Morgunblaðið - 09.08.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EILÍTIL VANDRÆÐI MEÐ BÍLINN, HERRA
LÖGREGLUÞJÓNN. EINKABÍLSTJÓRINN ER
AÐ SÆKJA DRÁTTARBÍL.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að elska innri
manninn.
KÆRIMORGUN-
DAGUR, FARÐU
EFTIR Á AÐ HYGGJA, KOMDU
AFTUROG ÞÁ MEÐ KAFFI
BEST AÐ KÍKJA Á
OFNINN!
HRÓLFUR,
HEFUR ÞÚ SÉÐ
KÖKUKREMIÐOG
SLEIKJUNA SEM
ÉG SETTI HÉR Á
BORÐIÐ?
„SVONA OKKAR Á MILLI ER ÉG EKKI
JAFNMIKIL AURASÁL OG ÞÚ HELDUR.“
árin milli þrítugs og sextugs svo það
er margt í vonum ef líf og heilsa end-
ist og sannarlega spennandi að hafa
það áfram að leiðarljósi að lifa litríku
lífi og láta gott af sér leiða.“
Fjölskylda
Maður Kristínar Lindu er Jens
Sigurðsson, yfirvélstjóri á Sighvati
GK 57 í Grindavík. Kristín var áður
gift Sigurði Árna Snorrasyni, f. 14.6.
1961. Synir þeirra eru: 1) Ástþór
Örn, bóndi í Miðdal í Skagafirði, f.
6.7. 1984. Maki hans er Svana Ósk
Rúnarsdóttir bóndi og þau eiga Lilju
Dóru, f. 2011, d. 2013; Viktor Árna, f.
2014, og Sóldísi Tinnu f. 2017. 2)
Halldór Logi, flugmaður og við-
skiptafræðingur í Garðabæ, f. 4.7.
1989. Maki hans er Hrafney Svava
Þorsteinsdóttir náms- og starfs-
ráðgjafi og dætur þeirra eru Svan-
hvít Linda, f. 2019, og Bjartey Rún,
f. 2021. 3) Jón Fjalar, nemi og versl-
unarstjóri, f. 1.9. 1999. Unnusta hans
er Andrea Örvarsdóttir, nemi og af-
greiðslumaður. Systkini Kristínar
eru Heiðar Ágúst, f. 15.8. 1959; Sig-
ríður Hulda, f. 18.9. 1964, og Sig-
urður Arnar, f. 4.4. 1972.
Foreldrar Kristínar eru hjónin
Jón Ferdínand Sigurðsson, bóndi og
bifreiðastjóri, f. 30.10. 1938, og Svan-
hildur Þorgilsdóttir, bóndi og hús-
freyja, f. 26.6. 1939, þau búa í Hjarð-
arholti í Fnjóskadal.
Kristín Linda
Jónsdóttir
Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir
húsfreyja í Hólum í Laxárdal
Hallgrímur Tryggvi Hallgrímsson
bóndi á Hólum, í Laxárdal, S-Þing.,
stundaði póstflutninga
Sigríður Hallgrímsdóttir
húsfreyja á Þverá í Laxárdal og síðar
á Daðastöðum í Reykjadal
Þorgils Jónsson
bóndi á Þverá í Laxárdal og síðar
á Daðastöðum í Reykjadal
Svanhildur
Þorgilsdóttir
bóndi og húsfreyja í
Hjarðarholti í Fnjóskadal
Hildur Benediktsdóttir
húsfreyja á Auðnum í Laxárdal,
S-Þing.
Jón Pétursson
bóndi á Auðnum í Laxárdal, S-Þing.
Hólmfríður Jónsdóttir
húsfreyja í Skógum og Fornastöðum í Hálshreppi og
á Birningsstöðum í Ljósavatnsskarði
Jón Ferdínandsson
bóndi í Skógum og Fornastöðum í
Hálshreppi og á Birningsstöðum í
Ljósavatnsskarði
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Draflastöðum í Hálshr.,
S-Þing., gegndi ýmsum félags- og
trúnaðarstörfum
Sigurður Karlsson
bóndi á Draflastöðum í Hálshr., S-Þing.
Jónasína Dómhildur
Jóhannsdóttir
húsfreyja á Draflastöðum í
Hálshreppi, S-Þing.
Karl Ágúst Sigurðsson
bóndi á Draflastöðum í Hálshreppi, S-Þing.
Úr frændgarði Kristínar Lindu Jónsdóttur
Jón Ferdínand
Sigurðsson
bóndi og bifreiðastjóri í
Hjarðarholti í Fnjóskadal
Á Boðnarmiði rifjar Ólafur Stef-
ánsson að gefnu tilefni upp
þulu sem hann lærði sem krakki og
Hallgrímur Pétursson orti í orða-
stað konu sem átti óseðjandi eig-
inmann:
Ég gef honum fisk með flautum
og fergjað skyrið óskammtað,
átján stykki af ýsum blautum,
ellefu hrogn og svilja spað.
og sextán merkur af sullugrautum.
Hann Sumarliði minn étur það.
Þetta gaf Ástu Sverrisdóttur til-
efni til að rifja upp gamla „druslu“:
Ég vildi að sjórinn yrði að mjólk
undirdjúpin að skyri (skeri),
fjöll og hálsar að floti og tólk
Frónið að súru sméri.
Uppfyllist óskin mín
öll vötn í brennivín
Holland að heitum graut,
horngrýtið gamalt naut,
Grikkland að grárri meri!
Maðurinn með hattinn yrkir:
Í lífinu er margs að meta,
margt sem kætir frónskan lýð.
Til dæmis er gott að geta
gamnað sér við ljóðasmíð.
Ágúst H. Bjarnason segir bágt að
hamla för Elli kerlingar:
Ellin vægir engum hér,
andann drepur líka.
Þessi kellu-fjandi fer
í fátæka sem ríka.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir:
Þótt fullhugi frískur sé Benni
þá forðast hann Bínu frá Enni
því konan sú er
svo kröftug og þver
að lýsnar þær hoppa af henni.
„Allt í hófi“ er limra eftir Hrólf
Sveinsson:
Hallur Hallsson á Móum
hlóð niður þrjátíu krógum,
því það var svo gaman
að sofa saman
samt þótti húsfreyju nóg um.
Hér er limran „Berdreymi“ eftir
Hrólf:
Hann Dagfinn dreymir svo glatt,
hann dreymdi’ að hann æti sinn hatt
og vaknaði um hánótt
með hiksta, og sá fljótt
að þetta var því miður satt.
Þessi staka úr Griðkurímum er
alkunn:
Yggjar sjó ég út á legg
uggandi um Dvalins kugg,
hyggju dugur dvínar segg
duggan þegar fer á rugg.
Þessi staka Snæbjarnar í Hergil-
sey var á hvers manns vörum:
Ég hef reynt í éljum nauða
jafnvel meira en þér.
Á landamærum lífs og dauða
leikur enginn sér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sumarliði minn étur það
110