Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Brýn þörf er á að endurnýja Blóð- bankabílinn, að mati Sveins Guð- mundssonar, yfirlæknis Blóðbank- ans. Rauði krossinn gaf bílinn árið 2002 og hófst rekstur hans árið eftir. „Bíllinn er kominn til ára sinna og það er forgangsmál hjá okkur að fá fjárveitingar til endurnýjunar en það hefur ekki enn reynst mögulegt,“ sagði Sveinn. Bíllinn hefur þurft mik- ið viðhald síðustu 3-4 ár. Oft hefur þurft að aflýsa blóðsöfnunarferðum á síðustu stundu vegna bilana. Sveinn kveðst vona að með aukn- um skilningi á fjárþörf Landspítalans verði hægt að bregðast við endur- teknum beiðnum um fé til nýs blóð- bankabíls. Hann bindur vonir við að fjárveiting fáist á fjárlögum þannig að útboð geti farið fram á næsta ári og nýr blóðsöfnunarbíll komi 2023. Þörf fyrir tvo Blóðbankabíla Óskastaðan er að Blóðbankabíl- arnir verði tveir, annar á höfuðborg- arsvæðinu og hinn á Norðurlandi. Starfsstöðvar blóðsöfnunar eru nú í Reykjavík og á Akureyri. Blóð- bankabíllinn hefur svo verið þriðja stoðin í blóðsöfnuninni. „Akureyri og Norðurland hafa ver- ið að styrkja sig í blóðsöfnun síðustu árin,“ sagði Sveinn. „Ef við lítum á Norðausturland og Austfirði sem sama upptökusvæði og Akureyri þá má gera ráð fyrir 2.500-3.000 ein- ingum af blóði árlega á því landsvæði. Með tveimur bílum opnast mögu- leikar á að safna meira en helmingi blóðs í Blóðbankabílunum. Það verð- ur hagkvæmara fyrir þjóðfélagið að Blóðbankinn komi til fólksins, í stað þess að fólkið þurfi allt að koma í Blóðbankann. Þetta mun kalla á bætta mönnun en verður hagkvæmt á þjóðarvísu. Við þurfum að gefa fleirum tækifæri til að gefa blóð.“ Undanfarin ár hefur Blóðbanka- bíllinn farið í 90-100 ferðir á ári. Heimsóknir blóðgjafa í bílinn hafa verið 1.000-1.500 á ári á þeim svæðum sem ekki var hægt að heimsækja í Covid-faraldrinum. Með því besta í Evrópu Sveinn sagði að mikilvægur árang- ur hefði náðst á síðustu 13 árum með öflugu samstarfi Blóðbankans og klínískra lækna á heilbrigðisstofn- unum. Blóðhlutanotkun á hverja 1.000 íbúa hér er með því besta sem þekkist í Evrópu. Það er mælikvarði á að blóð sé einungis notað þegar þess er þörf. Því hefur tekist að minnka notkun rauðkorna á Íslandi og jafnframt að draga úr blóðsöfnun. Þjónusta Blóðbankans er á lands- vísu. Það á bæði við um söfnun blóðs og einnig að tryggja öryggisbirgðir af rauðkornum á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Markvisst hefur verið unnið að þeim málum í samvinnu við heimamenn á hverjum stað til að hafa viðbúnað ef skyndilega skapast þörf á blóði, t.d. vegna sjúkdóma eða slysa. Sveinn segir mjög mikilvægt að góðar blóðbirgðir séu tiltækar á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofn- unum sem víðast ef skyndilega sjúk- dóma eða slys ber að höndum. Þá sannist oft að blóðgjöf sé lífgjöf. Komið að endurnýjun bílsins - Blóðbankabíllinn er 19 ára - Bilanir orðnar tíðar - Æskilegt að hafa tvo bíla Ljósmynd/Blóðbankinn Blóðbankabíllinn Hann er orðinn 19 ára og mikil þörf á endurnýjun. Söfnun blóðbankabílsins 2003-2019 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 Fjöldi safnaðra eininga Fjöldi nýrra blóðgjafa '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 1.191 1.844 1.959 2.408 2.0982.180 2.3532.353 2.173 2.034 2.167 2.150 1.855 2.146 1.747 1.944 1.813 Heimild: Blóðbankinn 838 1.238 1.120 866 639 1.028 567 1.087 686 ÞAÐ ER LANDSBANKI NÝRRA TÍMA Fyrirtækið þitt getur stofnað til viðskipta á örfáum mínútum í Landsbankaappinu. Þannig færðu strax betri yfirsýn yfir fjár- mál fyrirtækisins og reksturinn, hvar sem þú ert. Það tekur örfáar mínútur að koma í viðskipti í appinu LANDSBANKINN. IS Hafsteinn og Karitas Eigendur HAF Studio Verð á áli í kauphöllinni með málma í London (LME) fór yfir 2.900 banda- ríkjadali tonnið í gær og hefur ekki verið jafn hátt síðan í ársbyrjun 2008. Þá var það ríflega 2.000 dalir tonnið í byrjun ársins og hefur því hækkað um 45% á árinu. Sérfræðingur á álmarkaði sagði mikla eftirspurn eina meginskýr- inguna á hækkandi álverði. Þá hefði valdarán í Gíneu haft áhrif en það sé annar stærsti framleiðandi heims á báxíti, sem er notað við álframleiðslu. Viðkomandi sérfræðingur bendir á að íslensku álverin framleiði samtals 850 þúsund tonn af áli á ári. Því skili hverjir 100 dalir í verð- hækkun samtals um 85 milljónum dala í auknar tekjur hjá álverunum. Það samsvarar 11 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Orku- fyrirtæki landsins hafa einnig hag af hækkandi álverði þar sem stærstu rafmagnssamningar Landsvirkjunar, Orkuveitunnar og HS Orku eru með áltengingu. baldura@mbl.is Álverð rýkur upp Álverð frá 1. jan.2019 Heimsmarkaðsverð, $/tonn 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 Heimild: LME.com 1. jan.'19 10. sept.'21 2.925,0 1.910,0 - 45% hækkun í ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.