Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.8. 2021
HREYFING
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum
O
ddur Ármann er léttur á
fæti, grannvaxinn með
silfurgrátt hár og skegg í
stíl. Hann er klæddur í rauðan
stutterma íþróttabol, enda sól og
hiti daginn sem blaðamaður hitti
hann neðst við himnastigann svo-
kallaða í Kópavogi, en hann liggur
á milli Kópavogsdals og Digranes-
heiðar. Tröppurnar eru 207 talsins,
alls 400 metrar á lengd, og hækk-
unin er um 52 metrar. Það jafn-
gildir 19 hæða byggingu. Himna-
stiginn er vinsæll til þrekæfinga
enda reynir talsvert á að fara
þessa leið, hvort sem hún er geng-
in eða hlaupin, og ekki skemmir
fyrir gott útsýni þegar fólk er búið
að púla.
Lífið breyttist eftir aðgerð
Oddur er kominn á eftirlaun, enda
kemst hann á tíræðisaldur eftir
rúmt ár. Það er þó ekki mjög langt
síðan hann hætti að vinna. Oddur
var flugvirki og flugvélstjóri hjá
Icelandair í hálfa öld en eftir að
hann hætti þar fyrir aldurs sakir
vann hann fyrir Atlanta og flug-
félagið Erni. Í gamla daga ferðað-
ist Oddur mikið en þá var venjan
að flugvélstjóri væri um borð í
flugvélunum.
„Þetta var mjög skemmtileg
vinna,“ segir Oddur þar sem við
sitjum á bekk í sólinni og spjöllum.
Oddur segist ekki alltaf hafa
verið jafn duglegur að hreyfa sig
og nú, en lífið breyttist eftir að-
gerð sem hann fór í eftir að hann
fékk kransæðastíflu fimmtugur. Þá
fékk hann lífið til baka.
„Þeir opnuðu mig og græddu í
mig æð úr fætinum. Ég hreyfði
mig ekki mikið áður en ég fór í að-
gerðina,“ segir Oddur en hann fór
þá að stunda reglulega leikfimi hjá
Hjarta- og lungnastöðinni, auk
þess sem hann fór að ganga upp
og niður himnastigann, en hann
býr efst við tröppurnar 207.
„Ég labba upp tröppurnar tvisv-
ar til þrisvar á dag og er auk þess
með þrekhjól heima sem ég nota
daglega. Ég skrái allt niður og
hjóla um tíu kílómetra á dag.“
Lætur ekkert stoppa sig
Hann segist aldrei sleppa úr degi í
tröppunum.
„Ég er svona tuttugu mínútur
upp, og fer aldrei minna en einu
sinni á dag og í öllum veðrum,“
segir hann og barnabarnið hans,
sem er mætt með langafabörnin
þrjú, bætir við að í tröppunum sé
oft spjallað því margir noti þær
sér til heilsubótar.
Oddur fer í tröppurnar jafnvel í
hálku, snjó og kulda og lætur ekk-
ert stoppa sig.
„Ég nenni alltaf og fer stundum
klukkan fimm á morgnana. Þetta
er miklu betri hreyfing en leik-
fimin.“
Þú ert þá við þokkalega góða
heilsu?
„Já, ég er við mjög góða heilsu.
Heilsan er betri en þegar ég var
ungur. Ég kem mjög vel út úr
þrekprófum þegar ég fer í hjarta-
próf,“ segir hann og blaðamaður
trúir því svo sannarlega enda
skokkar hann léttilega upp tröpp-
urnar til að stilla sér upp í mynda-
tökuna.
Oddur Ármann heldur heilsunni góðri með
hreyfingu, en hann fer að jafnaði tvisvar til þrisvar
á dag upp og niður himnastigann í Kópavogi, auk
þess sem hann hjólar á þrekhjóli heima hjá sér.
Morgunblaðið/Ásdís
Oddur er hér með barnabarnabörnin, tvíburana Heiðdísi Kríu og Hrafnþór
Inga og bróður þeirra Arnar Mána. Oddur fer létt með að hlaupa á eftir þeim.
Himnastiginn
hans Odds
Oddur Ármann Pálsson sleppir ekki úr degi í
himnastiganum í Kópavogi, þrátt fyrir að
vera næstum níræður. Tröppurnar 207 halda
honum svo sannarlega í formi.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is