Morgunblaðið - 09.08.2021, Page 28

Morgunblaðið - 09.08.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021 Keppt er í Fjallahjólreiðum á skemmtilegri braut í nágrenni Morgunblaðsins í Hádegismóum Keppt er í tíu flokkum karla og kvenna HRINGURINN mánudaginn 9. ágúst Léttar veitingar í mótslok frá Nánari upplýsingar og skráning á hri.is Breiðholt er eitt af úthverfum Reykjavíkur og þar búa nú rösklega tuttugu þúsund manns. Það er um hálfrar aldar gamalt og kennt við bæ sem stóð neðst í núverandi hverfi, þar sem gatan Skógarsel er nú. Á seinni hluta nítjándu aldar bjuggu hjón í Breiðholti með þrettán börn, í torfbæ með kýr og hross og sauðfé; þar var oft gestkvæmt þegar bændur voru á leið í bæinn með sínar afurðir. Raunar var búið í Breiðholti alveg til 1960 en þá var reist þar gróðrarstöð. Á sjöunda áratugnum voru svo lögð drög að byggingu íbúðahverfis á holtinu fyrir ofan bæinn, sem var ekki síst verka- lýðshreyfingunni að þakka. Þá hafði lengi verið erfitt ástand í húsnæðismálum í Reykjavík, margt vinnandi fólk bjó í hrörlegu húsnæði og sumir jafnvel enn í bröggum frá stríðinu sem herinn hafði skilið eftir. Það varð til þess að verkalýðshreyf- ing, ríki og borgaryfirvöld sömdu um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis fyrir lágtekjufólk og Breiðholtið tók að rísa. Hverfið skiptist í þrjá hluta og var hugmyndin sú að í hverjum hluta yrðu bæði einbýlishús, raðhús og blokkir, þó hver gerð húsa út af fyrir sig eins og sjá má þegar farið er um hverfið. Flestar urðu blokkirnar í Fella- og Hólahverfi, eða Efra- Breiðholti, og þar reis – með sam- byggðri risablokk við Asparfell og Æsufell – stærsta íbúðarhús Íslands með 300 íbúðum. Þetta var dæmigert úthverfi líkt og þau voru víða byggð á Vesturlöndum á sjöunda áratugnum og vantaði ekki gagnrýnina heldur: Breiðholt væri ljótur svefnbær og menningarsnautt slömm, mátti lesa í blaðagreinum. Það gat verið margt til í því og nú orðið eru borgir ekki skipulagðar með þessum hætti: nán- ast engir vinnustaðir í hverfinu, allir fóru vestur í bæ eftir vinnu, og þjón- usta eins og skólar og heilsugæsla hökti á eftir uppbyggingunni. Þannig sagði skólastjóri Hólabrekkuskóla frá því að þegar hann tók til starfa var enginn kennari við skólann og ekkert húsnæði heldur, en nóg af nem- endum. Í svona tali gleymdist þó eitt: í Breiðholtið fluttu aðallega ungar, barnmargar fjölskyldur og brátt moraði þar allt í krökkum og öllu því fjöri sem þeim fylgir. Þannig hafði Reykjavík þanist út eftir stríð í átt til austurs, krakkarnir eins konar land- nemar, leikandi sér í holtum og þúf- um og byggingagrunnum eins og Einar Már Guðmundsson hefur lýst ógleymanlega með Vogahverfið sem sögusvið, en það byggðist upp tíu ár- um fyrr (Riddarar hringstigans). Og allt gekk mjög hratt fyrir sig; sextán ára var ég eitt sumar í byggingar- vinnu í Breiðholti og horfði beinlínis á blokkirnar spretta upp – með tals- verðum ugg vegna lofthræðslunnar. Framan af voru bara grunnskólar í Breiðholti en árið 1975 var stofnaður fyrsti fjölbrautaskóli landsins og fylltist fljótt af nemendum. Fjórum árum síðar mynda nokkrir ungir strákar í FB með sér skáldahópinn Medúsu og taka upp merki súrreal- ismans, hreyfingar sem hafði lognast út af í stofnlandinu Frakklandi tíu ár- um fyrr eftir hálfrar aldar starf. Mest voru þeir sjö í hópnum, þar af fjórir sem bjuggu í tveim íbúðum í blokk í Asparfelli, og þar hittust menn nokkrum sinnum í viku til að byrja með. En smám saman eignaðist hóp- urinn mikið tengslanet og áhrifin urðu miklu meiri en ætla mátti af framleiðninni. Medúsuhópurinn gaf út bækur og kver og tímarit og stóð fyrir listsýn- ingum og ýmsum uppákomum; með- al liðsmanna hans var skáldið Sjón sem nú er þýddur um víða veröld, rit- höfundurinn og tónlistarmaðurinn Þór Eldon sem síðar varð þekktur sem gítarleikari Sykurmolanna og hönnuðurinn og menningarfræðing- urinn Ólafur J. Engilbertsson; hóp- urinn var stofnaður 30. nóvember 1979 með útgáfu bókarinnar Birgitta – hleruð samtöl eftir Sjón. Hann var þá sautján ára og þetta var þriðja verkið hans. Svo gerðu menn það sem alltaf hefur verið gert í skáldahópum: lásu hver fyrir annan, rýndu í bækur í smíðum og pældu saman í lykilritum súrrealisma og dadaisma. Þeir stofn- uðu tímarit á níunda áratugnum sem hétu „Hinn súrrealíski uppskurður“ og „Geltandi vatn“ en af báðum kom bara út eitt tölublað. Í því síðar- nefnda sagði: „Geltandi vatn er gefið út af Medúsu og er málsvari og hljóð- nemi ástríðna okkar. Héðan munum við mölva allt sem reynir að hindra okkur í því að eiga stefnumót við lífið. Uppreisn höfuðskepnanna getur ekki beðið lengur. Við verðum að varpa öllu frá okkur svo við getum óheft af siðalögmálum lögreglu og presta leitað nýrra leiða til að lifa …“. Medúsa stóð fyrir upplestrum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og fleiri skólum sem mátti eins kalla gjörninga og hétu nöfnum eins og „Góðir hermenn klára af disknum sínum“ og sömdu kjörorð á borð við „Logandi fótspor prests á barmi mínum“. Svo voru þeir saman í hljómsveit sem hét Fan Houtens kókó, en nafn þessa hollenska kakó- framleiðanda var sótt í ljóð rúss- neska skáldsins Majakovskís, Ský í buxum, þar sem dauðadæmdum fanga er lofað frelsi ef hann auglýsi Van Houtens kakó á aftökupallinum. Um skamman tíma rak Medúsu- hópurinn gallerí niðrí bæ sem hét Skruggubúð og hélt þar t.d. sýningu á alþjóðlegum guðlastsgripum undir nafninu „Við étum ekki þetta brauð“, til andófs við kirkjulistasýningu sama ár (1983). Medúsa reyndi líka fyrir sér í al- þjóðlegu samstarfi með skoðana- bræðrum á Norðurlöndum og í Eng- landi og þeir Sjón, Þór og Ólafur fóru saman til Parísar og heimsóttu Elisu, ekkju frægasta súrrealista allra tíma, André Breton, sem sextíu ár- um fyrr hafði samið stefnuskrá súr- realismans. Hópurinn vann með ís- lenska myndlistarmanninum og súrrealistanum Alfreð Flóka og svo yngra fólki úr frjóu tónlistarumhverfi Reykjavíkur þessara ára, eins og Margréti Örnólfsdóttur og söngkon- unni Björk Guðmundsdóttur sem þeir tengdust líka í gegnum hljómsveitina Kukl (1983). Medúsuhópurinn var lagður niður 1986 en margir meðlimanna tóku þátt í stofnun útgáfufélagsins Smekkleysu það ár og í framhaldi af því varð hljómsveitin Sykurmolarnir til, undir kjörorðinu „Heimsyfirráð eða dauði!“; íslenskum góðborgurum til mikillar furðu fóru þau nær hinu fyrrnefnda en hinu síðarnefnda. Eftir þetta átti Medúsu- og Smekkleysufólkið hvert sinn feril, en vann saman öðru hverju eins og við kvikmynd Lars von Trier, Dancer in the Dark (2000), þar sem Björk lék annað aðalhlutverkið og Sjón samdi söngtextana ásamt leik- stjóranum, og átti reyndar eftir að semja marga texta fyrir Björk. Sjón hefur verið afkastamikill höfundur, skrifað bæði skáldsögur, smásögur, leikrit, ljóð, kvikmyndahandrit og ýmsa texta og hlaut bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs árið 2005 fyrir skáldsöguna Skugga-Baldur og Ís- lensku bókmenntaverðlaunin 2013 fyrir Mánastein. Sögur Sjóns (listamannsnafn Sig- urjóns B. Sigurðssonar) hafa færst nær hefðbundinni frásagnarlist og hann er orðinn virðulegur forseti ís- lenska PEN-klúbbsins og ekki sá flippaði drengur sem birtist hjá okkur í bókaforlagi Máls og menningar tutt- ugu og fjögurra ára, þá þegar höf- undur átta bóka sem við gáfum út í safnritinu Drengurinn með röntgen- augun. En óvæntar tengingar súrreal- ismans, alþjóðleg skírskotun hans og víraður húmor dadaismans er aldrei langt undan. Og í miðju sagna hans er iðulega utangarðsmaður, ekki hin dæmigerða aðalpersóna íslenskrar skáldsagnagerðar: vangefin stúlka í íslenskri nítjándu aldar sveit í Skugga-Baldri, ungur hommi með bíódellu í smáborginni Reykjavík árið 1918 í Mánasteini, nýnasisti á árum kalda stríðsins í sögunni Korngult hár, grá augu, til að nefna dæmi. En af hverju endurfæðist súrreal- isminn í reykvísku úthverfi árið 1979? Kannski af því þá fyrst er að verða eitthvað til á Íslandi sem kalla má fjöldamenningarsamfélag. Reykjavík er að verða borg, ekki ofvaxið þorp, og ungt fólk sem vildi tjá sig í skáldskap leitaði óvæntra tenginga, dónalegrar uppreisnar, alþjóðlegrar skírskot- unar, viðmið þess var ekki gamla ís- lenska landbúnaðarsamfélagið. Helsta viðfangsefni íslenskra bókmennta á tuttugustu öld hafði verið breyting samfélagsins úr sveit í borg, eiginlega dæmigert nítjándu aldar þema í evr- ópskum bókmenntum, en þessir krakkar í Efra-Breiðholti þekktu enga sveit og hæddust bara að slíkum viðfangsefnum, eða eins og einn þeirra, Matthías S. Magnússon, orðaði það í viðtali við skólablaðið: „Á upp- vaxtarárum mínum lá ég daginn út við bunulæki og lygnar fjallalindir og mér svall móður yfir tísti smáfugla.“ Þessi umbreyting var auðvitað ekki bara í skáldskap, hennar sá ekki síður stað í tónlistarlífi borgarinnar: Poppið dó, pönkið kom og nýbylgjan reis eins og er ógleymanlega dokúmenterað í myndinni Rokk í Reykjavík (Friðrik Þór Friðriksson, 1982). Enn er þróunin í Efra-Breiðholti á öðrum stað en annars á Íslandi, fjöl- menning hefur komið í stað fjölda- menningar. Þriðjungur af íbúum hverfisins eru útlendingar; lang- stærsti hlutinn Pólverjar sem hafa komið til Íslands að vinna og halda hér gangandi mestallri byggingarvinnu og fiskverkun auk þjónustustarfa. Í Fellaskóla, einum af grunnskólum hverfisins, koma þrír fjórðu allra barna frá heimilum þar sem íslenska er ekki móðurmálið. Hver veit nema næsti kröftugi listahópur komi þaðan, með allt aðra sýn og annars konar tjáningarþörf en Íslendingar eru ann- ars vanir? (Tilvísunum er sleppt.) Súrrealískur uppskurður í Breiðholti Bókarkafli Í bókinni Sagnalandið fara Hall- dór Guðmundsson og Dagur Gunnarsson hringferð um landið og koma við á stöðum sem tengjast höfundum og bókmenntaverkum, þjóðsögum og atburð- um úr Íslandssögunni. Ljósmynd/Dagur Gunnarsson Uppskurður Á áttunda áratugnum mynduðu nokkrir ungir strákar í Breiðholti með sér skáldahópinn Medúsu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.