Morgunblaðið - 25.08.2021, Side 11
AFP
Látinn Charlie Watts sést hér ásamt
eiginkonu sinni Shirley árið 2012.
Charlie Watts, trommuleikari
bresku hljómsveitarinnar Rolling
Stones, lést í gær áttræður að aldri.
Watts var einn af fyrstu meðlimum
hljómsveitarinnar, en hann lét
sjaldnast mikið á sér bera miðað við
félaga sína, söngvarann Mick Jagg-
er og gítarleikarana Ron Wood og
Keith Richards. Hann var giftur
konu sinni, Shirley Shepherd, í 56
ár, en þau kynntust áður en hljóm-
sveitin varð fræg.
Watts sagði í viðtali við Rolling
Stone-tímaritið árið 1994 að hann
hefði aldrei verið hin „dæmigerða“
rokkstjarna. „Á áttunda áratugnum
ákváðu ég og Bill Wyman [bassaleik-
ari Rolling Stones] að safna al-
skeggi, og fyrirhöfnin gerði okkur
úrvinda,“ sagði Watts.
Watts tilkynnti fyrr í mánuðinum,
að hann yrði að sleppa næstu tón-
leikaferð hljómsveitarinnar af
heilsufarsástæðum, en hún hugðist
ferðast um Bandaríkin.
Charlie
Watts látinn
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
CHANEL kynning
í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ
25.-27. ágúst
Gréta Boða verður á staðnum
að kynna glæsilegar nýjungar
• Haustlitina 2021
• Nýjung í hreinsilínunni
20%
afsláttur af
CHANEL vörum
kynningar-
dagana
Verið
velkomin
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiðtogar Evrópusambandsins og
Bretlands þrýstu í gær á Joe Biden
Bandaríkjaforseta um að framlengja
þann tímafrest sem hann hefur gefið
herliði sínu til að yfirgefa Afganistan
fram yfir 31. ágúst næstkomandi, og
um leið að tryggja öryggi á alþjóða-
flugvellinum í Kabúl svo lengi sem
þörf væri á.
Heimildarmaður AP-fréttastof-
unnar innan bandaríska embættis-
mannakerfisins, sagði hins vegar í
gær að Biden hygðist halda fast við
hinn sjálfskipaða tímafrest Banda-
ríkjamanna, en talíbanar hafa hótað
„afleiðingum“, verði erlent herlið í
Afganistan fram yfir næstu mánaða-
mót. Sagði heimildarmaðurinn að Bi-
den hefði beðið þjóðaröryggisteymi
sitt að gera neyðaráætlanir ef fram-
lengja þyrfti frestinn.
Washington Post greindi frá því
fyrr um daginn, að William Burns,
yfirmaður bandarísku leyniþjónust-
unnar CIA, hefði farið til Kabúl á
mánudaginn og fundað þar með Ab-
dul Ghani Baradar, öðrum stofnanda
talíbanahreyfingarinnar. Hvorki ta-
líbanar né Bandaríkjastjórn vildu
hins vegar staðfesta frétt blaðsins.
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja
heims ræddu í gær á fjarfundi stöðu
mála í Afganistan, en Heiko Maas,
utanríkisráðherra Þjóðverja, varaði
við því í aðdraganda fundarins í gær
að ekki yrði unnt að flytja á brott alla
þá Afgani sem þyrftu vernd gegn
talíbönum, ef flutningarnir hætta við
næstu mánaðamót. Kröfðust leiðtog-
arnir þess á fundinum að talíbanar
tryggðu öryggi fólks sem vildi yfir-
gefa Afganistan.
Um 58.700 manns hafa náð að flýja
land síðan talíbanar hertóku höfuð-
borgina Kabúl um þar síðustu helgi,
en ástandinu á alþjóðaflugvellinum
þar hefur verið lýst sem ringulreið,
þar sem fjöldi fólks bíði í örvæntingu
eftir því að komast í burtu frá yf-
irráðum talíbana.
Talíbanar kröfðust þess í gær að
Bandaríkjamenn og önnur vestræn
ríki hættu að flytja „afganska sér-
fræðinga,“ eins og verkfræði- og
læknismenntað fólk úr landi, á sama
tíma og þeir ítrekuðu að þeir myndu
ekki þola neina framlengingu á veru
erlends herliðs í Afganistan.
Sagði talsmaður talíbana að Afg-
anistan þyrfti á sérfræðiþekkingu
þessa fólks að halda og að ekki ætti
að hvetja Afgani til að flýja land. Er-
lend ríki ættu hins vegar að sækja
sína eigin ríkisborgara.
Sagðir fara húsa á milli
Talíbanar hafa heitið því að veita
fyrrverandi stjórnarhermönnum og
öðrum andstæðingum sínum uppgjöf
saka, en nefnd á vegum Sameinuðu
þjóðanna sagði í gær að vígamenn á
vegum talíbana færu nú húsa á milli í
leit að þeim sem hefðu unnið með
Bandaríkjamönnum eða öðrum ríkj-
um Atlantshafsbandalagsins.
Þá hétu talíbanar því að réttindi
kvenna yrðu virt innan ramma
sjaría-laga. Michelle Bachelet, yfir-
maður mannréttindaráðs Samein-
uðu þjóðanna, sagði hins vegar í gær
að meðferð talíbana á konum yrði
„rautt strik“ sem alþjóðasamfélagið
þyrfti að viðhalda.
Samþykkti ráðið ályktun þar sem
stuðningur þess við réttindi kvenna í
Afganistan var ítrekaður. Þá var
kallað eftir óháðri rannsókn á að-
stæðum kvenna undir stjórn talíb-
ana, en þeir fyrirskipuðu í gær að
konur sem ynnu fyrir hið opinbera
ættu að halda sig heima þar til „ör-
yggisaðstæður“ í landinu yrðu
tryggari.
Heldur fast við tímafrestinn
- Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims ræddu stöðu mála í Afganistan - Biden
hyggst ekki framlengja dvöl erlends herliðs - Bachelet gagnrýnir talíbana
AFP
Uppreisn Andspyrnumenn í Pansjír-héraði búa sig undir átök við talíbana.
Kamala Harris, varaforseti Banda-
ríkjanna, sakaði í gær kínversk
stjórnvöld um að sýna af sér ógn-
andi hegðun gagnvart nágranna-
ríkjum sínum á Suður-Kínahafi.
Harris lét ummæli sín falla í ræðu
sem hún flutti í opinberri heimsókn
sinni til Singapúr, en heimsókninni
er meðal annars ætlað að hug-
hreysta bandamenn Bandaríkjanna
í Suðaustur-Asíu eftir ófarir þeirra
í Afganistan.
Sagði Harris að stjórnvöld í Pek-
ing héldu áfram að grafa undan al-
þjóðalögum og ógna fullveldi ríkja.
„Bandaríkin standa með banda-
mönnum sínum og félögum gagn-
vart þessum ógnum,“ sagði Harris.
Hún varði jafnframt ákvörðun
Joes Biden Bandaríkjaforseta um
að draga herlið Bandaríkjanna frá
Afganistan og sagði Bandaríkja-
stjórn nú einbeita sér að því verk-
efni að koma þeim Afgönum sem
unnu með Bandaríkjamönnum og
erlendum ríkisborgurum úr landi.
Kínverska utanríkisráðuneytið
gagnrýndi ræðu Harris harðlega.
Wang Wenbin, talsmaður ráðu-
neytisins, sagði Bandaríkjastjórn
reka „eigingjarna“ utanríkispólitík,
og sakaði hann Bandaríkjamenn
um að hegða sér eins og einelt-
ishrottar. „Staða mála í Afganistan
sýnir okkur ljóst hvernig lög og
reglu Bandaríkin tala um.“
Dularfull veikindi
Harris hugðist heimsækja Víet-
nam í gær, en um þriggja klukku-
tíma töf varð á brottför hennar frá
Singapúr. Var ástæðan sögð sú að
„Havana-veikin“ svonefnda gerði
vart við sig í sendiráði Bandaríkj-
anna í Hanoi, höfuðborg Víetnams,
en það er óopinbert heiti einkenna,
sem hrjáð hafa starfsmenn banda-
rískra sendiráða í ýmsum ríkjum.
Veikinnar varð fyrst vart á Kúbu
fyrir fimm árum, en þá kvörtuðu
starfsmenn sendiráðsins í Havana
yfir höfuðverkjum, blóðnösum og
ógleði, auk þess sem þeir heyrðu
skerandi hljóð um nætur.
Sendiráð Bandaríkjanna í Rúss-
landi, Kína og Þýskalandi hafa
einnig orðið fyrir barðinu á „veik-
inni“, en ein tilgáta sem sett hefur
verið fram er að fjandríki Banda-
ríkjanna séu að beita hljóð- eða ör-
bylgjum til þess að valda veikind-
um meðal starfsfólks sendi-
ráðanna.
Sakar Kínverja um
ógnandi hegðun
- „Havana-veikin“ tafði för Kamölu Harris til Víetnams
AFP
Heimsókn Kamala Harris skoðar hér orkídeu sem nefnd var í höfuðið á henni í grasagarði í Singapúr.