Morgunblaðið - 23.08.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 23.08.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Víkingur úr Reykjavík vann verð- skuldaðan 2:1-sigur á Íslandsmeist- urum Vals er liðin mættust í topp- slag í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á Víkingsvelli í Fossvogi í gærkvöldi. Kwame Quee og Viktor Örlygur Andrason komu Víkingum í 2:0 og Kristall Máni Ingason fékk tvö kjör- in tækifæri til að bæta við þriðja marki Víkings, en allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir það varð sanngjarn sigur Víkinga raunin, en þeir voru heilt yf- ir töluvert betri en gestirnir úr Val. Fossvogsliðið hefur leikið afar skemmtilegan og árangursríkan bolta í sumar og leikurinn í gær var einn sá besti hjá liðinu til þessa. Vík- ingar virðast ætla að toppa á réttum tíma. Eftir sérstaklega erfiðan fyrri hálfleik voru Valsmenn mun skárri í seinni hálfleik. Kaj Leo í Bartals- stovu minnkaði muninn með síðustu spyrnu leiksins, en það var of lítið og of seint fyrir meistarana. Markið hjá Færeyingnum nægði þó til að Vals- menn héldu toppsætinu á markatölu. Valsmenn hafa tapað tveimur af síðustu þremur leikjum og verða lærisveinar Heimis Guðjónssonar að leika mun betur það sem eftir lifir móts til að eiga möguleika á að verja Íslandsmeistaratitilinn. Aðeins eitt stig skilur að Val, Vík- ing og Breiðablik í þremur efstu sæt- unum. Valur og Víkingur eru með 36 stig og Breiðablik 35, en Blikar eiga leik til góða og geta komist upp í toppsætið. Víkingur og Breiðablik eru komin á mikla siglingu á meðan Valsmenn eru að hiksta. „Frammistaða Víkinga var virki- lega góð í kvöld. Ekki síst í fyrri hálf- leik enda meira en að segja það að vera með öll völd á vellinum gegn Ís- landsmeisturunum,“ skrifaði Krist- ján Jónsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Óstöðvandi á Kópavogsvelli Breiðablik vann sinn fjórða deild- arsigur í röð og áttunda sigurinn í röð á heimavelli er KA kom í heim- sókn á Kópavogsvöll á laugardags- kvöld. Lokatölur urðu 2:0, Breiða- bliki í vil, en Gísli Eyjólfsson og Viktor Karl Einarsson skoruðu mörkin. Kópavogsvöllurinn er ótrú- legt vígi og hefur Breiðablik skorað 26 mörk og aðeins fengið á sig þrjú á heimavelli. KR fagnaði sigri á Kópavogsvelli í 1. umferðinni en síðan þá hefur Breiðablik ekki tapað stigi á heima- velli. Ljóst er að Blikar ætla sér að berjast um meistaratitilinn allt til loka leiktíðar, en Blikum nægir að vinna þá leiki sem eftir eru til bera sigur úr býtum á Íslandsmótinu. KA, sem hefur átt afar gott tíma- bil, dróst aftur úr efstu liðunum með tapinu og skráði sig nánast úr titil- baráttunni. KA þarf að vinna þá leiki sem eftir eru og treysta á nokkuð mörg hagstæð úrslit til að vinna óvæntan Íslandsmeistaratitil. „Blikar léku einkar vel allan leik- inn og fór þar fremstur í flokki Gísli Eyjólfsson sem var ákaflega líflegur allan tímann. Hann átti fjölda góðra spretta, skoraði glæsilegt mark og lagði upp síðara markið,“ skrifaði Gunnar Egill Daníelsson m.a. um leikinn á mbl.is. Tíu mörk í tveimur leikjum FH vann sinn annan 5:0-sigur í röð er liðið fór illa með Keflavík á úti- velli. Jónatan Ingi Jónsson átti sann- kallaðan stórleik fyrir FH því hann skoraði þrennu og lagði upp tvö mörk á Baldur Loga Guðlaugsson og varamanninn Oliver Heiðarsson. Mörkin eru kærkomin fyrir Jón- atan sem hafði aðeins skorað tvö mörk í sumar fyrir leikinn í Keflavík. Eftir að hafa verið í fallbaráttu fram- an af í sumar er allt annað að sjá FH- liðið í síðustu leikjum. Ef allt gengur upp gætu FH-ingar barist um Evr- ópusæti, en það er þó langsótt með lið í stuði fyrir ofan sig. Keflavík hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu fjórum leikjum og er liðið fjórum stigum fyrir ofan fall- sæti. Keflvíkingar þurfa að minnsta kosti einn sigur í viðbót til að vera nokkuð öryggir með sætið sitt í deildinni að ári. „Keflavík átti aldrei möguleika í dag og hefðu mörkin getað orðið enn fleiri. Áherslur Ólafs Jóhannes- sonar, þjálfara FH, eru að virka vel á báðum endum vallarins. Keflavík hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu fjórum leikjum og verður liðið að rífa sig upp í lok móts til að lenda ekki í mjög alvarlegri fallbaráttu,“ skrifaði undirritaður m.a. um leikinn á mbl.is. - Sanngjarn sigur Víkings á Íslandsmeisturum Vals - Breiðablik unnið átta leiki í röð á heimavelli - FH-ingar með tíu mörk í tveimur síðustu leikjum Ljósmynd/Kristinn Steinn Toppbarátta Johannes Vall úr Val sækir að Víkingnum Kwame Quee, sem skoraði fyrsta mark leiksins í gær. Eitt stig skilur þrjú efstu að Pepsi Max-deild karla Keflavík – FH ........................................... 0:5 Breiðablik – KA........................................ 2:0 Víkingur R. – Valur .................................. 2:1 Staðan: Valur 18 11 3 4 29:17 36 Víkingur R. 18 10 6 2 29:19 36 Breiðablik 17 11 2 4 40:20 35 KA 17 9 3 5 25:15 30 KR 17 8 5 4 26:16 29 FH 17 7 4 6 31:22 25 Leiknir R. 17 6 3 8 16:24 21 Keflavík 17 5 2 10 20:32 17 Stjarnan 17 4 4 9 20:28 16 Fylkir 17 3 7 7 18:29 16 HK 17 3 4 10 19:33 13 ÍA 17 3 3 11 18:36 12 2. deild karla Magni – Reynir S...................................... 4:1 Þróttur V. – Leiknir F. ............................ 2:0 Fjarðabyggð – ÍR..................................... 3:1 KV – KF .................................................... 3:2 Kári – Völsungur ...................................... 1:2 Staðan: Þróttur V. 18 11 5 2 36:17 38 KV 18 10 4 4 34:24 34 Völsungur 18 10 3 5 40:32 33 KF 18 8 4 6 34:28 28 Magni 18 7 6 5 37:32 27 Njarðvík 17 6 8 3 36:22 26 ÍR 18 6 7 5 31:26 25 Reynir S. 18 6 5 7 35:37 23 Haukar 17 5 4 8 30:31 19 Leiknir F. 18 5 3 10 25:41 18 Fjarðabyggð 18 2 5 11 13:44 11 Kári 18 1 6 11 24:41 9 3. deild karla Höttur/Huginn – Elliði ............................ 2:3 KFG – Augnablik ..................................... 0:0 Einherji – ÍH ............................................ 4:0 KFS – Dalvík/Reynir ............................... 1:0 Víðir – Sindri............................................. 0:3 Tindastóll – Ægir ..................................... 1:3 Staðan: Höttur/Huginn 17 11 2 4 28:19 35 Elliði 17 10 1 6 36:25 31 Sindri 18 9 3 6 35:26 30 Ægir 16 8 5 3 30:19 29 KFG 16 7 6 3 24:18 27 Dalvík/Reynir 17 7 3 7 30:24 24 Augnablik 18 6 4 8 33:33 22 Víðir 17 6 4 7 24:29 22 KFS 17 7 1 9 23:35 22 ÍH 17 4 5 8 28:36 17 Einherji 18 5 1 12 30:42 16 Tindastóll 18 3 5 10 30:45 14 Lengjudeild kvenna Augnablik – HK........................................ 4:2 Staðan: FH 15 11 2 2 38:13 35 Afturelding 15 10 4 1 42:15 34 KR 15 10 3 2 42:20 33 Víkingur R. 15 6 4 5 25:29 22 Haukar 15 5 3 7 22:28 18 Grindavík 15 3 6 6 23:28 15 ÍA 14 4 2 8 15:30 14 Grótta 15 4 1 10 20:35 13 HK 14 3 3 8 20:34 12 Augnablik 15 3 2 10 22:37 11 2. deild kvenna Fjölnir – KH ............................................. 2:1 Hamar – SR .............................................. 3:0 Hamrarnir – Sindri .................................. 2:4 Völsungur – Fram .................................... 2:1 ÍR – Einherji............................................. 2:3 Staða efstu liða: FHL 12 10 1 1 71:13 31 Völsungur 12 9 2 1 28:12 29 Fjölnir 12 8 2 2 42:13 26 Fram 12 8 1 3 31:13 25 KH 12 8 0 4 37:13 24 Sindri 12 6 1 5 27:26 19 ÍR 11 5 1 5 30:26 16 Einherji 12 3 4 5 22:22 13 _ Fjögur efstu lið eru komin í undanúrslit og leika um tvö sæti í 1. deild. Meistaradeild kvenna 1. umferð Gintra – Breiðablik ..................................1:8 _ Breiðablik er komið áfram í 2. umferð. Minsk – Celtic...................................(frl.) 2:3 - María Gros lék seinni hálfleikinn með Celtic og lagði upp mark. _ Celtic er úr leik. Bröndby – Slovácko ................................ 2:1 - Barbára Sól Gísladóttir kom inn á sem varamaður á 64. mínútu hjá Bröndby. _ Bröndby er úr leik. Vålerenga – PAOK.................................. 2:0 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn með Vålerenga og Amanda Andradóttir kom inn á í uppbótartíma. - Ingunn Haraldsdóttir lék allan leikinn með PAOK. _ Vålerenga fer áfram í 2. umferð en PA- OK er úr leik. SL Benfica – Racing Union .................... 7:0 - Cloé Eyja Lacasse lék allan leikinn með Benfica sem er komið í 2. umferð. Bordeaux – Kristianstad ........................ 3:1 - Svava Rós Guðmundsdóttir var ónotaður varamaður hjá Bordeaux sem er komið í 2. umferð en Kristianstad er úr leik. - Sveindís Jane Jónsdóttir og Sif Atladótt- ir léku allan leikinn með Kristianstad. El- ísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. CSKA Moskva – Apollon..........................2:1 - Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék fyrstu 85 mínúturnar með Apollon sem fer áfram í 2. umferð. 50$99(/:+0$ _ „Mér finnst við ekki eiga nægilega marga góða, unga leikmenn eins og staðan er í dag,“ sagði Ragnar Sig- urðsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins. Ragnar, sem er 35 ára gamall, sneri heim úr atvinnumennsku á dögunum og samdi við uppeldisfélag sitt Fylki eftir fjórtán ár í atvinnumennsku. Hann er á meðal leikjahæstu lands- liðsmanna Íslands frá upphafi með 97 A-landsleiki og hefur farið á tvö stórmót með ís- lenska liðinu, EM 2016 í Frakklandi og HM 2018 í Rússlandi. „Það er til fjöldi efnilegra stráka en þetta er ekki nálægt því að vera eins og þeg- ar Jói [Jóhann Berg Guðmundsson] og Gylfi [Gylfi Þór Sigurðsson] og fleiri komu inn í hópinn á einu bretti,“ sagði Ragnar. „Það eru margir strákar að standa sig ágætlega erlendis en alls ekki nógu margir,“ sagði Ragnar meðal annars. _ Setningarhátíð Paralympics, Ól- ympíumóts fatl- aðra, fer fram í Tókýó í Japan á morgun klukkan 11 að íslenskum tíma. Thelma Björg Björns- dóttir og Patrek- ur Andrés Ax- elsson munu leiða íslenska hópinn á opnunarhátíð- inni og vera fánaberar. Thelma Björg keppir nú á sínu öðru móti en hún var einnig á mótinu í Ríó árið 2016. Thelma keppir í sundi í flokki S6/SB5 sem er flokkur hreyfihamlaðra. Pat- rekur Andrés Axelsson er að taka þátt á sínu fyrsta móti en hann keppir í flokki T11 sem er flokkur blindra. _ Franska knattspyrnufélagið Nimes hefur lagt fram tilboð upp á 700.000 evrur í landsliðsmanninn Jón Dag Þor- steinsson. Jón Dagur leikur með AGF í Danmörku. Danski miðilinn BT greinir frá. Nimes féll úr frönsku 1. deildinni á síðustu leiktíð og Elías Már Ómarsson gekk í kjölfarið í raðir félagsins frá Ex- celsior. _ Barcelona tapaði á laugardag sínum fyrstu stigum í spænsku 1. deildinni í fótbolta eftir að Lionel Messi yfirgaf fé- lagið og samdi við París SG. Barcelona mátti sætta sig við 1:1-jafntefli við Athletic Bilbao á útivelli. Inigo Martínez kom heimamönnum yfir á 50. mínútu og stundarfjórðungi síðar jafnaði Memphis Depay og þar við sat. Barce- Eitt ogannað KEFLAVÍK – FH 0:5 0:1 Baldur Logi Guðlaugsson 45. 0:2 Jónatan Ingi Jónsson 53. 0:3 Jónatan Ingi Jónsson 90. 0:4 Oliver Heiðarsson 90. 0:5 Jónatan Ingi Jónsson 90.(v) MM Jónatan Ingi Jónsson (FH) M Magnús Þór Magnússon (Keflavík) Eggert Gunnþór Jónsson (FH) Matthías Vilhjálmsson (FH) Baldur Logi Guðlaugsson (FH) Logi Hrafn Róbertsson (FH) Guðmundur Kristjánsson (FH) Oliver Heiðarsson (FH) Rautt spjald: Nacho Heras (Keflavík) 74. Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7. Áhorfendur: Um 100. BREIÐABLIK – KA 2:0 1:0 Gísli Eyjólfsson 19. 2:0 Viktor Karl Einarsson 73. MM Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki) M Anton Ari Einarsson (Breiðabliki) Damir Muminovic (Breiðabliki) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki) Mark Gundelach (KA) Sebastiaan Brebels (KA) Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson – 6. Áhorfendur: 695. VÍKINGUR R. – VALUR 2:1 1:0 Kwame Quee 22. 2:0 Viktor Örlygur Andrason 28. 2:1 Kaj Leo í Bartalsstovu 90. MM Viktor Örlygur Andrason (Víkingi) Sölvi Geir Ottesen (Víkingi) M Ingvar Jónsson (Víkingi) Kári Árnason (Víkingi) Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi) Atli Barkarson (Víkingi) Kwame Quee (Víkingi) Pablo Punyed (Víkingi) Kristall Máni Ingason (Víkingi) Nikolaj Hansen (Víkingi) Helgi Guðjónsson (Víkingi) Hannes Þór Halldórsson (Val) Tryggvi Hrafn Haraldsson (Val) Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8. Áhorfendur: 600. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.