Morgunblaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 14
14
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021
Píratar höfnuðu því
nýlega að horfa til
hagvaxtar. Af því til-
efni er rétt að líta til
hagvaxtar og þróunar
vergrar landsfram-
leiðslu (e. Gross Do-
mestic Production,
GDP). Í frétt Hag-
stofu Íslands frá því í
febrúar sl. kom fram
að landsframleiðslan á
Íslandi hefði dregist saman um
6,6% árið 2020. Þar er fullyrt að
þetta megi að mestu rekja til kór-
ónuveirufaraldursins. Ferðaþjón-
usta dróst saman um 74,4% á
árinu 2020. Þá er áætlað að hlutur
ferðaþjónustu í landsframleiðslu
hafi numið 3,5% á árinu 2020 sam-
anborið við 8,0% árið 2019. Þessar
upplýsingar skipta okkur öll miklu.
Í fréttum RÚV nýlega var sagt
að Píratar vildu hætta öllum
„þessum endalausu hagvaxtarpæl-
ingum“ og horfa frekar á ein-
hverja nýja mælikvarða þegar
markmiðið er að mæla velgengni
samfélagsins. Í sömu fréttaveitu
var síðan bent á að Íslendingar
menguðu mest á hvert mannsbarn
í Evrópu.
Er ekki lengur hægt að gera þá
kröfu að fulltrúar okkar í frétta-
miðlum og á Alþingi geti lesið bet-
ur í tölur Eurostat? Ísland er um
103 þúsund ferkílómetrar að
stærð, er næststærsta eyja Evr-
ópu á eftir Bretlandi og sú átjánda
stærsta í heimi. Eyjan Ísland fer
stækkandi, eins og eldgosið í Geld-
ingadölum ber glöggt vitni um.
Það gerist reyndar með mengun
sem kemur úr því rými sem ein-
hverjir myndu telja sameign allra
á jörðinni, þ.e. úr möttlinum, úr
miðju jarðar. Franski rithöfund-
urinn Jules Verne kynnti fyrir mér
ferðir þangað þegar ég var lítil
stúlka. Á að halda því gegn Íslend-
ingum að þeir séu ekki með sam-
viskubit og kvíða yfir
því að búa í fallegu og
strjálbýlu landi? Þetta
er fámenn og friðsöm
þjóð? Hvar er þá
Ástralía stödd í þessu
samhengi, Namibía,
Svalbarði og Jan
Mayen?
Hagstofa Íslands
tekur saman gögn um
lífslíkur á Íslandi. Í
frétt stofnunarinnar
segir í júlí 2019 að
lífslíkur á Íslandi séu
með þeim mestu í Evrópu. Nú er
spurning hvort þessi mælieining
teljist einnig fráleit á meðal Pírata
og ekki sé rétt að horfa til þessara
staðreynda. Þegar litið er til ung-
barnadauða af 1.000 lifandi fædd-
um hefur hann fallið úr sjö börn-
um á ári niður í um 1,8 að
meðaltali sé litið til 10 ára tímabils
frá 2008 til 2017. Hvergi í Evrópu
er ungbarnadauði jafn fátíður og
hér svo vitnað sé beint í frétt frá
Hagstofu Íslands. Þetta eru stað-
reyndir sem snerta okkur öll.
Markmið Pírata er að horfa til
loftslagsmála umfram allt og efna
loforð um nýja stjórnarskrá. Nýj-
asta endurnýjun stjórnarskrár-
innar er frá árinu 2013. Á hverju á
fólk að nærast ef ætlunin er að
hætta að horfa til hagvaxtar og
framleiðni? Loftinu og nýrri
stjórnarskrá? Þó svo að nýleg
skýrsla um losun gróðurhúsaloft-
tegunda sýni losun háa á hvern
íbúa á Íslandi verður að horfa til
þess að hér á landi er stór kol-
svört eyðimörk á hálendi þessarar
fögru eldfjallaeyju. Það er ekki
auðvelt að græða það svæði allt
upp á milli eldgosa. Hér gýs að
meðaltali á fimm ára fresti. Hvers
vegna fer fólk ekki oftar út á land
og gróðursetur fleiri tré, eins og
ég? Það er bæði hollt, gefandi og
gott.
Það er sjálfsagt að auka velsæld
á Íslandi en eru það Íslendingar
sem menga mest allra á jörðinni?
Þaðan sem ég kem var það óstjórn
í stjórnmálum sem olli mestu tjóni.
Það leiddi af sér styrjaldir. Mér er
alveg ómögulegt að skilja að hér
sé verið að kvarta og skapa ófrið
um umhverfismál í þessu fallega
landi. Auðvitað mætti SORPA
standa sig betur en þar hafa Pírat-
ar þó eitthvað um málið að segja.
Þeir eru í meirihluta í Reykjavík-
urborg ásamt nokkrum öðrum.
Það að Píratar ætli að stefna að
því að henda hitamælum hagkerf-
isins getur tæpast talið skynsam-
legt. Þeir ætla að leggja áherslu á
loftslagið og hlýnun jarðar þar
sem hitamælar skipta öllu máli.
Þetta getur ekki farið saman. Við
þurfum hagvöxt ef greiða á upp
skuldir og upp í mengunarkvóta
sem eru nú verðmetnir á hærra
gengi en áður. Íslendingar eiga
enn orku og auðlindir sem þeir eru
öfundaðir af. Fjölmörg ríki Evrópu
hafa þegar brennt upp sínar lindir
í báða enda í gegnum styrjaldir og
stríðsrekstur.
Hvers vegna eru Píratar að
reyna að ræna umræðunni? Mér
skilst að í leikriti norska leik-
skáldsins Thorbjørns Egners,
Kardimommubænum, hafi Soffíu
frænku einmitt verið rænt með
það í huga að koma ræningjunum
sjálfum til hjálpar vegna þeirra
eigin sóðaskapar heima fyrir. Í
fagurbókmenntum og listum má
oft finna svarið við snúnum spurn-
ingum.
Landsframleiðsla á Íslandi –
Píratar hafna því að horfa
til hagvaxtar á Íslandi
Eftir Samsidanith
Chan » Það að Píratar ætli
að stefna að því að
henda hitamælum hag-
kerfisins getur tæpast
talið skynsamlegt.
Samsidanith Chan
Höfundur skipar 2. sæti á lista Mið-
flokksins í Reykjavík suður fyrir
komandi alþingiskosningar.
danithchan78@gmail.com
Í Njálu er greint frá
því að Þórður leys-
ingjason, fóstri þeirra
Njálssona, maður sem
aldrei hafði séð
mannsblóð, drap
Brynjólf rósta, frænda
Hallgerðar konu
Gunnars á Hlíðarenda.
Er þessi tíðindi komu
til þings, en þar var
Njáll þá staddur, lét
hann segja sér þrem sinnum og
mælti síðan: „Fleiri gerast nú víga-
menn en ég ætlaði.“ Þegar ég hafði
lesið vandlega nöfnin á öllum fram-
boðslistum Sósíalistaflokks Íslands
(hér eftir ritaður SÍ) kom mér í hug:
„Fleiri gerast nú sósíalistar en ég
ætlaði.“
Alllengi hefur legið fyrir baráttu-
stefna SÍ í innanlandsmálum í 17 lið-
um. Það vekur strax athygli að
hvergi er minnst á sósíalisma í
þessu plaggi. Hvergi er heldur
minnst á yfirtöku atvinnutækja og
afnám kapítalisma í landinu. Ætlar
SÍ að koma á réttlátu samfélagi
gegnum Alþingi og núverandi ríkis-
kerfi?
En fátt er svo með öllu illt að ekki
boði nokkuð gott. SÍ setur á dagskrá
endurreisn verkalýðsbaráttunnar og
setur fram framsæknar kröfur í
nokkrum málaflokkum, svo sem í
húsnæðismálum, skattamálum, heil-
brigðismálum og sjávarút-
vegsmálum. Sósíalistar gera grein-
armun á stjórnlist (strategíu) og
baráttuaðferðum (taktík). Stjórnlist-
in fjallar um leiðirnar til þess að ná
því markmiði sem stefnt er að en
baráttuaðferðirnar taka til þess
hvaða ráðum er beitt til þess að ná
ákveðnum tímabundnum árangri.
Allir flokkar beita einhverjum
baráttuaðferðum í starfi sínu en
sumir hafa enga stjórnlist. Í því felst
hentistefnan. Hentistefnuflokkar
hafa yfirleitt enga stjórnlist og hafa
heldur engan áhuga á henni. Bar-
áttuaðferðir þeirra miðast einungis
við einhvern árangur á líðandi stund
án tillits til gildis þeirra fyrir þjóð-
félagsleg markmið. Flokkar sem
styðjast við millistéttir eða þann
hluta verkalýðsins sem unir auð-
valdsskipulaginu eru yfirleitt henti-
stefnuflokkar því að þessir þjóð-
félagshópar eru í eðli sínu tvíráðir
og reikulir og hafa fyrst og fremst
áhuga á stundarhag.
Sósíalískur byltingarflokkur hef-
ur ekki aðeins ákveðið markmið fyr-
ir stafni, heldur gerir sér líka grein
fyrir þeim leiðum sem hugsanlegar
eru til þess að ná þessu markmiði og
þeirri stjórnlist, sem nauðsynlegt er
að beita í því stéttastríði er verður
að heyja til þess að brjóta þá braut.
Í öllu sínu starfi, öllum sínum at-
höfnum og baráttuaðferðum tekur
hann mið af lokatakmarkinu og
þeirri stjórnlist sem beita verður til
þess að ná því. Það er besti mæli-
kvarðinn á alvöru og
einlægni sérhvers bylt-
ingaflokks.
Ekki hressist Eyjólf-
ur þegar kemur að
stefnu SÍ í utanríkis- og
alþjóðamálum. Það tók
flokkinn fjögur ár að
koma frá sér einhverju
um þau mál. Frumvarp
í 18 liðum um utanrík-
isstefnu SÍ var loksins
lagt fram 2. júlí sl. og
samþykkt 4. júlí. Þessi
langi umhugsunarfrestur bendir
ótvírætt til þess að félagarnir séu
sundraðir í afstöðu sinni til þessara
mála. Í fumvarpinu er hvergi fjallað
um heimsvaldastefnuna, sem er
lykilhugtak í sósíalískri baráttu.
Hvergi orð um skylduna að verja
fullveldið og sjálfsákvörðunarrétt
þjóðarinnar. Ekki orð um að Ísland
eigi að ganga úr NATO. Vera okkar
í NATO og herverndarsamning-
urinn við Bandaríkin binda okkur
við heimsvalda- og yfirgangsstefnu
Bandaríkjanna og NATO-blokkar-
innar, þ.e.a.s. mestu heimsvalda- og
yfirgangsafla nútímans. Í frumvarp-
inu er ekkert minnst á hervernd-
arsamninginn við Bandaríkin, þjóð-
aröryggisstefnu Íslands og ört
vaxandi framkvæmdir í landinu því
tengdar. Þar er hins vegar sagt að
Ísland ætti að koma á friðarbanda-
lagi í samstarfi við nágrannaþjóð-
irnar.
Ja hérna! Er verið að tala um
NATO-ríkin í kringum okkur? Er
verið að tala um Noreg með allan
Norður-Noreg útbíaðan í bandarísk-
um herstöðvum? Er eitthvað alvar-
legt að þessu fólki? Hvað með af-
stöðuna til ESB? Algert stefnuleysi
og óskýr afstaða SÍ. Einkennilegt
því mesta ógnin við fullveldið kemur
einmitt frá ESB sem yfirtekur í sí-
vaxandi mæli löggjöf og stjórnun
landsmála í gegnum EES-
samninginn.
Evrópusambandið hefur frá upp-
hafi byggst á og utan um vesturevr-
ópskt einokunarauðvald og heims-
valdastefnu. Gengur út á evrópskt
drottnunarvald yfir fátækari þjóð-
um og heimsvaldasinnaða sam-
keppni við aðrar blokkir. Hugsan-
legt er að SÍ vegni vel í kosningun-
um í haust, þrátt fyrir málefnafá-
tæktina. En hvað svo? Hvort man
nú enginn Þjóðvaka, Bandalag jafn-
aðarmanna og Borgaraflokkinn?
Þeir náðu allir þokkalegum árangri í
sínum fyrstu og einu kosningum en
dóu svo allir vöggudauða. Og allir
með drottnandi stöðu eins manns í
forystu eins og SÍ.
Fleiri gerast
nú sósíalistar
en ég ætlaði
Eftir Ólaf Þ.
Jónsson
Ólafur Þ. Jónsson
»Ekki hressist Eyjólf-
ur þegar kemur að
stefnu SÍ í utanríkis- og
alþjóðamálum.
Höfundur er skipasmiður.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!