Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 24

Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 24
það má segja að ég hafi fengið heimasætuna í kaupbæti. Við byrj- uðum að búa þegar ég var 18 ára og keyptum okkar fyrstu íbúð í Hvera- gerði, en hún er frá Múla í Biskups- an af því að vinna með höndunum og er alltaf að búa til einhverja hluti.“ Hann var 17 ára þegar hann kynntist Svölu, konunni sinni. „Ég var að vinna fyrir pabba hennar og S mári Björn Stefánsson fæddist 23. ágúst 1981 á Sjúkrahúsinu á Seyðis- firði. „Ég var fyrsta barnið í mörg ár til að fæðast þar, eftir því sem mér hefur verið sagt, en þá var verið að reyna að endurvekja fæðingardeildina þar.“ Smári var á Seyðisfirði til fjög- urra ára aldurs og þá flutti fjöl- skyldan til Hveragerðis og Smári hefur búið þar síðan. „Maður áttar sig oft ekkert á því hvað maður hef- ur fyrr en maður heyrir það frá öðru fólki. Það var hollenskur háskóla- hópur sem var að gera alþjóðlega könnun og sendi spurningalista hingað til skólastjórans okkar í Hveragerði sem hann svaraði sam- viskulega og þá fékk hann aðra könnun og bón um að fá að heim- sækja skólann. Þeim fannst svo of- boðslega merkilegt að hér væri svona magnað landslag og náttúra og bæði á, foss og lystigarður í göngufæri við skólann.“ Smári tekur undir það og segir að það hafi verið mjög gaman að leika sér sem barn í fjöllunum fyrir ofan bæinn. „Maður fór mikið upp í Reykjadalinn. Svo ólst ég upp í næsta húsi við gamla Eden og var að vinna þar sem unglingur. Ég kunni alltaf mjög vel við Braga í Eden og þegar þeir hittust í kaffi á laugardagsmorgnum, Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur, Bragi, Gunnar Dal heimspekingur og Kjartan Sveinsson arkitekt, lét karlinn mig alltaf setjast með þeim. Ég var nú bara 13 ára þá, en finnst gaman eftir á að hyggja að hafa set- ið til borðs með þessum stórmenn- um.“ Smári gekk í Grunnskólann í Hveragerði. „Í lokin á 10. bekk fór ég að vinna við smíðar og fór norður í Kröfluvirkjun og var þar að vinna um sumarið. Þá var verið að vinna í því að koma virkjuninni í stand svo hægt væri að keyra báðar túrbín- urnar í henni.“ Eftir sumarið fór Smári að læra blikksmíði á Selfossi. „Það var skemmtilegur tími og góð- ur félagsskapur. Mér hefur eigin- lega alveg tekist að sniðganga þennan tölvuheim en hef mjög gam- tungum.“ Smári var ekki lengi í blikksmíði heldur fór og lærði húsasmíðar og hefur starfað sem smiður og stofn- aði fyrirtækið Byggingafélag Suð- urlands, sem byggir og selur íbúð- ir. „Það vantar sko ekki verkefnin í þessum geira. Ég hef verið að byggja í landi Vallár, niðri í Ölfusi. Ég held að allt eigi eftir að blómstra sem aldrei fyrr á þessu svæði, sérstaklega eftir að þjóðveg- urinn verður kominn í gagnið. Ég sé það líka alveg gerast að þetta verði að einu sveitarfélagi á næstu árum.“ Samhliða Byggingafélaginu rekur Smári líka fyrirtækið Led Light. „Félagi minn vann hönnunarsam- keppni hjá Marel þar sem verið var að smíða lampa í fiskvinnsluvélar. Það endaði samt eiginlega þannig að það flosnuðu allir út úr þessu verk- efni. Það er svolítið erfitt að setja svona verkefni almennilega af stað, þótt varan sé góð, en ljósin hjá okkur entust á þriðja sólarhring meðan aðr- ir náðu ekki 24 tímum. En af því að við vorum búnir að smíða og hanna vöruna og prufukeyra hana í Fisk- markaðnum í Reykjavík féllum við utan möguleika á styrkjum. Síðan er bara svo mikið að gera í öðru að við höfum haft þetta svolítið á hliðarlín- unni, allavega eins og er. Mér finnst samt að það mætti styðja betur við áhugasama aðila í svona verkefnum til þess að koma þessu almennilega á koppinn.“ Smári hefur alltaf haft áhuga á stjórnmálum. „Ég hef alltaf haft áhuga á því að láta eitthvað gott af mér leiða til samfélagsins og finnst að fólk eigi að gera það með ein- hverju móti einhvern tímann í líf- inu, hvort sem það er í gegnum pólitík eða íþróttafélögin eða ein- hverja samfélagsþjónustu, svo ég hef unnið með sjálfstæðismönnum hérna í Hveragerði frá 2012. Við erum með laugardagskaffi á vet- urna þar sem fólk í bænum hefur opið aðgengi að kjörnum fulltrúum og getur fengið sér kaffi með bæj- arstjóranum og rætt málin og þessi hefð hefur verið við lýði frá 1996 og er að mínu mati bara góð stjórn- Smári Björn Stefánsson húsasmiður og eigandi Byggingafélags Suðurlands – 40 ára Útivistin Það eru lífsgæði að búa í göngufæri við magnaða náttúru landsins. Fékk heimasætuna í kaupbæti Laugardagskaffið Smári og Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Hvera- gerðis í laugardagskaffi bæjarins. Pabbinn Smári með dóttur sinni Mábil um páskana fyrir nokkrum árum með veglegt páskaegg. 24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 www.rafkaup.is ÚRVAL ÚTILJÓSA 30 ÁRA Auður fæddist í Reykjavík en ólst upp í Stykkishólmi. „Það var dásamlegt að alast þar upp og mikið frelsi.“ Auður gekk í grunnskólann í bæn- um og var virk í íþróttalífi bæjarins. Hún fór síðan í Fjölbrautaskóla Snæfell- inga í Grundarfirði og út- skrifaðist þaðan sem stúd- ent. Hún var eitt ár í Danmörku og vann hjá ISCA, alþjóðlegum íþrótta- og menningarsamtökum, og ferðaðist víða á vegum samtakanna. Þegar heim var komið fór hún í Há- skóla Íslands og lauk meistaranámi í lögfræði ár- ið 2016. Í dag starfar hún sem fjármálastjóri hjá Fiskmarkaði Íslands og hefur búið í Ólafsvík í nokkur ár. „Maðurinn minn er frá Ólafsvík og ég flutti til hans hingað og kann mjög vel við mig í bænum. Eftir að börnin þrjú fæddust hefur verið ansi mikið að gera og mikið fjör,“ segir Auður. Hún segist þó vilja setja sitt mark á samfélagið og hef- ur verið bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Snæfellsbæ frá síðustu kosningum. „Ég hef alltaf viljað vera virk í félagsstarfi og vil taka þátt í uppbyggingu míns samfélags.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Auðar er Pétur Pétursson skipstjóri, f. 11.12. 1983, og þau eiga börnin Pétur, f. 2015; Rúrik, f. 2018, og Köru, f. 2020. Foreldrar Auðar eru Kjartan Páll Einarsson, fv. útibússtjóri Arion banka, f. 1956, og Dagný Þórisdóttir skrifstofustjóri, f. 1958. Auður Kjartansdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það er eitthvað að vefjast fyrir þér, en þú átt erfitt með að fá á hreint, hvað það er. Notaðu kvöldið fyrir sjálfan þig. 20. apríl - 20. maí + Naut En ef þú bara breytir örlítið út af vananum þá er dagurinn orðinn allur ann- ar. Þú hefðir gott af því að taka meira tillit til annarra. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Verk sem þú byrjar á í dag munu að öllum líkindum skila þér ágóða í framtíðinni. Kappkostaðu að láta gott af þér leiða. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Nú er komið að því að þú upp- skerir eins og þú sáðir til. Haltu áfram að einbeita þér að eigin málum og láttu aðra eiga sig um hríð. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur gert allt sem þú getur og nú er komið að því að taka ákvörðun. Vertu róleg/ur. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það fer afskaplega mikill tími í alls konar vangaveltur hjá þér. Samskipti þín við stofnanir og hópa fólks ættu að ganga mjög vel í dag. 23. sept. - 22. okt. k Vog Forðastu öll peningaútlát í dag og vertu því harðari sem löngunin í einhverja hluti kemur yfir þig. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Notaðu daginn til þess að sinna skapandi verkefnum og vinna með börnum. Vertu ekki of óþolinmóð/ur og haltu ró þinni. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Láttu ekki tilfinningarnar blinda þér sýn í ágreiningi þínum við aðra. Ný verkefni bíða stjórnar þinnar. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert óvenju skapstygg/ur í dag en gerir þér ekki grein fyrir ástæðu þess. Staldraðu við og íhugaðu hvað það er sem raunverulega skiptir máli í lífinu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Erfið verkefni munu útheimta mikið hugrekki af þinni hálfu. Reyndu að vera raunsæ/r og heiðarleg/ur gagnvart sjálfri/sjálfum þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þetta verður góður dagur í faðmi fjölskyldunnar, ef þú gefur þér tíma til þess. Ekki vera með stæla - stattu við orð þín og gjörðir. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.