Morgunblaðið - 24.08.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.08.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021 Læðist Falleg er hún kisan sem ljósmyndari blaðsins rakst á við Laugaveg- inn. Hún fylgdist grannt með mannlífinu, með sínum sægrænu augum. Eggert Kosningar eru fram undan, stjórn- málamenn sækjast eftir umboði til að gæta hagsmuna okkar næstu fjögur árin. Regluverk EES er umgjörð evrópsks markaðsbúskapar, sem virðist enn vera sá meðalvegur sem flestir vilja feta. Norð- menn, 17 sinnum fleiri en við, eru leiðandi í því samstarfi, sem við fáum að vera með í sem eins konar „aftanívagn“. Þeir vilja ekki að för- inni sé stýrt þaðan. Hlutfallslegir yfirburðir Frelsi í viðskiptum og framfarir í flutningatækni hafa gert löndum kleift bæta lífskjör með því að sér- hæfa sig kringum svonefnda „hlut- fallslega yfirburði“. Hlutfallslegir yfirburðir okkar hafa lengi verið í fiskveiðum, hreinni og ódýrri orku, lítt snortinni náttúru og loks háu menntunarstigi. Sagt er að hér séu 42% af ósnortnum víðernum Evr- ópu. Við sjáum nú útlendinga kaupa upp dýrmætar náttúruperlur fyrir sig og vini sína og úrræða- leysi ráðamanna við því. Allir voru og eru sammála um að fiski- auðlindin verði að vera háð inn- lendu eignarhaldi. Sama hlýtur að gilda um orkuna og náttúruna. Þetta eru allt ómetanleg verðmæti sem við viljum halda í fyrir íbúana, þó hagfræðin og EES-reglurnar segi okkur að hagvöxturinn verði mestur með af- skiptaleysi. Innan við fimmti hluti orkunnar er nýttur á almennum markaði heimila og fyrirtækja. Við viljum að það gríðarlega afl sem hér hefur verið virkjað verði áfram nýtt hér á landi til at- vinnusköpunar og flutt út sem fram- leiðsluþáttur í útflutn- ingsvörum. Ef orkan verður flutt út „óunn- in“ munu störf og ungt fólk fara með. Fjórfrelsið svonefnda er ekki orðin tóm. Reynslan sýnir að mark- aðsbúskapur og frelsi hámarka vel- megun þjóða, þó henni sé ójafnt skipt. Evrópulönd huga að velferð og Norðurlöndin eru í fremstu röð í þeim efnum. Með þessu virðast þau fórna hámörkun hagvaxtarins, en reynast þó alltaf í fremstu röð hvað þjóðartekjur varðar. Hagfræðin virðist vanmeta velferðina. Virkjanir og stóriðja Efnahagslíf okkar er og verður óstöðugt. Breytingar og sveiflur hafa lengi verið miklar í lífríkinu. Landkostir munu breytast í hlýn- andi veðráttu, við vitum ekki hvernig, en varla aðeins okkur í hag. Ferðaþjónustan varð á fáum árum mesta gjaldeyrislind þjóð- arinnar. Orkubúskapur og stóriðja eru samt stöðugasti þáttur þjóð- arbúsins og eiga mikinn þátt í því að álitlegt er að búa og starfa hér á landi. Evrópureglur kveða á um að ríkjum beri að greiða fyrir teng- ingu raforkukerfa milli landa og að opinberum orkufyrirtækjum beri að taka markaðsverð fyrir orku. Ef sæstrengur verður lagður til lands- ins gerist þetta. Fyrir meira en hálfri öld hófum við að virkja stórt og umfram þarf- ir heimamarkaðarins. Stór verkefni voru gerð framkvæmanleg með því að tengja tekjur af stóriðju með langtímasamningum við kostnað og fjármögnun virkjana. Í hálfa öld höfum við haft full- vissu um að þjóðin muni njóta ódýrrar, hreinnar raforku, þegar stóriðjan hefur greitt virkjanirnar niður. Þessi fyrirheit voru margí- trekuð. Fyrir nokkrum árum tók Landsvirkjun að segja okkur að nú mætti vænta uppskeru. Fram kom hugmynd um „þjóðarsjóð“ í stíl við norska olíusjóðinn. Tveir formenn Sjálfstæðisflokksins hafa því miður orðað að selja Landsvirkjun að hluta. Einkavæðing, sæstrengur, vindorkugarðar og markaðsverð eru orð sem dynja á fólki. Orku- pakkarnir eru vörður á vegferð sem við ráðum engu um. Engin samstaða er um að við göngum úr EES þó vegferð ESB í orkumálum henti okkur ekki. Finna verður leið sem gerir okkur kleift að efna gömlu fyrirheitin, en halda áfram þessu evrópska samstarfi á meðan það er okkur hagfellt. Það þýðir að við búum svo um hnútana að við getum lifað með orkupökkunum og jafnvel sæstreng. Sjálfsþurftarbúskapur Samrekstur í eigu notenda getur samræmst EES-reglum. Bóndi getur virkjað bæjarlækinn til eigin nota, fleiri bændur geta virkjað saman o.s.frv. Þjóðin hefur síðustu 50 árin virkjað mikið og verði eignarhaldið milliliðalaust hjá not- endum í stað ríkissjóðs fellur rekst- urinn utan Evrópureglna. Sú leið sem ég sé er að skilja fimmtung orkuframleiðslunnar, eldri nið- urgreiddar virkjanir, ekki aðeins allar þær sem gerðar voru fyrir al- mennan markað heimila og smáfyr- irtækja heldur líka stórar niður- greiddar virkjanir, frá rekstri þeirra sem yngri eru og þjóna orkufrekum iðnaði. Einhvers konar félagsform sameignar yrði valið eða skapað, það er úrvinnsluatriði. Nýja félagið yrði til fyrir eigendur sína og mundi afhenda þeim raf- magn á framleiðslukostnaðarverði um land allt, með hæfilegri álagn- ingu vegna viðhalds og endurnýj- unar. LV yrði eftir þetta með yngri, skuldsettar virkjanir. Þetta yrði að gera með vitund og sam- þykki lánveitenda LV. Þannig yrði tryggt að heimilin niðurgreiddu ekki orku til stóriðju og að þau njóti lágs orkuverðs, eins og ítrek- að hefur verið lofað. Þetta er kjarni málsins. Markmiðið hlýtur að vera að standa við margítrekuð fyrirheit um að almenningur muni njóta lágs orkuverðs. Síðar gæti þetta sam- eignarfélag notenda leyst fleiri skuldlausar virkjanir til sín, eftir því sem almennur heimamarkaður kallar á. Þrasað til eilífðarnóns? Umræðan um orkupakkana var Sjálfstæðisflokknum erfið. Reynslulitlir forystumenn flokksins töluðu fyrst gegn innleiðingu þeirra og sáu enga sáttaleið. Þeir hröktust loks til að samþykkja orkupakkann úrræðalausir. Fólk vill ekki gefa frá sér neinn þeirra fáu, mikilvægu kosta sem vega upp á móti kostnaðarsamri búsetu hér við ysta haf. Orkan, náttúran og störf fyrir unga fólkið eru ómet- anleg verðmæti sem við eigum að ríghalda í, rétt eins og fiskiauð- lindina. Rökin eru nákvæmlega þau sömu. Fólk vill bæði gulltryggja áframhaldandi, sameiginlegt eign- arhald á orkuauðlindinni, sem er ein verðmætasta og stöðugasta eign íbúa landsins og að íbúunum verði tryggð ódýr raforka. Fólkið vill ekki að LV verði einkavædd og það vill líka að hin hreina, græna orka verði nýtt hér á landi. Hug- myndir um að raforkunni verði snúið í vetni hér á landi, sem er nánast vinnuaflslaus ferill, og flutt þannig óunnin utan, eru óvitaskap- ur. Sorglegt er að heyra ráðherra orkumála daðra við það. Fjölmörg atriði þarf að ræða í tengslum við orkumálin. Það sem þarf hins veg- ar ekki að gera er að þrasa til ei- lífðarnóns. Það er komið nóg. Eftir Ragnar Önundarson » Orkubúskapur og stóriðja eru samt stöðugasti þáttur þjóð- arbúsins og eiga mikinn þátt í því að álitlegt er að búa og starfa hér á landi. Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og fyrrverandi bankastjóri. Leitum sátta um orkumálin Íslenska þjóðin eld- ist hratt. Nú erum við ein yngsta þjóð innan OECD en eftir 25 ár verðum við ein sú elsta. Sá sem er fæddur 1959 getur vænst þess að verða ríflega 82 ára. Sá sem fæddist 1999 getur vænst þess að verða 87 ára. Flækj- an er hins vegar sú að ríflega fjórir einstaklingar eru á vinnu- aldri (20-65 ára) fyrir hvern einn sem er utan vinnumarkaðar. Eftir því sem tímar líða fækkar þeim hlutfallslega sem eru á vinnualdri. Þegar höfundur þessarar greinar verður 65 ára innan ekki langrar framtíðar má búast við að um 2,5 einstaklingar séu á móti þeim sem eru utan vinnumarkaðar. Það er frábært og skelfilegt í senn. Við þurfum að stokka heilbrigðis- kerfið upp og við verðum að gera það hratt. Um þetta og fleiri áskoranir og lausnir verður fjallað á ráðstefnu SA og SVÞ um heil- brigðiskerfi á krossgötum kl. 16 á miðvikudag. Að óbreyttu mun þetta leiða til sívaxandi kostnaðar við heilbrigð- isþjónustuna, hærri skatta auk þess sem fólk mun þurfa að bera stærri hlut af kostnaði við eigin umönnun. Það er dökk framtíðar- sýn. Því fyrr sem brugðist er við því betur mun ganga að ráða við vandann. Á vinnumarkaði er unnt að hvetja fólk til að vinna lengur en nú tíðkast. Fjölmargir sem fara á eftirlaun eru í fullu fjöri og æski- legt að þeim gefist kostur á að halda áfram störfum. Því fylgir lífsfylling og ánægja að finna að framlag fólks sé metið auk þeirra tekna sem viðkom- andi aflar. Það er æskilegt að stuðla að því að hingað flytjist fólk á vinnualdri sem tekur þátt í sam- félaginu, vinnur og jafnvel skapar sér og sínum störf með stofnun nýrra fyrir- tækja. Við eigum að auðvelda fólki að flytja til Íslands og taka þátt í vinnu- markaði vegna þess að það er hagur okk- ar sjálfra. Og það rétta í stöðunni. Elli er falleg – hún er farsæl niðurstaða af löngu lífi. En það þarf að fjölga þeim árum sem fólk býr við góða heilsu og er virkir þegnar í samfélaginu. Eldri borg- arar þurfa síðan að eiga raunhæfa möguleika til að dvelja heima eins lengi og kostur er. Heimahjúkrun og heimaþjónusta er mikilvægur þáttur til þess en einnig geta fleiri búsetuúrræði þurft að koma til. Einfalda þarf afar flókna verka- skiptingu félags- og heilbrigðis- þjónustu eldra fólks sem er á höndum sveitarfélaga og ríkisins. Stofnanir samfélagsins eiga ekki séns í að halda í við öldrun þjóð- arinnar. En það er ljós við enda gang- anna. Með því að bjóða upp öfluga læknisþjónustu, virka hjúkrunar- og félagsþjónustu sem byggir á samhæfðri þjónustu öldrunar- lækna, heilsugæslu, sjúkraþjálf- unar, iðjuþjálfa og hjúkrunar má draga úr þörf fyrir hjúkrunar- heimili, fækka komum á bráða- deildir og innlögnum á sjúkrahús. Gera heimilið að griðarstað – með þeirri þjónustu sem hver og einn þarfnast. Netið og tæknin leika lykilhlut- verk. Með nýlegri tækni og fjar- heilbrigðisþjónustu má sinna og hafa eftirlit með heilsufari eldra fólks. Ömmur og afar, langafar og langömmur kunna á spjaldtölvur og síma. Þetta eykur afköst og gerir heilbrigðisstarfsfólki að auki kleift að veita þjónustu á svæðum þar sem aðgangur að sérfræði- þekkingu er takmarkaður. En það þarf að taka skrefið. Engin von er til þess að unnt verði að reisa hjúkrunarheimili fyrir alla eldri borgara. Biðlistar eru langir og þótt til standi átak í að fjölga dvalarrýmum þá verður vandinn enn til staðar og hann vex með hverju ári. Rekstur hjúkrunarheimila þarf að vera tryggður til lengri tíma og fjár- mögnun taka mið af raunveruleg- um kostnaði miðað við heilsufar notenda. Allir þurfa að eiga sæti við borðið: Ríkið, einkaaðilar og félagasamtök. Eins og í annarri heilbrigðis- þjónustu þarf að tryggja gæði, ör- yggi, hagkvæmni og árangur. Rík- ið ákveður kröfurnar og fjöldinn allur af fyrirtækjum og stofnunum mætir þeim. Kostir einkarekstrar munu nýtast vel þar sem leitast er við að innleiða nýjar tækni- lausnir, hagræða, búa til nýja val- kosti og skapa umhverfi þar sem aldraðir geta notið sín eftir bestu getu. Samkeppni, sem verðlaunar nýjar lausnir á þessu sviði, á full- an rétt á sér og getur með öðru lagt grunn að því að búa öldr- uðum hlýlegt og áhyggjulítið líf. Það eiga þeir allir skilið. Öll viljum við verða gömul – Hvað þá? Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson » Flækjan er hins veg- ar sú að ríflega fjórir einstaklingar eru á vinnualdri (20-65 ára) fyrir hvern einn sem er utan vinnumarkaðar. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.