Morgunblaðið - 24.08.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
„ATHUGAÐU AÐ SÍMTALIÐ GÆTI VERIÐ
HLJÓÐRITAÐ. ÞÚ ERT NÚMER 101 Í
RÖÐINNI. ÝTTU Á 9 FYRIR PÓLSKU.“
„HVAÐ MEINARÐU MEÐ AÐ ÞÚ VITIR EKKI
HVAÐ ÞETTA ER? HVER ELDAÐI ÞETTA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að flytja saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRETTIR, VEISTU HVAÐ VARÐ
UM ALLA KLEINUHRINGINA?
STUNDUM ER
ÉG FEGINN AÐ
ÉG SKIL ÞIG
EKKIÚÚÚ!
SPURNINGA-
LEIKUR!
RÆNT AF GEIMVERUM?!
STUNGU AFOG GENGU Í
SIRKUS?!
KANNSKIÆTLA ÞEIR
AÐ RÆNA VÖLDUM
MEÐ KJÚKLINGA-
NÖGGUNUM
ÉG FRÁBÍÐ MÉR
ÞETTA BÖLV OG
RAGN!
REYNDU AÐ VERA EINSOG
HEPPNI EDDI! HANN BÖLVAR
ALDREI ÞEGAR HANN LEMUR Á
PUTTANA Á SÉR!
ÞAÐ ER
RÉTT …
ÉG
SKÆLI!
ÞÚ MÁTT
BÖLVA.
an af félagsmálum og sinni ýmsu
pólitísku vafstri fyrir 3. framboðið
og VG á Hornafirði og er þar 19.
maður á lista VG í Suðurkjördæmi.“
Sæmundur er einnig að ljúka M.Ed.
námi við menntavísindasvið HÍ núna
í október, svo það er nóg að gera.
Í frístundum stundar Sæmundur
golf á Silfurnesvelli og er í göngu-
hópnum Vinum Pollýönnu, en þau
voru að koma úr skemmtilegri
gönguferð um Landmannalaugar.
„Myndin er úr Lónsöræfum, en þar
vorum við Kristín í byrjun ágúst
með fjölskyldu og vinum. Svo hef ég
hef sungið frá barnsaldri, fyrst hjá
KFUM, í MS svo í Kór og Kamm-
erkór Langholtskirkju og núna í
Karlakórnum Jökli. Þegar ég byrj-
aði að syngja hjá KFUM var ég nú
bara með mína barnatrú, en í gegn-
um söng minn í kirkju hefur sú
barnatrú bara styrkst og ég er trú-
aður maður.“
Fjölskylda
Eiginkona Sæmundar er Kristín
Hermannsdóttir, veðurfræðingur og
forstöðumaður Náttúrustofu Suð-
austurlands, f. 5.2. 1971, og þau búa
á Höfn í Hornafirði. Foreldrar henn-
ar eru Heiðrún Þorsteinsdóttir og
Hermann Hansson sem búa á Höfn.
Börn Sæmundar og Kristínar eru
1) Heiðrún listakona, f. 19.6. 1994, í
sambúð með Sindra Snæ Svav-
arssyni í Reykjavík; 2) Helgi, f. 13.3.
2000, og 3) Hermann Bjarni, f. 23.1.
2005, og búa synirnir báðir á Höfn í
Hornafirði. Systkini Sæmundar eru
Aðalheiður, grunnskólakennari í
Bláskógabyggð, f. 1.11. 1968, og Atli,
vélsmiður í Reykjavík, f. 3.4. 1975.
Foreldrar Sæmundar eru hjónin
Helgi Sæmundsson rafvirkjameist-
ari, f. 1946, og Bjarney Guðrún Þór-
arinsdóttir leikskólaleiðbeinandi, f.
1946. Þau búa í Reykjavík.
Sæmundur
Helgason
Sæmundur Jón Kristjánsson
vélvirki á Patreksfirði
Guðrún Lilja
Kristófersdóttir
bóndi á Brekkuvöllum í
Brjánslækjarsókn V-Barð.
Sæmundur Jón
Kristjánsson
vélvirki á Patreksfirði
Guðríður Bjargey
Helgadóttir
húsfreyja í Austurhlíð
í Blöndudal
Helgi Sæmundsson
rafvirkjameistari í
Reykjavík
Helgi Magnússon
bóndi í Tungu í
Gönguskörðum
Kristín Jakobína
Guðmundsdóttir
húsfreyja í Tungu í
Gönguskörðum
Þorfinnur Þórarinsson
bóndi á Spóastöðum í
Biskupstungum
Steinunn Egilsdóttir
kennari og húsfreyja á
Spóastöðum í Biskupstungum
Þórarinn Þorfinnsson
bóndi á Spóastöðum í
Biskupstungum
Ingibjörg Vilhelmína Guðmundsdóttir
húsfreyja á Spóastöðum í Biskupstungum
Guðmundur Gilsson
skipstjóri og bóndi í Innri-
Hjarðardal í Önundarfirði
Sigríður Hagalísdóttir
húsfreyja Í Innri-Hjarðardal í Önundarfirði
Úr frændgarði Sæmundar Helgasonar
Bjarney Guðrún
Þórarinsdóttir
leikskólastarfsmaður í
Reykjavík
ÁBoðnarmiði fór Hallmundur Guð-
mundsson með morgunhugvekju
á sunnudag:
Hér er veðrið harla fínt,
hiti, logn og blíða.
Í þannig veðri sýnist sýnt
að sumir detti ’íða’.
Benedikt Jóhannsson skrifar: „Hér
er ljóð um heræfinguna Norðurvík-
ingur sem ekki náði inn í nýjustu ljóða-
bók mína, Á krossgötum, sem kemur í
verslanir á næstunni:“
Ástandið það er víst eilíft að breytast
og vaskir menn ekki í víking nú þeytast.
Við lengur ei frá okkur lemjum með
sverðum
þótt bláeygir séum og breiðir í herðum.
Elskur í fylkingum erlendra herja
ætla nú land fyrir óvin að verja,
með alvæpni liggja þær uppi á heiðum
- þar íslenskur karl gæti allt eins átt leið um.
Jón Atli Játvarðarson skrifar: „Raf-
pútur eru jafn óútreiknanlegar og
margur annar fiðurfénaður. Fullyrt er
að þær séu komnar til að vera. Það fari
eftir ástandi manna hvort þeir eigi að
láta þær vera. Fjórhjól mörgum hent-
ugri“:
Hreint ekki fór ég mikils á mis,
er mögnuðust drykkjunnar-læti.
Í rauntíma horfði á rafpútuslys
á rökkvuðu, holóttu stræti.
Öxl var úr skorðum og hausinn á hlið
og höndin föst undir pung.
Ég snaraðist að til að snú ’onum við,
hann snökti við örlögin þung.
Magnús Halldórsson yrkir:
Maðurinn var að mæla tún,
meðan garð var að pæla hún.
Hættu við það,
héldu af stað.
Og skelltu sér bara í Skylagoon.
Lárus Sighvatsson spyr: „Er þetta
þekkt?“ en segir um leið, að sagt sé
vísan sé eftir Guðmund Finnbogason
Húnvetning.
Harmur napur hjartað slær,
heiðurs tapast prísinn.
Ég hef hrapað heims í klær,
hörð er skapadísin.
Það er gamla sagan, – Dagbjartur
Dagbjartsson yrkir:
Gigtarlúinn gríp ég pennann
get þó varla sperrt mitt stél.
- Ætli maður þekki ei þennan
þremils ára nóg vel.
Sigvaldi Skagfirðingaskáld kvað:
Ég er að sönnu syndugur
síst má þvílíkt efa
en minn er drottinn myndugur
mér að fyrirgefa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Rafpútur og heræfingin
Norðurvíkingur