Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.8. 2021 V erslunarmannahelgin gekk almennt vel fyrir sig, þar á meðal í Vestmannaeyjum þótt engin væri þjóðhátíð. Margir Eyjamenn héldu hins vegar lóðahá- tíð, tjölduðu bara úti í garði og slógu upp veislu. Brekkusöngnum var svo streymt fyrir lysthafendur, þótt það hafi hökt nokkuð. Margir nutu einn- ig tónleika verslunarmanna-Helga Björns. Sömuleiðis var víða talsvert um ferðafólk, til dæmis á Akureyri, jafnvel þannig að einhver vandræði hlutust af aðkomumönnum. Skipu- lögð hátíðahöld voru hins vegar nær engin í landinu. Þó var fjölskyldu- hátíð í Hellishólum í Fljótshlíð, þar sem sungið var saman við varðeld en sóttvarnareglum fylgt í hvívetna. Þó að verslunarmannahelgin hafi orðið nýjasta fórnarlamb slauf- unarmenningarinnar virtust lands- menn ekki láta það slá sig út af lag- inu, því sölumet var slegið í verslunum ÁTVR. Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Grund greindist með kórónuveir- una um helgina, en fyrir voru tveir vistmenn og annar starfsmaður með veiruna. Karlmaður á fertugsaldri lést í haldi lögreglu eftir að hafa verið handtek- inn í austurbæ Reykjavíkur um tvö- leytið á sunnudagsnótt. Lögregla var á leið með manninn á sjúkrahús þeg- ar hjarta hans stöðvaðist, en endur- lífgunartilraunir báru ekki árangur. Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þing- maður og formaður Pírata og fyrrver- andi þingmaður Hreyfingarinnar, gekk til liðs við Sósíalistaflokkinn. Fyrrverandi félagar hennar í Pírata- flokknum fögnuðu því almennt. Tilraunir til þess að gera Akureyr- arflugvöll að áfangastað í milli- landaflugi hafa gengið brösuglega, en hins vegar hefur hann verið stappfullur af erlendum einkaþotum að undanförnu, meðan farþegarnir skreppa í lax. Annie Mist Þórisdóttir hlaut brons- verðlaun á heimsleikunum í crossfit, sem fram fóru í Bandaríkjunum um liðna helgi. Hún hefur tvisvar orðið heimsmeistari í crossfit, bæði 2011 og 2012. . . . Um liðna helgi greindust 153 ný smit kórónuveirunnar innanlands, um helmingur utan sóttkvíar. 18 manns lágu á Landspítalnum með Covid-19, tveir á gjörgæslu og annar þeirra í öndunarvél. Liðlega 1.200 manns, þar af um 200 börn, voru undir eftirliti Covid- göngudeildar Landspítalans í upp- hafi vikunnar. Talsmenn spítalans sögðu að smitsjúkdómadeildin væri komin að þolmörkun. Skilaboð heil- brigðisyfirvalda voru hins vegar nokkuð misvísandi, annars vegar að bólusetningin dygði greinilega lítið í ljósi smitfjöldans en hins vegar að auka þyrfti hana til muna. Bólusetning skólabarna komst af því tilefni á dagskrá, enda styttist í skóla- setningar. Þá var hafist handa við gjöf örvunarskammta bóluefnis til kennara og annars starfsfólks skóla, sem þegar hefur verið bólusett. Talsverð umræða spannst um grein Carls Baudenbachers, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, þar sem hann sakaði Pál Hreinsson arftaka sinn um að hafa glatað sjálfstæði sínu með störfum fyrir ríkisstjórn Íslands. Fyrir dómstólnum eru ein- stök EFTA-ríki jafnan hinir stefndu. Langferðabíll með 50 erlenda ferða- menn á leið í flúðasiglingu valt utan vegar í Biskupstungum á mánudags- kvöld. Enginn slasaðist alvarlega, en þyrla Landhelgisgæslunnar flutti þó nokkra þeirra til aðhlynningar á sjúkrahúsi í Reykjavík. Kosið verður um sameiningu fimm sveitarfélaga milli Þjórsár og Skeið- arársands í næsta mánuði. Með sam- einingunni er vonast til þess að styrkja megi innviðina, en þar gera menn sér vonir um 800 milljónir króna til þess arna úr ríkissjóði. Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi í janúar, er nú á sólarströnd í sum- arleyfi eftir hálfs árs dvöl á sjúkra- húsi. Hann deildi myndskeiði af ströndinni þar sem hann makaði sól- aráburði á bak konu sinnar með hægri hendi. Þrátt fyrir að hraunstraumurinn á Reykjanesskaga sé misjafn eftir dögum er ferðamannastraum- urinn þangað nokkuð jafn. Þangað leggja að jafnaði þúsundir manna leið sína dag hvern. . . . Stefnubreytingu mátti greina af orð- um Svandísar Svavarsóttur heil- brigisráðherra á þriðjudag, þegar hún sagði nær að horfa til veikinda en fjölda smita við mat á faraldr- inum og aðgerðum stjórnvalda. Þór- ólfur Guðnason var ekki jafnviss og fór í fýlu. Þrátt fyrir að þessi síðasta smit- bylgja sé sú mesta frá upphafi kór- ónuveirufaraldursins hér á landi eru alvarleg veikindi fátíð, enda þorri þjóðarinnar bólusettur. Þrátt fyrir að bólusetning komi ekki í veg fyrir öll smit þá dregur hún mjög úr þeim og þeir sem sýkjast fá yfirleitt lítil eða engin einkenni. Fyrir vikið eru sjúkrahúsinnlagnir hlutfallslega miklu færri en í fyrri bylgjum. Enn sem komið er. Dragúldið búrhvalshræ rak á land við Ytri-Tungu á sunnanverðu Snæ- fellsnesi og leggur fnykinn langar leiðir. Jón Þórisson lét óvænt af störfum sem ritstjóri Fréttablaðsins, en Sig- mundur Ernir Rúnarsson, sjón- varpsmaður og skáld, var ráðinn rit- stjóri blaðsins og jafnframt aðalritstjóri útgáfunnar, sem hefur fleiri miðla á sínum snærum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sagði að það væri í verkahring Páls Hreinssonar forseta EFTA- dómstólsins að meta hæfi sitt þegar hann tæki að sér verkefni til hliðar við dóminn. Hún svaraði því hins vegar ekki hvort það væri við hæfi að ríkis- stjórnin fengi hann til slíkra starfa. Leikskólar verða opnaðir einn af öðrum á næstu dögum og vikum, en starf í grunnskólum hefst seinni- hluta mánaðarins. Markmið bæði ríkis og sveitarfélaga er að skóla- hald verði óskert eftir því sem sótt- varnareglur heimila. Hinsegin dagar hófust í Reykjavík á þriðjudag. . . . Páll Matthíasson forstjóri Land- spítalans, sem snúinn er aftur úr sumarleyfi, segir að sumarleyfi séu helsta ástæða álags á spítalanum, ekki kórónuveiran. Gullleit er hafin í Þormóðsdal í Mos- fellssveit, skammt frá Hafravatni. Vitað er að þar er gull að finna líkt og víða á jarðhitasvæðum, en leitast verður við að svara hvort það sé í nægilega vinnanlegu magni til þess að svara kostnaði. Hörgull er á leigubílstjórum á höf- uðborgarsvæðinu. Eftirspurn fer nú ört vaxandi, en í kórónuveirufaraldr- inum lögðu margir leigubílstjórar leyfi sín inn og sneru sér að öðru. Guðmundur Börkur Thorarensen forstjóri BSR telur tímabært að fleiri atvinnuleyfi séu virkjuð til þess að mæta því. Óttast var að Ísland lenti á rauðum lista Evrópusambandsins um ástand heimsfaraldursins í ýmsum löndum og að það gæti haft vondar afleið- ingar fyrir ferðaþjónustuna. Þegar á hólminn kom var það þó aðeins fært á appelsínugulan lista. Það er enn á grænum lista á Bretlandi og Banda- ríkjamenn kæra sig kollótta um þá litaflokkun. Vísindamenn frá NASA, geimvís- indastofnun Bandaríkjanna, eru við Sandavatn á Biskupstungnaafrétti. Þar eru þeir að æfa sig í að bora eftir vatni eða ís, en margt bendir til þess að þar séu staðhættir og náttúrufar ekki ólík því sem gerist á reiki- stjörnunni Mars. Það styttist í að bæði réttlátir og ranglátir geti gengið þurrum fótum yfir Rauðavatn, en það er við að hverfa vegna lágrar grunnvatns- stöðu, sem aftur má rekja til þurrka. Metumferð var um hringveginn í júlí, enda voru íbúar höfuðborgar- svæðisins duglegir við að elta sólina út á land. Hún sást lítið í Reykjavík. Menningarnótt var frestað, en Reykjavíkurmaraþoninu frestað til 18. september. Kristmundur Elí Jónsson á Bæj- arins beztu lést, 92 ára að aldri. . . . Fasteignamat B59 hótels í Borgarnesi var lækkað um þriðjung eftir að yfir- fasteignamatsnefnd setti ofan í við Þjóðskrá. Leiðréttingin tók rúmt ár. Líkur á að konur fái húðkrabba- mein hafa þrefaldast á fjörutíu ár- um hér á landi og eru þær líklegri en karlar til að fá ákveðna tegund þess. Erlendis eru karlar líklegri til að fá húðkrabbamein. Líklegasta skýr- ingin þykir notkun ljósabekkja. Stefán Hrafn Hagalín, blaðafulltrúi Landspítala, sendi stjórnendum spítalans bréf um að svara ekki blaðamönnum, enda væru þeir „skrattakollar“. Ríkisstjórnin ákvað að bólusettum farþegum með tengsl við Ísland yrði gert að fara í sýnatöku innan tveggja daga frá komu til landsins. Ekki hefur verið afráðið hvort ráðist verði í að bólusetja 12 til 15 ára göm- ul börn. Enn ein vika á valdi veiruleikans Morgunblaðið/Unnur Karen 1.8.-6.8. Andrés Magnússon andres@mbl.is Annie Mist Þórisdóttir fékk brons á heimsleikunum í crossfit, sem haldnir voru í Bandaríkjunm. Hún varð heimsmeistari í greininni 2011 og 2012. Ljósmynd/Crossfit Games Hinsegin dagar voru settir í Reykjavík með pomp og prakt. Þeim lýkur um helgina. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.