Morgunblaðið - 24.08.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021
Ásthildur Lóa
Þórsdóttir,
grunnskólakenn-
ari og formaður
Hagsmuna-
samtaka heim-
ilanna, er oddviti
Flokks fólksins í
Suðurkjördæmi
fyrir komandi
þingkosningar.
Ásthildur gekk
til liðs við flokkinn fyrr á þessu ári.
Hún er kennari að mennt og
starfar sem grunnskólakennari,
gift Hafþóri Ólafssyni, söluráðgjafa
hjá Exton, og eiga þau tvo upp-
komna syni. Ásthildur hefur verið
virk í réttindabaráttu kennara og
árið 2017 var hún kjörin í stjórn
Hagsmunasamtaka heimilanna.
Leiðir Flokk fólksins
í Suðurkjördæmi
Ásthildur Lóa
Þórsdóttir
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
vegna alþingiskosninga hófst
klukkan tíu í gærmorgun í Kringl-
unni og Smáralind. Opið verður alla
daga vikunnar frá 10.00 til 22.00.
Kosningar nálgast óðum en kjör-
dagur er eftir fimm vikur, laug-
ardaginn 25. september. Þann dag
verður einungis opið í Smáralind á
milli 10.00 og 17.00 fyrir kjósendur
sem eru á kjörskrá utan höfuðborg-
arsvæðisins.
Kosið er á 1. hæð í Smáralind, ná-
lægt inngangi í norðausturhluta á
1. hæð, og á 3. hæð í Kringlunni ná-
lægt bíógangi, en hægt er að nálg-
ast allar helstu upplýsingar um
fyrirkomulag alþingiskosninga á
kosningavef dómsmálaráðuneyt-
isins, kosning.is.
Atkvæði Frá atkvæðagreiðslu utan kjör-
fundar í gær. Hún er nú hafin víða.
Kosningar hafnar
í Kringlunni og
Smáralind
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dómsmálaráðuneytið vekur athygli
á því að þótt utankjörstaða-
atkvæðagreiðsla sé hafin renni
framboðsfrestur ekki út fyrr en á
hádegi 10. september. Fyrir þann
tíma liggi ekki fyrir hvaða flokkar
bjóða fram lista í kosningunum 25.
september. Þeir sem kjósa utan
kjörfundar geta ritað nafn síns
flokks með blýanti. Stimplar koma
þegar allir listar liggja fyrir.
Framboðsfrestur
til 10. september
Sveitarfélagið Ölfus, Landsbankinn
og Þekkingarsetrið Ölfus Cluster
hafa komist að samkomulagi um
opnun skrifstofuhótels og vinnustofu
með áherslu á fjarvinnu í Þorláks-
höfn. Stefnt er að því að opna fjar-
vinnuverið 1. nóvember nk. í Hafn-
arbergi 1 þar sem útibú bankans er
nú til húsa en útibúið færir sig um
set í sama húsi.
Að sögn Elliða Vignissonar, bæj-
arstjóra í Ölfusi, er reiknað með því
til að byrja með, að vinnustöðvar
verði þarna fyrir 10 manns. Því til
viðbótar hafi fjögur fyrirtæki, sem
eru að hefja starfsemi í Þorlákshöfn,
óskað eftir skrifstofum. „Við munum
sannarlega reyna að mæta því,“ seg-
ir Elliði við Morgunblaðið.
„Hjá okkur háttar þannig til að
vöxtur er afar hraður og það kallar á
að við séum vakandi fyrir nýjum
áskorunum. Covid-ástandið hefur
hraðað mjög þeirri þróun að fólk
geti sinnt vinnu sinni án þess að
ferðast til og frá vinnustað á hverj-
um degi og margir sem hér búa
starfa í þannig umhverfi. Við erum
með þessu að þróa samfélagið í takt
við þessar nýju áherslur með því að
bjóða upp á skrifstofuhótel og fja-
vinnuver í samstarfi við Landsbank-
ann,“ segir Elliði en mikil fjölgun
íbúa hefur átt sér stað í Ölfusi síð-
ustu ár. Fyrstu sex mánuði ársins
var fjölgunin 4,3%. bjb@mbl.is
Skrifstofu-
hótel í Þor-
lákshöfn
- Fleiri fyrirtæki í
leit að skrifstofum
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Þorlákshöfn Íbúum fjölgar og fleiri
munu geta unnið í fjarvinnu.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Birkiskógur vestast í Hvamms-
fjöllum í Ódáðahrauni er eins og vin í
eyðimörkinni. Þarna vex birkið í
590-630 metra hæð og mögulega vex
skógur þarna í meiri hæð en vitað er
um annars staðar á landinu, þótt
birkihríslur megi finna hærra yfir
sjó.
Árni Sigurbjarnarson, skógrækt-
armaður á Húsavík, kom ásamt fé-
lögum sínum við í þessari gróður-
torfu nýlega. Á heimasíðu Skóg-
ræktarinnar, skogur.is, er haft eftir
Árna að í sumar megi sjá þarna
a.m.k. 20 sentimetra sprota á bæði
birki og víði og telur Árni að hvort
tveggja sé í framför, þrátt fyrir að á
svæðið slæðist stöku sauðkindur á
hverju sumri. Fé hefur hins vegar
fækkað mjög á þessum slóðum á síð-
ari árum og nú sést þarna nýliðun
hjá bæði birki og víði.
Fallegar skógarleifar
Í samtali við Morgunblaðið segir
Árni að skógurinn þarna sé væntan-
lega leifar af upphaflegum hálendis-
skógi, sem hafi tekið við sér með
hlýnandi veðri og minni beit. Í
Ódáðahrauni og á öræfunum sunnan
Mývatnssveitar, allt frá Búrfells-
hrauni í norðaustri að Hvamms-
fjöllum í suðvestri, megi finna hlíðar
og hvamma með náttúrulegu skjóli í
4-500 metra hæð og þar séu hér og
hvar mjög gamlar og fallegar skóg-
arleifar, sem séu farnar að taka við
sér. „Þarna er að finna yndislegar
perlur af ósnortnu víðerni og skóg-
arleifar í sandauðninni,“ segir Árni,
en hann hefur síðustu ár unnið að
verkefni sem hann kallar „Leitina að
hinu ósnortna víðerni“.
Hann nefnir einnig dæmi um 4-5
metra hátt reynitré í um 400 metra
hæð. Það hafi þrifist vel inni í birki-
kjarrinu, þar sem sauðfé kemst ekki
að því, en reyniviður er enn við-
kvæmari fyrir beit heldur en birkið.
Í brekkunni vestast í Hvamms-
fjöllum segir á skogur.is að innan
ferhyrnings sem sé um þrír og hálf-
ur hektari að stærð vaxi gróskumik-
ið birki á um það bil helmingi svæð-
isins og ýmis annar gróður, svo sem
fjallavíðir, loðvíðir, einir, gulmaðra,
grös og fleiri tegundir. Svæðið nái
upp í ríflega 600 metra hæð yfir sjó
og þekja birkis virðist vera vel yfir
þeim mörkum sem skilgreina skóg-
lendi.
Víða eru vaxtarskilyrði
„Birkitorfan í Hvammsfjöllum er
minnisvarði um forna gróðurþekju
en segir okkur jafnframt að víða á
hálendinu eru vaxtarskilyrði fyrir
birki- og víðikjarr. Þau skilyrði hafa
batnað undanfarin ár með hlýnandi
veðri. Með beitarfriðun og markviss-
um landeflingaraðgerðum má breiða
út slíkt gróðurlendi á ný eins og gert
hefur verið með góðum árangri víða,
til dæmis á Þórsmörk og á Heklu-
skógasvæðinu.
Þótt sumar sé stutt í Ódáðahrauni
verða sumardagar þar gjarnan mjög
hlýir og hafgolu gætir ekki,“ segir á
vef Skógræktarinnar.
Ljósmyndir/Árni Sigurbjarnarson
Birkiskógur Kristinn Guðlaugson í jaðri gróðurtorfunnar í um 600 metra hæð í Hvammsfjöllum. Mögulega er um hæsta skóg yfir sjó að ræða á landinu.
Gróðurtorfa vin í eyðimörkinni
- Yndislegar perlur af ósnortnu víðerni og skógarleifar í sandauðninni
Á öræfum Reynitré í um 400 metra hæð yfir sjó í Hvannfelli í jaðri Búrfells-
hrauns. Það hefur þrifist vel í birkikjarrinu, þar sem sauðfé kemst ekki að.
2021 ALÞINGISKOSNINGAR