Morgunblaðið - 23.08.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 23.08.2021, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 ENGLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Chelsea, Liverpool, Brigthon og Tottenham eru með fullt hús stiga á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar en í kvöld mætast svo West Ham og Leicester í lokaleik 2. umferð- arinnar í London. Romelu Lukaku fer vel af stað með sínu nýja félagi Chelsea en hann var á skotskónum í 2:0-sigri liðsins gegn Arsenal á Emirates- vellinum í London í gær. Það tók Belgann aðeins fimmtán mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið en hann gekk til liðs við Chelsea á nýjan leik frá Inter Míl- anó fyrir tæplega 100 milljónir punda á dögunum. _ Þetta var fyrsta mark Lukakus fyrir Chelsea í sextán leikjum en hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í ágúst 2011. Greenwood bjargaði United Manchester United missteig sig á útivelli þegar liðið heimsótti South- ampton á St. Mary’s í Southampton en leiknum lauk með 1:1-jafntefli. Fred, miðjumaður United, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 30. mínútu áður en Mason Green- wood jafnaði metin fyrir United með marki í síðari hálfleik. _ Paul Pogba, leikmaður United, er fyrsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem leggur upp fimm mörk fyrir liðið sitt í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. Dele Alli reyndist hetja Totten- ham þegar liðið lagði Wolves á Molineux-vellinum í Wolverhamp- ton. Leiknum lauk með 1:0-sigri Tottenham en Alli skoraði sigur- mark leiksins með marki úr víta- spyrnu strax á 9. mínútu. _ Þetta var fyrsta deildarmark Deles Allis fyrir Tottenham síðan í mars 2020 en hann átti ekki fast sæti í liðinu á síðustu leiktíð. Liverpool á flugi Þá voru þeir Diogo Jota og Sadio Mané á skotskónum fyrir Liverpool þegar liðið tók á móti Burnley á An- field í Liverpool. Leiknum lauk með 2:0-sigri Liver- pool en mörkin komu hvort í sínum hálfleiknum. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley, annan leikinn í röð, en var skipt af velli á 79. mínútu fyrir Erik Pieters. _ Virgil van Dijk var í byrjunarliði Liverpool gegn Burnley en hann hef- ur nú leikið 48 deildarleiki á Anfield án þess að tapa. 43 sigrar og 5 jafn- tefli. Englandsmeistarar Manchester City unnu stórsigur í fyrsta heimaleik sínum á tímabilinu en liðið fékk nýliða Norwich í heimsókn á Etihad-völlinn í Manchester. Tim Krul, markvörður Norwich, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark strax á 7. mínútu og Jack Grealish bætti við öðru marki City og sínu fyrsta marki fyrir félagið á 22. mínútu. Aymeric Laporte, Raheem Sterl- ing og Riyad Mahrez skoruðu svo sitt markið hver fyrir City í síðari hálfleik og lokatölur því 5:0 í Manchester. _ Jack Grealish er fyrsti enski leikmaðurinn sem skorar í frumraun sinni á heimavelli í ensku úrvalsdeild- inni síðan Frank Lampard gerði það í september 2014 fyrir Man. City gegn sínum gömlu liðsfélögum í Chelsea. Fjögur lið með fullt hús stiga - Chelsea lagði Arsenal í stór- leiknum - Meist- ararnir skelltu ný- liðunum AFP 1 Það tók belgíska framherjann Romelu Lukaku fimmtán mínútur að opna markareikning sinn fyrir Chelsea í stór- leik helgarinnar gegn Arsenal í London en Lukaku sneri aftur til félagsins á dögunum eftir sjö ára fjarveru. lona er með fjögur stig eftir tvo leiki. _ Erkifjendurnir í Real Madrid töp- uðu einnig stigum er liðið gerði 3:3- jafntefli við Lev- ante í skrautlegum leik á útivelli. Ga- reth Bale skoraði fyrsta mark Real og Vinícius Júnior gerði næstu tvö. Roger Martí, José Campana og Róbert Pier gerðu mörk Levante. _ Körfuknattleikskonan Erna Há- konardóttir hefur lagt skóna á hilluna, en hún er aðeins 27 ára gömul. Erna hefur orðið Íslandsmeistari með Njarð- vík, Keflavík og Snæfelli. Þá hefur hún einnig orðið bikarmeistari með liðunum þremur. _ Gríski körfuknattleiksmaðurinn Fo- tios Lampropoulos mun leika með Njarðvík á komandi leiktíð. Lampropou- los er 37 ára og 206 sentímetrar. Hann hefur m.a. leikið með Estudiantes og Te- nerife í efstu deild Spánar, einni sterk- ustu deild Evrópu. _ C r i s t i a n o R o n a l d o , sókn- armaður Juventus, bað um að vera á varamannabekk liðsins fyrir leik þess gegn Udinese í gær. Sky á Ítalíu greinir frá þessum tíðindum, sem þykja renna stoðum undir það að portúgalska stór- stjarnan sé farin að hugsa sér til hreyf- ings eftir þriggja ára dvöl hjá Juventus. _ Skautakonan Júlía Rós Viðarsdóttir, úr Skautafélagi Akureyrar, lauk keppni á Junior Grand Prix 1, alþjóðlegri keppni á listskautum fyrir táninga í af- reksflokki, í Courchevel í Frakklandi á föstudaginn og náði þar besta árangri Íslendinga á mótinu frá upphafi. Á fimmtudaginn keppti Júlía Rós, sem er 17 ára gömul, í stuttu prógrammi og lenti þar í 16. sæti með 39,35 stig. Á föstudaginn keppti hún í frjálsu pró- grammi og lenti í 13. sæti með 72,19 stig. Samanlögð stig skiluðu Júlíu Rós 111,54 stigum og er það besti árangur íslensks skautara á Junior Grand Prix. _ Jamaíski spretthlauparinn Elaine Thompson-Herah hjó nærri 33 ára gömul heimsmeti Bandaríkjakon- unnar Florence Griffith Joyner þegar hún hljóp 100 metrana á 10,54 sekúndum, næstbesta tíma sögunnar, á Demantamóti í Eugene í Bandaríkjunum á laugardag. Thomp- son-Herah vann ólympíugull í bæði 100 og 200 metra spretthlaupi í Tókýó og jafnaði þá í 100 metra hlaupinu næstbesta tíma sögunnar, 10,61 sek- úndu, sem Griffith Joyner hafði einnig hlaupið á á sínum tíma. Heimsmet Griffith Joyner er 10,49 sekúndur. Elísabet Rut Rúnarsdóttir hafnaði á laugardag í fjórða sæti í sleggjukasti á HM U20 ára í frjálsíþróttum sem fram fór í Nairobi í Kenía. Elísabet kastaði lengst 63,81 metra en hún á best 64,39 metra. Öll köst Elísabetar voru yfir 60 metra. Finninn Silja Kosonen sigraði á nýju meistara- mótsmeti og kastaði 71,64 metra. El- ísabet varð sjöunda á EM í sama aldursflokki fyrr í mánuðinum. Kristján Viggó Sigfinnsson hafn- aði í 12. sæti í hástökki. Hann stökk hæst 2,06 metra, sem er nokkuð frá hans besta árangri sem er 2,13 metr- ar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Sleggja Elísabet Rut Rúnarsdóttir hafnaði í fjórða sæti í sleggjukasti á HM. Fjórða besta í heiminum Dregið var í aðra umferð Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu kvenna í höfuðstöðvum Knattspyrnu- sambands Evrópu, UEFA, í Nyon í Sviss í gær. Þar drógust ríkjandi Ís- landsmeistarar Breiðabliks gegn kró- atísku meisturunum í Osijek og munu freista þess að tryggja sér sæti í nýrri riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Breiðablik tryggði sér sæti í ann- arri umferðinni með stæl þegar liðið byrjaði á því að vinna Færeyjameist- ara KÍ frá Klaksvík 7:0 síðastliðinn miðvikudag og fylgdi því eftir með 8:1 sigri gegn litháísku meisturunum í Gintra á laugardaginn, en báðir leik- irnir voru hluti af fyrstu umferð keppninnar. Í nýrri riðlakeppni Meistaradeild- arinnar eru alls 12 sæti í boði fyrir sigurvegara viðureignanna tólf sem fara fram í annarri umferð. Það er því mikið í húfi fyrir Blika, því auk þess að eygja góðan mögu- leika á að komast í riðlakeppnina, þar sem sterkustu lið Evrópu bíða, sér fé- lagið fram á gífurlega fjárhagslega innspýtingu takist liðinu ætlunarverk sitt, að sigra Osijek. Fyrri leikur liðanna fer fram í Kró- atíu annaðhvort 31. ágúst eða 1. sept- ember og síðari leikurinn fer fram 8. eða 9. september á Kópavogsvelli. gunnaregill@mbl.is Blikar mæta Króatíu- meisturum Osijek Morgunblaðið/Árni Sæberg Evrópa Blikar eygja þátttöku í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. England Arsenal – Chelsea.....................................0:2 - Rúnar Alex Rúnarsson lék ekki með Arsenal vegna veikinda. Liverpool – Burnley ................................ 2:0 - Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 80 mínúturnar með Burnley. Leeds – Everton....................................... 2:2 - Gylfi Þór Sigurðsson var sendur í leyfi hjá Everton. Aston Villa – Newcastle........................... 2:0 Crystal Palace – Brentford ..................... 0:0 Man. City – Norwich................................ 5:0 Brighton – Watford.................................. 2:0 Wolves – Tottenham ................................ 0:1 Southampton – Manch. United ............... 1:1 Staða efstu liða: Chelsea 2 2 0 0 5:0 6 Liverpool 2 2 0 0 5:0 6 Brighton 2 2 0 0 4:1 6 Tottenham 2 2 0 0 2:0 6 Manch. Utd 2 1 1 0 6:2 4 Everton 2 1 1 0 5:3 4 Brentford 2 1 1 0 2:0 4 C-deild: Gillingham – Morecambe ........................2:1 - Jökull Andrésson lék allan leikinn með Morecambe. Þýskaland B-deild: Regensburg – Schalke .............................4:1 - Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrstu 83 mínúturnar hjá Schalke og var fyrirliði. Ítalía Napoli – Venezia.......................................2:0 - Arnór Sigurðsson kom inn á sem vara- maður á 64. mínútu hjá Venezia en Óttar Magnús Karlsson og Bjarki Steinn Bjarka- son voru á bekknum allan tímann. B-deild: Cremonese – Lecce ..................................3:0 - Þórir Jóhann Helgason kom inn á sem varamaður á 84. mínútu hjá Lecce en Brynjar Ingi Bjarnason var á bekknum. Pisa – SPAL ..............................................1:0 - Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn hjá Pisa. Danmörk Viborg – AGF............................................2:0 - Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn með AGF. OB – Bröndby............................................2:2 - Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 83 mín- úturnar með OB. Svíþjóð Elfsborg – Hammarby .............................2:2 - Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 85. mínútu hjá Elfsborg. - Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby Halmstad – Norrköping ..........................2:1 - Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 84 mín- úturnar með Norrköping og Ísak B. Jó- hannesson fyrstu 63. Rosengård – Örebro.................................6:0 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn hjá Rosengård og þær Cecilía Rán Rúnars- dóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir léku allan leikinn með Örebro. AIK – Djurgården ....................................1:0 - Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn með AIK. Piteå – Linköping.....................................1:1 - Hlín Eiríksdóttir lék fyrstu 74 mínúturn- ar hjá Piteå Noregur Rosenborg – Odd ......................................5:0 - Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn og skoraði fyrir Rosenborg. Bodö/Glimt – Kristiansund.....................3:0 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Sandefjord – Tromsö ...............................1:1 - Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 81 mínút- una og skoraði fyrir Sandefjord. Vålerenga – Viking..................................1:1 - Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 63 mínúturnar og skoraði fyrir Vålerenga. Strömsgodset – Brann .............................3:1 - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömgodset en Valdimar Þór Ingimund- arson var allan tímann á bekknum. 50$99(/:+0$ EM U19 karla Leikur um 7. sæti: Ísland – Svíþjóð .................................... 24:26 Svíþjóð Bikarkeppni kvenna: Västerås Irsta – Kristianstad ............ 18:32 - Andrea Jacobsen skoraði 2 mörk fyrir Kristianstad. .$0-!)49, KNATTSPYRNA: Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Domusnova-völlur: Leiknir R – HK.........18 Samsung-völlur: Stjarnan – Fylkir .....19:15 Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Jáverksvöllur: Selfoss – ÍBV.....................18 Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Þór/KA ......18 2. deild karla: Rafholtsvöllur: Njarðvík – Haukar .....19:15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.