Morgunblaðið - 25.08.2021, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Listamaður sem starfar einn þarf að
reikna sér að lágmarki 582 þúsund
krónur í laun á mánuði, sama hvað
hann þénar raunverulega, og greiða af
tilbúnu tölunni staðgreiðslu, trygg-
ingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð. For-
seti Bandalags íslenskra listamanna
segir að þetta valdi vandræðum því
þeirra vinna fari ekki eftir línum
fastra starfsmanna sem endurgjaldið
virðist taka mið af. Reiknaða endur-
gjaldið sé fjarri lagi hjá flestum lista-
mönnum.
Réttur til atvinnuleysisbóta hjá
Vinnumálastofnun og viðmið skattsins
um reiknað endurgjald vegna sjálf-
stæðrar starfsemi hefur lengi valdið
sjálfstæðum listamönnum vandræð-
um, að sögn Erlings Jóhannessonar,
forseta Bandalags íslenskra lista-
manna. Báðir þessir þættir hafi komið
skýrar í ljós í því tekjufalli sem margir
hafi orðið fyrir í kórónuveirufaraldr-
inum.
Aftastir í röðinni
Sjálfstætt starfandi einstaklingar
féllu illa inn í atvinnuleysistrygg-
ingakerfið. Þeir urðu fyrir miklum
tekjusamdrætti í kórónuveiru-
faraldrinum og var liðkað fyrir með
því að veitt var tímabundin heimild til
atvinnuleysisbóta vegna minnkaðs
starfshlutfalls.
Í upphafi faraldursins sóttu lista-
menn, eins og aðrir, um atvinnuleys-
isbætur og önnur úrræði sem Vinnu-
málastofnun var falið að sýsla með.
Mál margra eru flókin vegna hluta-
vinnu og verktakavinnu í eigin nafni
og félaga, jafnvel erlendis. Erling seg-
ir að umsóknir listamanna virðist hafa
lent aftarlega í röðinni. Í lok síðasta
sumars hafi 70% umsókna listamanna
verið óafgreidd en Erling kveðst ekki
vita hvort eitthvað hafi ræst úr.
„Listamenn hugsa ekki um stöðuna
sem atvinnuleysi heldur frekar lága
verkefnastöðu. Þeir ganga í að útvega
sér verkefni, hlaða í band og búa til
gigg. Tekjufallsstyrkirnir brúuðu
ágætlega bil og nýttust fjölda okkar
félaga,“ segir Erling.
Maður sem starfar við eigin at-
vinnurekstur á að reikna sér endur-
gjald (laun) fyrir vinnu sína. Lista-
menn falla í flokk með einhverjum
hliðstæðum stéttum en einnig ólíkum
eins og fasteigna- og bílasölum og há-
skólamenntuðum heilbrigðisstéttum.
Einyrkjum ber að reikna sér 582 þús-
und á mánuði á þessu ári, að lág-
marki, fyrir alla mánuði ársins. Tek-
ur þessi viðmiðun ekki tillit til
sveiflna í verkefnum og tekjum á
milli mánaða, eins og raunin er hjá
mörgum einyrkjum.
Erling segir að þessi fjárhæð sé
fjarri lagi hjá flestum sjálfstæðum
listamönnum enda sé vinnumarkaður
þeirra frekar óreiðukenndur. Þeir
séu gjarnan að „hösla“ fyrir 300 til
400 þúsund krónur á mánuði.
Finnur þreytu og uppgjöf
Staða listamanna nú í fjórðu bylgju
kórónuveirufaraldursins er misjöfn
eftir greinum. Erling segir graf-
alvarlegt að stóru menningarhúsin
sem veiti stórum hópum listamanna
verkefni skuli ekki vera tekin til
starfa. Skrúfað sé fyrir allt alþjóða-
samstarf og það komi sér sérstaklega
illa fyrir myndlistarmenn. Stórir við-
burðir sem var aflýst í ágúst, eins og
menningarnótt, þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum og fleiri hátíðir, valdi
miklu tekjutapi hjá fjölda einyrkja í
tónlist.
„Eftir mikinn baráttuvilja og út-
hald finn ég þreytu og uppgjöf. Við
fylgjumst með félögum okkar annars
staðar á Norðurlöndunum. Þar er
hrun í innviðum, menn selja vinnu-
stofur eða segja upp leigusamn-
ingum, hljóðverum er lokað og
smærri leikhúsum. Fjárfestar kaupa
höfundarrétt listamanna á lágu verði.
Spurningin er hvernig við komum út
úr þessu. Við reynum að vera vongóð
því við vitum að um leið og aftur birt-
ir til verða listamenn fljótir að ná
vopnum sínum,“ segir Erling.
Samtök listamanna efna til mál-
þings um stöðu mála 4. september
næstkomandi.
Falla milli skips
og bryggju
- Listamenn í vandræðum með reikn-
uð laun og atvinnuleysistryggingar
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Forseti Erling Jóhannesson er í for-
ystu heildarsamtaka listamanna.
Mikið úrval af
gamaldags skiltum
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Stærð 20x30cm
Verð 4.250,-
Opið virka
daga frá 9-18
lau frá 10-16
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
Morgunblaðið/Ómar
Stigahæstur Gawain C.B. Jones er
stigahæstur keppenda á mótinu.
Kviku Reykjavíkurskákmótið, sem
jafnframt er EM einstaklinga í
skák, hefst á morgun, fimmtudag,
og stendur til 5. september. Tefldar
verða 11 umferðir á jafnmörgum
dögum á Hótel Loftleiðum, eða Hót-
el Natura. Til leiks eru skráðir 185
skákmenn frá 36 löndum, þar af 70
stórmeistarar.
Á mótinu tefla 60 íslenskir skák-
menn. Af hinum 125 erlendu kepp-
endum reyndust 25 vera óbólusettir
og urðu þeir að fara í sóttkví á
keppnishóteli áður en mótið hefst.
Losna þeir úr sóttkví í kvöld eða
fyrramálið, reynist sýnatökur í dag
vera neikvæðar.
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands, segir veirufar-
aldurinn hafa sett sitt mark á und-
irbúninginn. Halda átti mótið í
fyrra en var því þá aflýst vegna Co-
vid-19. Undanfarnar vikur hafi
staðið tæpt að mótið yrði haldið nú.
Sem betur fer hafi takmarkanir í
sóttvörnum ekki verið hertar og því
hafi verið ákveðið að halda mótið.
Færri keppendur eru þó skráðir en
áður, sér í lagi frá Austur-Evrópu
þar sem bólusetningar eru ekki
langt komnar.
Sóttvarnir verða miklar á mótinu
og má nefna að allir keppendur og
starfsmenn þurfa að fara í skimun
að lokinni fimmtu umferð. Sú skim-
un verður í boði Íslenskrar erfða-
greiningar.
Vegna takmarkana verður teflt í
fjórum mismunandi sölum á hót-
elinu. Áhorfendur geta ekki farið í
skáksalina en geta fylgst með skák-
skýringum Ivans Sokolovs á staðn-
um. Hægt verður að fylgjast með
mótinu á netinu en beinar útsend-
ingar verða á vefsíðunni
www.reykjavikopen.com.
25 skákmenn fóru í sóttkví
- Reykjavíkurskákmót Kviku sett á morgun - Alls 185
skákmenn, þar af 125 erlendir - 25 þeirra eru óbólusettir
Foreldrum barna
í 3. og 4. bekk
Snælandsskóla í
Kópavogi barst
tilkynning í gær
um að engin frí-
stund yrði í boði
fyrir börnin eftir
skóla í þessari
viku vegna
mönnunarvanda.
Skólasetning var í gær og segir
foreldri við mbl.is að staðan sé fer-
leg fyrir vinnandi fólk sem treysti á
frístundina til að stunda vinnu þar
sem skóla lýkur kl. 13.
Maríanna Guðbergsdóttir, for-
stöðukona frístundaheimilisins
Krakkalands, segir að skýringin
fyrir mönnunarvandanum sé að
umsóknir frá foreldrum voru lengi
að berast, „þrátt fyrir ítrekaðar
beiðnir frá okkur um að skrá börn-
in“. Maríanna sagði við mbl.is að
nýir starfsmenn myndu byrja í
næstu viku og þá væri hægt að taka
á móti 3. og 4. bekk.
Engin frístund því
starfsfólk vantar