Morgunblaðið - 25.08.2021, Side 25

Morgunblaðið - 25.08.2021, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND DWAYNE JOHNSON EMILY BLUNT HUGH JACKMAN Hátíðin Hamraborg festival hefst á morgun, fimmtudag, og er haldin í fyrsta sinn. Er það listahátíð inn- blásin af og tileinkuð Hamraborg- inni og koma yfir 50 listamenn að henni. Vegglistamenn fá að spreyta sig á veggjum Hamraborgar, tón- list verður flutt í Salnum og á Ca- talinu og í annarri hverri búð við götuna verður opnuð sjálfstæð myndlistarsýning eftir gjörólíka listamenn, að því er fram kemur í tilkynningu. Hátíðinni lýkur á sunnudaginn, 29. ágúst, að loknu lokahófi á Catalinu kvöldið áður. Listrænir stjórnendur hátíðar- innar eru myndlistarkonan Joanna Pawlowska, rithöfundurinn Snæ- björn Brynjarsson, grafíski hönn- uðurinn Sveinn Snær Kristjánsson og listakonan Ragnheiður Bjarnar- son en þau reka menningarkjarn- ann Midpunkt sem hefur verið starfræktur í Hamraborg allt frá árinu 2018. Hefst í Midpunkt Hátíðin verður opnuð formlega í Midpunkt-galleríinu á morgun kl. 16 og munu gestir fá kort af Hamra- borginni sér til leiðsagnar. Opið verður fram á kvöld og mikið líf og fjör. Næstu tvo daga, 27. og 28. ágúst, verður mikið um að vera, sýn- ingar í ýmsum rýmum og margvís- legir viðburðir í boði. Hátíðin er sögð óður til Hamra- borgarinnar og telja aðstandendur hennar Hamraborgina vera einu sönnu borgina á Íslandi þar sem í það minnsta sé hvergi annars staðar á höfuðborgarsvæðinu hægt að finna jafn ómengað borgarlandslag, eins og segir í tilkynningu. Segir þar að í hverfinu leynist ótal sögur og leikhópurinn Flanerí bjóði hátíðar- gestum í göngutúr á föstudaginn og Hamraborgarskáldið Kamilla Ein- arsdóttir rölti um borgina með áhugasömum á laugardag. Auk þess verði í Midpunkt sýning þriggja listakvenna; Önnu Andre Winther, Agnesar Ársælsdóttur og Svanhild- ar Höllu Haraldsdóttur, Óskila- munir, sem snúist um kortlagningu og staðfræði Hamraborgarinnar. Sjálfstæðar myndlistarsýningar verða opnaðar í ólíkum sýningar- rýmum, þ.e. í Te og kaffi, í antík- verslun, Euromarket, ljósmynda- stofu, veipbúð, á náttúrufræðistofu og á Catalinu. Fyrir utan Midpunkt mun hjarta hátíðarinnar slá á Ca- talinu en á föstudagskvöldinu verð- ur leiklestur á völdum atriðum úr verkum Kópavogsskáldsins Tyrf- ings Tyrfingssonar í flutningi með- lima úr leikfélagi Kópavogs, að því er fram kemur í tilkynningu og á laugardaginn verður þar lokahóf þar sem Hugrún Britta Kjart- ansdóttir og Heather Ragnars spila tónlist í upphafi kvölds og plötusnúður þeytir svo skífum. Listamenn í Auðbrekku verða með opnar vinnustofur og á Gerðarsafni verða námskeið með listamönnum fyrir börn og fullorðna og leiðsagn- ir. Síðast en ekki síst munu ung- menni úr Kópavogi sýna verk og þá bæði kvikmyndir og húllahopp- sýningar. Frekari upplýsingar um viðburði má finna á Facebook. Hátíð innblásin af og tileinkuð Hamraborginni Stjórnendur Joanna Pawlowska, Sveinn Snær Kristjánsson, Snæbjörn Brynjarsson, og Ragnheiður Bjarnarson. Myndlistarmaður Páll Ivan að störfum en hann tekur þátt í hátíðinni. - Hátíðin hefst á morgun - Hin eina sanna borg á Íslandi, segja stjórnendur John Lydon, bet- ur þekktur sem Johnny Rotten og fyrrum for- sprakki pönk- sveitarinnar Sex Pistols, tapaði máli fyrir Hæsta- rétti í Bretlandi í fyrradag. Lydon vildi ekki að lög sveitarinnar væru notuð í væntan- legum sjónvarpsþáttum um hljóm- sveitina og höfðuðu trommarinn Paul Cook og Steve Jones þá mál á hendur honum og kröfðust þess að fá að nota lögin. Þáttunum leikstýrir hinn heims- kunni leikstjóri Danny Boyle og er handrit þeirra byggt á minninga- bók Jones, Lonely Boy: Tales From A Sex Pistol. Þeir Jones og Cook voru á því að ekki þyrfti leyfi Lydon fyrir notkun laganna þar sem þeir væru í meirihluta og komst dómari að þeirri niðurstöðu að það væri rétt mat. Cook og Jones höfðu betur John Lydon Áður óbirtur texti við Bítlalag sem aldrei var tekið upp verður í væntanlegri bók Pauls McCart- neys, The Lyrics, sem mun fjalla um lagatexta, eins og titillinn gefur til kynna. Bítillinn opinber- aði í fyrradag hvaða 154 lög koma við sögu í bókinni eða öllu heldur textarnir við þau. Skáldið Paul Muldoon ræddi við McCartney um textana og skrifaði samtöl þeirra í bókina. Er bókinni lýst sem sjálfs- mynd í 154 lögum. Meðal texta sem verða til umfjöllunar eru textar við lögin „Blackbird“, „Live and Let Die“, „Hey Jude“, „Band on the Run“ og „Yesterday“. Lagið sem aldrei var tekið upp og gefið út nefnist „Tell Me Who He Is“. Textinn er handskrifaður og fannst í einni af minnisbókum McCartneys. Óbirtur texti í bók Pauls McCartneys Paul McCartney ungur að árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.