Morgunblaðið - 25.08.2021, Side 12

Morgunblaðið - 25.08.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Enn verður varla sagt af sann- færingu að kosn- ingavélar ís- lenskra stjórnmálaflokka hafi verið ræstar svo að það heyrist. Ýmsir þeirra, sem líta á sig sem sér- fróða í stjórnmálum, og eiga menn að sem taka þá alvar- lega sem slíka, telja augljóst að kosningarnar hér muni snúast um „Covid“-veiruna sem þrúgað hefur mannskap- inn hér og víðar allt of lengi. Megi marka kenningarnar verður ekki annað ráðið af þessari speki en að kosning- arnar nú muni aðallega snúast um liðna tíð. Flokkarnir níu, sem giskað er á að eigi mögu- lega von í kjörnum fulltrúum, sem sumir myndu slysast inn á þing gætu þá haft eina og sömu yfirskrift: „Horfum bit- ur um öxl.“ Kjörtímabilið næsta á þó að óbreyttu að standa í fjögur ár og yrði þá til harla lítils þrátt- að, barist og kosið ef að horf- inn veiruskratti yrði áttaviti alls næsta kjörtímabils, sem bættist við nær tvö ár töpuð. Nú vill þannig til, að víða um veröld og vissulega einnig hér hefur veiruómyndin rétt- lætt það, og jafnvel gert kröf- ur um það, að öllum sérkenn- um flokka og framboða, og allt það sem að stjórnmálafélög hafa þóst standa fyrir, hefur verið bægt burt af stjórn- lausri virðingu fyrir veirunni. Við erum ekki ein um að horfa vondaufum augum til kosninga eftir réttan mánuð. Það gera Þjóðverjar einnig. Og það er óneitanlega fróð- legt að horfa til nýjustu kann- ana þar í landi, sem eiga að vera haldgóð vísbending um hvað kunni að koma upp úr kössunum þar, þegar svo skammt er eftir. Og þær kannanir benda til áberandi skoðanaleysis rétt eins og hjá okkur. Kosningaúrslit á Íslandi, skv. nýjustu könnunum, segja okkur það helst að flest bendi til að engin stefna eða sam- þjöppun flokka um stefnumál, muni birtast kjósendum upp úr kössunum aðfaranótt sunnudagsins 26. september, einmitt þegar að þýskir hugsa sér til hreyfings í átt til sinna kjörstaða. Og þýskar kann- anir segja okkur nokkurn veg- inn það sama, og virðast á ótrúlega líku róli. Kannski hafa kjósendur þar, rétt eins og Íslendingar, látið sannfær- ast um það, að skilaboðin séu ótvíræð: Nú skal horfa um öxl. Kristilegu flokkarnir tveir hafa langoftast haft afgerandi for- ystu um pólitískan styrk sem iðulega hefur náð að und- irstrika kröfur þeirra um stjórnarforystu. Rétt eins og Sjálfstæðis- flokkurinn hér hefur iðulega verið með fylgi á bilinu 35- 40% þá hafa Kristilegir í Þýskalandi iðulega verið með samsvarandi stöðu og jafnvel sterkari en fyrrnefndur flokk- ur. Síðustu misseri og ár hef- ur þó sést að Kristilegir geta ekki lengur gengið að hag- stæðum atkvæðabunkum sín- um vísum. Það hefur því þurft báða „stóru“ flokkana til að geta myndað tveggja flokka stjórn undir forystu Kristi- legra. Undanfarin ár hefur dregið úr þessum styrkleika, raunar hjá báðum forystuflokkum andstæðra fylkinga, en eink- um hefur staða þýskra Sósíal- demókrata daprast mjög og það hefur leitt til þess nú að varla hefur staðið nokkur von til þess að halda megi slíku stjórnarsamstarfi áfram. En í þessu samhengi er mjög fróð- legt að horfa til þriggja síð- ustu kannana í Þýskalandi. Þá virðist óvænt blasa við að Kristilegir hafi misst drjúgan byr úr sínum seglum. Kann- anir spá því nú að Kristilegir verði aðeins með um 23% fylgi í kosningunum eftir mánuð. Það er svipuð mynd og blasir við Sjálfstæðisflokknum sam- kvæmt síðustu könnunum hér. En það merkilega er að Sósíaldemókratar, sem und- anfarna mánuði hafa mælst með 15-18% fylgi hafa hins vegar tekið góðan kipp. Í fyrr- nefndum þremur könnunum virðast „stóru“ flokkarnir nú vera hnífjafnir með um 23% fylgi hver flokkur. Þar ræður mestu að flokkur Græningja, sem hafði verið á góðri sigl- ingu virðist hafa glatað sínum góða byr. Í augnablikinu virðist liggja fyrir að tveggja flokka meiri- hlutastjórn verði vart mynduð í Þýskalandi að loknum kosn- ingum og raunar yrði snúið að mynda þriggja flokka stjórn, nema að „stóru flokkarnir“ sættu sig við að lenda í þriggja flokka stjórn sem þá hefði, samkvæmt kenningum „stjórnmálafræðinga“, það verkefni næstu fjögur árin að hugleiða hvers vegna veiran kom og eftir atvikum hvers vegna hún fór, þótt um það sé deilt og verði kannski enn eft- ir fjögur ár. Það má svo sannar- lega leggja út af nýjustu könnunum, bæði í Þýskalandi og hér} Horfa skal bitur um öxl E itt helsta kosningamál Pírata er nýtt hagkerfi, svokallað velsæld- arhagkerfi. Þetta er engin hippa- hugmynd heldur forskrift frá OECD um ákveðna mælikvarða á heilbrigði samfélagsins. Með mælikvörðunum er hægt að svara spurningum eins og: Hversu auðvelt er að hafa þak yfir höfuðið? Er mennta- kerfið gott? Er mikil lýðræðisleg þátttaka? Gott heilbrigðiskerfi? Hefur fólk nægan frítíma eða er það stöðugt í vinnunni til þess að hafa of- an í sig og á? Þetta eru allt spurningar sem stjórnvöld eiga að svara, allan ársins hring. Núverandi efnahagskerfi virkar ekki svona. Núverandi hagstjórn snýst um að það sé hag- vöxtur og ekkert nema hagvöxtur. Að kakan svokallaða stækki bara og stækki. Vandinn er hins vegar að fæstir fá að njóta kökunnar. Fólk- ið sem stendur í bakstrinum heldur kökunni út af fyrir sig. Saman höfum við ákveðið að hið opinbera gegni ákveðnum skyldum. Haldi uppi réttarkerfi, passi upp á mannréttindi og að allir hafi aðgang að hágæðamenntun og -heilbrigðiskerfi. Það þýðir að stjórnvöld þurfa nauð- synlega að sýna okkur öllum svart á hvítu hvernig það gengur. Það þýðir ekki bara að benda á almennan hagvöxt og segja að hér sé allt í lagi. Skylda stjórnvalda er víðtæk- ari en svo, skyldan til þess að sýna að það sé verið að fara vel með almannafé. Ég beindi fyrirspurnum að öllum stofnunum hins opin- bera og spurði hvaða lögbundnum verkefnum væri verið að sinna og hver væri kostnaðurinn við hvert verkefni. Það sem kom mér á óvart var að enginn vissi svarið við þessari spurningu. Samt samþykkir þingið fjárheimildir í allar áttir – og þá án þess að hafa hugmynd um hvað er verið að borga fyrir. Það er þess vegna sem við þurfum velsæld- arhagkerfi. Þar sem áhersla stjórnvalda er að útskýra fyrir landsmönnum hvernig stefna og aðgerðir ríkisstjórnarinnar geri samfélagið betra í stað þess að beita þeim handahófs- kenndu og markmiðalausu aðferðum sem hingað til hafa liðist. Stjórnmálamenn eru mjög góðir í að búa til ákveðna orðræðu. Um leið og velsældar- hagkerfið var nefnt til sögunnar tók einn for- maður stjórnmálaflokks sig til og uppnefndi það vesældarhagkerfið – án þess að hafa hug- mynd um, um hvað málið snerist. Sumum finnst nefnilega stjórnmál snúast um að vera orðheppnir í stað þess að vinna markvisst að góðum mál- um fyrir alla landsmenn. Píratar vilja að allar ákvarðanir stjórnvalda séu byggð- ar á góðum gögnum en ekki geðþóttaákvörðunum stjórn- málamanna sem „finnst“ bara hitt og þetta vera best. Ef við beitum ekki bestu aðferðunum til þess að fá góðar nið- urstöður, hvaða aðferðum eigum við þá að beita? Velsæld- arhagkerfið er skýrt afmarkað og minnir stjórnvöld á þá ábyrgð sína að gera samfélagið betra fyrir alla, ekki bara suma. Þess vegna vilja Píratar velsældarhagkerfi. Björn Leví Gunnarsson Pistill Nýir tímar, nýjar áherslur Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Þ jóðverjar hafa afráðið að horfa ekki lengur til smit- tíðni í landinu við ákvörðun sóttvarnaráðstafana, held- ur aðeins á það hvernig staðan er á spítölum landsins, það er að segja hver marga þarf að leggja inn vegna veikinda af völdum kórónuveir- unnar. Það var Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands, sem tilkynnti um þessa veigamiklu stefnubreytingu þýskra stjórnvalda, en með henni er verið að bregðast við breyttri stöðu í faraldrinum, nú þegar 59% þjóðarinnar eru full- bólusett og 5% til viðbótar búin að fara í fyrri bólusetningu. Með þessu er þó ekki síður verið að reyna að auka fyrirsjáanleika í þjóðfélaginu, sem mikið hefur vantað upp á og efnahagslífið í þessari aflvél Evrópu grátt leikið fyrir vikið. Þungbær faraldur Þrátt fyrir að Þýskaland sé auð- ugt land með gott heilbrigðiskerfi og Þjóðverjar rómaðir fyrir rökvísi, röð og reglu, þá hefur heimsfaraldurinn leikið landið grátt og viðbrögð stjórnvalda í upphafi faraldursins og síðar við bólusetningu þóttu ekki til fyrirmyndar. Gripið var til mjög víð- tækra sóttvarnaráðstafana, sem fól- ust í lokunum og nánast útgöngu- banni, en árangurinn í sóttvörnum var einatt minni en að var stefnt. Á hinn bóginn komu þær hart niður á bæði fyrirtækjum og stofnunum, skólum og vitaskuld almenningi. Til þessa hefur verið miðað við smittíðni og þröskuldurinn settur við 50. Hingað til hafa lög um smit- varnir mælt fyrir um að þegar hún nær 50 á hverja 100.000 íbúa í land- inu, skuli grípa til víðtækra sótt- varnaraðgerða innan viku. Þessu á að breyta. Það er þó fleira en viðmiðið, sem til stendur að breyta, því einnig verður breyting á eðli sóttvarna- ráðstafana. Steffen Seibert, talsmaður ríkisstjórnarinnar, sagði ekki til standa að kynna neinar nýjar tak- markanir, en það sem þó er mest um vert, þá eiga bólusettir og þeir sem eru með mótefni framvegis ekki að þurfa að óttast neinar sérstakar tak- markanir. „Bólusettir mega vita að fyrir þá mun ekkert breytast, jafnvel þó svo tölurnar [um smittíðni] hækki. Það á einnig við um þá sem hefur batnað eftir kórónuveiruveikindi,“ sagði Seibert. „Þið þurfið ekki að bú- ast við nýjum takmörkunum.“ Heilbrigðisráðherrann var jafn- vel afdráttarlausari. „Smittíðnin 50 í lögunum hefur runnið sitt skeið,“ sagði Spahn, sem er heilbrigðis- ráðherra sambandsríkisins fyrir Kristilega demókrata, (CDU) á mánudag. Kosningar í aðsigi Spahn hét því að leggja fram frumvarp til breytinga á lögunum fyrir sambandskosningarnar, sem fram fara eftir rúman mánuð, 26. september. Angela Merkel Þýskalands- kanslari lætur af embætti í lok kjör- tímabilsins, en flokkur hennar og Spahns á í vök að verjast og hið nýja kanslaraefni flokksins, Armin Laschet, þykir ekki ýkja sannfær- andi. Það er eins konar huggun harmi gegn að Sósíaldemókrötum (SPD) gengur engu skár, enda tiltrú kjósenda á stjórnmálamönnum mik- ið veikst í faraldrinum. Þjóðverjar hætta að horfa til smittíðni AFP Berlín Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands, segir að smittíðni sé ekki rétt viðmið til ákvarðana um sóttvarnir í faraldrinum. Þýskt efnahagslíf varð harðar úti í heimsfaraldrinum en gert var ráð fyrir, en landsfram- leiðsla hafði í vor dregist sam- an um 5% frá árinu 2019. Til má nefna margar ástæður, en dvínandi eftirspurn vóg þyngst, líkt og merkja mátti af uppsöfnun gáma á hafnar- bökkum landsins, eins og sjá má á myndinni. Þjóðverjar fóru verr út úr faraldrinum en vonir stóðu til, en svo reyndust sóttvarnar- takmarkanir atvinnu- og efna- hagslífi mjög þungbærar. Í sumar tók hagvöxturinn aftur við sér, en um leið jókst verð- bólga, nam um 3%, sem er eit- ur í beinum Þjóðverja allt frá dögum óðaverðbólgunnar 1923. Betur má því ef duga skal. Rétt að taka við sér aftur EFNAHAGSLÍF ÞÝSKALANDS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.