Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinna kl. 12-16. Félags-
vist kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni. Kaffisala
kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Opin Listasmiðja kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi
kl. 14.30-15.30.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta
hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá kl. 13.45-15.15. Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl. 12.40. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gullsmári Félagsvist kl. 20.
Hraunsel Mánudagur: Myndlistarklúbbur kl. 9, stóla-jóga kl. 10 og
félagsvist kl. 13. Þriðjudagur: Brids kl. 13. Miðvikudagur: Stóla-jóga kl.
10, línudans kl. 11, bingó kl. 13 og handverk kl. 13. Fimmtudagur:
Pílukast kl. 13. Föstudagur: Línudans kl. 10 og brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Samsöngur, Hannes mætir með gítarinn og stýrir
söng kl. 13.30. Gönguhópur, lengri ganga kl. 13.30.
Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum, ganga kl. 10, gengið frá
Grafarvogskirkju og frá Borgum, þrír styrkleikahópar. Dansleikfimi
með Auði Hörpu kl. 11 í Borgum. Kaffihúsið opnað kl. 14.30 og kl. 15 í
dag í Borgum er línudans með Guðrúnu, allir hjartanlega velkomnir.
Sóttvarnir í heiðrum hafðar.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á huggulegu
kaffispjalli í setustofunni okkar kl. 10.30, kl. 13.15 spilum við botsía.
Við endum daginn síðan á slakandi núvitund í handverksstofunni
okkar kl. 15. Verið öll velkomin á Vitatorg. Hlökkum til að sjá ykkur!
Seltjarnarnes Nú er haustdagskráin að fara af stað smátt og smátt.
Við lútum áfram ákveðnum reglum varðandi sóttvarnir og biðjum fólk
að virða þær, sinna persónulegum smitvörnum og fara varlega. Í dag
verður leir á Skólabraut kl. 9. Leikfimi í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna og samvera í salnum á Skólabraut kl. 13.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Færir þér
fréttirnar
mbl.isEn komin eru leið-
arlok
og lífsins kerti brunn-
ið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kennd.
Þú komst með gleði gull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo, vina kær, vertu sæl,
nú vegir skilja að sinni.
Þín geta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna.
um göfugan og góðan vin
ég geymi minninguna.
(höf. ók.)
Þakka allar ljúfar stundir,
sem mér er svo ljúft að muna.
Hugheilar þakkir fyrir langa
og góða samveru.
Þín frænka og vinkona
Helga Pálmadóttir.
Hún mætti brosandi hjá
undirrituðum í starfsviðtal í
fjármálaráðuneytinu, mánudag-
inn 31. janúar 1972, klædd rauð-
um leðurstígvélum og kápu í
stíl, háttvís, falleg og glaðleg
með staðgóða menntun sem
hæfði vel því starfi sem hún
sóttist eftir.
Starfið var umfangsmikið og
Ingibjörg
Björnsdóttir
✝
Ingibjörg
Björnsdóttir
fæddist 6. ágúst
1936. Hún lést 6.
ágúst 2021.
Útför Ingibjarg-
ar fór fram 18.
ágúst 2021.
fólst í að sinna rit-
arastörfum í tveim-
ur aðaldeildum
ráðuneytisins, þ.e.
Tolla- og eigna-
deild, sem undirrit-
aður veitti for-
stöðu, og
Tekjudeild ráðu-
neytisins, sem
Höskuldur heitinn
Jónsson var þá
deildarstjóri fyrir.
Eftir stutt viðtal við okkur
Höskuld vorum við ekki í vafa
um að hér væri kominn starfs-
kraftur sem væri fullkomlega
hæf í viðkomandi starf og mætti
hún til vinnu næsta dag eða
hinn 1. febrúar 1972. Þar með
hófst hennar langi starfsferill
sem stóð í tæp 35 ár eða til 31.
ágúst 2006. Þetta reyndist ein
giftusamlegasta ráðning ritara í
fjármálaráðuneytinu um árabil
þótt engum skugga sé varpað á
allar þær frábæru starfssystur
hennar í ráðuneytinu sem
sinntu störfum sínum öllum af
atorku, ábyrgð og alúð.
Ingibjörg var ráðin í tíð Hall-
dórs E. Sigurðssonar fjármála-
ráðherra og varð síðan einkarit-
ari margra fjármálmálaráðherra
sem alls urðu 12 á hennar tíð.
Í raun má segja að ljós henn-
ar skíni enn í sölum ráðuneyt-
isins, því það sem er aðall ís-
lenskrar stjórnsýslu er traust,
heiðarlegt og jákvætt fólk, sem
í raun heldur utan um stjórn-
kerfi Lýðveldisins Íslands.
Stjórnmálamenn koma og fara,
hver með sínar áherslur, en
starfsfólk ráðuneytanna er sú
máttarstoð sem tryggir að farið
sé að réttum stjórnarháttum í
hverri stjórnarathöfn. Þessi
hefð er dýrmætasti grundvöllur
Lýðveldisins Íslands og verður
það aldrei nógsamlega undir-
strikað.
Ég veit að Ingibjörg varð síð-
ar stoð og stytta ráðherrum í
sínu ráðuneyti um áratugaskeið.
Að starfslokum hélt þáverandi
fjármálaráðherra, Árni M. Mat-
hiesen, henni verðskuldaða og
eftirminnilega veislu í Ráð-
herrabústaðnum þar sem saman
voru komnir þáverandi og fyrr-
verandi samstarfsmenn. Var
það afar ánægjuleg samkoma.
Seinna þróuðust samskipti
okkar í mikla vináttu milli okk-
ar hjóna og Ingibjargar og
seinni eiginmanns hennar, hins
merka tónlistarmanns Magnús-
ar Ingimarssonar, sem vöruðu
um áratugaskeið. Sérstaklega
minnumst við Ásthildur heim-
sóknar þeirra norður í Mývatns-
sveit í Kröflueldum árið 1977 og
jólakorta á hverju ári þar sem
skipst var á tækifærisljóðum ár-
um saman.
Þá minnumst við fjölmargra
matarkvölda í heimahúsum með
góðum vinum frá stjórnarráðs-
árunum. Var þar oft slegið á
létta strengi, bæði máls og tón-
listar.
Ingibjörg Björnsdóttir var
aðalskona í eðli og athöfnum.
Stjórnarráð Íslands á Ingi-
björgu mikið að þakka sem og
allir þeir embættismenn og ráð-
herrar sem hún starfaði fyrir
um hartnær þrjátíu og fimm ára
skeið.
Við Ásthildur sendum öllum
aðstandendum innilegar samúð-
arkveðjur um leið og við þökk-
um fyrir lífslanga tryggð og vin-
áttu og minnumst með söknuði
mikilhæfrar, jákvæðrar og ein-
stakrar manneskju, Ingibjargar
Björnsdóttur.
Blessuð sé minning hennar.
Þorsteinn Ólafsson og
Ásthildur Rafnar.
Ég var fjarri fósturjarðar-
ströndum þann 19. ágúst sl.,
þegar Ingibjörg Björnsdóttir
var kvödd hinstu kveðju. En
mér rennur blóðið til skyldunn-
ar að minnast hennar fáeinum
vel völdum orðum, því að hún
var eftirminnilegur samstarfs-
maður minn þann skamma tíma,
sem ég gegndi embætti fjár-
málaráðherra (1987-88).
Það var stuttur tími, en við
bættum það upp með því að
koma gríðarlega miklu í verk.
Orðið „skattkerfisbylting“ er
ekki fjarri sanni. Seinna, þegar
ég lýsti þessari kerfisbreytingu
á fundi fjármálaráðherra Norð-
urlanda, sagði sænskur starfs-
bróðir, Kjell-Olov Feldt, að í
Svíþjóð hefðu svo umfangsmikl-
ar breytingar í ríkisfjármálum
tekið a.m.k. 9 ár.
Þegar ég mætti til fyrsta
vinnudags í Arnarhvoli, sjálf-
sagt nokkuð verkkvíðinn, mætti
mér brosmild kona, full af lífs-
gleði og starfsþrótti, og bauð
mig velkominn til starfa. Ég
gleymi ekki fyrsta vinnudegin-
um. Eftir að hafa lýst verkferl-
um og vinnutilhögun, dró hún
upp úr pússi sínu bréfabunka og
hellti yfir borðið hjá mér. Þegar
ég spurði, hverju sætti, svaraði
hún: „Þetta eru bréf til þín,
fjármálaráðherrans. Forveri
þinn byrjaði daginn ævinlega á
því að svara þessu. Þetta eru
allra handa erindi um fyrir-
greiðslu, lán, styrki, vinnu
o.s.frv.“ Þegar ég spurði hana,
hvort það væri ekki einhver hér
í ráðuneytinu, sem hefði tíma til
að sinna svona kvabbi, sagði
hún með brosi á vör: „Ég skal
bara gera það sjálf“. Í staðinn
fékk hún verkáætlun um skatt-
kerfisbyltingu og kvadd til
fyrsta fundar.
Þegar kom að kveðjustund-
inni, 14 mánuðum síðar, lá við,
að skjalakassarnir rúmuðust
ekki á vörubílspallinum hjá
Oddi, staðarhaldara.
Ég vildi fá Ingibjörgu með
mér til að halda uppi fjörinu í
utanríkisráðuneytinu. Hún hug-
leiddi það um stund, en afþakk-
aði pent að lokum. Innst inni
vissi ég, að það var rétt ákvörð-
un hjá henni. Hún var orðin svo
hagvön í sínu ráðuneyti við að
stýra ríkisfjármálunum – sem
henni fannst mestu máli skipta
– að hún gat ekki, þegar á
reyndi, slitið sig frá þeim. Þess
vegna var ég bara sjötti fjár-
málaráðherrann hennar Ingi-
bjargar. Á 34 ára starfsferli
hennar í fjármálaráðuneytinu
átti hún enn eftir að fóstra
fimm fjármálaráðaherra, en
þeir urðu alls 11, áður en yfir
lauk.
Vinátta okkar, hert í eldi
„stritsins fyrir málefnunum
sjálfum“ hélst til hinsta dags.
Ég kveð Ingibjörgu Björnsdótt-
ur þakklátum huga með söknuði
og virðingu.
Jón Baldvin Hannibalsson.
Elsku besti afi
minn. Nú hvílir þú
á betri stað, heilsu-
hraustur og fullur
af orku. Þannig
varstu, hraustur og orkumikill,
varla með grátt hár á höfði.
Margar eru minningarnar með
þér, afi minn. Faðmurinn þinn
var svo stór og góður og þótti
mér alltaf svo gott að kúra hjá
þér. Ég samdi lítið ljóð fyrir
þig, afi minn, minning þín lifir.
Afi Hlölli nú farinn er,
tími þinn er liðinn hér.
Í þessum heimi hér með mér
þó minningarnar muni fylgja mér.
Ég vona að hvíldina fannstu þér
og að þú vakir yfir mér.
Nú ertu farinn
og kveður um sinn.
Ég þakka fyrir tímann
og félagsskapinn
Sólveig Eggertsdóttir.
Elskulegi pabbi minn er
loksins búinn að fá friðinn og er
það svo mikill léttir að þessi
Hlöðver
Hallgrímsson
✝
Hlöðver Hall-
grímsson fædd-
ist 2. júlí 1942.
Hann lést 4. ágúst
2021.
Útförin fór fram
19. ágúst 2021.
barátta var ekki
lengri.
Elsku pabbi, það
eru svo margar
minningar sem
koma upp í hugann
þegar ég lít til
baka. Þú varst svo
duglegur að fara
með okkur í útileg-
ur þegar ég var
yngri. Þá tjölduð-
um við tjaldi frá
ömmu og afa og var veiðistöng-
in alltaf með í för.
Sælureiturinn á Laugarvatni
var þinn staður og elskaðir þú
að fara þangað. Margar eru
minningarnar þaðan og varst
þú svo hreykinn af því hvað þú
varst búinn að smíða, allt eftir
reglugerð. Alltaf þótti mér gott
að vakna snemma þegar við
gistum á Laugarvatni. Þá varst
þú vaknaður, búinn að hella
upp á kaffi og byrjaður að
leggja kapal. Síðustu 25-30 ár
höfum við alltaf komið á sumrin
að heimsækja þig á Laugarvatn
og tekið rúnt saman á veturna.
Bláskógabyggð hefur ákveðið
að loka svæðinu og verðum við
þar af leiðandi að kveðja sælu-
reitinn þinn á sama tíma og við
kveðjum þig. En minningarnar
lifa alltaf.
Pabbi minn, þú hefur alltaf
verið svo handlaginn. Þú smíð-
aðir rúm og skrifborð fyrir okk-
ur systurnar þegar við bjugg-
um á Patró eins og ekkert væri
auðveldara. Þú kenndir mér að
mála og fékk ég alltaf að mála
pottofnana og komst ég að því
seinna að leiðinlegast var að
mála þá. Þú kenndir mér að
skera af netum, að hanka
hausa, flaka fisk, sortera hrogn
og lifur, gera gellur, beita og
síðast en ekki síst að gera góða
sósu. Elsku pabbi minn, þú
kenndir mér svo margt og er
ég þakklát fyrir það. Takk fyrir
allt, minning þín er ljós í lífi
mínu.
Sædís Hlöðversdóttir.
Nú er tengdapabbi minn,
Hlöðver Hallgrímsson, fallinn
frá.
Ég man okkar fyrstu kynni,
hann var svo ákveðinn og
öruggur með sig. Fyrstu orðin
til mín voru „Hver ert þú?!“ en
svo ljúfur þegar á reyndi. Ég
hafði nefnilega fært Gurrý
blóm svo hún myndi tala mínu
máli við kallinn.
Ég og Sædís kynntumst
1986, ég var hrifinn af henni
strax. Hún hafði skoðun á öllu
sem við ræddum um en hafði
varann á gagnvart mér. Hún
vann í Járn og Skip á þeim
tíma og eitt sinn tók ég Helga
bróður í Járn og Skip í skrúfu-
deildina til að kíkja á stelpuna,
Helgi var sammála mér að
þetta var flott stelpa. Svona er-
um við strákarnir stundum.
Ég og Hlölli áttum alltaf vel
saman. Ég skildi hann vel því
ég var á sjó á þessum tíma og
vissi hvernig þessir menn hugs-
uðu – drífa hlutina áfram, koma
aflanum í lest og heim. Hann
Hlölli var vinur minn og ekki
allur sem hann var séður. Ein
jólin 1987/8 kom auka jólagjöf
til okkar Sædísar. Það voru
hringar sem hann hafði látið
smíða fyrir mig og Sædísi.
Hann hlýtur að hafa lesið hugs-
anir mínar og tekið mig í sátt,
því þessu var vel tekið (kallinn
gat verið ýtinn). Hann Hlölli
hafði skap. Vildi svo til að ef
það fauk í hann við mig þá vissi
hann að það þýddi ekki neitt,
því mér þótti alltaf svo vænt
um hann. Enda skírðum við
Sædís frumburðinn okkar Hlöð-
ver í höfuðið á tengdapabba.
Ég vissi að þarna var maður
með stórt hjarta og vildi vel.
Laugarvatn var hans unaðs-
reitur, við Hlölli áttum þennan
sælureit saman í yfir 20 ár.
Verkaskiptingin var á hreinu
milli okkar. Hann sá um við-
hald og ég keypti málningu og
pensla. Enda hafa öll börnin
okkar átt skemmtilegar minn-
ingar þaðan með Hlölla og
Gurrý. Þegar Hlölli fór að
hrörna og kollurinn að gefa sig
tók ég hann eitt sinn upp á
verkstæði til mín í Hafnarfirði.
Þar bað ég hann að sýna mér
hvernig átti að splæsa reipi (ég
er örvhentur og endaði þetta
alltaf vitlaust). Hann splæsti
með lokuð augun og sagði: „Þú
ert nú meiri helvítis vitleysing-
urinn ef þú kannt þetta ekki!“
og brosti því, þarna var hann á
heimavelli en meinti vel.
Guð geymi þig, Hlölli minn,
vinur og tengdapabbi.
Eggert Karvelsson.