Morgunblaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 ✝ Sæmundur Knútsson fæddist í Reykja- vík 1. ágúst 1954. Hann lést á Land- spítalanum 29. ágúst 2021. For- eldrar Sæmundar voru Anna Þóra Þorláksdóttir bókasafnsfræð- ingur, f. 5. júní 1931, d. 22. janúar 2017 og Knútur Björnsson lýta- læknir, f. 1. maí 1930, d. 26. ágúst 2014. Þau eignuðust 5 börn. Þau eru, auk Sæmundar, Sigurveig Knútsdóttir mynd- listarkona, f. 14. ágúst 1953, d. 11. september 2015, Kári lýta- læknir, f. 22. desember 1958, Steinunn sviðslistakona, f. 23. júlí 1965, og Björn viðskipta- fræðingur, f. 30. desember 1971. Fyrir átti Knútur eina dótt- ur, Sólveigu sjúkraliða, f. 11. vann um tíma við skattstofu Hafnarfjarðar og þá sem grunnskólakennari á lands- byggðunum. Hann bjó á Eyr- inni á Akureyri meðan á hjúkr- unarnáminu stóð en þar hóf hann sambúð með Els Gerrit- sen. Við útskrift fékk hann vinnu sem yfirhjúkrunarfræð- ingur við réttargeðdeildina að Sogni og flutti með Els og ný- fæddum syni þeirra, Tómasi, til Selfoss þar sem þeim fæddist dóttirin Sandra en leiðir Sæ- mundar og Els skildi skömmu síðar. Sæmundur vann þá sem kennari um tíma og lauk kenn- araréttindanámi. Sæmundur starfaði síðar sem hjúkrunar- fræðingur á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík og flutti til Hafnarfjarðar þar sem hann var í vígðri sambúð með Zhi Ling Li um nokkurra ára skeið. Síðustu árin bjó hann í Reykja- vík. Sæmundur spilaði golf þar til heilsunni fór að hraka en bridds var ávallt stór hluti af hans lífi allt fram á síðasta dag og vann hann oft til verðlauna í báðum greinum. Útför Sæmundar fór fram í Fossvogskapellu 9. september 2021 í kyrrþey. september 1948. Sambýliskona Sæ- mundur var Els Gerritsen kennari, þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru Tómas, f. 5. janúar 1997 og Sandra, f. 12. janúar 2000. Sæ- mundur kvæntist Zhi Ling Li en þau skildu. Sæmundur lauk stúdents- prófi frá Flensborgarskóla 1975 og BS-gráðu í viðskipta- fræði frá Háskóla Íslands 1986. Hann útskrifaðist með BS- gráðu í hjúkrunarfræði 1997 frá Háskólanum á Akureyri en þar tók hann einnig kennslu- réttindanám sem hann lauk 2002. Á yngri árum vann Sæ- mundur í áburðarverksmiðj- unni í Gufunesi með námi. Eftir útskrift úr viðskiptafræðinni vann hann við ýmis störf. Hann Sæmi var elsti bróðir minn og passaði upp á mig þegar ég var yngri. Hann sýndi mér um- hyggju ef ég kom leiður úr skól- anum og lét aðra krakka heyra það ef þeir voru vondir við mig. Hann stoppaði allt slíkt um leið. Á unglingsárum mínum bjó Sæmi ekki heima, enda talsvert eldri en ég. Þá voru samskiptin ekki mikil eins og gengur. Hann blómstraði um tíma þegar hann var fjölskyldumaður og eignaðist Tómas og Söndru. Hann talaði mikið um börnin sín og fylgdist með því sem þau voru að gera. Sæmi var gáfaður á ýmsum sviðum. Hann hafði tilfinninga- greind sem endurspeglaðist í því hve þægilegt var að tala við og vera í kringum hann. Hann var mjög minnugur og óskeikull. Hann var auk þess mjög vel les- inn. Sæmi var ávallt áhugasamur um mína nánustu og það sem ég var að fást við. Hann var afburða briddsspilari og hafði gaman af því að tala um bridds. Hann var góður golfari um tíma og við náð- um að leika golf saman í allmörg skipti um ævina. Sæmi háði hatramma baráttu fyrir heilbrigði sínu mestallt sitt líf. Margir særðust í þeirri bar- áttu, en hann þó sjálfur mest allra. Sæmi var ótrúlega seigur og alltaf hafði ég trú á því að hann myndi standa uppi sem sig- urvegari í þessu stríði. Það gekk ekki eftir. Síðustu ár Sæmundar var heilsu hans farið að hraka mikið og þarfnaðist Sæmi um- hyggju og aðstoðar. Þá voru samskipti okkar tíð. Ég trúi því að Sæmi sé nú laus úr öllum viðjum og hamingju- samur. Ég sakna hans og geymi minningu um þægilegan og góð- an stóra bróður. Björn Knútsson. Stórt skarð hefur verið höggv- ið í systkinahópinn, nú þegar Sæmi bróðir er fallinn frá. Sæmundur, eða Sæmi eins og hann var oftast kallaður innan fjölskyldunnar, hefur fengið frið- inn. Við sem stóðum honum nærri vissum að hvíldin var hon- um kærkomin. Sæmi var eldri bróðir minn, sem ég leit mikið upp til á okkar uppvaxtarárum. Hann var sér- lega heiðarlegur og réttsýnn. Versti óvinur Sæma var alkóhól- isminn, en sá sjúkdómur litaði alla hans fullorðinsævi. Samt tókst honum að ljúka m.a. tveim- ur háskólagráðum, viðskipta- fræði og síðar hjúkrunarfræði. Þótt margs sé að minnast þá eru mér háskólaárin ofarlega í huga. Við Sæmi hittumst mikið á há- skólasvæðinu og þar að auki vor- um við samleigjendur um tíma, en sú sambúð gerði að verkum að við kynntumst hvor öðrum betur. Það verður að segjast að við vorum ekki sérlega mikið fyr- ir að flíka tilfinningum okkar, en það bar aldrei skugga á okkar vináttu. Sæmi hvatti mig áfram í læknisfræðinni þegar ég þurfti mest á því að halda. Ég er hon- um ævinlega þakklátur fyrir það. Eftir háskólann skildi leiðir, ég fluttist utan og Sæmi hélt áfrám með sitt líf á Íslandi. Hann starf- aði um árabil sem hjúkrunafræð- ingur m.a. á réttargeðdeildinni á Sogni. Starfið virtist laða fram hans bestu eiginleika. Hann hafði mikið að gefa, sérstaklega fólki sem var á einhvern hátt minnimáttar. Hann var sérlega vel liðinn af samstarfsfólki og skjólstæðingum þar sem hann starfaði við umönnunarstörf. Sæmi var alla tíð mjög stoltur af börnum sínum tveimur, Tóm- asi og Söndru, en þau hafa búið lengst af í Hollandi með móður sinni Els. Ég trúi því af heilum hug að Sæmi sé kominn á betri stað. Hvíl í friði elsku bróðir. Ég kveð þig með söknuð í hjarta. Kári. Það er friður og það er sátt. Sæmi er kominn heim til mömmu. Bestu mömmu í heimi eins og hann ávarpaði hana við dánarbeð hennar. Já, hann var lítill drengur í hjarta sínu, hlýr og kærleiksríkur, eins og hún. Hann er líka farinn á vit systur sinnar sem hann elskaði meira en sjálfan sig. Sæmundur var mildur maður og djúpur. Hann laðaði til sín minnimáttar og mál- leysingja því hann kunni að hlusta og hann sá fólk. Hann mundi líka það sem hann hafði séð, hvort sem það var í fólki eða í gegnum lestur bóka og hann las mikið. Hann er eini maðurinn sem ég þekki sem mundi nánast allt sem hann lærði í mennta- skóla. Þá var hann svo fagur, geislaði af lífsorku með sítt og mikið hár og hlustaði á Rolling Stones á meðan Sigurveig systir hlustaði á Janis Joplin. Þau voru fyrirmyndirnar mínar, villt og ósigrandi. Hann var þrjóskur og ákveðinn og kláraði flest sem hann byrjaði á, þrátt fyrir mót- læti en fyrir því var hann næm- ur. Hann var viðkvæmari en maður gerði sér grein fyrir. Hann átti sér t.a.m. engar varnir gagnvart Bakkusi sem var hon- um harður húsbóndi bróðurpart- inn af hans fullorðinslífi. En hann hafði fallega sál, og náði að skapa góðar minningar með fjöl- skyldu og vinum á meðan heilsan leyfði. Hann eignaðist yndisleg börn sem hann var stoltur af úr fjarlægð. Nú er fjarlægðin óyf- irstíganleg og eina sem bindur er minnið. Minnið var jú einmitt hans styrkur. Og þannig vil ég muna Sæmund, í styrkleika sín- um, í lífskraftinum sem ein- kenndi hann svo lengi, staðfest- unni og leikgleðinni í spilamennskunni. Minningin um hinn ósigrandi og ævintýralega bróður mun lifa. Steinunn. Minn gamli skólafélagi og vin- ur, Sæmundur Knútsson, hefur lokið göngu sinni hér á jörðu. Vil ég þakka honum allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Ég kynntist Sæma í Flens- borgarskóla þar sem við lærðum undir stúdentspróf. Við vorum í góðum hópi en frekar fámennum sem útskrifaðist sem fyrstu stúd- entar frá Hafnarfirði vorið 1975. Þessi hópur var samheldinn og náinn og engir eldribekkingar að þvælast fyrir okkur. Við stóðum fyrir öflugu félagslífi samhliða náminu og áttum margar góðar stundir saman. Fámennið gerði það að enginn týndist í fjöldan- um og allir skiptu máli. Sæmi var dagfarsprúður drengur og einstakt ljúfmenni. Þó hann væri ekki maður margra orða var hann launfynd- inn og hrutu mörg gullkornin af vörum hans í góðra vina hópi. Ég held að ég tali fyrir hönd okkar allra gömlu skólafélaganna úr Flensborg þegar ég segi að Sæmi hafi verið drengur góður og okkur öllum hafi þótt vænt um hann. Sæmundur tróð ekki öðrum um tær. Það er erfitt að ímynda sér að hann hafi átt sér nokkra óvini ef undan er skilinn Bakkus sem reyndist honum löngum erf- iður ljár í þúfu. Skúrirnar í lífi hans voru allt of margar þó sólin hafi þar skinið inn á milli. Sæmi var býsna glúrinn briddsspilari. Oft sátum við fé- lagarnir við briddsborðið og spil- uðum fram á morgun. Þá var Sæmi í essinu sínu. Margar af mínum bestu minningum um Sæma eru við briddsborðið þar sem hann lék á als oddi. Börnum Sæmundar og fjöl- skyldu sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, vinur. Tryggvi Harðarson. Sæmundur Knútsson Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu, móður, ömmu, systur og mágkonu, SIGRÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR, Steinaseli 7. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar 11E á Landspítalanum fyrir einstaka alúð og umhyggju. Gylfi Þorkelsson Ásta Heiðrún Gylfadóttir Emma Sigríður Sverrisdóttir Gylfi Sverrisson Valgerður Halldórsdóttir Helgi H. Steingrímsson Óli Friðgeir Halldórsson María Björk Daðadóttir Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, BJÖRN STEFÁN ÞORSTEINSSON, hestamaður frá Akureyri, varð bráðkvaddur á heimili sínu á Höfn í Hornafirði 17. ágúst. Útför hefur farið fram og þökkum við auðsýnda samúð og hlýhug. Þorsteinn Björnsson Sigríður Ólafsdóttir Hafsteinn Már, Ólafur Atli, Brynhildur Kristín Aldís Björnsdóttir Bjarni Sigurðsson Helga Rut Júlíusdóttir Birgir Árnason Auður Ásta Hallsdóttir Helga Árnadóttir Guðmundur Karl Tryggvason og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS PÁLSSON frá Veturhúsum í Eskifirði, verður kvaddur frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 18. september klukkan 14. Eygló Magnúsdóttir Jón Símon Gunnarsson Eymundur Magnússon Eygló Björk Ólafsdóttir Steinarr Magnússon Anna Sólveig Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur stuðning og hlýhug við fráfall elsku eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JENS JÓNSSONAR húsgagnabólstrara, sem lést fimmtudaginn 9. ágúst. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar Landspítalans fyrir hlýhug og góða umönnun. Valdís Kristmundsdóttir Jón Kristinn Jensson Sigurborg M. Guðmundsdóttir Sigríður Jensdóttir Axel Þórir Alfreðsson Lára Jensdóttir Einar Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær faðir okkar, afi, langafi, bróðir og tengdafaðir, PÁLL RAGNAR SVEINSSON vörubílstjóri, lést á heimili sínu Sóltúni 2 laugardaginn 21. ágúst. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi miðvikudaginn 15. september klukkan 13. Bjarghildur Pálsdóttir Jóna Magnea Pásdóttir Jakob Pálsson og systur hins látna Elsku mamma nú er kallið komið. Það er skrítið að setjast hér niður og skrifa minningarorð um þig og hugsa til þess að ég muni aldrei sjá eða heyra í þér aftur þótt við vissum hvert stefndi. Þú varst alltaf til staðar og passaðir upp á að hafa hlutina í lagi. Seinustu 10 dagarnir okkar voru mjög dýrmætir. Fjölskyld- Lára Steinþórsdóttir ✝ Lára Stein- þórsdóttir fæddist 12. nóv- ember 1939. Hún lést 24. ágúst 2021. Útför hennar fór fram 4. september 2021. an hefur ekki verið svona mikið saman í langan tíma þar sem allir hafa verið svo uppteknir við vinnu sem hefur verið viðloðandi fjölskylduna. Þegar ég hugsa til baka varst þú alveg ein- stök móðir sem hvattir mann áfram í námi með því að setja lágmörk fyrir árangri sem var svo umbunað með glæsi- legum verðlaunum. Er mér sér- staklega minnisstætt þegar þú sagðir við mig að ef ég næði yf- ir 8,5 í meðaleinkunn úr grunn- skólanum fengi ég DBS-reið- hjól, sem var toppurinn á þeim tíma. Þótt þér væri meinilla við að fara Víkurveginn fórstu með mig í byggingarvöruverslunina hjá Jóni Friðgeiri til að kaupa hjólið þegar ég stóðst mark- miðið. Það var aðdáunarvert þegar ég fór að æfa sund hvernig þú studdir við bakið á okkur, mættir í allar fjáraflanir og sundmótin til að hvetja okkur áfram. Svo þegar vinirnir fengu að gista þá voru þeir alveg agn- dofa þegar það var búið að smyrja og hafa til morgunverð- arborð þegar við komum fram. Það var líka ómetanlegur stuðningur sem ég fékk frá þér þegar ég fór í Vélskólann fyrir sunnan og síðan lá leiðin til Danmerkur þar sem þú varst alltaf að athuga hvernig gengi. Þú varst alltaf til staðar og komst reglulega út til okkar þegar við Arna áttum þrjú fyrstu börnin okkar. Umhyggja þín náði langt út fyrir fjölskylduna. Þegar aðrir fóru að sofa fór hrærivélin eða saumavélin í gang til að baka bakkelsi á kökubasar eða sauma verðlaun í Línuna fyrir Slysa- varnafélagið. Þegar nýbúar fluttu í bæinn varstu mætt til að aðstoða þá til að koma inn í samfélagið hvort sem það var við vinnu eða að útbúa heimili með innanstokksmunum, eða þú fréttir af einhverjum sem væri á leið í veiði og vantaði maðka þá var því reddað. Svo ekki sé minnst á öll berin sem voru send út um allt land til vina og kunningja. Þið voruð svo ótrú- lega líkar systurnar (Unnur Ingunn) með þetta. Alltaf til- búnar að hjálpa þeim sem minna máttu sín. Elsku mamma mín, ég mun aldrei gleyma þér, það var svo frábært hvað þú varst kröfu- hörð en samt sanngjörn. Von- andi tekst mér að tileinka mér brot af því sem þú hefur kennt okkur. Guð gefi þér góða nótt elsku mamma mín. Þinn elskandi sonur, Steinþór Bragason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.