Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.8. 2021 08.00 Uppskriftir fyrir svanga birni 08.02 Laugardagsklúbburinn 08.05 Rita og krókódíll 08.10 Regnbogasögur 08.13 Ég er fiskur 08.15 Veira vertu blessuð 08.16 Örstutt ævintýri 08.18 Ást er ást 08.20 Risastóra næpan 08.23 Lærum og leikum með hljóðin 08.25 Litli Malabar 08.30 Blíða og Blær 08.50 Monsurnar 09.00 Víkingurinn Viggó 09.15 Adda klóka 09.35 It’s Pony 10.00 K3 10.10 Mörgæsirnar frá Mada- gaskar 10.35 Angelo ræður 10.40 Lukku láki 11.05 Ævintýri Tinna 11.25 Angry Birds Toons 11.30 Top 20 Funniest 12.15 Nágrannar 13.40 Friends 14.05 Bump 14.40 Impractical Jokers 15.00 Cyrus vs. Cyrus Design and Conquer 15.30 First Dates 16.50 60 Minutes 17.35 Supernanny 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Augnablik í lífi – RAX 19.15 Grand Designs: Australia 20.05 The Heart Guy 20.55 War of the Worlds 00.30 Ballers ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Sjá Suðurland – Þáttur 4 20.30 Tónlist á N4 Endurt. allan sólarhr. 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Lífið er lag – Björgvin Halldórsson (e) 20.30 Mannamál- Ólafur Ragnar Grímsson (e) 21.00 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 09.30 The Block 10.35 Bachelor in Paradise 12.00 The Bachelorette 14.00 The Biggest Loser 14.45 The Biggest Loser 16.00 The King of Queens 16.20 Everybody Loves Ray- mond 16.45 Ný sýn 17.15 Með Loga 18.15 The Block 19.20 Einvígið á Nesinu 2021 20.20 Pabbi skoðar heiminn 20.55 Law and Order: Special Victims Unit 21.45 Yellowstone 22.35 Love Island 23.25 Penny Dreadful: City of Angels 00.25 Black Monday 01.00 New Amsterdam 03.50 Love Island 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Söngvamál. 09.00 Fréttir. 09.05 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Há- teigskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.50 Augnablik um sumar. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Tengivagninn. 15.00 Lífsformið. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Sumartónleikar. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Gæslan. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Sigurður Gísli Sigurðs- son landlæknir. 20.30 Djassþáttur. 21.30 Úr gullkistunni. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.35 KrakkaRÚV 07.36 Refurinn Pablo 07.41 Hið mikla Bé 08.03 Poppý kisukló 08.14 Klingjur 08.25 Rán – Rún 08.31 Hvolpasveitin 08.54 Hrúturinn Hreinn 09.01 Úmísúmí 09.24 Robbi og Skrímsli 09.46 Eldhugar – Lozen – Apasjí-stríðskona 09.50 Sammi brunavörður 10.00 Fjörskyldan 10.35 Íþróttaafrek Íslendinga 11.00 ÓL 2020: Lokahátíð 14.00 Eldhugar íþróttanna 14.30 Íslandsmótið í golfi 17.35 Mömmusoð 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Vísindahorn Ævars 18.30 Vísindin allt í kring 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Ólympíukvöld 20.25 Sumarlandinn 21.00 Fjölskyldubönd 22.05 Spænska drottningin 00.10 Ófærð 01.05 Dagskrárlok 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vin- sælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljómplötuframleiðenda. Einar Örn Jóns- son fréttamaður á RÚV segir ekki hafa borið á óánægju hjá ís- lensku keppend- unum vegna papparúmanna svokölluðu, sem gerð eru úr end- urnýjanlegum pappír og keppendur á Ólympíuleikunum í Tókýo þurfa að sofa á, en hann ræddi við þau Kristínu Sif og Jóa G. í Ísland vaknar fyrir helgi um lokadagana á leikunum. „Við tókum stikkprufu af öllum Íslendingunum sem eru hérna; keppendunum og þjálfurunum sem eru með önnur lið og svona. Þeim fannst þetta bara allt í lagi, meira að segja stórum og miklum mönnum,“ sagði Einar. Nánar er fjallað um málið á K100.is. Papparúmin „í fínu lagi“ Taípei. AFP. | Sigur Taívans á Kína í tvíliðaleik karla í úrslitum keppn- innnar í badminton á Ólympíu- leikunum í Tókýó hefur vakið al- menna reiði á meginlandi Kína og kveikt í þjóðernissinnum. Kröfur hafa vaknað um viðskiptaþvinganir og eru dæmi um að nokkur kínversk stuðningsfyrirtæki hafi snúið baki við taívönskum skemmtikrafti. Taívan hefur aldrei náð betri árangri á Ólympíuleikum en í Tókýó og hefur unnið tvö gull, tvö silfur og fjögur brons. Ein gullverðlaunin unnust á laugardag fyrir viku þegar Lee Yang og Wang Chi-lin sigruðu Li Junhui og Liu Yuchen og var það fyrsti ólympíutitill eyjarskeggja í badminton. Reiðisprengja á netinu Á kínverskum félagsvefjum, sem sæta strangri ritskoðun, hefur síðan orðið reiðisprengja, ekki síst eftir að Lee tileinkaði sigurinn „landi mínu – Taívan“ í færslu á Facebook. Tsai Ing-wen, forseti Taívans, óskaði leikmönnum líka til hamingju með að „vinna fyrstu gullverðlaun landsins í badminton“. Ráðamenn í Kína líta á Taívan sem hluta af kínversku landi og hafa heitið því að þar muni koma að þeir muni leggja eyjuna undir sig, með valdi ef þarf. Taívan lýtur sjálf- stjórn og er með lýðræðislegt stjórnarfar. Stjórnvöld í Kína fyrtast við í hvert sinn sem Taívan fær viður- kenningu á alþjóðavettvangi. Taív- anar keppa undir merkjum „kín- verska Taípei“ og mega hvorki nota fána Taívans né þjóðsöng þegar íþróttamenn þaðan stíga á verð- launapall. Lee og Wang eru ekki einir í sigt- inu. Allir sem styðja þá fá svipaða meðferð í Kína. Dee Hsu nefnist taívanskur skemmtikraftur, sem eitt sinn stjórnaði eigin sjónvarpsþætti og á sér fjölda aðdáenda í Kína. Hún hef- ur misst auglýsingasamninga við nokkurn fjölda fyrirtækja eftir að hún kallaði taívanska þátttakendur „íþróttamenn þjóðar sinnar“ á Instagram. Fyrirtækið Shou Quan Zhai, sem framleiðir engiferte og er í Sjanghaí, lýsti því yfir á Weibo- reikningi sínum, kínverskum fé- lagsmiðli áþekkum Facebook, að nú yrði „öllu samstarfi við Dee Hsu samstundis hætt“. Því var bætt við á síðu fyrirtækisins að þjóðarhagur væri ofar öllu. „Við styðjum af festu grundvallaratriðið um eitt Kína,“ sagði þar og var vísun til þeirrar stefnu stjórnvalda í Peking að Taív- an sé hluti af Kína. Kynlífstækjaframleiðandinn Osuga rifti einnig samningi við Hsu. „Osuga styður af festu sameiningu ættjarðarinnar og er staðfastlega andvígt öllum ummælum og aðgerð- um sem miða að því að kljúfa land- ið,“ sagði á Weibo-reikningi þess. Taívanska poppsöngkonan Jolin Tsai vakti einnig reiði í Kína þegar hún birti myndir af badminton- leikurunum og öðrum íþróttamönn- um á félagsmiðlum. Myllumerkið „Taívan sjálfstæði Jolin Tsai“ hefur verið áberandi ásamt kröfum um að kínverskir ríkisfjölmiðlar setji hana á svartan lista. Þjóðrækni með offorsi Þjóðrækni hefur verið sett á oddinn í Kína undir forustu Xis Jingpings forseta og má tala um offors í því sambandi. Algengt er að neytendur séu hvattir til að sniðganga tiltekin merki, oft með þátttöku ríkisfjöl- miðla. Taívan er málefni, sem vekur sér- staklega sterkar tilfinningar, og skemmtikraftar eru iðulega settir á svartan lista ef þeir fylgja ekki lín- unni. Frægt er þegar söngdívan A-Mei var sett út af sakramentinu í Kína í nokkur ár fyrir að syngja þjóðsöng Taívans við innsetningu forseta landsins árið 2000. Kínverjar munu halda vetrar- ólympíuleikanna snemma á næsta ári. Í liðinni viku staðfesti alþjóðlega ólympíunefndin að bæði Taívan og Hong Kong mega senda keppnislið. FYRSTA ÓLYMPÍUGULL TAÍVANA Í BADMINTON Taívönsku badmintonleikararnir Lee Yang og Wang Chi-lin fagna sigri í tví- liðaleik á Ólympíuleikunum í Tókýó. AFP Sigur Taívans ergir Kínverja 101.9 AKUREYRI 89.5 HÖFUÐB.SV. Retro895.is ÞÚ SMELLIR FINGRUM Í TAKT MEÐ RETRÓ ‘70,‘80 OG ‘90 STÖÐIN

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.