Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Qupperneq 21
desember. Uppskera er 15 sinnum á
ári þótt enginn sé jarðvegurinn eða
dagsbirtan. Húsið er lýst upp með
20 þúsund sérstökum LED-
ljósaperum allan sólarhringinn.
Heimspekingurinn Simay er
þeirrar hyggju að einn af göllunum
við framkvæmdina sé að stöðugrar
lýsingar sé þörf auk almenns kostn-
aðar.
Anders Rieman, stofnandi og
framkvæmdastjóri Nordic Harvest,
leggur hins vegar áherslu á nálægð
við neytendur auk þess sem land til
landbúnaðar geti orðið villt á ný. Á
heimasíðu fyrirtækisins segir að
með svona lóðréttri rækt væri hægt
að sjá Danmörku alfarið fyrir græn-
meti á svæði sem samsvarar 20 fót-
boltavöllum.
Haentjens segir þetta áhuga-
verða leið, en hún geti ekki orðið að
fyrirmynd um landbúnað framtíðar-
innar.
Trjárækt í Riyadh
Grænn gróður týnist nánast milli
fjölreina hraðbrauta og risavaxinna
umferðarslaufa í Riyadh, en á
næstu níu árum hyggjast borgaryf-
irvöld gróðursetja 7,5 milljón tré.
Verja á 11 milljörðum dollara í
skógræktina og þrjú þúsund al-
menningsgarða, sem fyrirhugaðir
eru í höfuðborg Sádi-Arabíu. Til að
vökva gróðurinn mun þurfa eina
milljón rúmmetra af vatni á dag.
Búist er við að hiti í borginni muni
minnka um eina til tvær gráður auk
þess sem draga muni úr ryki og
loftmengun, að sögn Abdelaziz al
Moqbel, stjórnanda verkefnisins.
Grænu gangarnir
í Medellin
Næststærstu borg Kólumbíu hefur
verið hrósað fyrir „græna ganga“,
samtengt net sem hefur gerbreytt
borgargötum, sem eitt sinn voru
gróðurlausar, á kafi í rusli og sama-
staður fyrir eiturlyfjafíkla.
SINGAPÚR Gríðarhá, mann-
gerð ofurtré klædd gróðri og
miklir gróðurhúsagarðar með fjöl-
breyttum hitabeltisjurtum eru
áberandi kennileiti í Singapúr.
AFP
CHENGDU Svalirnar í þessum íbúðaturnum í borginni Chengdu í Kína eru
þaktar gróðri. Moskítóflugur hafa gert íbúum lífið leitt og eftirspurn er lítil.
Í myndbandi frá borginni segir að
býflugur og fuglar hafi snúið aftur,
íbúarnir séu orðnir virkir og störf
hafi skapast við umhirðu gatnanna.
Að sögn Simays tekst þarna allt í
senn; fjölbreytni hafi aukist í lífrík-
inu og áherslan á félagslegu hliðina
hafi gengið upp.
Íbúðir breyttust í frumskóg
Íbúunum var lofað stórborgarlífi í
lóðréttum skógi með gróskumiklum
gróðri á svölunum.
„Loftið er gott þegar maður
vaknar á morgnana og grænu trén
eru góð fyrir okkur, gamla fólkið,“
sagði Lin Dengying, sem býr í
einum af átta turnum, sem standa
í þyrpingu í Chengdu, hinni fornu
höfuðborg Kína í héraðinu Sesúan,
og voru opnaðir 2018. Sums staðar
er eins og trjákofi hvíli í greinum
hitabeltisskógar, annars staðar er
sem gróðurinn hafi tekið völdin og
skógurinn ráðist inn á svalirnar.
Í september í fyrra sagði ríkis-
blaðið Global Times að aðeins um
tíu fjölskyldur væru fluttar inn í há-
hýsin þar sem eru um 800 íbúðir og
var haft eftir einum íbúanna að
ástæðan væri að allt væri morandi í
moskítóflugum. Claire Doussard,
sem kennir borgarskipulag og -þró-
un, sagði við AFP að ekki væri nóg
að skoða umhverfisáhrif slíkra
byggingaframkvæmda, heldur hvort
hægt væri að búa í húsunum þegar
þau væru risin.
8.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Málaðu með
útimálningu frá Slippfélaginu:
HJÖRVI á bárujárnið
VITRETEX á steininn
Hágæða efni sem þola íslenskt veðurfar.
Leyfðu reynslumiklum sérfræðingum okkar aðstoða þig.
Hafðu samband og þeir gera þér tilboð.
Ferjukot er sögufrægur
verslunarstaður við Hvítá í Borgarfirði.
Gamli bærinn er nýuppgerður
og málaður með málningu
frá Slippfélaginu.