Morgunblaðið - 09.08.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Árangur er það sem allir horfa til
en sumir leggja minna upp úr því hvernig
hann næst. Sýndu þeim því nærgætni.
20. apríl - 20. maí +
Naut Viðræðum við foreldri eða yfirvald
miðar ekkert í dag. En þér finnst þú
hvatvís og frjáls þegar þú hefur útbúið
plan.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Jafnvel ástríkustu vina-
sambönd lenda í undarlegum pyttum
endrum og sinnum. Láttu því gott af þér
leiða.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Láttu það eftir þér að sletta svo-
lítið úr klaufunum en gættu allrar hátt-
vísi. Láttu aðra ekki stjórna lífi þínu.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þótt þú hafir sett markið hátt er
engin ástæða til að ætla annað en þér
takist að ná því. Sérviska þín er ekki jafn
góð vísbending um brjálæði þitt og
hreinskilnin.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Nýir vinir eru á næsta leiti. Nú er
rétti tíminn til þess, því fólk er vingjarn-
legra en ella í annarra garð.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Yfirmaður þinn eða yfirboðari er
tilbúinn til að ræða ýmis óvissuatriði.
Vertu öðrum glaðvært fordæmi.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Velgengni felst ekki í að
eiga meira, heldur að eiga eitthvað öðru-
vísi. Mundu bara að þú varst ekki einn
að verki og fleiri mega njóta sviðsljóss-
ins.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Nú er nauðsyn að þú takir af
skarið og nýtir forystuhæfileika þína.
Taktu áhættu í nýrri leið til fjáröflunar.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er hreint furðulegt hvað
maður getur, ef viljinn er fyrir hendi.
Reyndu að treysta því að hlutirnir fari á
besta veg, hvernig svo sem hann kann
að líta út.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Farðu varlega í fjármálum
núna og hugsaðu þig tvisvar um áður en
þú eyðir peningum. Njóttu svo afrakst-
ursins og leyfðu þínum nánustu að vera
með.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú þarft fyrst að koma á jafnvægi
í sjálfum þér áður en þú ferð að fást við
aðra hluti. Sýndu nú svolítinn kjark.
ÍSLAN
D VAK
NARJón ax
el - kr
istín s
if - ás
geir p
áll
alla v
irkna
morg
na fr
á 06-1
0
heilsueflingu, stöðumat og stefnu-
mótun í eigin lífi svo eitthvað sé
nefnt, bæði í Endurmenntun Há-
skóla Íslands og fyrir vinnustaði,
hópa og samtök.“ Síðan hefur Krist-
ín Linda haldið námskeið á Spáni í
samvinnu við Ingu Geirsdóttur far-
arstjóra hjá Skotgöngu fyrir konur
sem eru 40 ára og eldri. „Þetta eru
viku námskeið, ýmist á Albír eða
Tenerife, hagnýt og skemmtileg, og
svo eru gönguferðir og skoðunar-
ferðir í pakkanum, virkilega upp-
byggjandi og vinsælar ferðir.“
Áhugamál Kristínar Lindu hafa
einnig breyst í gegnum tíðina. „Ára-
tugum saman nýtti ég sæla sumar-
daga til að ferðast á hestbaki á
samband Íslands gefur út fjórum
sinnum á ári, samfellt í 19 ár. „Hús-
freyjan er hluti af menningu og sögu
íslenskra kvenna og þar með þjóð-
arinnar og það hefur verið virkilega
áhugavert að stýra henni þessa tvo
áratugi.
Kristín Linda segir að í starfi sínu
í dag sinni hún því fólki sem sé að
fara í gegnum erfið tímabil á lífsleið-
inni og vilji bæta eigin heilsu, líðan
og lífsgæði. „Við glímum öll ein-
hvern tímann við erfiðleika, vansæld
og heilsubrest eða áföll og þá er
sjálfsagt að leita sér faglegrar hjálp-
ar til að ná fyrr bata og betri líðan.
Ég held líka fyrirlestra og námskeið
um líðan, lífsgæði, streitustjórnun,
K
ristín Linda Jónsdóttir
fæddist 9. ágúst 1961
og er næstelst fjög-
urra systkina. „Ég er
sveitastelpa og alin
upp á öflugu búi forelda minna í
Hjarðarholti í Fnjóskadal í miklu
nábýli við Kristínu ömmu og Sigurð
afa á Draflastöðum í sömu sveit.“
Hún minnist æskunnar sem ríku-
legrar reynslu á bóndabæ þar sem
lambær voru á beit í fjallinu, kýr
komu út úr fjósi eftir mjaltir, hænur
vöppuðu um í varpanum og lagt var
á hrossin og riðið út dalinn í kvöld-
sólinni. „Á vetrum var ég eins og
önnur börn sveitarinnar í heimavist-
arskóla, frá 8-18 ára, lengst í Stóru-
tjarnaskóla, og lauk svo stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1981.“ Kristín Linda fór
síðar í háskólanám í Háskólanum á
Akureyri og Háskóla Íslands og
fékk starfsleyfi sem klínískur sál-
fræðingur um fimmtugt.
„Ég kýs að lifa litríku lífi og hef
nokkrum sinnum breytt hressilega
til á lífsveginum. Ég hef meðal ann-
ars unnið í skógrækt í Vaglaskógi,
sem þjónn á Bautanum á Akureyri, á
hótelum og í sláturhúsi. Var banka-
starfsmaður á Akureyri í átta ár og
blaðamaður hjá Degi á Akureyri í
fimm og svo var ég kúabóndi í Mið-
hvammi í Aðaldal í Þingeyjarsýslu í
15 ár. Á þeim árum tók ég virkan
þátt í félagsmálum og baráttu
bænda og var m.a. formaður Félags
þingeyskra kúabænda og sat í stjórn
Landssambands kúabænda í sex ár.
Síðustu tíu ár hef ég búið í Reykja-
vík og er sjálfstætt starfandi sál-
fræðingur hjá eigin sálfræðistofu,
Huglind ehf. í Reykjavík. Ég varð
sálfræðingur á miðri ævi af því að
það kom svo sterkt til mín þessi hug-
sjón að hjálpa fólki að blómstra á ný
eftir erfiðleika. Það er svo dýrmætt
að við öll náum að nýta og njóta lífs-
ins á okkar hátt, sigla gegnum öld-
urnar og ná að njóta blíðunnar þegar
gefur, en festumst ekki í gráma og
depurð. Þar getur fagleg þekking
sálfræðinnar sannarlega gert gæfu-
muninn.“ Samhliða þessu hefur
Kristín Linda ritstýrt tímaritinu
Húsfreyjunni, sem Kvenfélaga-
Norðurlandi. Það er einstök upp-
lifun að ríða þingeysku heiðarnar og
dalina og á hestbaki upplifði ég
sannarlega að vera drottning um
stund. Síðasta áratug hafa hins veg-
ar annars konar ferðalög verið á
dagskránni. Ég tók mig til og fór að
ganga í náttúrunni og njóta hennar
þannig. Bæði dagsdaglega í ná-
grenninu og svo hef ég líka m.a.
gengið á Ströndum og Laugaveginn,
í austurrísku Ölpunum, pílagríma-
leiðina til Rómar og eftir Jakobsveg-
inum á Spáni.“ Kristín Linda segir
að hún njóti líka menningar, lesi,
hlusti á tónlist, fari á tónleika og í
leikhús og á listsýningar. „Fyrir
þremur árum lenti ég fyrir tilviljun á
námskeiði í olíumálun hjá Þuríði Sig-
urðardóttur myndlistarkonu. Ég
hafði hvorki málað né teiknað síðan
ég var barn en í dag elska ég að leika
mér á minn litríka og naívíska hátt á
striganum og myndirnar sem verða
til eru mín sýn á náttúruna, fjöllin,
fossana og árnar og okkur kon-
urnar.“
Kristín Linda segir að sér sé vel
ljóst að þótt það taki sannarlega sex-
tíu ár að verða sextug, þá sé fram
undan stór kafli. „Árin þrjátíu milli
sextíu og níutíu eru ekkert færri en
Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og ritstjóri Húsfreyjunnar – 60 ára
Systkinin Frá vinstri: Heiðar Ágúst, Kristín Linda, Sigríður Hulda og
Sigurður Arnar. Í baksýn er Draflastaðakirkja í Fnjóskadal.
„Ég kýs að lifa litríku lífi“
Jökulsárlón Kristín Linda og Jens á leið um landið fagra.
Ljósmynd: Silla Páls.
Húsfreyjan Kristín Linda sálfræðingur hjá Huglind
hefur ritstýrt tímaritinu Húsfreyjunni í 19 ár.
Til hamingju með daginn
30 ÁRA Unnur Birna fædd-
ist í Reykjavík 9. ágúst 1991 og
flutti til Svíþjóðar vikugömul
og ólst þar upp fyrstu sex árin.
„Ég man að það var mjög
gaman að alast þar upp þessi
leikskólaár, en pabbi var í
námi og mamma, sem er
hjúkrunarfræðingur, var að
vinna úti.“ Fjölskyldan flutti
til Hafnarfjarðar 1997 og þar
hefur Unnur Birna búið allar
götur síðan. Þar gekk hún í
Lækjarskóla og Öldutúns-
skóla og fór síðan í Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ. Eftir stúd-
entinn fór hún í Háskóla
Íslands og lauk þar BA-gráðu í
félagsfræði árið 2015. Unnur
Birna hefur mikinn áhuga á að
ferðast og þess vegna fór hún í
flugfreyjunámið eftir háskól-
ann og flaug í tvö ár með
WOW-Air. „Ég fór akkúrat í
fæðingarorlof þegar fyrir-
tækið hætti.“ Núna er Unnur Birna heimavinnandi og í barnsburðarleyfi enda
yngra barnið fætt á þessu ári. Helstu áhugamál Unnar Birnu eru samvera með
fjölskyldu og vinum. „Síðan æfði ég dans mjög lengi og var öll grunnskólaárin í
samkvæmisdönsum og keppti í Danmörku, Englandi og í Taílandi, og hef alltaf
mjög mikinn áhuga á dansi. Síðan hef ég líka mjög gaman af því að ferðast.“
FJÖLSKYLDA Unnusti Unnar Birnu er Davíð Örn, framkvæmdastjóri og
eigandi fyrirtækisins Smitten í Reykjavík. Þau eiga dæturnar Viktoríu Hrönn,
f. 2019, og Júlíu Rós, f. 2021.
Foreldar Unnar Birnu eru hjónin Magnús Heimisson, samskiptafulltrúi fyr-
ir nýja Landspítalann, f. 1964, og Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, svæðisstjóri hjá
heilsugæslunni, geðheilsuteymi austur, geðhjúkrunarfræðingur, f. 1960. Þau
búa í Hafnarfirði.
Unnur Birna Magnúsdóttir