Morgunblaðið - 10.09.2021, Page 25

Morgunblaðið - 10.09.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021 Hæ sæti – hvað vilt þú borða! Bragðgott, hollt og næringarríkt Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is ÚTSÖLUSTAÐIR: Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær „OG HVERSU LENGI HEFURÐU VERIÐ Á EYÐSLUFYLLERÍI?“ „ERTU TIL Í AÐ BIÐJA HANA UM AÐ SKIPTA EKKI UM STÖÐ Á ÚTVARPINU.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... kaffi og góður félagsskapur. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA, FEGURÐ ÞÍN ER FEGURRI … EN MARGT ANNAÐ MINNA FAGURT SVALUR EINSOG SLABB AFSAKIÐ, FRÖKEN, ER ÞESSI MAÐUR AÐ ANGRA ÞIG? VEISTU, ÉG TÓK BARA EKKI EFTIR HONUM! ÞAÐ ANGRAR MIG! búnar til útgáfu og Bjarni Harðar á Selfossi ætlar að gefa út fyrir mig á næsta ári.“ Síðan hefur hann verið að semja tónlist og árið 2005 gaf hann út geisladiskinn Plokkfisk: Lög handa íslenskri alþýðu með lögum eftir sjálfan sig. „Þetta var einvala lið sem spilaði með mér: Óskar Einarsson, gospelmeistari útsetti og spilaði ásamt Sigurði Flosasyni, Jóhanni Ásmundssyni og Sigurgeiri Sig- mundssyni. Diskurinn fékk ágætis dóma, síst söngurinn minn, sem var alveg rétt. Ég er ekki mikill söngv- ari.“ Fjölskylda Eiginkona Guðjóns er Bryndís Guðjónsdóttir, f. 18.7. 1963. Þau eiga börnin Baldvin Fannar, f. 22.3. 2000 og Jóhönnu Vigdísi, f. 5.6. 2001. Guð- jón átti með fyrri eiginkonu sinni, Kristínu Hjálmarsdóttur Blöndal, f. 23.10. 1954 börnin Hjálmar Blöndal Guðjónsson, f. 1.4. 1976 og Elías Blöndal Guðjónsson, f. 15.11. 1983, kvæntur Kristínu Hrund Guðmunds- dóttur Briem, f. 9.8. 1985, og þau eiga börnin Katrínu, f. 17.8. 2016, og Jó- hann, f. 26.9. 2019. Systkini Guðjóns eru Kristján Snorri, f. 31.3. 1948, d. 21.3. 2015; Elsa, f. 27.10. 1949, og Birgir Bragi, f. 24.4. 1959. Foreldrar Guðjóns eru hjónin Baldur Kristjánsson, tónlistarmaður, f. 21.10. 1922, d. 4.3. 1984, og Elísabet Guðjónsdóttir, húsmóðir með meiru, f. 28.1. 1922, d. 21.1. 2009. Guðjón Baldursson Bergljót Ólína Jónsdóttir ljósmóðir í Bolungarvík og síðar húsfreyja og ljósmóðir á Akureyri Sigurður Jónatansson bóndi og vefari í Þverdal og víðar í Sléttuhr., Ís., og síðar á Akureyri Kristjana Solveig Sigurðardóttir húsfreyja og verkakona á Akureyri Guðjón Elías Jónsson bankastjóri á Ísafirði Elísabet Guðjónsdóttir húsfreyja og vann við verslunarstörf, ræstingar og síðast á Þjóðminjasafninu Elísabet Engilbertsdóttir húsfreyja á Flateyri Jón Guðmundsson bóndi á Sæbóli á Ingjaldssandi og verkamaður á Flateyri Guðríður Einarsdóttir vinnukona á Bessastöðum, Bessastaðasókn, Gull. Guðmundur Kristinn Ólafsson vinnumaður í Akrakoti, Bessastaðasókn, Gull., síðar sjómaður í Reykjavík Valgerður Halldóra Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Kristján Helgason skósmiður og verkamaður í Reykjavík Halldóra Snorradóttir húsfreyja í Arnarholti, Úthlíðarsókn, Árn. Helgi Guðmundsson b. í Arnarholti, Úthlíðarsókn, Árn. Úr frændgarði Guðjóns Baldurssonar Baldur Kristjánsson tónlistarmaður í Reykjavík Sigurlín Hermannsdóttir skrifar á Boðnarmjöð: „Í haustferð Ið- unnar var m.a. staldrað við í Frið- heimum og skoðaðar iðandi býflug- ur en dugnaður þeirra er mjög kynskiptur. Þá varð þetta til: Þar drottningar búa í döllum með dugmiklu þernunum öllum svo atorkuvænum í iðnaði grænum og helling af húðlötum köllum. Næst var stansað á Flúðum og gátu þeir sem ekki fóru í sund skoð- að laugina og laugargesti. Á Flúðum margir fara til að fljóta í laug, af áhuga þótt aðrir sinni uppsveita hvalaskoðuninni.“ Limran „Skrattakollur“ er eftir Guðmund Arnfinnsson: Kunnur að dufli og daðri, drykkjulátum og þvaðri blíðmáll og klúr, kjassandi frúr Jerímías á Jaðri. Gunnar J. Straumland yrkir: Þó sögurnar sjaldan menn kaupi þá samt er í lagi að ég raupi og segi frá því að ég sigraði í árlegu haust Skaftárhlaupi. Elísabet Ólafsdóttir hefur verið kjölfestan í starfi ríkissáttasemjara allt frá upphafi, þar sem hún hefur starfað sem skrifstofustjóri með öll- um ríkissáttasemjurum allt frá Guðlaugi. Hún hefur einstakt lag á að búa til gott og uppbyggilegt and- rúmsloft, þrátt fyrir erfiða fundi. Margar vísur hafa verið ortar til hennar og hér er ein. Í hverri gjörð svo hvöt og slyng og hvergi ljót. Hún er mikið þarfaþing þessi snót. Og að öðru. Eitt sinn var Jóhann Þ. Jósefsson, þingmaður Vest- mannaeyinga, að halda ræðu á Al- þingi og talaði lengi og af miklu kappi, bæði hátt og snjallt. Þar um var þetta kveðið: Hamast röst um Heimaklett, hátt í gnípum syngur. Jagar þetta jafnt og þétt Jóhann landsynningur. Guðmundur Arnfinnsson yrkir og kallar „Hafrót (oddhent)“: Ólga knáar öldur hjá úrgum sjávartöngum. boða smáum bátum vá, brotna’á háum dröngum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frá haustferð Iðunnar og fleira gott

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.