Morgunblaðið - 09.08.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.08.2021, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Umhverfis- verndar- sinninn Bjørn Lomborg skrifaði athyglis- verða grein í The Wall Street Journ- al í liðinni viku um náttúruhamfarir og loftslags- breytingar undir yfirskriftinni „Náttúruhamfarir eru ekki alltaf af völdum loftslags- breytinga“. Slíkar staðhæf- ingar eru fátíðar í heimi þar sem iðulega er fullyrt að um- ræðunni um loftslagsbreyt- ingar sé lokið, allir hljóti að vera sammála um þetta fyrir- bæri, umfang þess og afleið- ingar, auk þeirra aðgerða sem grípa verði til. Það er alltaf varhugavert, svo ekki sé meira sagt, þegar því er haldið fram að einungis ein skoðun eigi rétt á sér og önnur sjónarmið eru nánast gerð útlæg. Við þannig að- stæður er hætt við að þekking vaxi ekki heldur takmarkist og að víðsýni láti undan síga gagnvart fordómum. Illa væri komið fyrir vísindunum ef öll sjónarmið fengju ekki að njóta sín. Lomborg segir að í frásögn- um af náttúruhamförum komi gjarnan fram að þær séu af- leiðing loftslagsbreytinga og að grípa þurfi til róttækra að- gerða til að berjast gegn þeim. Málið sé mun flóknara, þó að hann sé þeirrar skoðunar að loftslagsbreytingar séu vanda- mál sem bregðast þurfi við. En hann vill að umræðan byggist á staðreyndum og tekur dæmi af nýlegum mannskæðum flóð- um í Þýskalandi og Belgíu, aðallega við ána Ahr, sem rennur út í Rín rétt norðan við borgina Koblenz. Að sögn Lomborgs sýnir ný rannsókn á flóðum í 10.000 ám víða um heim að í flestum ám gæti minni flóða nú en áður. Þar sem áður hafi flætt á fimmtíu ára fresti gerist það nú á 152 ára fresti. Og hann segir að meiri flóð hafi orðið í ánni Ahr árin 1804 og 1910 en í nýliðnum júlí. Fleiri dauðsföll nú stafi hins vegar af því að fólk sé farið að byggja á flóða- svæðum og að í stað sólarsella eða vindmylla til að berjast við loftslagsbreytingar þurfi þeir sem búa við árnar betri vatns- stýringu. Fyrst og fremst þurfi þeir þó aðvörunarkerfi sem virki, en það segir Lom- borg að hafi brugðist illa þegar áin Ahr flæddi. Lýsingar hans á því eru ekki fagrar, hann segir meðal annars að Flóða- varnakerfi Evrópu hafi spáð fyrir um flóðin með níu daga fyrirvara og varað þýsk stjórnvöld formlega við þeim með fjögurra daga fyrirvara. Samt hafi flestir ekkert fengið að vita af þeim og við slíkar aðstæður henti stjórn- málamönnum að kenna loftslaginu um og lofa harðari aðgerðum gegn loftslagsbreyt- ingum. Bjørn Lomborg fer með svipuðum hætti yfir skógar- eldana sem geisað hafa í Norð- ur-Ameríku en segir helstu ástæðu þeirra lélega stýringu þessara mála, sem felist til að mynda í skorti á að fjarlægja eldfiman lággróður og að leyfa byggingar á svæðum þar sem hætta er á skógareldum. En hann segir að þrátt fyrir mikla umfjöllun um skógareldana sé bruninn það sem af er ári sá fjórði minnsti á síðustu ellefu árum og að svæðið sem brunn- ið hafi í fyrra hafi aðeins verið 11% af því svæði sem brann snemma á síðustu öld. Ólíkt því sem fullyrt sé í umræðum um loftslagsmál hafi svæðin sem verði bruna að bráð dreg- ist saman frá árinu 1900 og að þau haldi áfram að minnka. Lomborg fjallar einnig um dauðsföll af völdum hitabylgja og vísar í rannsókn sem sýni að hækkandi hiti valdi nær 120.000 dauðsföllum á ári, en að um leið fækki hann dauðs- föllum vegna kulda um 300.000. Allt hlýtur þetta að vera af- skaplega erfitt að mæla og óvissan mikil í mælingum og ekki síður í þeim líkönum sem notuð eru til að draga álykt- anir af. Dr. Steven E. Koonin, prófessor í eðlisfræði við New York-háskólann og fyrrver- andi aðstoðarráðherra í ríkis- stjórn Baracks Obama, leggur til að mynda áherslu á þessa óvissu í nýlegu viðtali við WSJ. Hann telur að hlýnun hafi átt sér stað á jörðinni en að mikil óvissa sé um framhaldið, eink- um hve mikil hlýnunin verði og hver áhrif útblástur hafi þar á. Hann segir sambandið á milli hækkunar hita og útblásturs fjarri því að vera einfalt og segir að auki að náttúrulegar sveiflur séu mjög miklar sem flæki viðfangsefnið verulega. Eins og nefnt var hér að framan vilja margir halda því fram að umræðunni um þessi mál sé lokið. Svo er þó ekki, rannsóknir þurfa að halda áfram og umræðan sömuleiðis, en afar mikilvægt er að hún byggist á staðreyndum en ekki upphrópunum. Og hún má alls ekki ráðast af hagsmunum ein- stakra stjórnmálamanna eða -flokka til að slá pólitískar keilur eða jafnvel að fela eigin mistök. Til þess er um allt of stóra hagsmuni að tefla. Loftslagsmál eru flókin en umræða um þau verður engu að síður að byggjast á staðreyndum} Flókið samhengi Þ að var magnað að sjá þann árangur sem Annie Mist Þórisdóttir náði á heimsleikunum í crossfit um þar síðustu helgi. Sérstaklega í ljósi þess að hún eignaðist barn fyrir ári og hafði þar áður fallið úr leik á sama móti. Fyr- ir svona endurkomu, og til að ná þeim árangri sem hún náði í ár, þarf mikla kappsemi, gríðar- legt magn af æfingum, skýr markmið en um- fram allt aga og viljastyrk. Þau Annie Mist, Katrín Tanja, Ragnheiður Sara, Þuríður Erla og Björgvin Karl hafa ítrekað á liðnum árum sýnt okkur hversu öflug þau eru, bæði líkamlega og andlega, á þeim vettvangi þar sem bestu keppendur heims etja kappi í þessari erfiðu íþrótt. Á sama tíma höfum við fylgst með ótrúlegum árangri þeirra sem taka þátt á Ólympíu- leikunum í Tókýó. Maður verður hugfanginn þegar maður les sér til um bakgrunn og sögu margra þeirra íþróttamanna sem stíga á pall þessa dagana. Þar eru magnaðar sögur af fólki sem hefur orðið á og gert mistök, en neitar að gefast upp og rís upp aftur. Sögur af fólki sem með aga og viljastyrk nær nú þeim árangri sem það setti sér og vann svo lengi að. Þær sögur ættu að vera okkur inn- blástur á svo mörgum sviðum. Við ættum öll að stefna að því að ná árangri í því sem við tökum okkur fyrir hendur og þar er íþróttafólkið góð fyrir- mynd. Það er ekki alltaf auðvelt; það þarf að velja vel hvernig tímanum er varið, velja á milli þess sem mann lang- ar að gera og þess sem maður þarf að gera og þannig mætti áfram telja. Ég gef mér að allar aukaæfingarnar þar sem verið er að gera sama hlutinn aftur og aftur hafi ekki alltaf verið skemmtilegar og á köflum eflaust bara mjög leiðinlegar. Allt er þetta þó vænlegt til árang- urs. Það þurfa allir einhvern tíma að kljúfa erf- iðar hindranir og það er sjaldnast hægt að krefjast þess að einhver geri það fyrir mann. Að sama skapi þurfa flestir að hafa mikið fyrir þeim árangri sem þeir ná í lífinu, hvort sem það er að klára nám, finna starf við hæfi, stofna fyrirtæki, koma sér upp heimili, ala upp börn og svo framvegis. Það er því virðingarvert að sýna dugnað og þrautseigju, að leggja sig fram og setja markið hátt. Vonandi gerum við það flest. Dugnaður og elja verða ekki búin til á vett- vangi stjórnmálanna, en stjórnmálamenn geta þó ýtt undir með þeim sem setja markið hátt. Það er hlut- verk stjórnmálamanna að tryggja það að fólk geti náð árangri í því sem það tekur sér fyrir hendur, meðal annars með því að tryggja réttu innviðina, tryggja það að fólk njóti árangurs af erfiði sínu og tryggja að allir hafi sömu tæki- færi til að fylgja metnaðarfullum markmiðum sínum eftir. Þetta snýst ekki bara um það hverjir eru á verðlaunapall- inum í dag, heldur hvort fólk eigi þess almennt kost að stíga á pallinn. Þar viljum við sjá sem flesta. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Að stíga á verðlaunapallinn Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is O rðið þingrof kemur upp í umræðunni á nokkurra ára fresti og nú ber það á góma á ný. Ástæðan er sú að til stendur að Alþingi verði rofið í þessari viku og þar með ákveðinn formlega kjördagur hinn 25. sept- ember næstkomandi. Jafnframt get- ur hafist undirbúningur atkvæða- greiðslu utan kjörfundar, sem sýslumenn landsins annast. Þingrofið verður gert opinbert með birtingu tilkynningar í Stjórn- artíðindum: „Forsetabréf um þing- rof og almennar kosningar til Al- þingis.“ Það er forsætisráðherra sem annast birtinguna í Stjórnartíð- indum. Birtingardagurinn í Stjórn- artíðindum ræður því hvenær þing- rofsboðskapurinn tekur gildi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur nefnt fimmtudaginn 12. ágúst sem líklegan dag. Síðast var slík tilkynning birt í Stjórnartíðindum hinn 18. sept- ember 2017, nr. 77/2017. Hún var svohljóðandi: „Forseti Íslands gjörir kunnugt: Samkvæmt tillögu for- sætisráðherra og með vísan til 24. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, eins og henni var breytt með 5. gr. stjórnarskipunarlaga nr. 56/1991, sbr. 21. gr. laga um kosningar til Al- þingis, nr. 24/2000, er ákveðið að þing verði rofið 28. október 2017 og að almennar kosningar til Alþingis fari fram sama dag. Gjört á Bessa- stöðum, 18. september 2017. Guðni Th. Jóhannesson, Bjarni Benediktsson.“ Í þingrofinu felst heimild til að stytta kjörtímabil Á heimasíðu Alþingis segir að í þingrofi felist heimild handhafa framkvæmdarvaldsins (forseta Ís- lands að tillögu forsætisráðherra) til að stytta kjörtímabil Alþingis, en Al- þingi er kjörið til fjögurra ára í senn. Frá því að stjórnarskránni var breytt 1991 er með þingrofi í reynd verið að ákveða kjördag því að það tekur ekki gildi fyrr en á kjördegi. Með breytingunni 1991 var einnig þeirri skipan komið á að landið verð- ur aldrei þingmannslaust þar sem þingmenn halda umboði sínu til kjördags. Störfum Alþingis lýkur ekki fyrr en þingið hefur samþykkt til- lögu um frestun á störfum sínum fram að kjördegi. Þegar Alþingi kom saman í einn dag hinn 6. júlí síðast- liðinn samþykkti þingið ályktun þess efnis að fundum þingsins verði frest- að frá 6. júlí 2021 eða síðar, ef nauð- syn krefur. Eftir að birt hefur verið til- kynning um þingrof þarf að halda nýjar þingkosningar innan 45 daga frá útgáfu tilkynningarinnar og nýtt Alþingi skal koma saman eigi síðar en tíu vikum eftir kjördag. Á vef Alþingis kemur fram að þingrof sé af þrennum toga; kjör- dagsþingrof, pólitískt þingrof og stjórnarskrárþingrof. Kjördagsþingrof er þegar ákveðið er að stytta kjörtímabilið t.d. svo að kjördagur verði á hent- ugri árstíma en ella hefði orðið. Pólitískt þingrof felur í sér að kjörtímabilið er stytt, oftast vegna stjórnarslita. Þingrofin árin 1908, 1931, 1937, 1949, 1956, 1974, 1979, 2009, 2016 og 2017 voru öll stjórn- málalegs eðlis. Stjórnarskrárþingrof er tví- þætt; annars vegar er skylt að rjúfa þing þegar krafa Alþingis um að leysa forseta Íslands frá embætti hefur ekki verið samþykkt í þjóð- aratkvæðagreiðslu og hins vegar þegar Alþingi hefur samþykkt breytingar á stjórnarskrá. Aldrei hefur komið til þingrofs sem leiðir af kröfu um frávikningu forseta Ís- lands. Stjórnarskrárþingrof voru árin 1885, 1893, 1901, 1902, 1911, 1913, 1919, 1927, 1933, 1942 (tvívegis), 1959, 1967, 1983, 1991, 1995, 1999 og 2013. Flestar stjórnarskrárbreyt- ingar á seinni árum hafa verið sam- þykktar undir lok kjörtímabilsins og kjördagur því verið óbreyttur frá fyrirhuguðum almennum þingkosn- ingum, þ.e. þegar fjögurra ára kjör- tímabilinu var lokið. Alþingi verður rofið með forsetabréfi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Guðni Th. Jóhannesson forseti setti þingið 2020. Ragna Árnadótt- ir skrifstofustjóri og Steingrímur J. Sigfússon þingforseti sjást einnig. - Stefnt er að birtingu í Stjórnartíðindum síðar í vikunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.