Morgunblaðið - 09.08.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021
LEIKNIR R. – VALUR 1:0
1:0 Andrés Manga Escobar 81.
M
Brynjar Hlöðversson (Leikni)
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (Leikni)
Loftur Páll Eiríksson (Leikni)
Arnór Ingi Kristinsson (Leikni)
Hjalti Sigurðsson (Leikni)
Andrés Manga Escobar (Leikni)
Daníel Finns Matthíasson (Leikni)
Hannes Þór Halldórson (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 7.
Áhorfendur: Um 400.
VÍKINGUR R. – KA 2:2
1:0 Viktor Örlygur Andrason 8.
1:1 sjálfsmark 23.
2:1 Kristall Máni Ingason 45.
2:2 Rodrigo Gómes 86.
MM
Rodrigo Gómes (KA)
M
Atli Barkarson (Víkingi)
Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingi)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Viktor Örlygur Andrason (Víkingi)
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Mark Gundelach (KA)
Steinþór Már Auðunsson (KA)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 7.
Áhorfendur: Um 400.
KEFLAVÍK – FYLKIR 1:1
0:1 Orri Hrafn Kjartansson 15.
1:1 Oliver Kelaart 81.
M
Marley Blair (Keflavík)
Nacho Heras (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Orri Hrafn Kjartansson (Fylki)
Dagur Dan Þórhallsson (Fylki)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Unnar Steinn Ingvarsson (Fylki)
Dómari: Elías Ingi Árnason – 7.
Áhorfendur: 350.
KR – FH 1:1
0:1 Matthías Vilhjálmsson 8.
1:1 Stefán Árni Geirsson 15.
M
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Stefán árni Geirsson (KR)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Ólafur Guðmundsson (FH)
Dómari: Þorvaldur Árnason – 7.
Áhorfendur: 621.
ÍA – HK 4:1
1:0 Alexander Davey 2.
2:0 Gísli Laxdal Unnarsson 59.
2:1 Stefan Ljubicic 68.
3:1 Steinar Þorsteinsson 83.
4:1 Ísak Snær Þorvaldsson 87.
MM
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Árni Marinó Einarsson (ÍA)
M
Viktor Jónsson (ÍA)
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Alexander Davey (ÍA)
Atli Arnarson (HK)
Stefan Ljubicic (HK)
Rautt spjald: Jóhannes Karl Guðjóns-
son, þjálfari. (ÍA) 26.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 4.
Áhorfendur: 374.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Nýliðar Leiknis komu geysilega á
óvart í Pepsí Max-deild karla í gær
þegar þeir unnu Íslandsmeistarana
úr Val 1:0 í Breiðholtinu. Leiknir varð
fyrir blóðtöku í vikunni þegar
Lyngby keypti fyrirliða þeirra og
marksæknasta mann, Sævar Atla
Magnússon, en það virtist ekki skipta
máli í gær.
Tvíburabræðurnir Dagur og Máni
Austmann Hilmarssynir voru heldur
ekki með en þeir eru oftar en ekki í
byrjunarliðinu. Valsmenn voru með
byr í seglin í aðdraganda leiksins eftir
mikilvægan sigur gegn KR á dög-
unum. Ef til vill hefur spennufall
myndast hjá Völsurum eftir KR-
leikinn en Heimir Guðjónsson þjálf-
ari þeirra sagði í samtali við mbl.is
sigur Leiknismanna hafa verið sann-
gjarnan. „Það voru vonbrigði að tapa
leiknum en ég held að þetta hafi verið
sanngjörn úrslit. Mér fannst Leikn-
isliðið bara gott og þeir vildu þetta
mikið og börðust fyrir öllum boltum
og við urðum undir í baráttunni og
sanngjarn sigur,“ sagði Heimir.
„Öll vörn Leiknismanna eins og
hún leggur sig var frábær í leiknum
og gaf nánast ekki eitt einasta færi á
sér,“ skrifaði Arnar Gauti Grettisson
m.a. í umfjöllun um leikinn á mbl.is
Skagamenn bitu frá sér
Enn meira líf færðist í neðri hluta
deildarinnar með sigri ÍA á HK á
Akranesi. Ef til vill mætti segja að
sigur Skagamanna hafi verið lífs-
nauðsynlegur því þeir eru í botnsæt-
inu og HK er næsta lið fyrir ofan. ÍA
skoraði fjögur mörk í þessum leik og
HK skoraði fjögur gegn FH í síð-
ustu umferð. Þessi lið gætu því
náð í stig í næstu umferðum og
þurfa á því að halda.
Umdeilt atvik varð í leiknum þegar
Skagamenn töldu sig hafa skorað
mark í fyrri hálfleik. Það hafði ekki
áhrif á úrslit leiksins en þjálfarinn Jó-
hannes Karl Guðjónsson verður tæp-
lega á hliðarlínunni í næsta leik.
„Gísli Laxdal Unnarsson hélt hann
væri að tvöfalda forskot Skagamanna
á 25. mínútu er hann átti skot í slá,
hvaðan boltinn fór yfir marklínuna.
Gísli byrjaði að fagna marki en dóm-
aratríóið dæmdi ekki mark. Við það
reiddust Skagamenn og Jóhannes
Karl Guðjónsson, þjálfari liðsins, fékk
beint rautt spjald fyrir mótmæli,“
skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson í
umfjöllun á mbl.is.
Ragnar mættur í slaginn
Bæði Keflvíkingar og Fylkismenn
voru á höttunum eftir þremur stigum
í Bítlabænum enda eru liðin rétt fyrir
ofan fallsvæðið. Þeim varð ekki að
ósk sinni en fá þó sitt hvort stigið eftir
1:1-jafntefli.
- Ragnar Sigurðsson var í byrj-
unarliði Fylkis í fyrsta sinn síðan í
september 2006. „Það reyndi ekki
mikið á hann í fyrri hálfleik en náði
sér þó í gult spjald í lok fyrri hálfleiks
en þá var hann aðeins of seinn í tækl-
ingu,“ skrifaði Þór Bæring Ólafsson
m.a. í umfjöllun sinni á mbl.is. „Ég er
mjög ánægður með það persónulega
að hafa náð rúmlega klukkutíma í
dag. Ég er ekki búinn að æfa fótbolta
í einhverja mánuði og hvað þá að spila
leik þannig að ég er sáttur með kvöld-
ið,“ sagði Ragnar m.a. við mbl.is.
Þrjú jafntefli í gær
Víkingur og KA gerðu 2:2-jafntefli
í Víkinni en bæði eru í baráttunni í
efri hlutanum. „Bæði lið hefðu sann-
arlega viljað fá öll stigin þrjú er þau
reyna eins og þau geta að eltast við
topplið Vals, en eftir að Valur tapaði í
dag þá eru Víkingar aðeins þremur
stigum á eftir þeim í öðru sætinu og
KA getur jafnað Víking að stigum
vinni það leikinn sem það á til góða,“
benti Gunnar Egill Daníelsson á í um-
fjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
- Rodrigo Gómez, varnar-
tengiliðurinn í liði KA, skoraði jöfn-
unarmarkið á 86. mínútu.
Þremur leikjum lauk með jafntefli
því hið sama var upp á teningnum hjá
KR og FH í Vesturbænum.
Leikurinn byrjaði afar fjörlega en
bæði mörkin voru skoruð á fyrsta
korterinu en þá höfðu einnig fleiri
skottilraunir átt sér stað.
„Eftir þessa fjörugu byrjun virtust
þjálfarar beggja liða átta sig á því að
mörkin yrðu alltof mörg á Meist-
aravöllum með þessu áframhaldi og
tókst vel til að þétta raðirnar, báðum
megin á vellinum. Úr varð öðruvísi
leikur en ekki síður skemmtilegur er
leikmenn tókust vel á, sérstaklega á
miðjunni,“ skrifaði Kristófer Krist-
jánsson meðal annars í umfjöllun um
leikinn á mbl.is.
Leiknismenn
komu mjög á
óvart gegn Val
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Í vesturbænum Eskfirðingurinn Eggert Gunnþór Jónsson og Ísfirðingurinn
Matthías Vilhjálmsson fagna marki FH í gær en það dugði ekki til sigurs.
- Botnlið ÍA skoraði fjögur gegn HK
- Víkingur og KA fengu sitt hvort stigið
Pepsi Max-deild karla
Leiknir R. – Valur .................................... 1:0
Víkingur R. – KA...................................... 2:2
ÍA – HK..................................................... 4:1
Keflavík – Fylkir ...................................... 1:1
KR – FH.................................................... 1:1
Staðan:
Valur 16 10 3 3 26:14 33
Víkingur R. 16 8 6 2 24:18 30
KA 15 8 3 4 23:12 27
Breiðablik 14 8 2 4 33:18 26
KR 16 7 5 4 25:16 26
Leiknir R. 16 6 3 7 16:19 21
FH 15 5 4 6 21:22 19
Keflavík 15 5 2 8 19:25 17
Stjarnan 15 4 4 7 18:23 16
Fylkir 16 3 7 6 18:26 16
HK 16 3 4 9 19:32 13
ÍA 16 3 3 10 17:34 12
Lengjudeild karla
Víkingur Ó – ÍBV ..................................... 0:2
Staðan:
Fram 14 12 2 0 38:10 38
ÍBV 15 10 2 3 29:13 32
Kórdrengir 13 7 4 2 22:14 25
Vestri 15 8 1 6 25:28 25
Fjölnir 15 7 2 6 19:18 23
Grótta 15 6 2 7 30:29 20
Grindavík 15 5 5 5 27:30 20
Afturelding 14 5 4 5 29:26 19
Þór 15 5 4 6 29:26 19
Selfoss 15 3 3 9 22:34 12
Þróttur R. 15 3 1 11 25:36 10
Víkingur Ó. 13 0 2 11 15:46 2
2. deild karla
Reynir S. – Leiknir F............................... 4:1
Fjarðabyggð – KV.................................... 0:2
ÍR – Magni ................................................ 1:1
Staðan:
Þróttur V. 15 9 5 1 31:12 32
KV 15 8 4 3 30:20 28
Völsungur 15 8 3 4 33:27 27
KF 15 7 4 4 29:22 25
Njarðvík 15 5 8 2 30:18 23
Magni 15 5 6 4 30:29 21
Reynir S. 15 5 5 5 29:28 20
Haukar 15 5 4 6 30:28 19
ÍR 15 4 7 4 24:22 19
Leiknir F. 15 4 2 9 20:36 14
Kári 15 1 5 9 21:35 8
Fjarðabyggð 15 0 5 10 8:38 5
3. deild karla
Elliði – Einherji ........................................ 3:2
Lengjudeild kvenna
Haukar – Afturelding .............................. 2:6
Staðan:
FH 13 9 2 2 34:11 29
KR 13 9 2 2 33:17 29
Afturelding 13 8 4 1 35:13 28
Víkingur R. 13 5 4 4 23:22 19
Haukar 13 4 3 6 19:25 15
Grindavík 13 3 5 5 18:22 14
Grótta 13 4 1 8 17:29 13
ÍA 12 3 2 7 12:27 11
HK 11 2 3 6 14:26 9
Augnablik 12 2 2 8 17:30 8
2. deild kvenna
Hamar – Sindri ......................................... 0:2
Álftanes – SR............................................ 3:1
Fj/Hö/Le – KM....................................... 24:0
Staðan: Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir 30
stig, Völsungur 25, KH 21, Fram 21, Fjöln-
ir 19, Sindri 15, ÍR 13, Hamrarnri 11, Ein-
herji 9, Hamar 9, Álftanes 6, SR 4, KM 0
England
Samfélagsskjöldurinn:
Leicester City – Man City ....................... 1:0
B-deild:
QPR – Millwall ......................................... 1:1
- Jón Daði Böðvarsson var ekki í leik-
mannahópi Millwall.
Bristol City – Blackpool.......................... 1:1
- Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik-
mannahópi Blackpool.
Skotland
Bikarkeppni, riðlakeppni:
Partick Thistle – Celtic........................... 1:3
- María Ólafsdóttir Gros kom inn á hjá
Celtic á 66. mínútu.
Þýskaland
Bikarkeppni, 1. umferð:
Greifswald – Augsburg .......................... 2:4
- Alfreð Finnbogason var fyrirliði Augs-
burg og lék fyrstu 61 mínútuna.
Villingen – Schalke ................................. 1:4
- Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrstu 80
mínúturnar með Schalke.
Wiche – Holstein Kiel .............................. 2:4
- Hólmbert Aron Friðjónsson lék fyrstu
59 mínúturnar með Hostein Kiel.
Ítalía
Bikarkeppni, 1. umferð:
Padova – Alexxandria............................. 0:2
- Emil Hallfreðsson var ekki í leikmanna-
hópi Padova.
Frakkland
B-deild:
Valenciennes – Nimes ............................. 0:3
- Elías Már Ómarsson lék fyrstu 63 mín-
úturnar og skoraði fyrir Nimes.
Holland
B-deild:
Den Haag – Jong Ajax ............................ 2:0
- Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrstu 69
mínúturnar með Jong Ajax.
50$99(/:+0$
þegar kemur að
markaskorun,
stoðsendingum
og fjölda leikja.
„Ég hef íhugað
það vandlega
hvað ég ætlaði
að segja en
sannleikurinn er
sá að þetta er
svo erfitt fyrir
mig eftir öll
þessi ár, ég hef verið hér alla tíð,“
sagði Messi meðal annars á fundinum
á meðan hann barðist við tárin.
Fastlega er búist við því að franska
liðið París Saint-Germain sé næsti
áfangastaður Messis en hann sagði þó
sjálfur á blaðamannafundinum að það
væri bara einn möguleiki af nokkrum.
_ Hilmar Örn
Jónsson úr FH
setti mótsmet í
sleggjukasti er
hann kastaði
74,14 metra í
bikarkeppni FRÍ
á laugardag og
hafði gríðarlega
yfirburði í grein-
inni.
_ Bandaríska körfuboltalandslið karla
er ólympíumeistari eftir 87:82-sigur á
Frakklandi. Þar með tókst Bandaríkja-
mönnum að ná fram hefndum eftir að
hafa tapað óvænt gegn Frökkum í
fyrsta leik keppninnar. Kevin Durant
var atkvæðamikill í leiknum og skoraði
29 stig fyrir sigurvegarana en Jayson
Tatum skoraði 19 og tók sjö fráköst.
_ Knattspyrnumarkvörðurinn Birna
Kristjánsdóttir hefur gert samning
við uppeldisfélagið sitt Breiðablik út
núverandi keppnistímabil. Birna er 35
ára og lék síðast með KR í efstu deild
sumarið 2019. Hún er uppalin hjá
Breiðabliki og á alls 64 leiki í efstu
deild á Íslandi með Blikum, Val,
Stjörnunni og KR. Einnig lék hún í
Noregi með Grand Bodö í þrjú ár. Þá á
hún einn A-landsleik að baki fyrir Ís-
lands hönd.
_ Norski hlauparinn Jakob Inge-
brigtsen hreppti gullverðlaunin og
setti ólympíumet í 1.500 metra hlaupi
karla á Ólympíuleikunum í Tókýó er
hann hljóp á 3:28,32 mínútum. Hann
Eitt
ogannað
_ Argentínski knattspyrnusnilling-
urinn Lionel Messi hélt blaðamanna-
fund á Camp Nou-leikvanginum í
Barcelona í gær. Spænska stórveldið
hafði fyrir helgi tilkynnt að því væri
ekki unnt að semja við Messi að nýju
og í gær staðfesti hann brottför sína í
eigin persónu.
Þar með lýkur 21 árs dvöl Messis hjá
Barcelona, þar sem hann hefur unnið
allt sem hægt er að vinna og sett
óviðjafnanleg persónuleg met hjá
Barcelona og í spænsku 1. deildinni