Morgunblaðið - 13.09.2021, Side 25

Morgunblaðið - 13.09.2021, Side 25
Viktori Sveinbjörnssyni, f. 16.12. 1993. Áður átti Magnús með fv. eigin- konu sinni, Margréti Sigríði Páls- dóttur, f. 3.6. 1941: 1) Björn, f. 18.9. 1966. Hann á börnin Árna Guðjón, f. 9.12. 1986, Magnús Má, f. 11.9. 1989, d. 28.1. 1991; Sigfús Má, f. 24.11. 1991, og Jórunni Sóleyju, f. 18.11. 1993. 2) Sigfús, f. 8.5. 1968, d. 10.1. 1970; 3) Einar, f. 21.12. 1970, kvæntur Áslaugu Jónsdóttur, f. 19.5. 1967 og þau eiga soninn Tómas Pál, f. 25.9. 2000. 4) Jórunni, f. 7.12. 1972, gift Hauki Þór Bragasyni, f. 5.5.1969. Þau eiga börnin Margréti Lilju, f. 16.7. 2003, og Rósalind, f. 4.12. 2007. Bróð- ir Magnúsar sammæðra er Baldur Dan Alfreðsson, f. 10.1. 1935, d. 18.4. 2013. Systkini Magnúsar samfeðra eru Sigurður Jónsson, f. 20.6. 1941; Páll Gústaf, f. 27.10. 1943; Kristín, f. 26.3. 1946, d. 12.3. 2013; Margrét, f. 12.9. 1948, d. 23.9. 2020; Guðmundur Teitur, f. 5.3. 1950, og Helga Rúna, f. 17.6. 1958. Foreldrar Magnúsar voru Þóra Birna Brynjólfsdóttir, konfektgerð- arkona, f. 20.3. 1913, d. 30.10. 2005, og Gústaf Elí Pálsson, borgarverkfræð- ingur, f. 20.1. 1907, d. 30.7. 1977. Magnús Gústafsson Matthildur Guðmundsdóttir bústýra í Eystri-Tungu, Prest- bakkasókn,V-Skaft., síðar á Fossi í sömu sókn Bjarni Björnsson vinnumaður víða eða húsmaður Guðný Bjarnadóttir vinnu- og ráðskona víða, m.a. í Vestmannaeyjum, á Seyðisfirði og Mosfellssveit Brynjólfur Eiríksson verkstjóri á Seyðisfirði Þóra Birna Brynjólfsdóttir konfektgerðarkona, stofnandi og eigandi sælgætisgerðarinnar Aladíns, síðar starfsmaður Raforkumálastofnunar í Reykjavík Jónína Þuríður Jónsdóttir húsfr. í Hnefilsdal í Jökuldalshr. og á Áslaugarstöðum í Vopnafirði Eiríkur Þorsteinsson bóndi í Hnefilsdal í Jökuldalshr. og á Áslaugarstöðum í Vopnafirði Gyðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Ytri-Skógum, Eyvindarhólasókn, Rang. Oddur Sveinsson bóndi í Ytri-Skógum, Eyvindarhólasókn, Rang. Margrét Oddsdóttir húsfreyja í Ytri-Skógum, Eyvindarhólasókn, Rang. Páll Bárðarson bóndi í Ytri-Skógum, Eyvindarhólasókn, Rang. Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja á Raufarfelli undir A-Eyjafjöllum Bárður Pálsson b. á Raufarfelli undir A-Eyjafjöll- um, drukknaði við Eyjafjallasand í lendingu úr fiskiróðri Úr frændgarði Magnúsar Gústafssonar Gústaf Elí Pálsson borgarverkfræðingur í Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HASKAÐU ÞÉR MEÐ MOKKASÍNURNAR! HANN ER AÐ REYNA AÐ FARA!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að bíða og vona. ÞETTA ER NÆGUR SVEFN BÍDDU, BEST AÐ VERA ALVEG VISS NÚ ER VETUR EN SUMARIÐ KEMUR ÁÐUR EN ÞÚ VEIST AF! MAÐUR TEKUR NÚ BARA SVONA TIL ORÐA! „HVAÐ ER NÚ AÐ? VARST ÞAÐ EKKI ÞÚ SEM VILDIR DÚNMJÚKA STEIK?“ Lausn sinni á laugardagsgátunni lét Helgi R. Einarsson þennan texta fylgja um ferð sína til Ítalíu á dögunum: „Eitt af því sem við af- rekuðum í ferðinni var að fara til Veróna í Arenuna og hlýða á Aidu eftir Verdi, þriggja tíma verk sem endar með ósköpum, enda tvær að berjast um ástir sama mannsins. Þarna gafst tími til að leggja hausinn í bleyti. Aida Þótt herji á heiminn kóróna við hlýðum á fegurstu tóna, sem hlustendur æra og unaðsstund færa. Aidu, suðr í Veróna. En hér elskendur tölunni týna, því tryggð virðist kvöl bæði’ og pína. Því sæll héðan fer og sáttur mjög er með konu’ eins og konuna mína. Á boðnarmiði fylgist Jón Atli Ját- varðsson með Skaftárhlaupi og ár- angur metinn: Komu til skjalanna katlarnir tveir kaffærðu hraun og mel. Hlaupvatnið gjafmilda lagði til leir og landmótun gengur vel. Hólmfríður Bjartmarsdóttir sagði á fimmtudag: „Í gær skein ekki sól“: Komin rigning köld og hrá kælir á mér trýnið Nú væri fegri sjón að sjá sólina skína á vínið. Sigurlín Hermannsdóttir yrkir um „litlu hjónin“: Lágvaxin lít ég þar hjón lífshlaupið þeirra tómt tjón við hvort annað kljást og kulnuð öll ást ég kenni hér Gunnu og Jón. Þorgeir Magnússon yrkir: Hægum skrefum haustið rauða hingað lammar sig, færir okkur föllin sauða feit og guðdómlig. Hallmundur Guðmundsson yrkir um „Hlaup“: Nú jöklarnir safna í sjóði, sulli og miklum viðbjóði. Ef sullast burt sullið þá sjáum við bullið – og heyrum í fjölmiðlaflóði. Á mánudag skrifaði Jón Atli Ját- varðarson: „Málin til umræðu. (Hefnd=hemd)“: Upphaf ferlisins; hugað að hefnd, höfundur ritar í sand. Einhver kemur með athugasemd, annar dregur í land. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frá Ítalíuför og Skaftárhlaup

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.