín Lísa, Úlfur, Freyja og Hallgerður. Vel sé þér, vinur, þótt vikirðu skjótt Frónbúum frá í fegri heima. Ljós var leið þín og lífsfögnuður, æðra, eilífan þú öðlast nú. (Jónas Hallgrímsson) Þann 6. ágúst kvaddi Gísli Reginn Bryndísarson, einn af bestu vinum mínum heiminn. Hann var 26 ára og var mér eins og bróðir. Gísli fylgdi mér í gegn- um flestöll árin mín, þrátt fyrir að þau hafi ekki náð þeim fjölda sem að ég hefði viljað njóta með honum. Á þessari alltof stuttu ævi hans þá sönkuðum við að okkur endalausum minningum. Fyrst þegar hann bjó uppi á Skólavörðustíg og við fífluðumst út um öll Þingholt til og frá. Einnig þegar við vorum úti á Tryggvagötu hjá Imbu og Ragn- ari og svo auðvitað fyrir norðan í kæra Svarfaðardalnum okkar. Okkur tókst að gleðja og ergja hvor annan alveg endalaust þeg- ar við vorum krakkar. Hjöri sagði: „þið eruð nú ljótu kallarn- ir“ er við kveiktum í kofum, laumuðumst í áfengi í veislu á Rimum, reyktum vindla og urð- um veikir. Gísli vinur minn var alltaf til staðar fyrir mig sama hvað bjátaði á, það skipti engu máli ef við vorum fúlir út í hvor annan eða ekki. Ég man þegar ég lenti í hryllilegu áfalli í kringum 18 eða 19 ára aldur. Þá höfðum við Gísli ekki talast við í smá tíma en það var eins og hann hefði fengið hugskeyti og var bara mættur til mín á Akureyri til að tengjast aftur gömlum vini. Stuttu eftir það flutti ég til Reykjavíkur og við urðum aftur óaðskiljanlegir. Elsku Gísli var matar „gour- mand“ alveg frá blautu barns- beini, enda man ég þegar við hlupum út í krambúð sem tveir litlir pollar. Í stað þess að kaupa nammi þá keyptum við brauð, ost, smjör og túnfisk og kjöms- uðum á því með bestu lyst. Seinna tók við hið svokallaða „Ragnarsgums“ sem að Ragnar afi hans eldaði stundum fyrir okkur og okkur þótti svo gott. Reglulega mun ég græja Ragn- arsgums fyrir mig og mína og minnast hans Gísla. Tónlist var líka alltaf mikill þáttur í lífi Gísla. Hann átti þátt í því að kynna mér electro og þýskt þungarokk þeg- ar við vorum börn og gat setið og kynnt sér tónlist langt fram á nótt í gegnum ævi sína. Hann elskaði að fara á tónleika, ófáum sinnum fórum við vinirnir saman á Airwaves og eyddum miklum tíma í að finna álíka upplifun um allan bæ. Svo hafði Gísli dálæti á leik- list og kvikmyndum, ég veit ekki hve oft við horfðum á Star Wars eða Lord of the Rings saman, alltaf var jafn gaman. Í rauninni elskaði Gísli list alla tíð, sama í hvaða formi hún var. Ég held að það sé ekki hægt að útskýra hve mikill missir það er að kveðja hann Gísla svona snemma. Það er svo sárt að missa svo mikinn vin og næstum uppeldisbróður. Hann mun ávallt lifa í hjarta mínu í gegn- um tónlistina sem við hlustuðum á saman og í gegnum allar minningarnar sem voru yndis- legar langflestar. Ég mun alltaf skála fyrir honum. Gísli minn. Dreymi þig ljósið, elsku bróðir. Sofðu rótt. Finnbogi Jónsson. Treystu náttmyrkrinu fyrir ferð þinni heitu ástríku náttmyrkrinu Þá verður ferð þín full af birtu frá fyrstu línu til þeirrar síðustu orti Sigurður Pálsson í ljóði sínu Náttmyrkrið. Með ljóðinu kveðjum við frænda okkar Gísla Regin sem féll frá við þröskuld fullorðinsáranna. Harmurinn er algjör. Minning um fallegan dreng lifir. Kristína Ragnarsdóttir og fjölskylda. Gísli Reginn Pétursson ✝ Bertha Svala Bruvik fæddist í Reykjavík þann 3. maí 1944. Hún lést á Kristnesspítala í Eyjafirði 11. ágúst 2021. Foreldrar henn- ar voru Sverrir Bruvik, f. 16. júlí 1918, d. 7. desem- ber 1959, og Sigríð- ur Anna Jensen, f. 30. desember 1921, d. 7. janúar 1968. Systkini hennar voru Jó- hanna Kristín, f. 19. mars 1938, Simonette, f. 10. febrúar 1943, Kristín Anna, f. 22. desember 1949, Karl Smári, f. 24. október 1954, Margrét, f. 29. júní 1956, og Guðrún, f. 16. mars 1958, d. 12. maí 1958. Bertha kvæntist 9. janúar 1966 Jóhannesi Þór Her- mannssyni, kennara frá Syðra- Kambhóli, f. 26. mars 1935, d. 15. september 2014, þau skildu síðar. Börn þeirra eru: 1) Sverr- vetur í Bragholti þar sem hún hóf kennslu við Hjalteyrarskóla. Síðar hlaut hún kennsluréttindi frá Kennaraskóla Íslands. Fljót- lega við komuna norður kynnt- ist hún Jóhannesi og hófu þau búskap fyrst á Syðsta-Kambhóli en bjuggu síðar í Hjalteyrar- skóla þar sem hún var kennari til ársins 1989 eða allt þar til skólinn var lagður niður. Þá fluttist hún til Akureyrar og kenndi lengi vel í Glerárskóla og víðar. Á Berthu hlóðust umfangs- mikil félags- og trúnaðarstörf og liggja spor hennar víða. Hún var umsjónarmaður fyrir barna- stúkuna Hjalteyrarblómið, fé- lagi í kvenfélaginu Freyju og samfrímúrarareglunni, sinnti ýmsum kirkjustörfum og var tónlistar- og kórastarf líf henn- ar og yndi. . Bertha hélt ótal námskeið þar sem listin réð ríkjum enda var hún mjög list- feng. Hún saumaði ófáa þjóð- búninga og kenndi þjóðbún- ingasaum til margra ára. Útför Berthu fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag, 23. ágúst 2021, kl. 13. Jarðsett verður í Möðru- vallaklausturskirkjugarði í Hörgárdal. ir, f. 11. júlí 1966, kvæntur Guðrúnu Birgisdóttur, f. 4. október 1967, og eiga þau 3 börn, Birgi, f. 25. nóv- ember 1992, Berthu Sóleyju, f. 26. maí 1999, og Brynjar Þór, f. 14. september 2005, 2) Hermann Þór, f. 31. maí 1968, sam- býliskona hans er Lone Nielsen og á hún 2 börn, Manitsiaq Niel- sen, f. 21. mars 1997, og Freyju Stefánsdóttur, f. 4. janúar 2002, og 3) Anna Guðrún, f. 10. janúar 1971, kvænt Hjalta Ben Ágústs- syni, f. 1. október 1963, og á hún 2 dætur, Önnu Jónu, f. 25. októ- ber 1999, og Þóru Björgu, f. 12. október 2004. Eftir gagnfræðipróf vann hún við umönnunarstörf á Landakoti þar til hún flutti norður í Eyjafjörð og var einn Ó, elsku mamma, höndin þín, hve hlý hún var og góð. Þá hélstu litla lófa í og laukst upp hjartans sjóð. Glæddir okkar gleði leik, gældir lokka við. Við áttum marga yndisstund svo oft við þína hlið. Nú hefur Kristur kallað á þig að koma heim til sín. Hans ljúfa náð og líknarmund læknar meinin þín. Á kveðju stund við krjúpum hljóð við krossinn helga hans og biðjum hann að bera þig til hins bjarta vonar lands. (Sigurunn Konráðsdóttir) Í dag kveð ég elsku mömmu. Ég hugsaði strax að það væri eng- in leið að gera öllum okkar dásam- legu stundum skil í svona litlu bréfi en orðið áhrif kemur mér fyrst í hug. Áhrifin sem hún skilur eftir í huga okkar sem henni kynntust eru dýrmæt og þeirra mun gæta svo lengi sem við lifum. Þau munu líka skila sér til næstu kynslóða því þannig lifir andinn þótt efnið hverfi. Mamma skilur sannarlega eftir sig andleg verð- mæti sem lifa áfram og sem hafa markað djúp spor í vitund margra. Þannig verðmæti voru henni hugleikin. Hún var mikill listamaður og sköpunarþörfin var afar sterkt afl í lífi hennar. Henni var það því mikilvægt að fá tækifæri og frelsi til þess að skapa. Hún fann náð- argáfu sinni farveg í sögunum, söngnum, kennslunni, félagsstörf- unum, garðinum og í raun öllu sem hún gerði. Listamaðurinn mamma upplifði alla tíð umhverfi sitt af dýpt og tilfinningalegum krafti. Listamannsaugað hennar greip það mikilvægasta og dró saman í falleg munstur og var hennar tjáningarmiðill. Mér þótti alltaf stórmerkilegt hvað hún gat gert fallega hluti úr engu. Uppeldið hefur örugglega ekki alltaf verið auðvelt fyrir mömmu með mig um borð og þurfti hún oft að vakna nokkrum tímum á undan mér til að fá vinnufrið. Um leið og ég vaknaði byrjaði dagurinn með pomp og prakt. Mamma var hins vegar alltaf tilbúin með nokkrar vinnustöðvar sem ég skottaðist á milli þar sem hin ýmsu verkefni lágu fyrir. Saumahornið var í stof- unni og þar gat ég valið úr úrvali platna til að hlusta á á meðan ég vann við hannyrðirnar. Úti var gullabúið mitt þar sem ég ham- aðist við eldamennsku og bakstur í nálægu moldarbarði. Úti var líka veröld álfa og huldufólks sem bjuggu í hverjum steini við túnfót- inn sem mamma bað mig oft að heilsa upp á. Frammi á gangi lag- aði ég mynstrið á teppinu fyrir mömmu og velti efninu í sömu átt svo það kæmu ekki gárur í teppið. Í herberginu átti ég holu inni í fataskáp og þar mátti ég syngja eins hátt og ég gat eins lengi og ég vildi. Stöðvarnar voru margar en allar með sama markmiðið; að hafa ofan af fyrir barninu. Mamma hafði þann mikla hæfi- leika að taka á móti fólki með opn- um faðmi, eins og sólin sjálf hefði ákveðið að heiðra hana með nær- veru sinni. En þótt líkaminn deyi þá lifir sálin og nú horfi ég á eftir henni til samfélags við Krist og ástvinina sem á undan voru farnir. Ég segi því góða ferð inn í ljósið, það mun skína bjartar vegna þín. Anna Guðrún. Engillinn minn fór á betri stað og fjörið er byrjað með söngvum og dönsum hinum megin. Ég mun alltaf elska þig amma mín og á eftir að sakna þeirra tíma sem við áttum saman. Sérstak- lega á ég eftir að sakna daganna þegar við fórum í ísbíltúrana og töluðum um allt milli himins og jarðar. Þú kenndir mér svo margt, eins og að klifra ekki í klettunum. Þér mistókst aldrei að ganga úr skugga um að ég vissi hversu vænt þér þætti um mig. Ég veit líka að þú varst með- vituð um að ég elskaði þig meira en orð fá nokkru sinni sagt. Þú kenndir mér margar lífslexíur frá því að ég var barn og ég þakka þér fyrir að vernda mig frá öllu illu og halda mér uppi þegar ég gat það ekki sjálf. Ég mun aldrei gleyma stundunum þar sem við vorum út í garði að dansa í grasinu og gefa litlu fuglunum vatn í steininum. Ég elskaði allt við þig og hversu falleg og elsku- leg þú varst. Það er mjög erfitt fyrir mig að hafa þig ekki hjá mér því þú varst ekki bara amma mín heldur besta vinkona og hetjan mín. Þakka þér fyrir að passa upp á mig og tala mig til þegar ég gerði mistök. Ég á svo margar minningar um okkur tvær sem verða alltaf hjá mér. Ég man þegar ég sat hjá þér uppi á spít- ala og alltaf þegar þú sást mig þá brostir þú svo fallega til mín. Þú hélst í höndina á mér og sagðir: „Ekki gefast upp, vertu sterk.“ Ég lofa að ég mun ekki gefast upp amma þótt þú sért ekki hjá mér. Ég lofa þér að sama hversu lífið verður erfitt mun ég vera sterk fyrir þig. Ég elska þig og sakna þín og vona að ég fái að fara í fangið á þér aftur seinna meir. Þú munt alltaf vera í hjarta mínu elsku amma mín. Hvíldu í friði fiðrildið mitt. Þóra Björg. Bertha Svala Bruvik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.