Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Qupperneq 19
ALÍF AFP París. AFP. | Á þaki í New York sprettur kál í löngum röðum. Við veg í Medellin sem eitt sinn var gróðurlaus eru nú trjágöng með miklu laufþykkni. Í borgum heims er gróskan í grænum verkefnum um víða gríðarleg. Höft og takmarkanir vegna kór- ónuveirunnar hafa magnað þörfina fyrir náttúru í þéttbýli. AFP safn- aði saman myndum og frásögnum af verkefnum víða um heim þar sem reynt er að fá sem mest út úr dýrmætum reitum í þéttri byggð. Frumkvæði að gróðursetningu hefur farið vaxandi á þessari öld og áherslur í borgarþróun hafa breyst um leið og áhyggjur af hlýnun jarð- ar fara vaxandi. Og þessi verkefni hafa haft áhrif. Í níu borgum heims er hægt að slá á hitann heitasta part dagsins hlýjasta mánuð ársins í svoköll- uðum háhýsagjám sem nemur 3,6 til 11,3 gráðum á selsíus með því að planta gróðri á veggi og þök að mati Stofnunar umhverfismála og orkusktipa (ADEME) í Frakklandi. Einnig hefur sýnt sig að græn svæði hafa áhrif á heilsu og vellíð- an, þar á meðal með því að draga úr stressi, kvíða og þunglyndi, að sögn Stephanie Merchant við heilbrigðisdeild Bath-háskóla. Hún segir að grænu svæðin efli lík- amlega heilsu og auðveldi meðferð áfallastreituröskunar. „Það skiptir hins vegar máli að þau séu skipulögð í samræmi við þarfir samfélagsins á hverjum stað,“ sagði Merchant. Eru þá öll gróðursetningar- verkefni í borgum þess virði? Til þess að verkefni teljist „dyggðugt“ þarf það að gagnast á eins mörgum sviðum og mögulegt er, sagði hagfræðingurinn og borgarskipulagsfræðingurinn Jean Haentjens, sem er annar höfunda bókarinnar Eco-urbanisme, við AFP. Að hans sögn þarf gróðursetn- ingin til viðbótar við að draga úr hita að varðveita fjölbreytileika, auka vellíðan, vekja vitund, höfða til íbúa og falla að hinu félagslega samhengi. Framandi garður í Singapúr Í Singapúr hefur verið búinn til „skógur“ úr risavöxnum mann- gerðum trjám úr steinsteypu og stáli. Trén eru þakin raunveruleg- um gróðri og eru orðin að kennileiti í borginni. Þau eru á milli 25 og 50 metrar á hæð og gnæfa yfir við- skiptahverfinu, lýsa upp næturhim- ininn og krónurnar líta út eins og fljúgandi diskar. Þar eru einnig risastór gróður- hús með framandi jurtum frá fimm heimsálfum auk plantna, sem vaxa í allt að 2.000 m hæð í hitabeltinu. Inni í þeim er manngert fjall og foss. Verkefnið Garðarnir við flóann fengu World Building of the Year- verðlaunin 2012. Philippe Sismay heimspekingur, sem fjallar um borgir og byggingarlist, kallaði NEW YORK Brooklyn Grange nefnist landbúnaðarfyrirtæki sem stundar græn- metisrækt á húsþökum í Brooklyn í New York. Uppskeran er nokkrir tugir tonna, en ræktunin er ekki án fyrirhafnar, enda þarf að flytja jarðveg og vatn upp á þak. Úr gráu í grænt Víða um heim er ráðist í græn verkefni þar sem steinsteypufrumskógurinn er hvað þéttastur. Þannig má auka lífsgæði og jafnvel lækka hitann þegar svækjan er hvað mest um hásumarið. Ekki ganga þó öll verkefnin upp. HONG KONG Garðyrkjumaður að störfum í Himnagarðinum, 1.200 fer- metra þakgarði ofan á verslunarkjarnanum Metropole Plaza í Hong Kong. Margs konar grænmeti er ræktað á þakinu. Myndin var tekin í mars. 8.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.