Morgunblaðið - 11.09.2021, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
Framkvæmdastjóri
Eignastýringar og miðlunar
Eignastýring og miðlun býður upp á heildstæða
#árfestingarþjónustu, m.a. eignastýringu, einkabanka-
þjónustu, miðlun verðbréfa, gjaldeyris og afleiðna.
Stefna okkar er að veita faglega og trausta þjónustu
með sjónarmið um ábyrgar #árfestingar að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á vinnvinn.is
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Hilmar G. Hjaltason,
hilmar@vinnvinn.is og Auður Bjarnadóttir,
audur@vinnvinn.is. Umsóknir óskast útfylltar
á vinnvinn.is. Umsóknarfrestur er til og með
18. september.
Landsbankinn leitar að öflugum og framsýnum einstaklingi sem vill ganga til liðs við kra!mikinn hóp starfsfólks
bankans. Við viljum liðsfélaga sem hefur brennandi áhuga á að móta nýja tíma í #ármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og
einstaklinga, þar sem ánægðir viðskiptavinir, stöðug framför og árangur skipta máli.
LANDSBANKINN. IS
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) auglýsir laust starf rannsóknarstjóra á sjóslysa-
sviði með starfsstöð í Reykjavík.
Hjá nefndinni starfa 7 manns við rannsóknar- og skrifstofustörf. Nefndarmenn ásamt
varamönnum og formanni eru 13 talsins.
Viðkomandi verður því hluti af öflugu 20 manna teymi Rannsóknarnefndar samgönguslysa.
Teymið vinnur meðal annars að rannsókn og skýrslugerð um samgönguslys. Tilgangur með
rannsóknum sjóslysa er að auka og efla öryggi til sjós.
Verkefni:
Starf rannsóknarstjóra ásamt rannsóknum er að bera ábyrgð á og stýra rannsóknum og
skýrslugerð ein-stakra sjóslysa eða sjóatvika þar með talið vettvangsrannsóknum. Starfs-
menn á sjósviði eru tveir og sinnir rannsóknarstjóri einnig bakvöktum.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Hafa lokið námi í skipstjórn og vera handhafi atvinnuskírteinis fyrir ótakmörkuð réttindi.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg.
• Gott vald á mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku.
• Góða tölvukunnáttu og reynslu af notkun algengustu hugbúnaðarforrita.
• Hafa reynslu af sjómennsku á fiskiskipum og flutningaskipum.
• Þekkja til reglna og laga sem gilda um öryggi skipa og öryggisbúnaðar þeirra.
• Jákvætt viðmót og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að starfa sjálfstætt, sem og í hópi.
• Geta stafað við erfiðar aðstæður á slysavettvangi.
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum við ríkissjóð. Starfshlutfall er 100%.
Umsókn þarf að fylgja ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
RNSA er stofnun óháð stjórnvöldum og öðrum rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dóm-
stólum. Markmið RNSA er að fækka slysum og auka öryggi og skulu rannsóknir eingöngu
miða að því að leiða í ljós orsakir slysa og atvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með
það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum
sambærilegra slysa. RNSA starfar samkvæmt ákvæðum laga um rannsókn samgönguslysa
nr. 18/2013 og reglugerðar nr. 763/2013.
Gildi RNSA eru Sjálfstæði – Fagmennska - Öryggi
Umsóknarfrestur er til og með 17. september 2021.
Nánari upplýsingar veitir
Þorkell Ágústsson rekstrarstjóri (thorkell.agustsson@RNSA.is).
Umsækjandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. janúar 2022.
Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir skal senda til Rannsóknarnefndar samgönguslysa á netfangið
thorkell.agustsson@RNSA.is
Rannsóknarstjóri hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa - sjósvið