Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.8. 2021
LESBÓK
HÆTTUR Ethan Coen hefur leikstýrt sinni síðustu
mynd að sögn samstarfsmanns hans. Bræðurnir Ethan
og Joel Coen eru með áhrifamestu kvikmyndaleik-
stjórum síðari ára en þeir leikstýrðu og skrifuðu hand-
ritið að Big Lebowski, Fargo og No Country for Old
Men svo einhverjar séu nefndar. Þeir bræður leikstýrðu
öllum sínum myndum saman þar til nú þegar myndin
The Tragedy of Macbeth kemur út í leikstjórn Joels
Coens. Að sögn Carters Burwells, samstarfsmanns
þeirra bræðra, mun Ethan hafa fengið nóg af kvik-
myndagerð og því dregið sig í hlé og ólíklegt að hann
snúi aftur í leikstjórastólinn. Þeir bræður eigi þó haug
af handritum sem þeir hafa skrifað svo ekki sé útilokað
að þeir framleiði aðra mynd saman í framtíðinni.
Hættur í leikstjórn
Joel og Eth-
an Coen.
AFP
EYÐILEGGING Leikarinn Matt Damon segir
að ofurhetjumyndir og streymisveitur séu að
eyðileggja kvikmyndaiðnaðinn. Eins og rætt
var í síðustu Lesbók hafa gróðarsjónarmið í
Hollywood leitt til þess að æ fleiri myndir
byggjast hver á annarri og hafa ofur-
hetjumyndir verið þar áberandi. Þá hafa
streymisveitur sótt í sig veðrið á síðustu árum
og kvikmyndaupplifunin því allt önnur en hún
var fyrir 10 eða 20 árum. Þetta líst Damon alls
ekki á. „Hvernig geturðu horft á mynd þegar
þú ert að senda smáskilaboð?“ sagði Damon
um venjur dætra sinna í viðtali við The Sunday
Times. „Ég get ekki sagt að ég elski það.“
Hefur áhyggjur af þróuninni
Matt Damon líst ekki á blikuna.
AFP
Emma Stone gæti kært.
Íhuga að kæra
KÆRA Eins og sagt var frá í Les-
bókinni í síðustu viku hefur leik-
konan Scarlett Johansson stefnt
Disney fyrir að hafa birt kvikmynd-
ina Black Widow á streymisveitu
sinni á sama tíma og hún fór í kvik-
myndahús. Nú íhuga fleiri leikarar
sem telja að sér vegið með álíka
ákvörðunum að leggja einnig fram
kæru. Vegna heimsfaraldursins
hafa kvikmyndastúdíó brugðið á
það ráð að birta kvikmyndir sína á
streymisveitum samhliða frumsýn-
ingu í bíóhúsum. Það hefur komið
illa við leikara sem gerðu samninga
fyrir faraldurinn um að fá ákveðinn
skerf af miðasölunni. Emma Stone
og Emily Blunt eru meðal þeirra
leikara sem nefndir eru til sög-
unnar í þessu samhengi.
Í lokaþætti fjórðu og síðustu
þáttaraðar raunveruleikaþátt-
anna Nathan for You hjálpar
Nathan Fielder 78 ára gömlum
manni, William Heath, sem segist
vera Bill Gates-eftirherma, að hafa
uppi á konunni sem hann elskaði á
árum áður. Í þessum lokaþætti fá
áhorfendur að kynnast Heath, sem
áður hafði farið á kostum í þátt-
unum, og í ljós kemur að hann er
mjög sjálfhverfur og kom illa fram
við konuna sem þeir Fielder leita nú
saman að.
Þá á Heath erfitt með að vera í
kringum konur og því ræður Fielder
fylgdarkonu svo Heath geti vanist
nærveru kvenna áður en hann loks
hittir gömlu ástina sína. Fielder
skipuleggur stefnumót með fylgd-
arkonunni Maci fyrir Heath en þeg-
ar Heath neitar að fara mætir Field-
er sjálfur á stefnumótið.
Ádeila á raunveru-
leikasjónvarp
Áður en atburðarásin í kjölfarið er
rakin er vert að úrskýra út á hvað
þættirnir Nathan for You ganga.
Þættirnir voru framleiddir af Com-
edy Central og því ekki hefðbundir
raunveruleikaþættir. Í þáttunum
hittir Nathan Fielder fólk sem er í
fyrirtækjarekstri en af einhverjum
ástæðum gengur reksturinn ekki
sem skyldi. Er fólkinu talin trú um
Hvenær erum
við „við sjálf“?
Við getum aldrei verið viss um hvenær fólk setur
upp leikþátt í framkomu sinni. Nathan Fielder
varpar ljósi á þetta í þáttum sínum þar sem hann
myndar heldur órætt samband við fylgdarkonu.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Fielder ásamt William Heath sem hann reynir að hjálpa að finna ástina. Heath
segist vera Bill Gates-eftirherma en veit lítið sem ekkert um manninn.
Þættirnir Nathan for You hafa ekki bara
skemmt áhorfendum og vakið þá til um-
hugsunar heldur einnig haft raunveruleg
áhrif úti í heimi. Eitt dæmi um það er þátt-
ur þar sem Nathan Fielder hyggst hjálpa
flutningafyrirtæki með því að fá til liðs við
það ókeypis starfskraft. Ætlar Fielder að fá
fólk til að vinna frítt með því að selja sjálf-
boðavinnu við flutninga sem líkamsrækt.
Svo vel tekst til að Fielder ákveður að búa
til allsherjarhreyfingu í sambandi við fyrir-
bærið. Hann ræður stæltan leikara sem fer
regulega í líkamsrækt til að ljúga því í út-
varps- og sjónvarpsþáttum að hann hafi
orðið svona útlítandi með því að hjálpa fólki að flytja. Þá ræður hann
rithöfund til að skrifa bók, The Movement, um sögu mannsins, Jacks
Garbarinos, sem hægt er að verða sér úti um. Í bókinni segir frá
æskuvináttu Garbarinos og Steves Jobs og frá frumskógardrengnum
Dende sem hann hjálpaði en var rænt og hann étinn af bavíönum.
Frumskógarbarn étið af öpum
Garbarino
á kápu bók-
arinnar.
Veiðivefur
í samstarfi við