Morgunblaðið - 25.08.2021, Side 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*
-�-"%
,�rKu!,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Poppsálin nefnist poppmenningar-
legt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi
sem sálfræðikennarinn Elva Björk
Ágústsdóttir gerir út og má nálgast
á helstu hlapvarpsveitum og hlað-
varpasíðu mbl.is. „Fjallað er um
ýmis sálfræðileg málefni sem tengj-
ast poppmenningu sem og áhuga-
verðar rann-
sóknir og pæl-
ingar innan
sálfræðinnar,“
segir um varpið
en Elva kennir
sálfræði við
Menntaskólann
við Hamrahlíð.
„Mig langaði
að tvinna saman
sálfræði og popp-
menningu og
þetta er nokkuð sem ég hef sjálf
áhuga á og finnst gaman að fræðast
um. Og ætli ég hafi bara ekki verið í
einhverri miðaldrakrísu og langaði
bara að gera eitthvað nýtt. Í raun-
inni er hugmyndin ekkert rosalega
djúp,“ segir Elva, létt í bragði, þeg-
ar hún er spurð hver hugmyndin sé
með þessu hlaðvarpi en sem dæmi
um umfjöllunarefni þáttanna má
nefna Michael Jackson og líkams-
skynjunarröskun, lýtaaðgerðir og
Pétur Pan-heilkennið og Kurt Cob-
ain og sjálfsvígssmit.
Elva hefur fengið til sín gesti í
nokkra þætti, m.a. Heiðar Örn,
söngvara Botnleðju og söngkonurn-
ar Írisi Hólm, Svölu Björgvins og
Bríeti. Hafa umfjöllunarefnin verið
af öllu tagi, m.a. rætt um kvíða og
jaðarpersónuleikaröskun.
DiCaprio og tyggjóklessan
Þegar blaðamaður ræddi við Elvu
var nýjasti þátturinn „Leonardo
DiCaprio og tyggjóklessuáráttan“,
settur í hlaðvarpsveitur 10. ágúst og
hafa því nokkrir bæst við. Elva seg-
ir hann fjalla um OCD, þ.e. áráttu-
og þráhyggjuröskun.
Hún segir leikarann hafa lýst
sinni áráttu og þráhyggju í fjölmiðl-
um. „Ein af hans áráttum er að
stíga alltaf á tyggjóklessur og þann-
ig kom hugmyndin að nafninu,“ seg-
ir Elva. Í þáttunum taki hún alltaf
fyrir eitthvað sem hafi verið í fjöl-
miðlum eða í deiglunni. „Næst ætla
ég að tala um þau Ross og Rachel í
Friends því þau eiga víst að vera að
deita en samt ekki,“ segir Elva kím-
in og á þá við leikarann David
Schwimmer og leikkonuna Jennifer
Aniston sem fóru með hlutverk
parsins í gamanþáttunum víðfrægu.
„Ég tala um hvernig meðleikarar á
setti séu líklegri til að verða ást-
fangnir en til dæmis tveir bóka-
safnsfræðingar á Borgarbókasafn-
inu. Þannig að ég tvinna sálfræðina
inn í þetta.“
Elva segir þetta þekkt, þ.e. að
leikarar sem leika pör eða elskend-
ur felli hugi saman í raunheimum.
En hvernig stendur á því? Elva seg-
ir skýringuna margþætta. Í fyrsta
lagi sé það nándin, leikararnir séu
mikið saman og í öðru lagi vinnutím-
inn. Fólk sé kannski saman kvölds
og morgna og í þriðja lagi sé það svo
ólík tegund af leik. „Sumir leikarar
eru það sem kallað er „method
actors“ og þá ertu að opna þig alveg
rosalega tilfinningalega,“ útskýrir
Elva.
Síðast en ekki síst eru það svo
kossar á tökustað og segir Elva
kossinn kveikja á oxítósínflæði í
heilanum, jafnvel þótt allt sé í plati.
„Ég tek alveg dæmi um það, þegar
maður er sjálfur að deita einhvern
og er ekki alveg viss þá þarf maður
bara að prófa að kyssa hann til að
sjá hvort kviknar á einhverju. Við
kossinn kemur svo stundum þessi
tilfinning að neibb, þetta sé ekki
málið eða já, bara æðislegt!“ segir
Elva og hlær.
Opin umræða gegn fordómum
Elva er spurð að því hvort mark-
mið hennar með hlaðvarpinu sé að
vekja athygli á sálfræði sem fræði-
grein í gegnum listir, hvort einhver
slíkur tilgangur sé með því. „Ég var
spurð að þessu um daginn, af hverju
ég væri að þessu og hvort ég fengi
borgað fyrir þetta, og ég vissi ekki
almennilega af hverju ég væri að
þessu. En í fyrsta lagi kennir sál-
fræðin okkur svo margt, maður lær-
ir svo mikið um annað fólk með því
að kynna sér alls konar hugtök í sál-
fræðinni, af hverju við gerum hitt og
þetta. Þegar við lærum það skiljum
við betur fólk og það minnkar auð-
vitað fordóma. Ég er að tala um alls
konar geðraskanir eins og þegar ég
fékk hana Írisi söngkonu til mín að
tala um „borderline personality dis-
order“ sem er ofboðslega jaðarsett
geðröskun og ennþá svolítið tabú,
miklu meira tabú en kvíði og þung-
lyndi. Þessi þáttur sló alveg í gegn
því hann er líka svo upplýsandi,“
svarar Elva. Það sé einkar lær-
dómsríkt að hlusta á manneskju
með slíka geðröskun segja frá lífi
sínu. Elva segist líka hafa fengið
Svölu Björgvins til að tala um kvíða
og Bríeti um ástarsorg sem hafi ver-
ið kveikjan að fyrstu sólóplötu henn-
ar. Með þáttunum sé opnað á um-
ræðu og reynt að draga úr
fordómum.
Nú skal tekið fram að þættirnir
eru ekki eins og tími hjá sálfræð-
ingi, enda mætti ekki útvarpa slík-
um samtölum, en Elva segir mörg
önnur hlaðvörp í boði sem nálgist
sálfræði á sjálfshjálparnótum sem
sé allt annar vinkill. „Ég er að segja
sögur og nota sálfræðina til að út-
skýra af hverju Donald Trump er
eins og hann er eða af hverju Kurt
Cobain svipti sig lífi. Ég tengi sál-
fræðina við poppmenningu,“ út-
skýrir Elva.
Nemendur hlusta á hlaðvarpið
Elva er spurð hvort hún sé sífellt
að leita að umfjöllunarefnum, til
dæmis þegar hún horfi á kvikmynd-
ir eða sjónvarpsþætti, lesi bækur
eða hlusti á tónlist. Er hún þá alltaf
með sálfræðilegar tengingar og
hlaðvarpið í huga? „Já, ég er farin
að gera það núna. Ég gerði það
kannski ekki fyrir ári en geri það
alltaf núna og fæ hugmyndir frá
fólki í kringum mig, skrái þetta allt
niður hjá mér. En ég held að ég hafi
alla tíð, alveg frá því ég fór að læra
sálfræði, séð hlutina stundum svolít-
ið öðruvísi. Ég er kannski að horfa á
sjónvarpið og sé par rífast, fer þá að
hugsa um að hennar sjálfsmynd
byggist á því að vera góð í eldhúsinu
og svo er hann að koma heim og
gleymdi að hún ætlaði að elda. Hún
er búin að elda fínan mat og þess
vegna verður hún svona reið,“ segir
Elva, létt í bragði.
Elva segir tilgang þáttanna líka
að kveikja áhuga hjá nemendum
hennar, menntskælingunum. „Ég
tók Donald Trump t.d. oft fyrir til
að kveikja áhuga hjá nemendum
mínum á einhverju sálfræðitengdu.
Þá hugsaði ég bara með mér að
þetta væri ógeðslega sniðugt og af
hverju ekki að búa til hlaðvarp líka?
Svo læt ég nemendur hlusta á hlað-
varpið.“ Elva segir varpið auka
áhuga nemenda á efninu, þegar
hægt sé að tengja það við þekktar
persónur, atburði, hegðun og atferli.
Hún nefnir sem dæmi rapparann
Kanye West og hvers vegna fólk sé
jafnæst og raun ber vitni í að kaupa
skóna sem hann hefur hannað. Með
sálfræðilegri nálgun fáist skýring á
þeirri kaupþörf. „Sálfræðin er nátt-
úrlega skemmtileg fyrir en þetta
gerir hana enn skemmtilegri,“ segir
Elva að lokum og sem fyrr segir má
nálgast hlaðvarpið á ýmsum veitum,
m.a. Spotify, og hlaðvarpssíðu
mbl.is.
Sálfræðin kennir manni svo margt
Morgunblaðið/Eggert
Gestur Tónlistarkonan Bríet ræddi við Elvu í einum þáttanna um ástarsorg,
uppgjör, lagatexta hennar og tónlist, útlitspælingar og álit annarra.
AFP
Fimm Britney Spears er viðfangs-
efni fimm þátta Poppsálarinnar.
Oxítósín Ross og Rachel kyssast í Vinum en nú velta menn vöngum yfir því hvort Schwimmer og Aniston séu par.
AFP
Stórskrítinn Donald Trump í for-
setatíð sinni. Fjallað er um hann í
þætti um narsissisma og lygar.
- Sálfræði og poppmenning tvinnast saman í hlaðvarpinu Poppsálin - „Sálfræðin er náttúrlega
skemmtileg fyrir en þetta gerir hana enn skemmtilegri,“ segir Elva um nálgun sína á fræðina
Elva Björk
Ágústsdóttir
Tyggjóklessuárátta Leonardo DiCaprio, leikarinn ástsæli, hefur greint frá
því að hann sé með OCD, áráttu- og þráhyggjuröskun og hafi til dæmis
þurft að stíga á allar tyggjóklessur sem hann kom auga á.