Morgunblaðið - 10.09.2021, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021
Bjarni Benediktsson á Akureyri
Fjölskylduhátíð
kl. 12:00
Glerárgötu 28
Opinn fundur
kl. 14:00
Menningarhúsinu Hofi
Á morgun, laugardag
Sjá nánar á xd.is
DAGMÁL
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er
vígreifur í ítarlegu formannaviðtali
við Dagmál, streymi Morgunblaðs-
ins, sem birt er í dag. Hann hefur
ekki áhyggjur af skoðanakönnunum
og segir að fylgi flokksins aukist eftir
því sem líður á kosningabaráttuna og
hin eiginlegu stjórnmál komist í um-
ræðuna.
„Það er alltaf gaman að könn-
unum, en aðalatriðið er það, sem
maður lærði tiltölulega snemma í
pólitík, að það þýðir ekki að reyna að
elta kannanir. Maður þarf að hafa
stefnu, hafa trú á henni og halda
beint áfram, óháð könnunum, í stað
þess að sveiflast með þeim. Þegar til
kastanna kemur kann fólk að meta
stefnufestu.“
Samt sem áður blasir við að þið
höfðið mun síður til kjósenda í höf-
uðborginni en úti á landi.
Rauða Reykjavík
„Við erum þrátt fyrir allt með
ágætan stuðning í borginni, þótt við
vildum sjá meiri stuðning þar. Það
breytir ekki því að á höfuðborgar-
svæðinu hefur verið ískyggileg
vinstrisveifla, menn eru farnir að tala
um Rauðu Reykjavík.
Við erum engu að síður með lausn
til þess að bregðast við þessari þróun
og hún er að styðja Miðflokkinn. Við
getum hjálpað öðrum flokkum til
þess að koma þeim á rétta braut,
finna sjálfa sig, finna það besta í sinni
stefnu og sögu. Og þetta er þegar
byrjað að gerast.“
Dæmi?
„Við sjáum t.d. Sjálfstæðisflokk og
Framsóknarflokk, þeir eru allt í einu
farnir að tala um það sem við höfum
verið að ræða í fjögur ár, skattamál,
loftslagsmál og fleira. Við getum haft
mjög góð áhrif á aðra flokka, en án
þeirra áhrifa munu þeir halda áfram
pólitískri eyðimerkurgöngu sinni í
woke eða vökulum ríkisstjórnum.“
Eruð þið þá að færa þá nær miðju
með því að vera nær kantinum?
„Nei, við erum á sama stað á miðj-
unni, en hinir hafa verið á reki til
vinstri.“
Er það samt ekki frekar dapurleg
köllun að vera að færa til aðra flokka
en sækja sér ekki fylgi sjálfur?
Nýaldarpólitík
„Ég skal bæta við þetta hjá þér,
því verkefnið er stærra en það. Verk-
efnið er líka að hjálpa samfélaginu að
sjá að skynsemishyggja er besta leið-
in og að þessi nýaldarpólitík leysir
engin mál.“
Hvað áttu við með nýaldarpólitík?
„Nýaldarpólitík er þessi nýja
vinstristefna, sem á eitthvað skylt við
gömlu vinstristefnuna en lítur samt
hjá grundvallaratriðum eins og kjör-
um vinnandi fólks. Nýaldarpólitíkin
snýst um ímynd og annað ekki. Mál
frá ríkisstjórn og pólitísk umræða
byggist núna nær eingöngu á umbúð-
um og yfirlýstum markmiðum en
ekki innihaldi og raunverulegum
áhrifum.
Þessu vil ég breyta þannig að við
fáum aftur pólitíska umræðu og kjós-
endur hafi raunverulegt val. Að það
skipti máli hvað fólk kýs.“
Nú hafið þið kynnt 10 atriða
stefnuskrá um veigamiklar breyt-
ingar, en þetta virðist ekki hafa náð í
gegn, ekki a.m.k. á sama hátt og þér
tókst 2013.
„Ég skynja raunar nokkra breyt-
ingu á því síðustu daga, einmitt af því
að fólk er loks farið að ræða um póli-
tík.“
Ekki popúlismi
Rauði þráðurinn í þessum tillögum
er hvernig þið ætlið að afhenda kjós-
endum sína eigin peninga. Er það
ekki popúlismi?
„Nei, einmitt ekki. Við erum ekki
að gefa fólki neitt sem það á ekki fyr-
ir. Við teljum að fólkið, almenningur í
landinu, sé betur til þess fallið að ráð-
stafa eigin eignum en ríkið.
Auðvitað þarf ríkið sitt til þess að
standa undir kerfinu öllu, en við höf-
um séð þá þróun undanfarin ár að
það er alltaf verið að taka meira og
meira af almenningi, báknið stækkar
og ríkið hækkar bara gjöld og
skatta, græna skatta og allt þetta
rugl.
Við leggjum því til tíu hugmyndir,
sem ganga út á tvennt: Annars vegar
að við séum öll í þessu saman, eins og
tönnlast hefur verið á, en það á líka
að eiga við þegar vel gengur. Hitt er
að þau eru framkvæmd til þess að
vera jákvæðir hvatar fyrir sam-
félagið, t.d. hvað varðar endur-
greiðslu á afgangi ríkissjóðs.“
En mun fólk muna um einhverja
þúsundkalla?
„Einhverja tugi þúsunda skulum
við vona ef allt er í lagi.“
Hvað fengi ég mikið í umslaginu?
„Eitthvað í námunda við 100.000
kr. ef ríkið er almennilega rekið. Ég
er ekki að segja að við náum því á
næsta ári, það verður ekki þannig.
En við þurfum þennan hvata til þess
að fólk sjái það bara á reikningnum
hjá sér hvernig ríkið hefur verið rek-
ið.“
Illa rekið ríki
Er ríkið illa rekið?
„Ríkið er mjög illa rekið. Það er
reyndar ágætlega statt miðað við
ýmis önnur ríki, en við gætum gert
miklu betur.“
Geturðu nefnt dæmi um slæman
rekstur hjá ríkinu?
„Það er náttúrlega verið að eyða
peningum í alls konar rugl, en tökum
dæmi af heilbrigðiskerfinu. Ég tek
undir með Birgi Jakobssyni, fyrrver-
andi landlækni og núverandi aðstoð-
armanni heilbrigðisráðherra, og
Birni Zoëga, forstjóra Karolinska
sjúkrahússins í Stokkhólmi. Þeir
benda á að það sé endalaust hægt að
auka fjárveitingar í heilbrigðiskerfið
án þess að það geri gagn, geti jafnvel
orðið til tjóns ef þú lagar ekki kerfið
sjálft.
Heilbrigðiskerfið okkar virkar
bara ekki sem skyldi. Fyrir því eru
margar ástæður; samþjöpp-
unarstefna á Landspítala er ein, and-
úð núverandi ríkisstjórnar á frjálsum
félagasamtökum og sjálfstæðri heil-
brigðisþjónustu er önnur.
Það verður að byrja á kerfisbreyt-
ingum. Ef það er bætt fjármunum
inn í gallað kerfi, þá getur það orðið
til tjóns.“
En getið náð einhverju fram um
það? Vill einhver vinna með ykkur?
„Jájá, eftir kosningar verða allir
flokkar praktískir. En til þess þurf-
um við sterka stöðu.“
Nóg komið af nýaldarstjórnmálum
- Sigmundur Davíð í viðtali - Vill raunveruleg stjórnmál fremur en yfirborðskennda nýaldarpólitík
- Heilbrigðiskerfið þarf kerfisbreytingu áður en fjárframlög eru aukin - Segir ríkið afar illa rekið
Morgunblaðið/Unnur Karen
Dagmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fer yfir stöðuna í skoðanakönnunum með blaða-
mönnunum Stefáni Einari Stefánssyni og Andrési Magnússyni fyrir upptöku formannaviðtals Dagmála í dag.
Forystufólk stjórnmálaflokkanna
mættist í pallborðsumræðu á vegum
Alþýðusambands Íslands í gær und-
ir yfirskriftinni „Það er nóg til“. Sér-
staklega voru til umfjöllunar helstu
áherslumál sem varða íslenskt
launafólk.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir
umræðurnar hafa verið málefna-
legar og tekist vel til. „Tíminn var
fljótur að líða svo við komumst nú
ekki yfir mikið en við komumst yfir
húsnæðis- og heilbrigðismálin,“ seg-
ir Drífa. Hún segir áherslu flokk-
anna vera ólíkar en einnig hafi
margir svipaðar áherslur. „Það get-
ur því verið úr vöndu að ráða,“ segir
Drífa.
Upplýstir kjósendur
„Ég vona að kjósendur og félags-
menn í aðildarfélögum ASÍ séu ein-
hverju nær hvað þeir eigi að kjósa
og hverjir munu standa vörð um þau
mál sem eru þeim næst og mark-
miðum ASÍ um aukinn jöfnuð og
bætt lífskjör,“ segir Drífa.
urdur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Umræður Forystufólk flokkanna mættist í pallborðsumræðu á vegum ASÍ.
Áherslumál launa-
fólks til umræðu
- ASÍ stóð fyrir pallborðsumræðum
2021 ALÞINGISKOSNINGAR