Morgunblaðið - 09.08.2021, Side 17

Morgunblaðið - 09.08.2021, Side 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021 Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w wsýnumhvert öðru tillitssemi sa Fyrr hefði Kristján L. Möller átt að leggja enn meiri áherslu á tvíbreið jarðgöng milli Siglu- fjarðar og Fljóta. Of mörg óvissuatriði, tengd hugmyndinni um fjármögnun Vaðlaheiðarganga með innheimtu veg- tolla á hvern bíl, vekja spurningar um hvort þingmenn Norðaustur- kjördæmis verði síðar meir gerðir ómerkir orða sinna þegar allar til- raunir til að reka þetta rándýra samgöngumannvirki sem einka- framkvæmd mistakast. Árangurs- laust voru þingmenn fyrrverandi ríkisstjórnar spurðir hvort skyn- samlegt væri að láta afleiðing- arnar lenda á ríkissjóði og skatt- greiðendunum þegar meirihluti heimamanna í Norðausturkjör- dæmi viðurkennir þá staðreynd, að alltof fáir bílar séu í umferð á Eyjafjarðarsvæðinu og í Þingeyj- arsveit til að 1.500 króna veggjald á hvert ökutæki standi undir laun- um starfsmanna, afborgunum, við- haldi og rekstri ganganna. Engin svör fást þegar spurt er hvaða sanngirni felist í því að íslenskir skattgreiðendur skuli með stór- auknum álögum gjalda fyrir þetta stórmennskubrjálæði Steingríms J., sem telur pólitískan glundroða, ringulreið, öryggis- og stjórnleysi skipta meira máli en að taka á at- vinnumálum íbúanna við Skjálf- andaflóa. Þessi framkoma jarð- fræðingsins úr Þistilfirði eyði- leggur allar forsendur sem tengjast arðsemismati Vaðlaheið- arganga. Af þessu stórmennsku- brjálæði Steingríms J. verður löng saga þegar það sannast að einka- aðilar í fámennum landshlutum ráða aldrei við fjármögnun sam- göngumannvirkja með innheimtu vegtolla á hvert ökutæki áður en kostnaðurinn stefnir í 20 milljarða króna sem engin innistæða er fyr- ir. Mörgum spurningum svaraði fyrrverandi sjávarútvegsráðherra aldrei þegar vitað var að meðal- umferð ökutækja á sólarhring í Vaðlaheiðargöngum næði aldrei þeim heildarfjölda sem fer dag- lega í gegnum Hvalfjarðargöngin. Spurningin er ekki hvort flokks- systkinin Steingrímur J. og Oddný falli á reikningsprófinu heldur hvenær, þegar fyrirsögnin vonlaus fjármögnun Vaðlaheiðarganga birtist á forsíðum dagblaðanna. En hvert verður reikningurinn sendur? Fljótlega spyrja áhyggju- fullar fjölskyldur á höfuðborgar- svæðinu og landsbyggðinni hvers vegna þær skuli gjalda fyrir þjófn- að óreiðumanna sem svara aldrei til saka, um leið og allar tilraunir til að fjármagna Vaðlaheiðargöng með 1.500 króna veggjaldi á hvern bíl renna endanlega út í sandinn. Að viðlögðum drengskap lofaði jarðfræðingurinn úr Þistilfirði því að rekstur jarðganganna gegnt Akureyri skyldi standa undir sér með innheimtu veg- tolla, þegar hann ítrekaði andstöðu sína gegn Norðfjarðar- göngum og tillögu Arnbjargar Sveins- dóttur um Fjarðar- heiðargöng, sem af- gerandi meirihluti Alþingis samþykkti fyrr á árinu 2012. Sjálfur kom Stein- grímur aldrei virðu- lega fram gagnvart Austfirðingum, Sunn- lendingum og Vestfirðingum. Vor- ið 2013 komust ráðherraskipti í fyrrverandi ríkisstjórn í fréttirnar, sem vakti spurningar um hvort pólitísk hrossakaup hefðu farið fram á bak við tjöldin, um leið og jarðfræðingurinn barðist fyrir því að fjármögnun Vaðlaheiðarganga yrði troðið fram fyrir önnur þarf- ari verkefni á Vestfjörðum, Aust- urlandi og Suðurlandi. Það voru Dýrafjarðargöng, Norðfjarðar- göng, Lónsheiðargöng, stutt veg- göng undir Reynisfjall og und- irbúningsrannsóknir á jarðganga- gerð undir Fjarðarheiði. Allar spár um að meðalumferð í veg- göngunum milli Fnjóskadals og Eyjafjarðar verði jafnmikil og í Hvalfjarðargöngunum eru ófull- nægjandi, mótsagnakenndar og ómarkvissar. Of mikil áhætta fylgir því að setja Vaðlaheiðar- göng í einkaframkvæmd þegar haft er í huga hvað meðalumferð ökutækja á sólarhring milli Eyja- fjarðar og Fnjóskadals er mikið minni en í Suðurkjördæmi, Hval- fjarðargöngum og á höfuðborg- arsvæðinu. Félög sem einkaaðilar í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum stofnuðu til að fjármagna þessi veggöng með veggjaldi áttu erfitt með að útvega fjármagn í þetta rándýra samgöngumannvirki. Fljótlega spyrja vonsviknir skatt- greiðendur hvenær Vegagerðin festist í svikamyllu Vaðlaheið- arganga að undirlagi Steingríms J. og Oddnýjar G. Harðardóttur þegar allar tilraunir til að fjár- magna þessa rándýru einka- framkvæmd með veggjaldi snúast upp í andhverfu sína. Fyrir einka- aðila í fámennum landshlutum, sem geta aldrei fjármagnað svona dýrt samgöngumannvirki, verða afleiðingarnar skelfilegar án þess að Steingrímur J. og flokkssystir hans taki það nærri sér. Ræður þeirra voru skammir og tilefnis- lausar rangfærslur um samgöngu- mál Mið-Austurlands, Suðurlands og Vestfjarða eftir að Alþingi samþykkti ný Norðfjarðargöng 2009. Vonlaus fjármögnun Vaðlaheiðarganga Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson » Þessi framkoma jarðfræðingsins úr Þistilfirði eyðileggur all- ar forsendur sem tengj- ast arðsemismati Vaðla- heiðarganga. Höfundur er farandverkamaður. Það tínast hingað fréttir norður í fá- sinnið að hinir og þessir ráðamenn hafi verið að leggja niður völd, ýmist sjálfviljugir en þó aðallega með sem- ingi. Það er þetta ólukkans lýðræði sem er að flækjast fyrir og stríða mönnum sem svo staðfastlega trúa að þeirra sé mátturinn og helst að ei- lífu. Þetta er aðeins einfaldara í einræð- isríkjum þar sem gildir að hafa góðan og trúan her, en dugir ekki alltaf til. Á slíkum stöðum er oft lítið að marka kosningar og þeim hagrætt á marga vegu. Eftirlitsstofnanir hafa verið gerðar út til að fylgjast með slíkum gervikosningum og ekki ein- hugur að treysta niðurstöðum. Þessi ríki eru ekki öll fátæk, þótt almenningur þar mali ekki gull, en ráðamenn geta haft áhrif langt inn í „lýðræðisstofnanir“ í öðrum löndum, sem gefa viðkomandi rétta stimpla. Það er ekki hægt að kalla þetta peningaþvott, þótt peningar komi vissulega oftast við sögu, en það mætti e.t.v. kalla það „lýðræðis- þvott“. Svona mál eru fyrir dómstólum úti í Evrópu núna. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Eins og hundar á roði Fjármagn Peningar koma við sögu í ýmsum málefnum. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.