Morgunblaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 46
46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 30 ÁRA Díana fæddist í Stykkishólmi og ólst upp í Grundarfirði þar til hún var tíu ára og flutti þá á Akranes þar sem hún býr enn. Eftir grunnskólann fór hún í Fjöl- brautaskólann á Akranesi en færði sig síðan yfir til MH og lauk þar stúdentsprófi. Með- fram skólanum var Díana í Listdansskóla Íslands, en hún hafði alltaf haft mikinn áhuga á dansi. Hún var kom- in með kærasta, Ragnar Leósson, þegar hún var 19 ára og rétt rúmlega tvítug fóru þau til Bandaríkjanna þar sem Ragnar fór í nám á fótboltastyrk, fyrst í Rich- mond í Virginíu og síðan í Huntsville í Alabama. „Það var mjög skemmtilegt að upplifa svona allt öðruvísi heim eins og er í Suðurríkj- unum.“ Þegar heim var komið fóru þau til Vest- mannaeyja og voru þar um tíma. Árið 2014 fóru Díana og Ragnar til Herning á Jótlandi. Þar lærði hún aug- lýsinga- og markaðsfræði með áherslu á tísku meðan Ragnar spilaði fótbolta. „Ég var í tvö ár, en fór heim 2016 til að eiga dóttur mína. Síðan fór ég aftur út og lauk BA-prófinu í desember 2020 og kom þá heim til að eignast son minn.“ Díana var að vinna hjá fyrirtækinu Redined Fashion í Herning sem mark- aðsfulltrúi, en núna er hún í barnsburðarleyfi. FJÖLSKYLDA Sambýlismaður hennar er Ragnar Leósson knattspyrnu- maður, f. 20.3. 1991. Þau eiga börnin Margréti, f. 2017 og Leó, f. 2021. For- eldrar Díönu eru Bergur Garðarsson sjómaður, f. 1957 og Margrét Frí- mannsdóttir ritari, f. 1958. Þau búa á Akranesi. Díana Bergsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þér finnst eitthvað að þér þrengt í vinnunni. Láttu engan þvinga þig til sam- komulags heldur láttu í þér heyra. 20. apríl - 20. maí + Naut Reyndu að fá næði í fallegu umhverfi ef þú átt þess kost. Sjálfstraust þitt hefur verið að aukast og á næstunni muntu ná ein- hvers konar hátindi varðandi starfsframa. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Maður er það sem maður hugsar upp að vissu marki. Tímabundið starf gætið orðið að fastráðningu og alvara gæti færst í rómantískt samband. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það getur verið erfitt að losna úr vítahring aukavinnu og eyðslu. Talaðu við vini og vandamenn, þú gætir notið góðs af ráðleggingum þeirra. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Áhrifaríkasta leiðin til að takast á við meiriháttar mál, er að trúa því að allt muni snúast þér í hag. Allt hefur sinn tíma og þú færð að ræða málin. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú þráir stöðugleika í samböndum þínum en stöðugleiki er ekki mögulegur eins og stendur. Ljúktu því sem þú þarft að gera í dag þannig að þú getir leikið þér á morgun. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þótt þú sjálfur sért skýjum ofar yfir af- rekum þínum er ekki eins víst að fjölskyldan sé á sömu skoðun. Skortur á innblæstri er nánast óbærilegur. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú hefur einstæðan hæfileika til að umgangast fólk og hjálpa því til að koma auga á hæfileika sína. Þú kemst hugs- anlega á snoðir um leyndarmál í dag. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú ættir að nota daginn til að sinna verkum sem krefjast þolinmæði og skipulagningar. Athugaðu ferðamöguleika gegnum ólíka hópa. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Einhver atburður verður til þess að gamlar minningar leita aftur á hugann. Sláðu á létta strengi, það getur oft bjargað hlutunum. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú sýnir snilldartakta í dag og þá sennilega á sviði sem þú áttir ekki von á vegna þekkingar- eða reynsluleysis. Sam- ræður við maka eru ákafar og innilegar. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Ekki er allt sem sýnist og það er þitt verk að komast að hinu sanna. Vertu örlátur við vini og vandamenn. bændurnir á Reykjaströndinni í Skagafirðinum flestir framsóknar- menn.“ Þá má ekki gleyma uppeld- sem skattstjóri Keflavíkurbæjar og gegndi þeirri stöðu til ársins 1962. „Þá var skattstofa Keflavíkur lögð niður og starfsemin færð undir skattstofuna í Hafnarfirði, en á þessum tíma voru litlar skattstofur út um allt land.“ Hilmar ákvað að venda kvæði sínu í kross og stofn- aði fasteignasöluna Hafnargötu 27 í Keflavík með Bjarna F. Halldórs- syni og ráku þeir hana saman næstu 27 árin, en þá lést Bjarni og Hilmar og Ásdís ráku hana áfram næstu tíu árin til ársins 1999. Á sama tíma vann hann við skatt- framtalsaðstoð í bænum. Það voru þó félagsmálin sem áttu hug hans allan frá upphafi, enda hefur hann verið afspyrnu virkur í öllu félagsstarfi eins og sjá má af öllum þeim félögum sem hann hefur tekið þátt í. „Það má segja að Framsókn og samvinnu- hugsjónin hafi verið mér í blóð borin, en Pétur faðir minn var framsóknarmaður og svo voru H ilmar Pétursson fæddist 13. septem- ber 1926 í gamla torfbænum á Ing- veldarstöðum í Skarðshreppi í Skagafirði, sonur hjónanna Péturs Lárussonar bónda og Sigríðar Bjargar Sveinsdóttur. Hann var elstur fimm systkina og fjölskyldan flutti fljótlega að Steini á Reykjaströnd þar sem hann ólst upp. Eins og títt var á þessum árum var skólaganga af skornum skammti og Hilmar var í farskóla á árunum 1936-40. „Farskólinn var þannig að kennarinn og nemendur gistu um skeið á einum bæ og síð- an eftir nokkurn tíma fóru þau á næsta bæ.“ Hilmar segist muna eftir því að stundum hafi verið leit- að að lús á krökkunum, ef vera skyldi að óværan hefði borist frá einhverjum öðrum bæ í sveitinni. En þótt formlegri menntun væri áfátt, var mikið lesið í sveitinni. „Kristín, móðir mín, lagði alltaf mikið upp úr menntun og lestri,“ segir Hilmar og hann bjó að því uppeldi alla tíð. Hilmar gekk í gagnfræðaskóla á Sauðárkróki á árunum 1941-43 og fór síðan einn vetur á Héraðsskól- ann á Laugarvatni og var þar eitt ár 1944-45, en þá var Bjarni Bjarnason fv. alþingimaður fyrir Framsóknarflokkinn, skólastjóri. Hilmar ákvað að mennta sig meira og fór í Samvinnuskólann, þar sem Jónas Jónson frá Hriflu var skóla- stjóri. „Samvinnuskólinn var á þessum tíma líkt og Verslunarskóli Íslands með tveggja ára nám til að undirbúa fólk fyrir bókhalds- og skrifstofustörf,“ segir Hilmar. Á námstímanum vann hann öll sumur við vegavinnu eða sjómennsku og aðeins eftir að skólanum lauk 1947. Árið 1948 var hann ráðinn sem skrifstofumaður hjá Keflavíkurbæ og þar vann hann næstu fimm árin til 1953. Hann hafði kynnst konu sinni, Ásdísi Jónsdóttur, en þau giftu sig árið 1952 og hófu sinn bú- skap í Keflavík. Árið 1953 var hann ráðinn sem bæjargjaldkeri Kefla- víkurbæjar og þremur árum seinna, árið 1956, var hann ráðinn inu í skólunum hjá tveimur lands- þekktum framsóknarmönnum. Hilmar hefur ákveðnar skoðanir og hefur barist fyrir samvinnu- hugsjóninni alla tíð. Hann var bæjarfulltrúi í Keflavík fyrir Framsóknarflokkinn í tuttugu ár, frá 1966-1986 og formaður bæjar- ráðs í tíu ár, frá 1974-1984. Síðan var hann varaþingmaður Reyk- nesinga árin 1971-1974 fyrir Framsóknarflokkinn. Auk þess sat hann í mörgum nefndum á vegum bæjarfélagsins og má þar nefna bygginganefnd og framtals- nefnd. Hann var stofnfélagi Lionsklúbbs Keflavíkur frá 1956 og var um skeið formaður klúbbs- ins. Hann var félagi í Málfunda- félaginu Faxa í 40 ár, frá 1972- 2012 og var gerður að heiðurs- félaga félagsins. Hilmar tók auk þess þátt í að stofna Oddfellow- stúkuna Njörð í Keflavík árið 1976 og hann var félagi í Kaup- félagi Suðurnesja og skoð- Hilmar Pétursson fasteignasali, fv. bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs í Keflavík – 95 ára Hjónin Ásdís og Hilmar á níræðisafmæli Hilmars í heimsókn hjá systur hans, Unni Berglindi, í Bandaríkjunum. Framsóknarmaður alla tíð Hilmar Pétursson „Samvinnu- hugsjónin var mér í blóð borin.“ Til hamingju með daginn –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 21. september 2021 SÉRBLAÐ B A BLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.