Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Qupperneq 23
8.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
ég vissi það þegar hann malaði. En
hann var búinn að fitna mikið og orð-
inn svolítið feitur.“
Fannst í Skipasundi
Hvar haldið þið að Flóki sé búinn að
vera í tvö ár?
„Okkur finnst líklegt að hann hafi
farið í Skipasund og í eitthvert ann-
að hús og að einhver hafi séð um
hann,“ segir Sigurgeir.
„Hann hefur kannski verið hjá
einhverri gamalli konu sem hefur
ekki pælt í að athuga örmerkinguna
og hún hefur gefið honum vel að
éta,“ segir Berglind og segist halda
að kötturinn hafi lagt af stað að leita
að þeim þegar þau voru í sumarfríi.
Flóki hefur greinilega haldið að þau
væru aftur flutt á gamla staðinn, í
Skipasund, en þar fannst kisan.
„Okkur datt ekkert í hug að leita
þar,“ segir Gísli.
Flóki, sem lætur sér fátt um finn-
ast að blaðamaður sé í heimsókn
vegna heimkomu hans, var nú loks
kominn aftur heim og hafði hann far-
ið beint á gamla staðinn sinn, niður í
fataskáp.
Flóki var líka ánægður að sjá
bræðurna og svaf uppi í rúmi hjá Jó-
el fyrstu nóttina eftir útlegðina.
„Ég vaknaði í nótt og gaf honum
að drekka,“ segir Jóel, sem er alsæll.
Foreldrarnir segja Flóka hafa að-
eins haldið fyrir þeim vöku þessa
fyrstu nótt.
„Ég hugsa að hann verði látinn
sofa úti í bílskúr,“ segir Berglind og
hávær mótmæli heyrast frá drengj-
unum.
Drekkur bara úr baðkarinu
Bræðurnir segjast vera búnir að
kyssa hann og knúsa stanslaust síð-
an hann kom heim.
„Guðfinna sagði okkur að hafa
hann inni helst í fjórar vikur, svo
hann læri að venjast okkur upp á
nýtt,“ segir Sigurgeir.
Hvernig karakter er hann?
„Geðgóður, hlýr og ljúfur,“ segir
Gísli og segir köttinn yfirleitt hafa
vakið hann undir morgun til að fá að
drekka úr baðkarinu.
„Hann vildi alltaf bara drekka
vatn úr baðkarinu og hélt því strax
áfram núna í gær eftir að hann kom
heim,“ segir Berglind.
„Hann er mjög sérvitur; hann
myndi heldur drepast úr þorsta en
drekka úr skál. Hann drekkur bara
úr baðkarinu og því þurfum við að
láta leka þar smá bunu,“ segir Gísli.
„Hann var vanur að koma til fóta
og pikka aðeins í mig þar til ég fór
með hann á baðið og skrúfaði frá. En
í nótt fór hann á baðið og gólaði þar.
Ég ætlaði ekki að láta undan en þeg-
ar hann gólar svona gerir maður allt
til að hann hætti,“ segir Gísli og
brosir.Morgunblaðið/Ásdís
Flóki fékk að sofa uppi í hjá Jóel fyrstu nóttina eftir að hann kom aftur heim.
’
Ég fór bara að
skellihlæja! Ég sagði
við hana: „Er þetta eitt-
hvert grín? Hann hefur
ekki sést hér í tvö ár,
ertu að segja mér að
hann sé á lífi?
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
G
uðfinna Kona Kristinsdóttir, hönnuður
og nemi í mannfræði, rekur síðuna
dyrfinna.is en í vinnslu er smáforrit sem
ætlað er að auðvelda fólki að skipuleggja leit að
týndum dýrum, halda utan um upplýsingar og
hjálpast að við leitina. Einnig getur notandi smá-
forritsins fengið tilkynningar um týnd dýr í
hverfinu og skoðað lista af týndum dýrum ef við-
komandi finnur dýr úti sem grunur leikur á að sé
týnt.
„Ég er annar stjórnandinn á hundasam-
félaginu á Facebook og sá þar að fólk var að
hjálpast að við að koma týndum dýrum heim. Ég
fékk því hugmyndina árið 2015 að það væri snið-
ugt ef það væri til smáforrit sem gæti auðveldað
fólki, því það þarf að vera betri leið til að halda
utan um slíkar leitir. Hundasamfélagið tekur
sjálft vel á þessum málum þannig að nú er ég
mest í köttunum,“ segir Guðfinna, en það var
einmitt hún sem kom Flóka til síns heima. Þá
hafði kona ein haft samband, en Flóki hafði þá
verið eins og grár köttur í kringum húsið hennar
í viku.
Guðfinna segir að vel hafi verið tekið á móti
Flóka.
„Það voru kossar og knús!“
Guðfinna segir fólk oft hafa
samband við sig eða sjálfboða-
liðana og biðja um hjálp, eins
og þessu tilviki þegar köttur
fannst sem hegðaði sér undar-
lega.
„Við förum þá af stað og
skönnum kettina og ég gerði
það í þessu tilviki. Ég skannaði
Flóka og hringdi í Gísla og
hann ætlaði bara ekki að trúa
mér,“ segir hún.
Smáforritið verður tilbúið með haustinu, en
Guðfinna segir appið virka þannig að fólk hlaði því
niður og skrái þar allar upplýsingar um dýrið sitt.
Því fleiri sem skrá dýr, því stærri verður gagna-
grunnurinn og þá verður auðveldara að koma upp-
lýsingum fljótt og vel til skila ef dýrið týnist.
„Þegar dýrið týnist þarftu bara að ýta á hnapp
um að það sé týnt og þá fær fólk í hverfinu til-
kynningu um það. Ef þetta er hundur er líklegt að
fólk stökkvi af stað til þess að ná honum inn sem
fyrst. Með kettina fer fólk frekar í göngutúr að
kíkja eftir þeim,“ segir Guðfinna og segir skrán-
ingu dýra á Íslandi ábótavant og að appið geti
bætt þar úr.
Það voru kossar og knús!
Guðfinna Kona
Kristinsdóttir