Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Síða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Síða 17
dómsins: „Frá þeim tíma hefur EFTA-dómstóllinn tekið óhóflega vinsamlega afstöðu gagnvart norska ríkinu á kostnað borgara og fyrirtækja. Til að mynda gæti fyrirkomulagið verið þannig að hver íþróttamað- ur greiddi hluta af eigin auglýsingatekjum í sameig- inlegan sjóð íþróttasambandsins. EFTA-dómstóllinn þagði þunnu hljóði um þetta álitaefni varðandi rýmri reglur. Með öðrum orðum lét dómstóllinn undir höfuð leggjast að ráðast í mat á nauðsyn (e. necessity test), andstætt allri fyrri framkvæmd dómstólsins. Afleið- ingin varð sú að Henrik Kristofferson tapaði máli sínu fyrir héraðsdómi í Ósló. Norska skíðasambandið og norska ríkið hrósuðu sigri.“ Dómstóll með smásjá Venjulegu fólki með trú á sjálfu sér teldi þessi smælki mætti hættulaust skilja eftir á valdi sjálfstæðs ríkis, en þá verður að gæta að því, að í samskiptum við ESB og stofnanir þess þá er „fullvalda ríki“ fyrir löngu minna en ekkert innlegg í nokkuð mál. Þá nefnir hinn ágæti norski dómari til „Fosen- málið“, en þar „hafði EFTA dómstóllinn ótilhlýðileg áhrif á málaferli“. Verður það mál ekki rakið hér en vísað er til greinarinnar sjálfrar. En Carl Baudenbacker hefur ádrepu sína gagnvart Páli Hreinssyni með þeim málatilbúnaði. Það hafi orðið kaflaskil eftir að Páll Hreinsson var á ný kom- inn í dóminn, með því að „Fosen-málinu var snúið við, ef svo má segja, með áliti sem kalla má ógilt.“ Baudenbacher rekur svo að í „Netfondsmálinu“ hafi EFTA-dómstóllinn úrskurðað hinn 16. maí 2017 að norskar reglur og málsmeðferð, varðandi eign- arhald norskra markaðsaðila, þegar sótt væri um starfsleyfi sem banki eða tryggingafélag, samrýmd- ust ekki staðfesturéttinum sem tryggður væri með EES-samningnum. „Bæði héraðsdómstóllinn í Ósló og áfrýjunardóm- stóllinn í Borgarþingi neituðu að fara að áliti EFTA- dómstólsins, norska ríkislögmanninum til mikillar ánægju. Til að bæta gráu ofan á svart ákvað þar til bær dómur Hæstaréttar – sem skipaður var nafn- kunnum dómurum – að veita ekki áfrýjunarleyfi. Framkvæmd Hæstaréttar Noregs á grundvelli „verulegs vægis“ var þannig endanlega úr sögunni. Þessi afstaða til álita EFTA-dómstólsins stenst ekki hollustuskylduna sem kveðið er á um í 3. gr. EES- samningsins. Hún greiðir leið fyrir hvaða innlendan dómstól sem er til þess að hunsa úrskurði EFTA- dómstólsins að vild.“ Það væri ekki það lakasta sem gerðist. Páls þáttur Hreinssonar Carl Baudenbacker telur að steininn hafi tekið úr þegar forseti EFTA-dómstólsins, Páll Hreinsson, „hafi starfað í hjáverkum fyrir íslenska forsætisráðu- neytið, að því er virðist gegn þóknun. Til að mynda skrifaði hann haustið 2020 sérfræðingsálit fyrir ráðu- neytið um lögmæti takmarkana á grundvallarrétt- indum í Covid-faraldrinum. Þar er um að ræða svið sem heyrir undir lögin um hið Evrópska efnahags- svæði. Álitsgerðin er málamyndaskjal, en með því er rík- isstjórninni gefnar nánast frjálsar hendur. Hafi Páll Hreinsson nokkurn tíma verið sjálfstæður hefur hann með þessu glatað sjálfstæði sínu. Ákvæði 1. mgr. 30 gr. samningsins um stofnun EFTA-dómstólsins er svohljóðandi: „Til embættis dómara skal velja þá sem óvefengjanlega eru öðrum óháðir og uppfylla skilyrði til að skipa æðstu dómara- embætti í heimalöndum sínum eða hafa getið sér- stakan orðstír sem lögfræðingar. Þeir skulu skipaðir til sex ára með samhljóða samkomulagi ríkisstjórna EFTAríkjanna.“ Þessu ákvæði var beitt í Nobile- málinu. Dómari við EFTA-dómstólinn hafði verið skipaður af ríkisstjórnum EFTA-ríkjanna til þriggja ára, sem var andstætt ófrávíkjanlegu ákvæði samn- ingsins um að embættistími skuli vera sex ár. Greinarhöfundar segir að lokum m.a.: „Mér er ljóst að það er óvanalegt að fyrrverandi forseti EFTA- dómstólsins, sem starfandi er á eigin vegum, skrifi grein sem þessa. En óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjulegar aðgerðir.“ Of hart gengið fram Bréfritara sýnist að fyrirrennari Páls Hreinssonar hafi skotið yfir markið gagnvart honum. Talið um minnisblaðið til ríkisstjórnarinnar er hreinn titt- lingaskítur sem engu breytir. Það var til fyr- irmyndar hjá ríkisstjórninni að biðja Pál um álit, sem var ekki bindandi á neina lund. Þetta er á tímum sem allir leggja sig fram. Fráleitt hefði verið að Páll kæmi sér undan beiðni forsætisráðherra. Það eru engar líkur á að þetta minnisblað trufli Efta- dómstólinn á komandi tímum. Rökin um að Covid-mál heyri undir ESB eru svo sannarlega ekki traustvekjandi. Það er beinlínis óhuggulegt að ímynda sér að einhver trúi því að slík mál falli þar undir eftir stórkostleg klaufaspörk sem valdið hafa meiri skaða en flest annað sem ESB hef- ur komið að og er sá listi þó langur, ef ekki óend- anlegur. Rétt skref af rangri ástæðu Það er vissulega fróðlegt að sjá að íslenskir dóm- stólar hafi dregið úr þeim leiða kæk sínum að senda mál að óþörfu og eingöngu í tafaskyni til Efta- dómstólsins og grátlegt að sjá þau rök, að íslenskir dómarar hafi dregið úr þeim sendingum af því að þeim þyki sá dómstóll ekki nægilega heimaríkur gagnvart ríkjum sem eitt sinn voru fullvalda og gelti í hvert sinn sem sigað er. Þeir sem tryggðu meirihluta fyrir EES samningi á þinginu kynntu það ítrekað að Ísland væri ekki bundið af þessum dómstól, frekar en af ákvörðunum Mannréttindadómstóls Evrópu, sem margt bendir nú orðið til að dómstólar t.d. í Danmörku séu búnir að fá sig fullsadda af. Loforð um „verulegt vægi“ og „hollustuskyldu“ við ESB virðast vera túlkuð með þeim hætti sem samn- ingsaðilar gátu aldrei vænst. Íslenskir dómarar verða að taka sér tak og forðast undirlægjuhátt gagnvart deyjandi Evrópusambandi. Það er óþarft að deyja með. Morgunblaðið/Árni Sæberg 8.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.