Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
Kosningaþættir Dagmála
Morgunblaðsins hafa fengið
feikilega góðar
viðtökur, en ekkert
viðtal hefur þó
verið jafnupplýs-
andi og það sem
birtist við Halldóru
Mogensen, þing-
flokksformann
Pírata, síðastliðinn
fimmtudag. Hún er
forystukona í flokknum og hefur
verið á þingi síðan 2014. Því hlýt-
ur það að vekja spurningar þegar
í ljós kemur að þingflokksformað-
urinn veit ekki hvað kaupmáttur
er.
- - -
Mesta athygli vakti þó sú hug-
mynd Halldóru að fjár-
magna mætti mörg hundruð
milljarða króna borgaralaun með
lántöku, af því að það væri verið
að fjárfesta í fólki. Sem svo þarf
að fjárfesta aftur í á hverju ein-
asta ári. Lesandanum er eftirlátið
að álykta um afleiðingar þess.
- - -
Hugmyndin um neikvæðan
tekjuskatt er ekki ný,
Milton Friedman setti hana fram
í bókinni Frelsi og framtak
(1962), til þess að hjálpa efnalitlu
fólki án flókinna og dýrra bóta-
kerfa. Gleðilegt er að Píratar til-
einki sér nýfrjálshyggjuna.
- - -
Píratar leggja þó mesta
áherslu á að með borgara-
launum sé fólk virkjað heima hjá
sér, þar sem það sýni frumkvæði
og skapi sjálft störf. Tilraunir er-
lendis, t.d. í Finnlandi, benda þó
ekki til þess. Enn síður sú risa-
vaxna tilraun, sem gerð hefur
verið í ótal löndum í heimsfar-
aldrinum með stórauknum
greiðslum til fólks fyrir að vera
heima hjá sér. Þær héldu neyslu
uppi, en framleiðni féll og ekkert
bendir til þess að þær hafi kveikt
í frumkvöðlum á sloppnum.
Halldóra
Mogensen
Nýfrjálshyggjan
hjá Pírötum
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
íþróttatengdri starfsemi, að því er fram kemur á vef
bæjarins. Nýja húsið er rúmir 400 fermetrar að gólf-
fleti. Stærstur hluti þess er bátaskýli með góðri að-
stöðu til viðhalds og endurbóta á bátum. Í húsinu eru
einnig búningsklefar með sturtuaðstöðu og þurrk-
herbergi fyrir blautbúninga. Á efri hæð er félags-
aðstaða og þaðan er hægt að ganga út á útsýnissvalir
sem tengjast með stigum til tveggja átta. Að kvöld- og
næturlagi er skemmtileg lýsing á húsinu, eins og með-
fylgjandi mynd ber með sér.
Nýtt aðstöðuhús Siglingaklúbbsins Nökkva á Akureyri
var formlega vígt í fyrradag. Framkvæmdum á vegum
bæjarins er að mestu leyti lokið við húsið og útisvæðið
en aðstaðan er þegar komin í notkun.
Við sama tilefni var ritað undir nýjan rekstrarsamn-
ing á milli Akureyrarbæjar og Nökkva, það gerðu Ást-
hildur Sturludóttir bæjarstjóri og Tryggvi Jóhann
Heimisson, formaður Nökkva. Samkvæmt samn-
ingnum mun Nökkvi sjá um rekstur og umsjón fé-
lagssvæðisins, þ.m.t. nýtt aðstöðumannvirki, ásamt
Nýtt húsnæði Nökkva vígt
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Akureyri Nýtt húsnæði Siglingaklúbbsins Nökkva við Pollinn er fallega upplýst að kvöld- og næturlagi.
Lax-Inn, ný fræðslumiðstöð fisk-
eldis, var opnuð formlega á Mýrar-
götu 26 í gær. Þar er nú hægt að
kynna sér starfsemi fiskeldis með
beintengingu myndavéla bæði í
land- og sjóeldi, ásamt ýmsu öðru
fræðsluefni um atvinnugreinina.
Lögð er áhersla á fræðslu um hvern-
ig fiskeldi fer fram.
Tilgangur fræðslumiðstöðvarinn-
ar er að „opna“ glugga að starfsemi
fiskeldis hér á landi, uppfræða og
vekja áhuga almennings á sjálfbærri
matvælaframleiðslu greinarinnar,
segir í fréttatilkynningu. Stofnandi
Lax-Inn er Sigurður Pétursson en
hann hefur víðtæka menntun og
reynslu úr land- og sjóeldi laxfiska.
Verkefnisstjóri er Katrín Unnur
Ólafsdóttir véla- og iðnaðarverk-
fræðingur. Lax-Inn er í samstarfi
við fjölmarga aðila sem munu kynna
starfsemi sína í nýju fræðslu-
miðstöðinni.
Fiskeldi í beinni í nýju
fræðslusetri á Granda
Morgunblaðið/Eggert
Lax-inn Sigurður Pétursson tekur við blómum í tilefni opnunarinnar.
Atvinna
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Auglýsing um
framlagningu kjörskráa
vegna kosninga til Alþingis
Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis sem fram
fara laugardaginn 25. september 2021 skulu
lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn
15. september 2021.
Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu
sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað
sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega.
Kjörskrá skal liggja frammi á almennum
skrifstofutíma til kjördags.
Athygli er vakin á því að kjósendur geta nú
kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á
kjörskrá.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum við
kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi
sveitarstjórn.
Dómsmálaráðuneytinu,
10. september 2021.