Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 12

Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021 BAKSVIÐ Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Flugmönnum og flugliðum flugfélags- ins Play hefur verið boðið að taka á sig allt að 50% lækkun á starfshlutfalli gegn því að fá fastráðningu í vetur. Var þessi hugmynd kynnt á fjarfundi sem stjórnendur Play héldu með starfs- mönnum félagsins á miðvikudag í liðinni viku. Heimildir Morgunblaðsins herma að hljóðið í flugmönnum sé þungt eftir fundinn. Hugmyndin að breytingunum kom ekki frá stjórnendum Play, að sögn Birgis Jónssonar þegar hann er innt- ur eftir viðbrögð- um. „Ég var nú reyndar ekki á fundinum sjálfur, en það er mikilvægt að árétta að þessi hugmynd kemur ekki frá stjórninni heldur vaknar hún hjá hópnum,“ segir hann. „Það var aldr- ei sest niður hérna í stjórninni og sagt að við þyrftum að draga saman seglin því við erum langt frá því að gera það.“ Á fundinum hafi það þó verið til um- ræðu hvernig hægt væri að tryggja að fleiri starfsmenn fái vinnu í vetur og forða fólki þannig frá því að lenda í at- vinnuleysi, að sögn Birgis. „Í stað þess að þeir sem eru bara með ráðningarsamning út sumarið myndu detta út í haust og koma svo kannski aftur inn í vor, var sú hugmynd lögð fram að þeir starfsmenn sem gætu og vildu, tækju á sig lækkun á starfshlut- falli,“ segir hann. Vegna kórónuveirufaraldursins þurfti Play að fella niður 14 flug í sept- ember og er nú ofmönnun í áhafnaflota félagsins, að sögn Birgis. „Við erum að fljúga frekar lítið eins og er, þannig að við erum með miklu meiri afkastagetu en við erum í raun og veru að nota,“ segir hann. Með því að fjölga fastráðnum starfs- mönnum er einnig verið að sjá til þess að Play geti aukið framboð sitt hraðar þegar eftirspurn eykst á ný eftir ára- mót, en næsta vor hyggst félagið sækja inn á Bandaríkjamarkað og mun þá þurfa á öllum tiltækum mannskap að halda, að sögn Birgis. „Allt sem við erum að gera núna er bara upphitun fyrir næsta vor og erum við að þjálfa áhöfnina fyrir Bandaríkin,“ segir hann. „Fólk vissi það alveg þegar það byrjaði hjá okkur í sumar að við þurfum að vera fleiri á næstu mánuðum heldur en flugáætlunin gerir ráð fyrir eins og hún er núna.“ Aðspurður segist Birgir ánægður með framvindu fundarins í síðustu viku og að starfsfólk hafi heilt yfir tekið vel í hugmyndina þótt það óskaði þess vissu- lega að árferði væri eðlilegt. „Þetta sýndi bara andann sem ríkir hér innan fyrirtækisins og það að fólk sé að hugsa um heildina,“ segir hann. .„Ég er samt ekki að segja að fólk sé eitthvað gríðarlega ánægt með þetta, að sjálfsögðu ekki. Við myndum auðvit- að öll vilja að það væri ekki heimsfar- aldur og að við gætum verið í 100% af- köstum.“ Lækkun á starfshlutfalli starfsmanna Play til umræðu Morgunblaðið/Eggert Jómfrúarflug Flugfélagið Play hóf sig fyrst til flugs 24. júní sl. þegar það fór í jómfrúarferð sína til London. Leikur að tölum » Flugliðar hjá Play eru 52 talsins og eru þeir allir í fullu starfi í dag. Þar af eru 16 flug- liðar fastráðnir en hinir á tíma- bundnum samningum. » Flugmenn Play eru 26 tals- ins og eru allir þeirra fastráðn- ir í fullu starfi í dag. » Á skrifstofu Play starfa 53 og eru allir nema tveir í fullu starfi. - Segir félagið ekki vera að draga saman seglin - Vilja forða fólki frá atvinnuleysi Birgir Jónsson « Alls var 53 kaupsamningum og af- sölum um viðskipti með atvinnu- húsnæði þinglýst á höfuðborgar- svæðinu í júlímánuði. Þetta kemur fram í tölum Þjóðskrár. Þar má einnig sjá að í sama mánuði í fyrra var 39 slíkum skjölum þinglýst. Í júnímán- uði síðastliðnum voru þau 74 en að- eins 22 í sama mánuði í fyrra. Heild- arkaupverð á bak við samningana 53 í júlí nam tæpum 4,6 milljörðum króna en veltan á sama tíma í fyrra nam 1,3 milljörðum króna. Meiri umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði STUTT 24. ágúst 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.0 Sterlingspund 174.22 Kanadadalur 99.14 Dönsk króna 20.089 Norsk króna 14.094 Sænsk króna 14.467 Svissn. franki 139.46 Japanskt jen 1.1672 SDR 181.24 Evra 149.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.9866 Fasteignafélagið Reitir hf. hagnaðist um 861 milljón króna á öðrum fjórð- ungi þessa árs. Á sama tíma á síðasta ári var 191 milljónar króna tap á rekstrinum. Jákvæðar virðisbreyting- ar fjárfestingareigna námu 1,3 millj- örðum króna á öðrum fjórðungi en voru einungis jákvæðar um 20 millj- ónir króna á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrri árshelmings var rúmlega 1,8 milljarðar króna, saman- borið við 1,2 milljarða tap á fyrri árs- helmingi í fyrra. Munar þar um mats- breytingar sem voru neikvæðar um 2,1 milljarð króna á fyrri árshelmingi síðasta árs en jákvæðar um 2,3 millj- arða á fyrri helmingi 2021. Eignir Reita nema nú rúmum 160 milljörðum króna en þær voru rúmir 156 milljarðar króna í lok síðasta árs. Aukningin nemur 2,3%. Eigið fé félagsins er 54 milljarðar króna og hefur aukist lítillega milli ára en það var tæpir 53 milljarðar á sama tíma í fyrra. Eiginfjárhlutfall Reita er 34%. Atvinnulífið við góða heilsu Guðjón Auðunsson, forstjóri fyrir- tækisins, segir í tilkynningunni að uppgjör fyrri árshelmings beri merki um að atvinnulífið sé almennt við góða heilsu þrátt fyrir að Covid-19-farald- urinn sé ekki enn að fullu að baki. Tekjur hafi verið að aukast eftir því sem liðið hefur á árið og áhrif farald- ursins minnkað í takt við spár félags- ins. „Fjórða bylgja faraldursins er ekki að hafa jafn mikil áhrif á leigutaka fé- lagsins eins og fyrri bylgjur höfðu. Verslun og þjónusta er í góðum vexti og er velta í sögulegu hámarki í Kringlunni. Nýting eigna hefur aukist jafnt og þétt síðustu mánuði og inn- heimta leigutekna er ágæt.“ Þá segir Guðjón í tilkynningunni að efnahagur Reita sé mjög traustur og skuldsetningarhlutfall um mitt ár hafi verið 57,6%. Morgunblaðið/Styrmir Kári Fasteignir Guðjón Auðunsson segir efnahag Reita traustan. Reitir hagnast um 861 milljón - Eiginfjárhlutfall 34% - Virðisbreyt- ingar skipta sköpum Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Háaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn! « Þátttakendur í hlutafjárútboði Ice- landair Group, sem fram fór í sept- ember í fyrra, nýttu áskriftarréttindi að fjárhæð 16,4 milljónir dollara í fyrstu lotu af þremur sem fylgdu með í kaupum bréfanna. Icelandair mun vegna þessa gefa út nýtt hlutafé fyrir 1.862 milljónir króna að nafnverði og kaupa hluthafarnir þau á 1,13 krónur á hlut, eða u.þ.b. 20% undir núverandi gengi bréfa félagsins í Kauphöll Ís- lands. Á komandi misserum mun fé- lagið veita innlausnarrétt á frekari áskriftarréttindum en þá á hærra verði, sem fyrirfram hefur verið ákvarðað. Samkvæmt upplýsingum frá Ice- landair Group nýttu eigendur 97,1% þess hlutafjár sem gefið var út í fyrra í tengslum við útboðið, áskriftarrétt- indi sín að þessu sinni. 97,1% nýttu áskriftina hjá Icelandair Group

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.