Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 29

Morgunblaðið - 23.08.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND DWAYNE JOHNSON EMILY BLUNT HUGH JACKMAN Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja- vík, RIFF, hefst 30. september og eins og greint hefur verið frá verður Holland í fókus að þessu sinni, holl- enskar kvikmyndir og kvikmynda- gerðarmenn. Skipuleggjendur RIFF hafa nú sent frá sér lista tíu kvikmynda sem þykja sérstaklega áhugaverðar af þeim tugum mynda sem verða á dag- skrá hátíðarinnar. Myndirnar eiga sameiginlegt að hafa verið sýndar á kvikmyndahátíðum erlendis í sumar eða þá að þær verða sýndar á hátíð- um í haust. Leiknar frásagnarmyndir Í flokki leikinna frásagnarmynda eru þrjár nefndar. Azor eða Gáshaukur er pólitískur samsæristryllir sem gerist á níunda áratugnum og fylgir eftir svissnesk- um bankamanni í sendiför í Argent- ínu, sem var þá undir einræð- isstjórn. Leitar hann að samstarfsmanni sínum sem hefur horfið sporlaust. „Persónur eru peð í valdatafli blárra handa – enginn er saklaus í þessari gráu veröld eig- inhagsmuna,“ segir um myndina. Brighton 4th eða Brighton fjórða segir af fyrrverandi fjölbragða- glímukappa, Kakhi frá Georgíu, sem ferðast frá Tíblísí til Brooklyn þar sem sonur hans er í djúpri skuld vegna fjárhættuspila. Hetjan grípur til þess örþrifaráðs að mana lánar- drottinn sonar síns í hringinn með því skilyrði að hann aflétti skuldinni, sigri Kakhi. Versta manneskja í heimi eða Ver- dens verste menneske er nýjasta kvikmynd heiðursverðlaunahafans norska Joachims Triers. Segir í henni af fjórum árum í lífi ungrar konu, Júlíu, sem reynir að greiða úr flækjum í ástalífi sínu en lendir um leið á hraðahindrunum á frama- brautinni. Heimildarmyndir Sex heimildarmyndir eru valdar sérstaklega af aðstandendum hátíð- arinnar. Gabi frá átta til þrettán ára aldurs segir af Gabi sem fylgt er eftir í fimm ár í sjálfsmyndarumleitun í kynjuðu samfélagi, eins og því er lýst. „Sumir segja að ég vilji vera drengur, en svo er ekki, ég vil bara vera Gabi,“ segir Gabi í myndinni. Að temja garðinn eða Taming the Garden segir af manni sem stundar þá iðju að rífa upp aldagömul tré meðfram georgísku sjávarsíðunni og planta þeim í garðinum sínum. Athæfið hefur mikil áhrif á umhverfi trjánna og samfélögin sem þau til- heyra og fylgir myndin eftir því ferli og dregur um leið upp svipmynd af georgísku samfélagi og gildum þess. Zinder dembir áhorfendum inn í veröld „palais“-gengjanna sem ráða lögum og lofum í heimabæ höfundar myndarinnar, Zinder í Níger í Vest- ur-Afríku. Glæpalífið veitir tilgang og virðingu, annars blasir við at- vinnuleysi og ömurð, eins og segir um myndina. Fallegasti drengur í heimi segir af leikaranum Birni Andrésen sem lék í Dauðanum í Feneyjum, kvikmynd ítalska leikstjórans Lucho Visconti frá árinu 1971 en leikstjórinn sagði Andrésen fegursta dreng í heimi. Fimmtíu árum síðar hefur þessi yfir- lýsing enn áhrif á líf Andrésen. Smárasystur eða Sisters With Transistors er sögð „mögnuð og áð- ur ósögð saga kvenkyns frumherja á árdögum raftónlistar, þegar þeram- ín, hljóðgervlar og feedback-vélar þöndu vitin“ og er Laurie Anderson sögumaður myndarinnar. Konurnar sem eru til umfjöllunar eru sagðar hafa umbreytt því hvernig tónlist er gerð og skynjuð í dag. A-ha: bíómyndin – a-ha The Movie segir af norsku hljómsveitinni góð- kunnu, a-ha, þar sem henni er fylgt eftir á tónleikaferðalagi. „Þessir þrír ungir menn, hafa fjarlægan draum um að verða alþjóðlegar popp- stjörnur og þegar gullni smellurinn „Take on Me“ nær toppsæti Billbo- ard-listans bandaríska virðist tak- markinu náð. Hvernig er svo að lifa í draumi? Þetta er frásögn af metnaði, frábærri tónlist, vinslitum og jafnvel fyrirgefningu,“ segir um myndina. Teiknimyndir Ein teiknimynd er nefnd í þessari tíu mynda upptalningu, Duldýra- garður eða Cryptozoo á frummálinu. Fjallar hún um duldýragarðsverði sem fanga fágæta goðsagnaveru sem nærist á draumum. Þeir velta fyrir sér hvað sé hið rétta í stöðunni: á slík undravera að vera lokuð inni eða er betra að hún lifi áfram í felum? Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á riff.is. Tíu áhugaverðar á RIFF - Nú styttist í Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík og verður hér athygli vakin á tíu myndum sem þykja sérstaklega áhugaverðar - Leiknar frásagnarmyndir, heimildarmyndir og teiknimynd Fagur Í Fegursta dreng í heimi segir af Björn Andrésen sem lék í Dauðan- um í Feneyjum frá 1971. Leikstjórinn sagði hann fegursta dreng í heimi. Duldýragarður Úr teiknimyndinni Cryptozoo. Hún fjallar um duldýra- garðsverði sem fanga fágæta goðsagnaveru sem nærist á draumum. Smárasystur Úr heimildarmyndinni Sisters With Transistors eða Smára- systur. Í henni er rakin saga kvenkyns frumherja á árdögum raftónlistar. A-ha Norsku drengirnir í hljómsveitinni a-ha urðu poppstjörnur eftir að lag þeirra „Take on Me“ náði toppsæti Billboard-listans bandaríska.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.