Morgunblaðið - 10.09.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021
30 ÁRA Sigurður er
fæddur og uppalinn á
bænum Ríp í Hegra-
nesi í Skagafirði og býr
þar enn. Sigurður er
menntaður búfræðing-
ur frá Hvanneyri og
reiðkennari frá Há-
skólanum á Hólum og
starfar á Hólum við
kennslu ásamt því að
vera í sjálfstæðum
rekstri heima fyrir og
taka að sér verkefni
sem verktaki. Sigurður
er í samfloti með for-
eldrum sínum á bæn-
um. „Við erum með um
500 fjár og svo 50
hross, enda allir stórhuga bændur hér í Skagafirði með hross.“
Sigurður keppir í hestaíþróttum og sýnir líka kynbótahross. „Ég er samt
mestmegnis að stunda frumtamningar á ungum hrossum, en ég er umsjónar-
kennari í því fagi á Hólum. Atvinnumennska mín felst því helst í kennslu,
tamningu og þjálfun hrossa.“
Það liggur því í augum uppi að hestarnir eru aðaláhugamálið eins og sönn-
um Skagfirðingi sæmir. „Síðan hef ég gríðarlegan áhuga á íþróttum og hef
bæði stundað fótbolta og körfubolta mér til gamans undanfarin ár. Maður er
kannski ekki orðinn alveg það gamall að geta kallað þetta bumbubolta. Ætli
ég eigi ekki alveg tíu góð ár í það ennþá.“
FJÖLSKYLDA Sigurður er í sambúð með Sigurlínu Erlu Magnúsdóttur, f.
11.10. 1991. Hún starfar hjá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins auk þess að
kenna fóðurfræði hrossa á hestabraut við Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki. Þau eiga börnin Þórð Braga, f. 2012; Fanndísi Völu, f.
2014, og Kristófer Elmar, f. 2020. Foreldrar Sigurðar eru hjónin Birgir Þórð-
arson, f. 7.6. 1960, og Ragnheiður Hrefna Ólafsdóttir, f. 30.4. 1963, bændur á
Ríp í Skagafirði.
Sigurður Heiðar Birgisson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Gömul deilumál gætu skotið upp
kollinum í dag. Finndu þér leið til að létta
á þér. Þú ert einstaklega góður sáttasemj-
ari.
20. apríl - 20. maí +
Naut Öllum breytingum fylgir nokkurt rót.
Það rennur upp fyrir þér ljós varðandi
gamalt leyndarmál. Lífið fer um þig mjúk-
um höndum þessi árin.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það skiptir ákaflega miklu að
hafa heildarsýn yfir það sem maður er að
gera. Mundu að samband er ekki gott ef
það er byggt á sandi.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú hefur komist á snoðir um viss-
an fróðleik sem þig langar að ræða við
aðra. Ekki gera úlfalda úr mýflugu í vissu
máli.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þér er umhugað um stöðu vissrar
manneskju í lífi þínu. Beittu öllum brögð-
um til að öðlast betri heilsu.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þótt bjartsýnin sé til staðar máttu
ekki láta hana taka svo yfir að þú gerir þér
enga raunhæfa grein fyrir stöðu þinni.
Ekki láta framkvæmdir heima sitja á hak-
anum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Sá sem fer með mannaforráð verður
umfram allt að vera sanngjarn. Góð-
mennska er það sem gildir í mannlegum
samskiptum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú getur treyst eðlisávísun
þinni varðandi peningamál og viðskipti. Ef
þig langar til að mennta þig meira skaltu
skoða möguleikana á því.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú gætir fengið óvænta gjöf í
dag eða þá að einhver gerir þér óvæntan
greiða. Vertu rólegur, þú þarft ekkert að
vita alla hluti.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er engin ástæða til þess að
leggja árar í bát þótt hlutirnir gangi ekki
vel til að byrja með. Ekki vera leikbrúða
annarra endalaust.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ert á rólegu nótunum en
kemur þó ýmsu í verk. Haltu áfram að elta
drauma þína.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Allt hefur sinn tíma svo þú skalt
ekki beita þrýstingi. Nærvera skapandi
fólks hjálpar þér að finna þína leið.
ritstjóri skólablaðsins, stóð fyrir
lista- og kappræðukvöldum og skrif-
aði ljóð og fleira. Þegar ég var búinn
með verslunarpróf eftir 4. bekk lang-
aði mig að halda áfram að læra. Ég
sagði mömmu og pabba að ég stefndi
á lærdómsdeildina ef ég næði lág-
markseinkunn. Þau studdu mig þótt
fjárhagurinn væri slæmur og ég er
þeim ævinlega þakklátur fyrir að
hafa fengið þetta tækifæri. Ég vann
með skólanum til að eiga fyrir skóla-
að reyna við Verzló og hló mikið.
„Þessi viðbrögð urðu þó til þess að ég
spýtti í lófana og náði inntökupróf-
inu.“
Á þessum tíma var Verzlunarskól-
inn sex ár og síðustu tvö árin svoköll-
uð lærdómsdeild. Eftir fyrstu fjögur
árin lauk maður verslunarprófi og
margir fóru þá út á vinnumarkaðinn.
Ég var ennþá „enfant terrible“ á
þessum árum og setti meira púður í
félagslífið en skólabækurnar. Ég var
G
uðjón Baldursson fædd-
ist á fæðingardeildinni í
Reykjavík og ólst upp í
Smáíbúðahverfinu.
„Þetta var nánast í út-
jaðri bæjarins og var að byggjast
upp. Það vantaði lóðir og Reykja-
víkurborg úthlutaði ungu fólki lóðir,
gegn því að það byggði húsin sjálft
eftir ákveðnum teikningum. For-
eldrar mínir höfðu verið á leigumark-
aði og bjuggu við þröngan kost og
eignuðust þrjú af okkur systkinunum
á fjórum árum. Þau fengu úthlutað
lóð í Heiðargerði 45 og byrjuðu bara
að grafa grunn og slá upp fyrir hús-
inu og tókst að koma því upp fyrir
eigin dugnað og með hjálp og skipti-
vinnu. Húsið stendur þarna enn og er
í fínasta standi að því ég best veit.“
Guðjón segir að það hafi verið mik-
ið líf og fjör í Smáíbúðarhverfinu og
allt morandi í krökkum og skólastof-
ur alls staðar stútfullar, en hann var í
Breiðagerðisskóla. Móðir hans var
heimavinnandi og faðir hans var pí-
anóleikari og vann mest á kvöldin og
á nóttunni. „Þegar ég var 9 ára veikt-
ist pabbi og innkoman hrundi. For-
eldrar mínur gátu ekki haldið húsinu
og urðu að minnka við sig. Þau
keyptu íbúð í Safamýrinni og þá var
fjórða barnið nýlega fætt. Þarna
bjuggum við í nokkur ár þar til það
þurfti að selja þá íbúð líka og kaupa
minni en þá var starfsgeta pabba
orðin mjög lítil.“ Móðir hans vann
mikið og var oft að vinna allan daginn
í búð og svo skúraði hún á kvöldin.
Síðan var ábyrgð heimilisins líka á
hennar herðum. „Pabbi var mikið
ljúfmenni og góðum gáfum gæddur,
en hann var bara ekki maður til að
sinna heimili af heilsufarsástæðum.“
Guðjón fór í gagnfræðanámið í
Réttarholtsskólanum. „Skólinn gat
verið frá 2-4 ár eftir því hvort maður
hætti eftir 2. bekk, tók landspróf,
verslunarpróf eða fór í verknám. Ég
var ekki upp á mitt besta á þessum
árum og var ódæll, sinnti náminu illa
og var iðulega rekinn úr tímum. Í lok
2. bekkjar var ég í hálfgerðum tossa-
bekk. Undir vorið spurði umsjón-
arkennarinn hvað við ætluðum hvert
og eitt að gera um haustið. Ég sagð-
ist ætla í Verzlunarskólann. Honum
fannst það fyndið að Guðjón ætlaði
bókunum og strætó, bæði í verslun-
um og við uppskipun við höfnina.“
En það var í lærdómsdeildinni sem
Guðjón sýndi hvað í honum bjó. „Ég
ákvað að leggja mig í fyrsta skipti
fram við námið, minnkaði félagslífið
og dúxaði í máladeildinni vorið 1972.
Foreldrarnir voru stoltir af mér.“
Guðjón hafði mikinn áhuga á bók-
menntum og tónlist. „Ég spilaði að-
eins á gítar og píanó, en var alls ekki
nógu góður til að fara í tónlistar-
skóla. Ég fór í líffræði í háskólanum.“
Á öðru misseri voru námsgreinar
sem Guðjón var lítið spenntur fyrir
og þegar hann fékk þykka og níð-
þunga skruddu á þýsku sem hét Le-
hrbuch der Botanik var honum öllum
lokið. „Við vorum þrír félagarnir sem
voru sama sinnis og við ákváðum
bara að skella okkur í læknisfræðina
og ég byrjaði í henni haustið 1973.“ Í
upphafi námsins hafði Guðjón þá
hugmynd að hann gæti kannski verið
í hálfu starfi sem læknir og notað
hinn helminginn til að grúska í bók-
menntum og tónlist. Það varð aldrei.
Guðjón fór í sérnám í krabba-
meinslækningum til Svíþjóðar og bjó
í Lundi í fimm ár með þáverandi
konu sinni og sonum þeirra tveim.
Hann kom heim árið 1985 og fór að
vinna á krabbameinslækningadeild-
inni á Landspítalanum. „Það var
mikið álag á deildinni og öll aðstaða
ekki góð. Við læknarnir fengum lít-
inn stuðning nema hver frá öðrum
þegar kom að erfiðum málum.“ Eftir
tólf ár á deildinni tók Guðjón sér
launalaust leyfi í ár og fór að vinna á
öðrum deildum. „Ég var á geðdeild-
inni í hálft ár og fór svo yfir á slysa-
deildina þar sem ég vann í yfir ára-
tug. Eftir að hafa unnið á fleiri
deildum fékk ég svo réttindi sem sér-
fræðingur í í heimilislækningum árið
2005. Ég hef unnið töluvert við
heilsugæslu líka síðustu árin. Síðustu
tíu árin hefur Guðjón unnið sjálf-
stætt við mat á örorku fyrir ýmsa að-
ila fyrir utan eitt ár sem fjölskyldan
fór til Nýja-Sjálands þar sem Guðjón
vann á bráðadeild í Christchurch.
„Það var mikið ævintýri og við ferð-
uðumst víða þetta ár.“
Guðjón hefur samið ljóð, greinar
og sögur. „Núna hef ég nýlega lokið
við að semja 14 smásögur sem eru til-
Guðjón Baldursson læknir – 70 ára
Hjónin Hér eru Guðjón og Bryndís í Egyptalandi árið 2018.
Dreymdi um tónlist og bókagrúsk
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Dúx í Versló Guðjón dúxaði í máladeild Versló 1972 og er hér með foreldrunum.
Til hamingju með daginn