Morgunblaðið - 24.08.2021, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.08.2021, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021 ✝ Árni Ólason fæddist 10. mars 1942 í Reykjavík. Hann lést 15. ágúst 2021 á Hjúkrunarheim- ilinu Grund. Foreldrar Árna voru þau Val- gerður Árnadóttir, húsmóðir og verkakona, f. á Vopnafirði 8. des- ember 1918, d. 4. febrúar 1999, og Óli Hermannsson, lögfræð- ingur og þýðandi, f. á Kaldbak í Tjörneshreppi 18. september 1914, d. 7. júní 1997. Þau skildu eftir tíu ára sambúð. Árni ólst upp í stórum systk- inahópi, fyrst á Bergstaða- stræti og síðar í Ásgarði við Fossvoginn. Alsystkini Árna eru Margrét, f. 11.5. 1943, Ragnheiður Helga, f. 6.11. 1944. d. 30.11. 2014, Hermann, f. 30.1. 1946, Brjánn, f. 13.6. 1947, d. 31.12. 2010, Guðrún Kristjana, f. 28.10. 1950, og Hrólfur f. 25.11. 1952. Bræður Árna samfeðra eru Oddur, f. 1953, og Guðni, f. 1961. Árni dvaldi mikið hjá afa sínum Árna Jónssyni frá Múla og ömmu sinni Ragnheiði Jónasdóttir sem barn en amma 30.10. 1946, þau voru gift frá 1978-83, dóttir þeirra er Val- gerður, f. 3.7. 1979, synir henn- ar eru Benjamín Árni, f. 9.6. 2000, og Ásgrímur Guðmunds- son, f. 18.3. 2010. Sambýlis- maður Valgerðar er Karl Fannar Sævarsson, f. 3.12. 1987. Dóttir Lenu af fyrra hjóna- bandi er Þórunn Brandsdóttir, f. 27.3. 1968, gift Atla Viðari Jónassyni, f. 21.7. 1971. Árni flutti með fjölskyldu sína til Lundar í Svíþjóð árið 1980. Í Svíþjóð starfaði hann mestmegnis hjá PLM-verk- smiðjunni til ársins 1994 að hann fluttist aftur til Íslands. Þá starfaði hann um tíma hjá Stálsmiðjunni og fór svo aftur til Landhelgisgæslunnar og sigldi með varðskipinu Ægi. Árni var mikill lestrarhestur og djassáhugamaður enda hlaut hann gott tónlistarupp- eldi frá móðurbræðrum sínum Jóni Múla og Jónasi Árnason- um. Einnig hafði hann brenn- andi áhuga á skipum, flug- vélum og seinni heimsstyrjöldinni og var manna fróðastur um það. Útför Árna verður í dag, 24. ágúst 2021, klukkan 15 í Fossvogskirkju. Streymt frá útförinni: https://www.læf.is/utfor- arni-olason Virkan hlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat/ hans lést 1956. Nokkur sumur sem barn og unglingur dvaldi Árni hjá Sighvati Arnórs- syni og Margréti Grünhagen konu hans í Miðhúsum í Biskupstungum, honum þótti mjög vænt um þann tíma og hélt góðu sam- bandi við þau út ævina. Árni fór ungur að vinna, tíu ára að bera út Vísi og svo sem sendill hjá ÁTVR og fór svo fyrst á sjó 14 ára gamall á vöruflutningaskipið Hamrafell sem sigldi bæði til Suður- og Norður-Ameríku. Síðar sigldi hann bæði á fraktskipum Eim- skipafélagsins og Ríkisskipum og með Landhelgisgæslu Ís- lands. Árni var góður náms- maður en vegna aðstæðna þurfti hann ungur að fara að vinna, hann var þó ákveðinn í að klára nám og kláraði gagn- fræðapróf í kvöldskóla 1972 og svo loks stúdentsprófið í Lundi í Svíþjóð 1984. Einnig var hann með leyfi sem fiskmatsmaður og járniðnaðarmaður. Árið 1972 hóf hann sambúð með Lenu Hákonardóttur f. Elsku pabbi minn. Það er sárt að hafa ekki vitað þegar ég kvaddi þig daginn sem þú lést að það væri í síðasta sinn sem ég myndi sjá þig á lífi, en þó ljúfsárt að það síðasta sem þú sagðir við mig var „takk Vala mín“ og ég svaraði „ekkert að þakka pabbi minn!“ Mér þykir leitt að ég, einka- barnið þitt, hafi haft lítinn áhuga á skipunum og flugvél- unum sem þú sýndir mér og sagðir frá, mér þykir leitt að skothæfileikar mínir hafi sést á götóttum veggjunum heima hjá þér í stað skotskífunnar og að ég hafi ráðskast með þig frá því ég fæddist þar til þú dóst. Pabbi minn sem fékk lánað hveiti hjá nágrönnunum seint á laugardagskvöldi því ég var „að baka“, en ég var bara fimm ára og kunni ekkert að baka og samt smakkaðir þú á öllu og sagðir að það væri voða gott. Pabbi minn sem skammaði mig aldrei og bannaði mér ekki neitt nema að vera með læti á frétta- tíma. Pabbi sem bölvaði og ragnaði og sagði sótsvarta brandara en var samt svo ljúfur og réttsýnn. Pabbi átti byssu- safn en skaut aldrei dýr, bara í mark. Pabbi vissi allt um her- skip, flugvélar og stríð en var samt friðarsinni og mótmælti Nató, innrásinni í Írak og her- náminu í Palestínu. Pabbi var mikill snyrtipinni, klæddi sig eins og breskur séntilmaður í Burberry-frakka og nýpússuð- um Lloyd-skóm en var samt stoltur verkamaður og sjómað- ur sem mætti í allar kröfugöng- ur og stóð með sínu fólki í kjarabaráttunni. Pabbi sigldi um heimsins höf, sá Bítlana spila í Hamborg áður en þeir urðu frægir, fór á djass- búllur í Harlem og keypti amer- ísk leikföng handa litlu systk- inum sínum, leikfangabíla og skip, hluti sem hann sjálfur dreymdi um að eignast sem lít- ill drengur. Ég er stolt af pabba, með Landhelgisgæslunni tók hann þátt í mörgum björgunarað- gerðum, aðallega hér við Ís- landsstrendur en hann var einnig með í för Landhelgis- gæslunnar við strendur Senegal og í Miðjarðarhafi og tókst m.a. að bjarga tugum flóttamanna úr sökkvandi bát og koma í örugga höfn. Það hafði mikil áhrif á pabba að sjá þá örvæntingu og örbirgð sem fær fólk til að hætta lífi sínu og barna sinna til að eiga örlitla von um betra líf í Evr- ópu. Ég þakka fyrir að hafa al- ist upp við góð gildi og að gef- ast aldrei upp þótt á móti blási, ég verð aldrei of gömul til að láta drauma rætast, það sýndi pabbi og sannaði. Takk pabbi minn fyrir að styðja mig í einu og öllu sem ég gerði, þegar ég varð ung móðir, þegar ég var bíllaus og þú skutlaðir mér bæði í og úr vinnu og mættir á alla mína við- burði, hvort sem það var veg- anúar, styrktartónleikar eða pólitískir viðburðir þá varstu mættur. Vinir mínir og samstarfsfólk hefur oft orð á því hvað það er einstakt og þykir svo mörgum vænt um þig. Takk fyrir mig, pabbi minn. Þín Valgerður (Vala). Elsku Árni. Þrátt fyrir að hafa aðeins þekkt þig í rúmlega tvö ár þá finnst mér eins og við höfum þekkst mun lengur. Raunar er það þannig að þegar ég hitti þig fyrst, þar sem þú varst auðvitað mættur til að styðja við bakið á Völu á setningarathöfn Veganú- ar árið 2019, þá var ég alveg viss um að við hefðum hist áður. Aldrei fundum við út úr því, en nóg höfðum við þó að tala um, enda leiddist mér ekki að draga upp úr þér endalausan fróðleik um hin ýmsu skip og flugvélar. Það var eitthvað sem þú virtist hafa endalausa þekkingu á. Svo þegar þú komst í heimsókn og við lágum yfir heimildamyndum um seinna stríð og annan fróð- leik. Þá var sko gaman. Kæri Árni, takk fyrir allt það góða. Karl Fannar Sævarsson. Elsku afi. Þegar við bjuggum saman á Bergþórugötu var ég eins til tveggja ára og vaknaði snemma eins og þú, mamma segir að ég hafi alltaf farið inn til þín á morgnana þegar þú varst í landi og rétt þér gleraugun þín og úrið sem var á náttborðinu og sagt „datti?“, en það kallaði ég bæði þig og pabba og afa Jóngeir. Ég var bara 6 ára þeg- ar þú fórst með mig á skot- æfingasvæðið og ég fékk að skjóta í flöskur, mér fannst merkilegt og gaman að skjóta úr byssu. Þú fórst með mig á flugsýningar og skutlaðir mér oft á fótboltaæfingar, en þú hafðir engan áhuga á fótbolta fyrr en allt í einu nýlega að þú varst kominn með Liverpool- stöðina og hélst með Liverpool. En ég er auðvitað Man United- maður. Þegar þú svo gast ekki leng- ur keyrt þá var það ég sem fékk að skutla þér, fara með þér á rúntinn og í Kringluna. Það var ómissandi partur af bíl- túrnum að hlusta á djass- diskana þína og stelast til að kaupa fyrir þig sígarettur, það kunnir þú að meta. Takk fyrir góðar stundir, afi minn, hvíl í friði. Þinn Benjamín Árni. Við hjónin viljum kveðja Árna Ólason þegar hann er far- inn frá okkur yfir á annan stað. Leiðir okkar lágu saman þegar sonur okkar Gummi og Vala dóttir Árna og Lenu löðuðust hvort að öðru og hófu búskap. Ávöxtur þeirrar sambúðar var nafni minn, en fyrir var Benja- mín Árni, sonur Völu. Þau slitu samvistir, en sambandið innan fjölskyldunnar hélst áfram. Í mörg ár hittist stórfjölskyldan við flest tækifæri sem hægt var að nefna og þar var ekkert and- leysi. Árni hafði frá mörgu að segja frá árum sínum á sjó og landi, og var venjulega með sterkar skoðanir á öllum þeim málefnum, stöðum og persónum sem komu við sögu. Hann var ekki endilega að fegra eitt né neitt heldur komu orðin frá honum nokkuð beinskeytt. Þetta gerði frásagnarstílinn skemmtilegan og áheyrilegan. Okkar kynni stóðu í stuttan tíma af hans 79 árum en þau voru eftirminnileg. Það er ekki öllum gefið að láta tilfinningar sínar í ljós og Árni var í þeim hópi, en það leyndi sér ekki á látbragði hans, væntumþykja til síns fólks og sérstaklega sem stóð honum næst. Við fráfall Árna viljum við votta hans nánustu, sem honum var virkilega annt um, okkar samúð. Sérstaklega vilj- um við nefna Þórunni, Völu, Benjamín Árna og Ása. Megi hann hvíla í friði. Svava og Ásgrímur. Hvíl í friði, gamli vinur minn, „extra pabbi“ og sjómaður. Við deildum mörgum áhuga- málum, þú sýndir mér og sagðir frá tónlist, skipum, flugvélum, vopnum, stríði og sögu en einn- ig um hversu erfitt það getur verið að alast upp við lítil efni. Að maður eigi ekki að gefast upp heldur berjast fyrir draum- um sínum og hvað það þýðir að tilheyra fjölskyldu. Nú ertu frjáls en minning mín um þig er björt og missirinn mikill. Ég tek undir færslu Völu, dóttur þinnar, og hylli þig og svo marga aðra sjómenn, menn sem hafa fórnað svo miklu af sjálf- um sér en eiga samt sterka ást og virðingu fyrir sjónum, hann gefur og hann tekur. Sjómenn hjálpa sjómönnum og einnig öðrum þegar þeir geta, þeir vita að maðurinn er lítill og einn á sjó, hjálpin getur verið langt í burtu þegar mest er þörf á henni. Ég samhryggist fjölskyldu þinni og vinum sem þótti vænt um þennan mæta mann. Hvíl í friði, ást og virðing frá vini þínum, Kent Eriksen, Karlskoga, Svíþjóð. Árni Ólason Stutt kveðja til Páls Jónssonar vinar míns. Hann leitaði að snertingu við fólk og hafði þörf fyrir einveru. Hann þráði að koma að verð- mætasköpun en lét lækka sig í launum til að vera á sama báti og þeir verst settu. Hann var strangheiðarlegur í dómum sín- um um menn og málefni en dæmdi sjálfan sig harðast. Að mörgu leyti voru andstæður lífsins honum yfirþyrmandi, kannski ekki síst vegna þess hve næmgeðja hann var og heill. Hann kom ótrúlega víða við og komst í stjórnunarstöðu við hin ólíkustu störf. Að eiga kvöldstund með honum þegar hann sagði frá öllum þessum störfum var sérlega gefandi: Ísland, Alaska, Bretland, Kína, alls staðar fann hann sér heim- ili, og þó ekki. Alltaf bar hann með sér þessa óþreyju sem keyrði hann áfram á næsta stað, næsta áfanga. Hann hafði svo djúpt innsæi inn í mannlífið og átti svo gott með að greina kjarna hlutanna en það nægði honum samt ekki. Heimsborgarinn Páll Jóns- son sagði mér eitt sinn þegar hann hafði verið í burtu frá Hull um nokkurt skeið að ná- granni hans hefði sagt við hann þegar hann kom til baka: „When did you come home?“ ✝ Páll Jónsson fæddist 19. júní 1957. Hann lést 10. júlí 2021. Útför hans fór fram 19. ágúst 2021. Þetta þótti honum vænt um; honum leið vel innan um fábrotið fólk og sóttist eftir viður- kenningu þess. Líklega skildum við vinir hans samt aldrei hve mikið bjó undir þegar hann þurfti alltaf að sækjast eftir nýjum áfanga. Við Kristín vottum fjölskyld- unni okkar dýpstu samúð. Jón Thoroddsen. Palla frænda hef ég þekkt frá barnæsku, enda bjó frændi og fjölskyldan í næsta nágrenni við okkur vestur í bæ. Það var mikill og góður samgangur milli fjölskyldnanna, en Hanna, mamma hans og systir pabba míns, er elst systkinanna fimm frá Skinnastað. Mörgum árum seinna flutti Palli til Noregs, norður til Tromsø, og var þar við nám og störf. Heimsóknir hans til Bergen eru okkur Eilif og drengjunum minnisstæðar. Palli Jóns var einstaklega barn- góður, fróður og skemmtilegur. Gítarinn var auðvitað með í far- teskinu. Palli spilaði og söng fyrir drengina sitjandi á gólf- inu. Eftirminnilegt og skemmti- legt. Eiginmaður minn, Eilif, hafði mikla ánægju af því að spjalla við Palla um heima og geima, enda var hann einstak- lega fróður og vel að sér um málefni líðandi stundar og var vel talandi á mörg tungumál. Blessuð sé minning góðs drengs. Guðrún Elísabet. Páll Jónsson Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR INGIMARSSON, hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Brúnavegi í Reykjavík, lést sunnudaginn 15. ágúst. Útförin fer fram fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 15 í kirkju Óháða safnaðarins. Guðbjörg Garðarsdóttir Gestur Ólafsson Sólveig G. Garðarsdóttir Þorvaldur Eiríksson Jón Garðarsson Svava Stefánsdóttir barna- og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGTRYGGUR SVEINN BRAGASON, lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 18. ágúst. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin, sími 533-1088, alzheimer@alzheimer.is. Elísabet Jóhannsdóttir Ragnheiður V. Sigtryggsd. Ágúst Loftsson Ingibjörg Sigtryggsdóttir Niclas Jessen Vilhjálmur, Kjartan, Loftur, Nói, Leó, Rúrik og Dagbjört Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs bróður, mágs og frænda okkar, ÓSKARS HELGA S. MARGEIRSSONAR, áður til heimilis á Brávallagötu 26. Sérstakar þakkir færum við heimilisfólkinu á Mýrarási 2 fyrir einstaka alúð. Guðjón Margeirsson Margrét Jónsdóttir Jóhanna Jónasdóttir og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNÚSÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Grund fimmtudaginn 12. ágúst. Útförin verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 13. Athöfninni verður streymt: https://hljodx.is/index.php/streymi Blóm afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarsamtök. Guðmundur Ólafsson Lára Erlingsdóttir Sjöfn Ólafsdóttir Erlingur Hjaltason Guðrún Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma, VIGDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Dunhaga 13, lést á Droplaugarstöðum 25. júlí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 13. Aðstandendur vilja senda starfsfólki Droplaugarstaða, dvalarheimilisins Höfða og heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Ágúst Gunnar Gylfason Elínborg Ágústsdóttir Unnsteinn Barkarson Höskuldur Ágústsson Halldóra Elínborg Björgúlfsd. Sigurður Unnsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.