Morgunblaðið - 10.09.2021, Síða 19

Morgunblaðið - 10.09.2021, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021 Árið 1984 urðu skólastjóra- skipti í Flataskóla í Garðabæ. Kona sótti um starfið og fékk en á þessum tíma voru karlar venju- lega skólastjórar. Af hverju kona? Læknisfrúin, móðir þriggja drengja, fyrrver- andi ballerína og flugfreyja, kenn- ari fyrir löngu. Mín gæfa var að vera kennari við skólann undir hennar stjórn og fékk að kynnast henni sem varð mér ómetanlegur vinur. Í ört vaxandi bæjarfélagi fjölg- aði börnunum í skólanum og skólabyggingin varð brátt of lítill svo byggðar voru álmur í allar átt- ir. Flataskóli skapaði sér góðan orðstír sem horft var til. Sigrún var fullfær um starfið og sýndi það í verki. Hún stjórnaði skól- anum af dugnaði, allir undir mikl- um aga, börn og fullorðnir. Sigrún sagði að börnin væru hin upp- rennandi kynslóð, það mikilvæg- asta sem við ættum. Framtíð lands og þjóðar byggðist á því að við gæfum þeim gott veganesti út í lífið og veittum þeim uppeldi og menntun. Á Þorláksmessu síðastliðinni kom ég óvænt í heimsókn til Sig- rúnar, hún tók glöð á móti mér, var með pizzupartí fyrir barna- börnin, engin skata þar og stolt sýndi hún mér fallega hópinn sinn, nema einn sem varð að vinna sagði hún og kurteis brostu þau við förukonunni sem kom inn úr snjónum. Þegar ég talaði við Sigrúnu síð- ast var hún í Kaupmannahöfn. Það var gott að heyra í henni, í haust ætluðum við í ferðalag aust- ur fyrir fjall að heimsækja vinina okkar þar. Sigrún fæddist að hausti, þegar litir náttúrunnar eru sterkastir, sumri tekið að halla, opin og já- kvæð en ákveðin, yfirveguð, sátt- fús og bjó yfir sterkri réttlætis- kennd, listræn og menningarlega sinnuð, þurfti að vega og meta hvert mál áður en niðurstaða var fundin. Að hausti yfirgaf Sigrún svo þessa jarðvist. Á kveðjustund koma ljúfar minningar í hugann og þakkir fyr- ir liðna tíð, samstarf og vináttu. Sigrún unni fjölskyldu sinni, sonum, tengdadætrum og barna- börnum, heitt óendanlega stolt af verkum þeirra. Ég sendi öllum þeim sem þótti vænt um Sigrúnu einlægar sam- úðarkveðjur. Anna. Okkur setti hljóð er við fengum þá sorgarfrétt að einn besti vinur okkar Sigrún Gísladóttir hefði á 75. aldursári greinst með ólækn- andi illkynja sjúkdóm sem nú hef- ur á tæpum tveimur árum leitt til andláts hennar. Í þessu sjúk- dómsferli hefur hún sýnt aðdáun- arvert æðruleysi og andlegt jafn- vægi sem í reynd hefur einkennt hennar lífsferil allan. Það er ekki unnt að skrifa minningarorð um Sigrúnu án þess að minnast á mann hennar Guð- jón Magnússon enda voru fyrstu kynni okkar af Sigrúnu í gegnum Guðjón sem var samstúdent Kristjáns frá Menntaskólanum í Reykjavík 1964 og hófu þeir síðan samtímis læknanám við Háskóla Íslands. Tengsl fjölskyldna okkar efldust þó fyrst af alvöru á sér- námsárunum í Stokkhólmi eftir 1974 og efldust enn frekar við síð- ari samvinnu þegar Guðjón starf- aði sem rektor við Norræna heil- brigðisháskólann í Gautaborg og enn síðar sem framkvæmdastjóri við Evrópudeild WHO í Kaup- mannahöfn. Vegna starfa sinna fyrir WHO þurfti Guðjón að ferðast mikið innan og utan Evrópu og nefndi Kristján eitt sinn við hann að öll þessi ferðalög, vinnufundir og skýrslugerðir hlytu að taka á en hann gerði lítið úr enda sagðist hann nú hafa Sigrúnu sína sér við hlið sem væri ólíkt betra en þegar hann var einn í fjarbúð í Gauta- borg. Það var því greinilegt að Guðjón mat konu sína mikils og bar ekki skugga á samband þeirra öll þau ár sem við áttum samleið með þeim. Bæði hjónin voru vel skipulögð í öllu starfi, vinnusöm, fróð um málefni líðandi stundar, gestrisin, trygg vinum sínum og minnumst við hjónin margra samverustunda á heimili þeirra í Garðabæ þar sem Sigrún stjórnaði samkvæm- inu af myndugleika. Sigrúnu var annt um menntun og framtíð sona þeirra Guðjóns, þeirra Arnars Þórs og tvíburanna Heiðars og Halldórs Fannars, en þeir eru á líkum aldri og Vilborg dóttir okk- ar. Þótt velferð sona og fjöl- skyldna þeirra væru þeim hug- leikin voru þau þó ávallt um leið áhugasöm um hag dóttur okkar Vilborgar og fjölskyldu hennar. Eftir að þau hjónin hættu störfum bjuggu þau á víxl í Garða- bæ og Kaupmannahöfn þaðan sem Guðjón fór reglulega á ýmsa vinnufundi utan Danmerkur og Sigrún stundaði ýmis fræðistörf um sögu Kaupmannahafnar og gaf Íslendingum leiðsögn um sama efni. Það var því mikið áfall þegar Guðjón varð bráðkvaddur 65 ára að aldri á heimili þeirra í Kaupmannahöfn. Þótt Sigrún hafi á þeim tíma sýnt mikið æðruleysi þá var hún greinilega lengi að ná líkamlegu og andlegu jafnvægi eftir þetta áfall. Jákvæður þáttur í því bataferli hefur vafalaust ver- ið endurvakin kynni við fyrrum skólafélaga hennar, Júlíus Sæ- berg Ólafsson, sem verið hefur samferðarmaður hennar síðustu árin og sannast þar að maður er manns gaman. Með Sigrúnu er farinn enn einn vinur okkar hjóna, sárt saknað af fjölskyldu, vinum og samferða- mönnum. Hvíl í friði kæra vin- kona. Sigrún Ósk Ingadóttir og Kristján Sigurðsson. Sigrún er mér minnisstæð þar sem hún stendur í hópi barna og kennara og stjórnar fjöldasöng, brosandi og glöð. Þetta gerist þrisvar í viku, nokkrir bekkir í einu og krakkarnir leggja sig fram. Söngurinn var eitt af henn- ar áhugamálum. Sigrún var þarna í essinu sínu. Hún var reyndar oftast í essinu sínu og gekk að hverju viðfangs- efni af brennandi áhuga. Þegar við kynntumst fyrst var Sigrún formaður foreldrafélags Barnaskóla Garðahrepps, síðar Flataskóla, og ég bekkjarkennari. Báðar áttum við þá börn í skól- anum. Síðar áttum við eftir eftir að kynnast vel og eiga nána sam- vinnu. Árið 1986, eftir áratuga- starf við bekkjarkennslu og sér- kennslu, tók ég við starfi aðstoðarskólastjóra við hlið Sig- rúnar sem hafði þá verið skóla- stjóri í tvö ár. Þetta var tími mikilla sam- félagsbreytinga og breyttrar hug- myndafræði og gilti það einnig um skólamálin. Skóladagur grunnskólabarna hafði nú verið lengdur. Í stað þess að skólar væru tvísetnir, einn bekkur fyrir hádegi og annar eftir hádegi í sömu skólastofunni, og jafnvel þrísetnir, einn bekkur byrjaði kl. 8 að morgni, annar kl. 11 og sá þriðji kl. 14, var nú komin krafa um einsetinn skóla og lengdan skóladag, sem kallaði á stækkun húsnæðis og var byggt við skól- ann nokkrum sinnum. Sigrún lagði mikla áherslu á viðhald hús- næðis og góð umgengni og reglu- semi var höfð í fyrirrúmi alla tíð. Ný hugmyndafræði þessa tíma kallaði á bætta aðlögun skólans að þörfum ólíkra einstaklinga og „blöndun“ í bekki í stað „röðunar samkvæmt venju fyrri tíma. Þessar breytingar kölluðu á ný vinnubrögð og símenntun kenn- ara. Í því sambandi má nefna góð- an stuðning yfirvalda hins nýja stækkandi Garðabæjar. Ýmsar nýjar kröfur voru gerð- ar til grunnskólans á þessum tíma, má nefna kröfu um gæslu og tómstundastarf eftir skóladag fyrir nemendur yngri bekkja. Einnig má nefna að skólunum var nú ætlað uppfræða nemendur um ýmsa þætti lífsins auk lögbundins námsefnis. Það var í mörg horn að líta fyrir skólastjórnendur. Mikil var gæfa skólans að hafa frábæru starfsfólki á að skipa yfir árin bæði hvað varðar kennara og ann- að starfsfólk. Ég tel að Sigrún Gísladóttir hafi sem skólastjóri stýrt stærsta fyrirtæki Garðabæjar um langt skeið, það voru allt að 500-600 nemendur og tugir starfsmanna. Hún var ákveðin, vinnusöm og hafði ríkan metnað fyrir sinn skóla. Í lok langs vinnudags fór Sig- rún gjarnan í sund. Hún sagði sjálf að þá byrjaði annar dagur, og hafði hún þá skipulagt nýja dagskrá fyrir þann dag. Það gat verið fundur, leikhús, danssýning, tónleikar, saumaklúbbur eða gestaboð. Sigrún var félagslynd og kunni að njóta lífsins. Hún var falleg kona, létt í hreyfingum og ávallt glæsilega klædd. Hún var áhuga- söm um lífið, fjölskylduna og var tryggur vinur. Ég minnist sérstaklega góðra og gefandi stunda með Sigrúnu á sumrin, þegar við sátum saman og ræddum skipulagningu kom- andi skólaárs, stundatöflugerð og nýjar hugmyndir, en síðast en ekki síst áttum við oft gott spjall um lífið og tilveruna. Ég kveð Sigrúnu með þakklæti og sendi ástvinum hennar hug- heilar samúðarkveðjur. Þorbjörg Þóroddsdóttir. Vinkona mín Sigrún Gísladótt- ir er látin. Ég finn fyrir miklum söknuði en um leið þakklæti. Hún kenndi mér margt og var mér góð fyrirmynd í svo mörgu þótt við værum ólíkar á ýmsan hátt. Hún var manneskja hinna góðu tengsla, félagslynd, hreinskiptin, samviskusöm og traust. Þá var hún heimskona, fædd sem aristó- krat og steig fram af reisn og virðuleika enda fyrrverandi ball- erína. Hún lét sig menn og mál- efni varða og hafði óþrjótandi áhuga á þjóðfélagslegum umbót- um. Kynni okkar Sigrúnar hófust í Flataskóla fyrir tæpum þrjátíu árum þegar ég gekk inn á skrif- stofuna hennar og kynnti mig sem nýja skólahjúkrunarfræðinginn. Virðuleg í fasi gekk hún sam- viskusamlega með mér um skól- ann, sagði frá skólastarfinu og sinni sýn á skólastarfið. Í lok þessarar yfirferðar tilkynnti hún mér að hún óskaði eftir að við sameiginlega kenndum stúlkum kynfræðslu í 5. bekk. „Já, einmitt það, sagði ég,“ og verð að viður- kenna að ég hlakkaði ekki beint til. Þessi samkennsla okkar lagði grunn að góðri vináttu okkar alla tíð og ég hef til gamans vitnað til þess í gegnum tíðina að ótíma- bærar þunganir ungra stúlkna í Garðabæ hafi verið óþekktar í okkar árgangi. Það leyndi sér ekki að Sigrún var góður stjórnandi. Hún var skólastjóri með stóru S-i. Hún hafði mikinn metnað fyrir hönd Flataskóla, hafði reglu á hlutun- um, hélt uppi ströngum aga og lét sig allt varða; jafnt nemendur sem starfsfólk. Framtíðarsýnin skýr og krafa um árangur. Ég var ekki búin að hafa langa viðdvöl í Flataskóla þegar Sigrún kom að máli við mig og sagðist ætla að hætta í bæjarstjórn. Og hún vildi að ég tæki við af sér. „Já, einmitt það,“ sagði ég aftur. Henni var ekki sama hver tæki sætið hennar og gat ómögulega vikið af velli án þess að láta sig varða hver tæki við. Þetta lýsir henni vel - stjórnandinn sem þurfti að hafa puttana í öllu. Ég er henni þakklát fyrir þessa hvatn- ingu, en á þessum tíma höguðu ör- lögin því svo til að ég var orðin einstæð móðir með tvö börn og gat svo sannarlega hugsað mér að beita áhrifum mínum til aukins skilnings yfirvalda á þörfum ein- stæðra foreldra. Síðan má segja að Sigrún hafi verið mér persónu- lega eins og stóra systir sem leið- beindi og hvatti til dáða. Sigrún var víðförul, ferðaðist til fjarlægra landa og bjó lang- dvölum í ýmsum stórborgum Evrópu. Ég á góðar minningar um ferð okkar rótarýfélaga til Edinborgar þar sem Sigrún var auðvitað á algjörum heimavelli. Við vorum saman í herbergi og þrátt fyrir aldursmun vorum við eins og menntaskólastúlkur; fengum okkur viskítár, spjölluð- um langt fram á nótt og hlógum mikið. Þær eru einnig góðar minningarnar frá ferð klúbbsins á slóðir Vestur-Íslendinga í Vestur- heimi. Þaðan minnist ég samvista við Sigrúnu og Guðjón með ein- stakri hlýju. Sigrún tók virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Fyrir rétt um þremur árum var hún á lista flokksins fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar og af því til- efni komst hún svo að orði: „Tak- mark okkar á að vera að bæta lífi við árin hjá þeim sem eldri eru. Til að það takist verður að hvetja og gefa þeim fjölbreytt tækifæri til hreyfingar og útiveru.“ Þetta var hennar hugsjón en líka henn- ar eigin lífsstíll, enda var hún fastagestur í sundlauginni, á golf- vellinum og í leikfiminni hjá Birnu. Þessi lífsstíll hefði átt að tryggja henni langlífi sem því miður brást. Guð blessi minningu hennar. Ingibjörg Hauksdóttir. Með sorg í hjarta kveðjum við hjónin okkar góðu vinkonu Sig- rúnu Gísladóttur. Tæplega tveggja ára barátta hennar við ill- vígan sjúkdóm er töpuð. Við kynntumst Sigrúnu í gegn- um kærasta hennar og síðar eig- inmann, Guðjón Magnússon. Leifur og Guðjón kynntust fyr- ir u.þ.b. 60 árum á knattspyrnu- æfingu. Leiðir þeirra lágu síðar m.a. saman í MR þar sem Guðjón sá fyrst sína ljóshærðu og litfríðu Sigrúnu Gísladóttur ballerínu í 3. bekk. Það varð ekki aftur snúið, þau urðu óaðskiljanleg. Það voru heillaspor og úr varð mikill og góður vinskapur okkar á milli, sem aldrei bar skugga á. Við fórum í ferðalög innan- lands, skíðaferðir í Ölpunum og ég, Sigrún og Guðjón fórum í golf- skólann á Costa Ballena á Spáni til að geta spilað golf með Leifi, sem hafði mikið forskot á okkur. En Guðjóni entist ekki aldur til að fá notið þeirrar kennslu því þessi hrausti íþróttamaður sem hafði aldrei kennt sér meins varð bráð- kvaddur þetta sama ár, í október 2009. Eftir þetta mikla áfall þétt- ist enn vinskapur okkar Sigrúnar. Við spiluðum mikið golf saman, fórum í bridgeskóla og sóttum saman Svölufundi, en Svölurnar er góðgerðarfélag fyrrverandi flugfreyja. Sigrún átti annað heimili í Kaupmannahöfn, það var alltaf tilhlökkunarefni að fara með henni þangað, sérstaklega á að- ventunni þegar hún leiðsagði hóp- um eldri borgara, mest um sögu- slóðir Íslendinga. Sigrún var mikil fjölskyldu- manneskja. Synirnir og tengda- dæturnar voru í miklum sam- skiptum við hana, svo ekki sé minnst á barnabörnin. Tíð matar- boðin voru hrist fram úr erminni eins og ekkert væri. Hún elskaði að baka með tengdadætrunum og barnabörnunum fyrir hver jól. Hún hlustaði og setti sig inn í mál allra sem leituðu til hennar og gaf ráð ef óskað var eftir því. Sigrún var vel menntuð, skarp- greind, sanngjörn og heiðarleg manneskja. Hún var einstaklega umtalsgóð, talaði ekki illa um fólk. Hún var lengi bæjarfulltrúi í Garðabæ og farsæll skólastjóri í Flataskóla til margra ára. Hún stundaði alla tíð útivist, leikfimi og sund oft í viku. Hún lagði sig fram um að borða heilnæmt fæði. Hún var hraust og sterk mestan hluta ævinnar, einhvern veginn heilbrigðið uppmálað. Það kom því flestum sem þekktu hana í opna skjöldu að hún skyldi veikj- ast af illvígum sjúkdómi. Hún tók vágestinum af einstöku æðru- leysi, hún var hetjan okkar. Við Leifur þökkum þessari góðu vinkonu okkar fallega vin- áttu og samfylgd. Við sendum sonum hennar og þeirra fjölskyld- um og hennar góða vini til margra ára, Júlíusi Sæberg Ólafssyni, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Anna Harðardóttir. Í dag er kvödd mikilhæf sóma- kona, sem skilur eftir farsælt og heilladrjúgt ævistarf. Sigrún Gísladóttir kveður völlinn fyrr en vænta mátti, svo kraftmikil og lífsglöð sem hún var og svo lif- andi, leikandi og létt sem hún lifði lífinu og hafði ávallt svo margt að gefa. Á mótunarárum flutti Sigrún með foreldrum sínum í Garða- hrepp. Hann var þá að taka á sig þéttbýlismynd með uppbyggingu byggðar sitt til hvorrar handar við Hafnarfjarðarveg. Þau settust að í Stórásnum, þegar bæjar- myndin var að vakna, og mun það án efa hafa mótað afstöðu hennar til bæjarsamfélagsins, sem hún augljóslega unni ætíð vel. Það skildist best, þegar hún lýsti upp- vaxtarárum sínum, og það raun- gerðist svo með skýrum hætti, þegar hún og Guðjón settust að í Garðabæ við heimkomu eftir langdvöl við nám og störf erlend- is. Í framhaldi af því naut sam- félagið í Garðabæ starfskrafta hennar, velvildar og hvatningar allt til æviloka. Leiðir okkar Sigrúnar lágu fyrst saman á vettvangi bæjar- mála í Garðabæ. Hún hafði nokkru áður tekið við starfi skóla- stjóra Flataskóla, var röggsamur stjórnandi og hafði vökult auga fyrir öllum þáttum skólastarfsins. Fyrir okkur foreldra skólabarna var það jafnan tilhlökkunarefni og sérstakur innblástur að meðtaka í skólabyrjun metnaðarfullan boð- skap hennar um skólastarfið, og ekki var það verra að fá góða brýningu á ábyrgð okkar foreldra á uppeldi barnanna. Þá fylgdu gjarnan með góð og eftirminnileg ráð um uppeldismál og jafnvel fjölskyldumálefni, þegar svo bar við. Hún hélt uppi öflugu og metn- aðarfullu skólastarfi og var eftir- tektarvert, hve vel og skilmerki- lega var um alla hluti haldið. Það var því ekki að ófyrirsynju að Sigrún var kölluð til starfa í bæjarstjórn Garðabæjar vorið 1990. Þar var hún sannarlega skeleggur og traustur liðsmaður, þar sem henni var trúað fyrir mikilvægum verkefnum. Hún var forseti bæjarstjórnar um skeið, sat í bæjarráði og veitti skipulags- nefnd bæjarins formennsku. Hún hafði fastmótaðar skoðanir á flestum málum og fylgdi þeim eft- ir af hófsemd, krafti og traustum rökum. Hún var vel fylgin sér, en jafnframt lipur í samskiptum, og víst er um það, að fáa þekki ég, sem sloppið hafa jafnvel við brunasár úr eldi stjórnmálanna. Skólamálin áttu ávallt stóran hlut í hjarta Sigrúnar sem og um- hverfismál í víðum skilningi. Hún var ötull talsmaður náttúruvernd- ar og útivistar, var í forystusveit fyrir verndun og nýtingu útivist- arsvæða í Garðabæ, og sem for- maður skipulagsnefndar gegndi hún lykilhlutverki varðandi skipu- lagningu og gerð útivistarstíga í þéttbýli og upplandi bæjarins, sem margir hafa notið góðs af svo eftir er tekið. Á hún heiður skilinn fyrir að hafa haldið þeim verkefn- um á lofti, þá stundum við tak- markaðan skilning minna líka. Já, það var eftir því tekið, að Sigrún lét muna um sig, fylgin sér og hreinskiptin. Og víst er um það, að aldrei skyggði á gæsku hennar, glaðværð og hjálpsemi; fólki leið vel í návist hennar og hún hreif það með sér. Slíkra er gott að minnast. Á skilnaðarstund, þegar blær góðra kynna berst með haustsól- inni, kveð ég Sigrúnu vinkonu mína fyrir samfylgdina. Við ferða- lok þakka ég vináttu hennar og tryggð við mig og mína. Við Hall- veig og fjölskyldan öll sendum sonum hennar, tengdadætrum, Júlíusi, systur og öðrum ástvinum hugheilar samúðarkveðjur. Minn- ing um gott og farsælt æviskeið mun lengi lifa. Ingimundur Sigurpálsson. Sigrún Gísladóttir sýndi mik- inn styrk í veikindum sínum. Hún vissi að hverju stefndi um nokkurt skeið án þess að láta hugfallast. Andlát hennar kom okkur í utan- ferð MR-64-árgangsins því ekki alveg í opna skjöldu þegar fréttin barst. Vinur hennar, Júlíus Sæ- berg Ólafsson, skólabróðir okkar, sendi hana til forystu ferðarinnar. Vöknuðu þá góðar og bjartar minningar um hlut Sigrúnar í fyrri ferðum sama hóps. Í sameig- inlegum kvöldverði í ferðarlok minntust allir Sigrúnar af hlýhug. Nú eru því um 60 ár frá því að leiðir okkar Sigrúnar lágu saman í MR. Í árganginum var einnig Guðjón Magnússon síðar eigin- maður hennar, læknir og prófess- or, sem varð bráðkvaddur og öll- um harmdauði í október 2009. Í Háskóla Íslands sátum við Guð- jón saman í stúdentaráði og áttum góða samvinnu þótt í ólíkum deildum værum. Síðar urðu kynnin við Sigrúnu og Guðjón nánari og persónulegri þegar börn okkar Sigríður Sól og Heiðar felldu hugi saman og gengu í hjónaband árið 1999. Sigrún skipaði sér í forystu hvar sem hún lét að sér kveða. Hún stjórnaði skóla sínum, Flata- skóla í Garðabæ, í 20 ár, frá 1984 til 2004. Tók hún við skólastjórn- inni af þjóðkunnum skólamanni, Vilbergi Júlíussyni. Lagði hann grunn að starfi skólans árið 1958. Sigrún tók því við mikilli ábyrgð á stóli skólastjórans eftir að frum- kvöðullinn hafði setið þar í 26 ár. Hún komst þannig að orði að í tvo áratugi hefði hún gegnt „draumastarfinu“. Hún lét af störfum til að geta dvalist með Guðjóni í Kaupmannahöfn þar sem hann gegndi forstöðumanns- starfi á vegum Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar (WHO). Flataskóli naut vinsælda og virðingar meðal Garðbæinga og sat skólastjórinn tvö kjörtímabil í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Tvisvar fékk ég sem mennta- málaráðherra tækifæri til að kynnast metnaðarfullum skóla- bragnum. Í fyrra skiptið í nóvem- ber 1996 í þann mund sem grunn- skólinn fluttist frá ríkinu til sveitarfélaganna. Í seinna skiptið í september 1998 þegar Soroptim- istar völdu Flataskóla sem upp- hafsskóla í átaki meðal sex ára barna til að efla gagnkvæma virð- ingu. Fórum við Salóme Þorkels- dóttir, forseti landssamtaka So- roptimista, þá til skóla Sigrúnar og afhentum börnunum fræðslu- efni. Eftir að fjölskyldutengsl okkar komu til sögunnar kynntumst við Rut því af eigin raun hve Sigrún lét sér innilega annt um syni sína þrjá, tengdadætur og barnabörn- in átta. Þegar Bjarki Heiðarsson varð stúdent í lok maí 2021 tók hún þátt í fagnaðinum og hafði lifandi áhuga á því sem hæst bar eins og jafnan endranær. Sigrúnu var mikið í mun að gefa barnabörnum sínum færi á að sjá sem flestar leiksýningar. Er ekki að efa að með þeim lifir sú minning sterkt auk utanferða sem hún skipulagði með hópinn sinn til hátíðarbrigða. Við Rut minnumst ánægju- stunda með þakklæti og einnig þess hve mikinn styrk Sigrún sýndi við skyndilegt brotthvarf Guðjóns. Við færum ástvinunum öllum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigrúnar Gísladóttur. Björn Bjarnason. SJÁ SÍÐU 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.