Morgunblaðið - 09.08.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 09.08.2021, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 96% Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Við þrjú hittumst í kaffibolla og ræddum hvað okkur langaði að gera og duttum svo niður á konsept. Það kom upp þessi hugmynd að flytja dægurlög eftir íslenska karlmenn eða sem íslenskir karlmenn hafa flutt og gert vinsæl,“ segir söng- konan Kristjana Stefánsdóttir, sem hefur haldið tónleika ásamt gítar- leikaranum Ómari Guðjónssyni og kontrabassaleikaranum Þorgrími Jónssyni víðsvegar um landið í sum- ar. „Allir lögðu eitthvað í púkkið og svo hittumst við vikulega í tvo mán- uði og mátuðum alls konar lög. Allir komu með tillögur og svo enduðum við með sextán laga lista með lögum sem við erum búin að halda átta tón- leika með.“ Þrennir síðustu tónleikar sumars- ins eru fyrirhugaðir í þessari viku; miðvikudaginn 11. ágúst kl. 21 í Út- hlíðarkirkju í Biskupstungum; fimmtudaginn 12. ágúst kl. 21 í Ey- vindartungu, Laugarvatni og loks sunnudaginn 15. ágúst kl. 15 í Skyr- gerðinni í Hveragerði. Þessir loka- tónleikar verða hluti af bæjarhátíð- inni Blómstrandi dögum. „Eitthvað svo dásamleg“ Þríeykið flytur útsetningar á lög- um frá Bubba Morthens, Magnúsi Eiríkssyni, Björgvini Halldórs, KK, Stuðmönnum, Ragga Bjarna, Þóri Baldurs, Páli Óskari og Gunnari Þórðar. „Þetta eru lög sem við ólumst upp með og þykir vænt um en við erum að reyna að finna einhvern nýjan vinkil á þau. Við höfum aðeins verið að vinna með spuna. Þetta verður svolítið djassskotið en ekkert mikið. Sum lögin eru bara eins og þau koma beint af kúnni því þau eru bara eitthvað svo dásamleg.“ Kristjana syngur þessi karlalög og færir þau þar með að einhverju leyti í nýjan búning. „Ég er samt ekki að breyta kyni eða neinu. Ég syng þetta bara eins og þeir, sem er mjög skemmtilegt. Þetta skiptir í rauninni ekki máli lengur,“ segir Kristjana. Lögin megi alveg vera svolítið hinsegin. Um miðjan júlí komu þau víða við; á Höfn í Horna- firði, Tehúsinu Egilsstöðum, Vopna- firði, Félagsheimilinu Sæborg í Hrísey, Hlöðunni Litla-Garði á Akureyri, Englendingavík í Borg- arnesi, í Seyðisfjarðarkirkju og í Sandgerði. Ferðalagið gekk að sögn Kristjönu afar vel þótt dagskráin hafi verið þétt. „Við gerðum þetta að pínu fjöl- skylduferð í leiðinni. Strákarnir tóku konur og börn með og við vorum á tveimur bílum og gistum stundum hjá vinum og vandamönnum. Við fengum til dæmis stórkostlegar mót- tökur úti í Hrísey.“ Þar tóku á móti þeim þau Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og Helga Snæbjörnsdóttir, sem þekkja Þor- grím bassaleikara og konuna hans. „Við gistum hjá þeim og það var mögnuð upplifun. Ætli það hafi ekki verið mögnuðustu tónleikar ferð- arinnar. Það var eitthvað svo mikill galdur í þessu pínulitla félagsheimili sem þau eiga þarna sem heitir Sæ- borg. Það var rosalega gaman,“ seg- ir söngkonan kampakát. „Öll ferðin gekk ofsalega vel. Við stoppuðum reglulega til að hella upp á kaffi með prímus þannig að við gerðum þetta að pínu ferðalagi í leið- inni og þetta var skipulagt þannig að við gátum keyrt þennan hring. Byrj- uðum fyrir austan og keyrðum svo norður og enduðum í Englendinga- vík hjá henni Möggu Rósu.“ Gæti orðið efni í plötu Kristjana segir að nú bíði þau spennt hvort halda megi tónleikana með óbreyttu sniði. „Maður krossar bara fingur að það megi að minnsta kosti halda smærri tónleika með færra fólki. Við ætlum að reyna að halda okkar striki því prógrammið er svo skemmtilegt. Við erum jafn- vel búin að vera að gæla við þá hug- mynd að hljóðrita þetta. Þetta gæti orðið efni í plötu.“ Mest eru það Íslendingar sem sækja tónleika en þó segir Kristjana að það slæðist inn eitthvað af erlend- um ferðamönnum. „Til dæmis á Seyðisfirði komu margir ferðamenn sem voru að fara í bátinn eða að koma úr honum.“ Þau eru heppin að hafa getað haldið alla tónleikana hingað til án allra takmarkana. „Það hefur verið algjör upplifun og eitthvað svo gott að syngja fyrir fólk aftur.“ Þau Kristjana og Svavar Knútur hafa verið á tónleikaflakki á sumrin síðustu 13 ár en ákváðu að taka sér hlé frá því í sumar. „Þetta var lítið verkefni sem vatt svona upp á sig. Við ákváðum að taka okkur pásu í sumar. Mig langaði að syngja djass aftur og hann er núna farinn til Þýskalands í sex vikur að túra. Svo þetta var kærkomið en ég saknaði þess allan tímann. Við erum að gæla við að blása til tónleika, ef covid leyf- ir, einhvern tímann í vetur hér í Reykjavík,“ segir hún. „Ég vona bara að við náum að lifa með þessari veiru og finna ein- hverjar lausnir sem virka þannig að sviðslistafólk þurfi ekki að pakka í land einu sinni enn. Ég er til dæmis með raddþjálfun í Bubba-söng- leiknum 9 líf og ég hef verið kölluð inn fjórum sinnum og alltaf skellt í lás aftur.“ Söngkona Kristjana Stefánsdóttir syngur lög íslenskra karla. „Lög sem okkur þykir vænt um“ - Tónleikaferðalag Kristjönu Stefánsdóttur, Ómars Guðjónssonar og Þorgríms Jónssonar Hópur „Við gerðum þetta að pínu fjölskylduferð í leiðinni.“ Þríeyki Kristjana, Þorgrímur og Ómar á göngu í Hrísey.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.