Morgunblaðið - 09.08.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 09.08.2021, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021 Landkönnuðir Þrír kátir krakkar léku sér dátt við styttu Leifs Eiríkssonar sem kunni líklega að meta félagsskapinn. Ein stúlkan virðist efnilegur landkönnuður með bleikan kíki í hendinni. Unnur Karen Frá 1990 til 2019 hefur tala þeirra sem búa við örbirgð fallið úr 1,9 milljörðum í 648 milljónir, en örbirgðar- viðmiðið skv. Alþjóða- bankanum er umráð yfir 1,90 dollara á dag eða minna. Covid-19 hefur haft neikvæð áhrif á þessa þróun og í lok ársins 2021 mun faraldurinn líklega hafa komið 150 milljónum manns aftur í fátæktar- gildruna. Jafnvel fyrir faraldurinn var ekki fyrirséð að hægt væri að koma í veg fyrir örbirgð á næsta áratug. Árang- urinn í baráttunni var farinn að hægjast talsvert fyrr og á milli ár- anna 2015 og 2019 fækkaði fjölda fólks í örbirgð um minna en hálft prósent. Ef faraldurinn er ekki tek- inn inn í dæmið myndu enn 537 milljónir manns búa við örbirgð árið 2030, sem væri fyrir neðan fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun þegar kemur að fátækt (SDG 1). BRAC, sem eru stærstu sjálf- stæðu, alþjóðlegu samtökin á suð- urhveli, sem berjast gegn fátækt, hafa verið að hanna, setja af stað, ráðleggja og innleiða inngrip til að minnka örbirgð og starf þeirra sýnir hvernig hægt er að gera baráttuna gegn fátækt skilvirkari. Í fyrsta lagi þurfa aðgerðirnar að ná til fólks sem er verst statt. Fólk í örbirgð hefur lítið sem ekkert aðgengi að fé- lagslegri aðstoð og þjónustu. Það er ólík- legra til þess að eiga bankareikninga, hafa fasta búsetu eða hafa skilríki, sem getur úti- lokað það strax frá því að geta sótt um aðstoð. Þar að auki þurfa þau að kljást við fordóma tengda því að fá aðstoð og iðulega hafa þau ekki upplýsingar um þá aðstoð sem þau geta fengið. Í fátækum ríkjum fá 79% þeirra sem eru í lægsta fimmtungi tekna enga félagslega aðstoð. Til þess að tryggja að aðstoð berist til þeirra sem mest þurfa á henni að halda, þurfa ríkisstjórnir og samstarfs- aðilar þeirra að hanna stefnur og verkefni sem gera ráð fyrir og leysa þær hindranir sem verst staddi hóp- urinn stendur frammi fyrir, svo að öryggisnet betur settra hópa í sam- félaginu nái til þeirra. Í öðru lagi þarf aðstoðin að ein- blína á langtíma virkni. Ríkisstjórnir og samstarfsaðilar þurfa að gera meira en bara að bæta skammtíma- stöðu, heldur þarf að hjálpa fólki í örbirgð að fá þau tæki, hæfni og að- stoð sem hindrar að þau lendi aftur í fátæktargildrunni. Þessi aðferð er afar mikilvæg á krepputímum, eins og BRAC-samtökin komust að þeg- ar þau voru, í samstarfi við asíska þróunarbankann, að ráðleggja ríkis- stjórn Filippseyja við nýlega herferð gegn örbirgð. Verkefnið var unnið í miðjum far- aldri og var séð til þess að fátækir fengju fjáraðstoð frá ríkisstjórninni og mataraðstoð frá héraðsstjórnum. Á sama tíma fékk þessi hópur upp- lýsingar og þjálfun til þess að læra að sjá fyrir sér sjálfur og finna nýjar og fjölbreyttar tekjuleiðir. Árang- urinn lét ekki á sér standa og 76% þátttakenda tókst að halda áfram að afla tekna, jafnvel í ströngu út- göngubanni. Í þriðja lagi þarf að líta á örbirgð sem mengi margra þátta. Nothæf skilgreining þarf að taka inn þau mörgu svið sem fólk í fátækt þarf að glíma við, frá skorti á vatni og raf- magni til vannæringar og félags- legrar útskúfunar. Síðan er birting- armynd fátæktar breytileg eftir mismunandi hópum og mismunandi löndum. Þegar tillit er tekið til margra þátta sem tilheyra sér- stökum svæðum og menningu þeirra svæða, geta ríkisstjórnir og sam- starfsmenn þeirra betur hannað heildræna aðstoð sem aðstoðar fólk við að kljást við sínar sértæku að- stæður. Í fjórða lagi þarf þessi aðstoð að virkja sveitarstjórnir og ríkis- stjórnir viðkomandi svæða, því þátt- taka þeirra gefur betri yfirsýn yfir daglegar aðstæður fólks og getur örvað viðskipti á svæðinu. Auk þess er mikilvægt að fá aðra borgara landsins til að hjálpa til, ekki síst þegar kemur að því að veita yfir- völdum aðhald og fara fram á skil- virkar langtímalausnir. Síðan getur nærsamfélagið, eins og sveitar- stjórnir, aðstoðað ríkisstjórnir við að kortleggja örbirgð og vinna með að ná jaðarhópum betur inn í sam- félagið. Í fimmta lagi þurfa ríkisstjórnir og samstarfsaðilar þeirra að læra hvað virkar og hvað virkar ekki og byggja sína aðstoð á þeirri vitn- eskju. Því þarf að vera hægt að fylgjast með aðstoðinni, meta hana og læra af því sem vel gengur, hvernig aðstoðin er innleidd og vera svo tilbúin að breyta því sem ekki virkar. Slíkt mat gæti byrjað á því að skil- greina grundvallaratriðin í hönnun aðstoðarverkefnanna. Það þarf að lagfæra og prófa verkefnin með meginmarkmiðin í huga og fylgjast þarf með öllum niðurstöðum. Það er með þeirri rannsóknarnálgun sem ríkisstjórnir og samstarfsaðilar þeirra geta tryggt að fátækraað- stoðin muni hafa langtímaáhrif og að hægt sé að mæta sértækum og breytilegum þörfum þegnanna. Þetta verður að vera samvinnu- verkefni margra. Ef alþjóða- samfélagið fer eftir þessum til- mælum geta verkefnin og hugmyndafræðin sem notuð er til að berjast gegn fátækt orðið sértækari, sveigjanlegri og skilvirkari. Auk þess að virkja almenna borgara og háskólasamfélagið þurfa ríkis- stjórnir þróunaraðila, þ.m.t. marg- víslegar stofnanir og lönd sem geta veitt fjárhagslegan stuðning, að leit- ast við að jafna aðgengi að auðlind- um og tækifærum þar til fátækir geti á eigin vegum nýtt sér auðlindir heima fyrir. Mörg lönd sem hafa lág- ar eða meðaltekjur hafa einfaldlega ekki bolmagn til að takast á við stór- tækar aðgerðir til að sporna gegn fá- tækt án stuðnings. Fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er nátengt öðrum mark- miðum samtakanna, frá því að tryggja jafnræði kynjanna til þess að stuðla að varanlegri bót á nær- ingu þegnanna. Sökum Covid-19, hefur árangur sem náðst hefur á þessum svæðum, farið aftur um ára- tugi og það er mikilvægt að setja af stað heildstæðar aðgerðir sem taka á margvíslegum þáttum ef hægt á að vera að snúa þeirri þróun við. Eina leiðin til þess að tryggja að stórir hópar fólks lendi ekki í fátæktar- gildrunni er að setja meira fjármagn í baráttuna og að tryggja að aðgerð- ir séu heildstæðari og skili raun- verulegum árangri. Eftir Shameran Abed »Eina leiðin til þess að tryggja að stórir hópar fólks lendi ekki í fátæktargildrunni er að setja meira fjármagn í baráttuna og að tryggja að aðgerðir séu heild- stæðari og skili raun- verulegum árangri. Shameran Abed Höfundur er yfirmaður í Smá- lánafjármögnun og Örbirgðaraðstoð BRAC. ©Project Syndicate, 2021. Hvernig hægt er að styrkja baráttu gegn fátækt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.